Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.2010, Page 12
12 MIÐVIKUDAGUR 14. apríl 2010
VERSTA RÍKISSTJÓRN
ÍSLANDSSÖGUNNAR
ÁRNI MATHIESEN
Staða: Fjármálaráðherra.
Umsögn nefndar: Vanræksla í starfi með því að hafa ekki brugðist við
yfirvofandi hættu fyrir íslenskt efnahagslíf í aðdraganda bankahrunsins.
Í skýrslunni segir að stöðu sinnar vegna hafi hann farið með mál sem
vörðuðu fjármál ríkisins að því leyti sem þau voru ekki fengin öðrum
aðilum. Fjármálaráðuneytið átti aðild að samráðshópi stjórnvalda um
fjármálastöðugleika og viðbúnað. Hann hafði í meginatriðum upplýsingar
um framvindu og áherslur hópsins. Nefndin telur hinar alvarlegu upplýs-
ingar um stöðu og horfur í bankamálum, sem hann hafði, hafa átt að gefa
honum fullt tilefni til að hafa frumkvæði að því að ljá því atbeina sinn að
ríkisvaldið myndi bregðast við með sérstökum aðgerðum. Hann átti einnig
að stuðla að því að aðrir ráðherrar fengju upplýsingar og hafa frumkvæði
að því að hann eða aðrir ráðherrar ynnu heildstæða greiningu á stöðunni.
„Enn fremur verður að telja að ráðherrum hafi borið að byggja yfirlýsingar
sem þeir kusu að gefa opinberlega um stuðning ríkisins við bankana, óháð
orðalagi þeirra eða tilgangi í sjálfum sér, á traustum grundvelli.“
Þá segir að engin gögn séu til sem bendi til þess að hann hafi ráðist í gerð
viðbúnaðar- og aðgerðaáætlunar, af því tagi sem Seðlabanki taldi þörf á.
Ummæli: „Já, hann var náttúrlega bara alveg skelfilegur og það lá við að
maður hringdi heim til þess bara að biðja konuna að fara út og kaupa
mjólk, svo það yrði örugglega til mjólk í ísskápnum.“ – Árni um fund
ríkisstjórnarinnar með Davíð Oddssyni.
„Og verstur var Björgólfur [Thor Björgólfsson] [...] og hann var að ljúga að
hinum líka og þeir komu svo bara um kvöldið og sögðu „Það er ekkert að
marka það sem þessi maður segir.“ – Árni segir Björgólf Thor hafa verið
lygara.
Afdrif: Hætti í stjórnmálum 2009 og fór að starfa sem dýralæknir.
Bíður þess hvort landsdómur verði kallaður saman til þess að fjalla um
vanrækslu hans í starfi.
GUÐLAUGUR ÞÓR ÞÓRÐARSON
Staða: Heilbrigðisráðherra.
Afdrif: Endurkjörinn á Alþingi vorið 2009.
Skýrslan: Hafði milligöngu um að afla
tugmilljóna styrkja fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn frá stórfyrirtækjum og bönkum
áður en hann tók sæti í ríkisstjórn. Missti
heilbrigðisráðherrastólinn til Ögmundar
Jónassonar eftir að stjórnin féll.
ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON
Staða: Iðnaðarráðherra.
Afdrif: Endurkjörinn á Alþingi 2009
og skipaður utanríkisráðherra í
ríkisstjórn Samfylkingar og vinstri
grænna.
Ummæli: „Og frá því er skemmst
að segja að hann nánast skalf og
nötraði. Hann sagði: „Þú getur ekki
gert mér þetta. Ég get ekki farið
þarna upp og sagt þetta við Davíð.“
– Össur lýsir samskiptum sínum við
Geir H. Haarde.
„Ég stóð allsber í búningsklefanum
í World Class, var að fara í gufubað
á sunnudegi og var að halda mér
sérstaklega til því að ég var í fyrsta
skipti á ævinni að fara til klæðskera.
Og leit á símann minn í fötunum
áður en ég fór í gufuna og þá sá ég
bara að þar voru ógeðslega mörg
símtöl og sms frá Einari Karli sem var
staddur í Glasgow og sagði að það
væru allir að leita að mér.“
Í skýrslu rannsóknarnefndar
Alþingis lýsti hann þekkingu sinni á
efnahagsmálum: „Akkúrat ekkert vit
á bankamálum“, „hvorki áhuga né vit
á þessu“, og „ég var þarna náttúrlega
eins og fiskur sem stokkið hefur upp
á grasbala“.
„[...] ég er enn á lífi í pólitík af því að
ég er svolítið „paranoid“ í nasavængj-
unum, ég taldi sem sagt að þetta
væri valdarán Davíðs Oddssonar [...]“
KRISTJÁN MÖLLER
Staða: Samgönguráðherra.
Afdrif: Endurkjörinn á
Alþingi 2009 og hélt áfram
sem samgönguráðherra.
JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR
Staða: Félagsmálaráðherra.
Afdrif: Kjörin formaður Samfylking-
arinnar og forsætisráðherra í febrúar
2009.
Ummæli: „Hann kom algjörlega af
fjöllum og alveg ljóst að hann vissi
ekkert í þessu máli,“ sagði Jóhanna
við rannsóknarnefnd Alþingis um
þekkingu Björgvins G. Sigurðssonar
þegar Glitnir féll.
INGIBJÖRG SÓLRÚN GÍSLADÓTTIR
Staða: Utanríkisráðherra.
Afdrif: Sagði af sér sem ráðherra og formaður Samfylkingarinnar vegna
veikinda. Fundaði marg oft um efnahagsmál án þess að hafa Björgvin G.
Sigurðsson með í ráðum.
Sekt: Rannsóknarnefnd Alþingis taldi hana ekki hafa sýnt vanrækslu í starfi,
þar sem utanríkisráðherra ber ekki formlega ábyrgð á efnahagsmálum.
Ummæli: „Hér er engin kreppa,“ var haft eftir Ingibjörgu Sólrúnu haustið
2008, aðeins nokkrum vikum fyrir fall bankanna.
„Keep it under wraps.“ – Ingibjörg vildi ekki upplýsa Björgvin G. um að Glitnir
væri að falla.
GEIR H. HAARDE
Staða: Forsætisráðherra.
Sekt: „Átti að hafa frumkvæði að því, annaðhvort með eigin aðgerðum eða
með tillögu um það til ráðherra, að innan stjórnkerfisins væri unnin heildstæð
og fagleg greining á fjárhagslegri áhættu sem ríkið stóð frammi fyir vegna
hættu á fjármálafalli,“ að því er segir í skýrslunni. Rannsóknarnefndin telur að
hann hafi í síðasta lagi á bilinu 7. febrúar til 15. maí 2008 átt að hafa nægilegar
upplýsingar til þess að gera sér grein fyrir því að ríkir almannahagsmunir knúðu
á um að hann hefði þegar frumkvæði að aðgerðum og með lagasetningu til að
draga úr stærð bankanna. Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að hann hefði sýnt
vanrækslu í starfi með því að bregðast ekki við hættunni.
Afdrif: Ríkisstjórn Geirs féll eftir búsáhaldabyltinguna. Sagði af sér þingmennsku
í kjölfar veikinda vorið 2009. Bíður þess hvort landsdómur verði kallaður saman
til þess að dæma í hans málum.
Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður
Samfylkingarinnar, segir ekki af sér
þingmennsku í kjölfar þess að rann-
sóknarnefnd Alþingis komst að þeirri
niðurstöðu að hann hefði sýnt af sér
vanrækslu í starfi sem viðskiptaráð-
herra í aðdraganda bankahrunsins.
Á mánudag sagði hann af sér sem
þingflokksformaður Samfylkingar-
innar en hann telur enga ástæðu til
að hætta á þingi.
Björgvin var einn þeirra sjö sem
rannsóknarnefnd Alþingis telur að
hafi gerst sekir um vanrækslu í starfi
í aðdraganda bankahrunsins. Af
þremur ráðherrum í þeim hópi er
hann sá eini sem enn situr á þingi en
það ætlar hann líka að gera áfram.
Aðspurður á mánudag þvertók hann
fyrir að nokkur ástæða væri fyrir
hann að segja af sér þingmennsku.
Engu að síður lítur hann ásakan-
ir rannsóknarnefndarinnar alvarleg-
um augum og hefur farið fram á að
landsdómur verðir kallaður saman
til að taka á vanræksluásökunum á
hendur ráðherrum.
Það er mjög áberandi þegar
skýrsla rannsóknarnefndar Alþing-
is er lesin að Björgvini var algjör-
lega haldið utan við atburðarás síð-
ustu daganna fyrir bankahrunið.
Það kemur fram í fjölda vitnisburða,
hvort sem er frá samráðherrum hans
eða stjórnendum bankanna. Þrátt
fyrir að nefndin hafi komist að þeirri
niðurstöðu að viðskiptaráðherrann
hafi sýnt af sér vanrækslu í starfi hef-
ur formaður hennar, Páll Hreinsson,
gagnrýnt harðlega hvernig Björgvini
var haldið utan við stórar ákvarðanir
sem sneru að bankamálum. Geir H.
Haarde, þáverandi forsætisráðherra,
segist eftir á að hyggja betur hefðu
haft ráðherra bankamála betur inni
í málunum en að það hafi verið for-
maður Samfylkingarinnar sem ekki
hafi viljað hóa í viðskiptaráðherrann.
trausti@dv.is
Björgvin G. Sigurðsson sýndi af sér vanrækslu í starfi sem viðskiptaráðherra í aðdraganda hrunsins:
Björgvin situr áfram
Í myrkrinu Björgvin var alfarið haldið í
myrkrinu síðustu daga fyrir bankahrunið
en hann er sakaður um vanrækslu í starfi
sínu sem viðskiptaráðherra.