Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.2010, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 14. apríl 2010
Nafn Bjarna Benediktssonar, núver-
andi formanns Sjálfstæðisflokks-
ins, kemur fyrir á nokkrum stöðum í
skýrslu rannsóknarnefndar Alþing-
is. Bjarni var þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins á árunum fyrir bankahrun-
ið en var auk þess stjórnarformaður í
eignarhaldsfélaginu BNT, móðurfélagi
N1, sem var einn af stærri skuldurum
Glitnis samkvæmt skýrslunni.
Minnst er á nafn Bjarna vegna golf-
ferðar til Skotlands í einkaþotu Glitn-
is í september árið 2007, eins vegna
fundar í höfuðstöðvum eignarhalds-
félagsins Stoða, áður FL Group, í að-
draganda bankahrunsins um haustið
2008 og vegna skulda í íslenska banka-
kerfinu sem námu 174 milljónum
króna í ársbyrjun 2008. Líkast til hefur
Bjarni farið til Skotlands sem stjórn-
arformaður N1 en hann var jafnframt
eini stjórnmálamaðurinn sem fannst
nafngreindur á þotulistunum sem
rannsóknarnefndin athugaði vegna
skýrslunnar. Illugi Gunnarsson, þing-
maður Sjálfstæðisflokksins, segir að
hann, Kristján Júlíusson og Bjarni hafi
farið á fund með Þorsteini Má Bald-
vinssyni í húsakynnum Stoða til að
ræða við hann um yfirtöku íslenska
ríkisins á bankanum. Illugi segir hins
vegar að þremenningarnir hafi ekkert
skipt sér af atburðarásinni sem leiddi
til yfirtökunnar.
En Bjarni tengist einnig öðrum at-
riðum sem talað er um í skýrslunni, án
þess að vitnað sé til nafns hans sérstak-
lega.
Mikið rætt um Vafning
Þannig er í skýrslunni rætt ítarlega um
Vafningsmálið svokallaða sem sner-
ist um lánveitingar frá Glitni til tveggja
félaga, Vafnings og Svartháfs, upp á
um 30 milljarða króna. Þaðan runnu
peningarnir frá Glitni til bandaríska
fjárfestingabankans Morgan Stanley
til að greiða upp lán sem Þáttur Inter-
national hafði stofnað til við bankann.
Þáttur International var í eigu Karls
og Steingríms Wernerssona og föð-
ur Bjarna, Benedikts, og föðurbróður
hans, Einars, sem áttu 25 prósenta hlut
í félaginu. Tilgangurinn var að bjarga
7 prósentum Þáttar International frá
veðkalli Morgan Stanley.
DV hefur fjallað töluvert um Vafn-
ingsmálið síðustu mánuði og rennir
skýrsla rannsóknarnefndarinnar stoð-
um undir þá túlkun DV að Vafnings-
viðskiptin hafi verið óeðlileg: Opinber
aðili hefur ekki áður fjallað um þessi
Vafningsviðskipti. Líkt og komið hefur
fram í DV, og skjalið sem fylgir þessari
umfjöllun sýnir, tók Bjarni Benedikts-
son beinan þátt í Vafningsviðskiptun-
um með því að veðsetja hlutabréf föð-
ur síns og föðurbróður í Vafningi 8.
febrúar en þann lauk þeim fresti sem
Morgan Stanley hafði veitt Þætti Inter-
national til að endurfjármagna lánið.
Glitnir taldi Svartháf ekki
venslaðan Milestone
Í skýrslunni segir um Vafningsfléttuna:
„Svartháfur ehf. (áður Gleypnir ehf. og
þar áður ELL 150 ehf.) var stofnaður til
að taka yfir fjármögnun Þáttar Inter-
national ehf,“ en félagið var í eigu föð-
ur Karls og Steingríms, Werners Rasm-
ussonar. Athygli vekur sú staðhæfing
skýrsluhöfundar að Glitnir hafi ekki
litið á Svartháf sem aðila venslaðan
Mile stone, jafnvel þó að faðir þeirra
Karls og Steingríms hafi einungis átt
félagið til málamynda til að miðla til
þeirra peningum svo þeir gætu staðið
í skilum við Morgan Stanley.
Um þetta atriði segir í ályktun í
skýrslunni: „Starfsmenn Glitnis virðast
hafa hagað þessum lánveitingum með
það í huga að þær kæmu ekki fram hjá
raunverulegum lántaka, Milestone,
því Milestone-samstæðan var fyrir
með mjög háa skuldastöðu við bank-
ann. Þess í stað voru lánin veitt til ný-
stofnaðra einkahlutafélaga sem voru í
eigu aðila sem tengjast Milestone með
óbeinum hætti, líklega til þess að hægt
væri að halda þessum lánveitingum
utan samstæðu Milestone í uppgjör-
um vegna útreiknings á áhættugrunni
útlána gagnvart eigin fé bankans. Ljóst
er að Glitnir vissi að fyrirtækið var
undir stjórn Milestone, sbr. það sem
fram kemur í fundargerð lánanefndar
hér að ofan.“
Af þessari ályktun að dæma er það
skilningur rannsóknarnefndar Alþing-
is að starfsmenn Glitnis og eigendur
Milestone og Þáttar International hafi
með þessum lánveitingum til Svart-
háfs og Vafnings vísvitandi farið á svig
við útlánareglur bankans til að vernda
eigin hagsmuni: Hlutabréfin í Glitni.
„Þurfum að lána“
Í skýrslu rannsóknarnefndar er þessi
niðurstaða meðal annars studd með
því að vísa til fundargerðar lánanefnd-
ar bankans þar sem rætt er um þess-
ar lánveitingar til Milestone og tengdra
félaga: „Þáttur International ehf. er
með lán vegna fjármögnunar á GLB
hlutum hjá Morgan Stanley (MOS)
og Racon, eigandi Invik, er með brú-
arfjármögnun vegna kaupanna á In-
vik. Bæði þessi lán eru í uppnámi um
þessar mundir. LAIS [Innskot blaða-
manns: Landsbanki Íslands] ætlar
ekki að koma með neitt inn í dealinn
sem þýðir að við þurfum að lána ca
EUR 180 m núna til viðbótar við EUR
102 m sem við lánuðum 8. feb. sl,“ seg-
ir í fundargerð lánanefndarinnar en
það var einmitt vegna þessa láns frá 8.
febrúar sem Bjarni Benediktsson veð-
setti hlutabréf föður síns og frænda í
Vafningi.
Lánanefndin hefur því skilið stöð-
una sem svo að Glitnir þyrfti að lána
Þætti International til að bjarga hluta-
bréfum félagsins frá veðkalli Morgan
Stanley. Ef Morgan Stanley hefði eign-
ast 7 prósenta hlut Þáttar í Glitni hefði
það getað leitt til mikillar lækkunar á
hlutabréfaverði í bankanum sem aft-
ur hefði leitt til taps fyrir aðra hluthafa
bankans. Glitnir hefur því litið svo á að
bankinn yrði að lána Þætti með ein-
hverjum hætti. Sú staðreynd að Svart-
háfur var ekki skilgreindur sem tengd-
ur aðili leiddi hins vegar til þess að
Svartháfslánið var áhættusamara fyr-
ir Glitni en ella og var í raun 30 millj-
arða viðbót við rúmlega 90 milljarða
lán til Milestone. Þetta jók vitanlega á
þá áhættu sem Glitnir tók með því að
lána Vafningi og Svartháfi til að end-
urfjármagna lánið frá Morgan Stanley.
Skýr brot
Lokaniðurstaðan í skýrslu rannsókn-
arnefndarinnar um Vafningsmálið er
sú að lánveitingin til Svartháfs til að
greiða Morgan Stanley upp skuld Þátt-
ar International verði að flokkast sem
skýrt brot á reglum um lán til tengdra
aðila þar sem Milestone hafi í raun og
veru verið leppur.
Um þetta segir í skýrslunni: „Hér
er um að ræða skýr brot á reglum um
lán til tengdra aðila. Í raun hafði Glitnir
í sjónhendingu afhent um 6,8% eigna
sinna og án þess að tilkynna það opin-
berlega!,“ en lánið til Svartháfs nam eitt
og sér um 6,8 prósentum af eiginfjár-
grunni bankans.
Ástæðan fyrir því að þetta er brot er
að með lánveitingunni til Svartháfs var
áhætta Glitnis af lánum til Milestone
og tengdra félaga orðin miklu hærri en
25 prósent en áhætta eins félags eða
tengdra aðila má aldrei fara yfir þessa
tölu samkvæmt íslenskri bankalög-
gjöf. Með láninu til Svartháfs var þessi
áhætta vegna Milestone-samstæð-
unnar komin upp í um 36 prósent.
Vafningsviðskiptin styðja því eftir-
farandi fullyrðingu sem kemur fram
í skýrslu rannsóknarnefndarinnar:
„Ekki virðist leika nokkur vafi á því
að bankarnir hafi, löngu fyrir sept-
ember 2008, gerst brotlegir við eitt
helsta grundvallarákvæði bankalög-
gjafarinnar, að skuldbindingar (eða
tengd áhætta) eins eða fleiri innbyrð-
is tengdra viðskiptamanna megi aldrei
vera umfram 25% af áhættugrunni
banka (CAD),“ en með
lánveitingunni til Svart-
háfs var farið á svig við
þessa reglu með því að
líta ekki á Svartháf sem
tengdan aðila.
Bjarni fordæmir
bankana
Af þessari umræðu
sést, svo ekki verður um
villst, að Bjarni Bene-
diktsson tók þátt í við-
skiptum þar sem þar
sem farið var á svig við
þessar reglur Glitnis og
með því tók hann þátt
í því að veikja stöðu
bankans. „Rannsóknar-
nefndin telur því að það
hefði átt að vera mark-
mið stjórnenda bank-
anna og áhættustýring-
ar þeirra að leyfa ekki
einstökum áhættuskuld-
bindingum að verða of
stórar. Þess í stað sjást
þess merki að bank-
Það verður ekki fram hjá því litið að í skýrslunni koma fram sterkar vísbendingar
um að eigendur þeirra hafi misnotað aðstöðu sína
gróflega í eigin þágu.
Rannsóknarnefnd Alþingis ræðir í skýrslu sinni um nokkur mál sem tengjast Bjarna
Benediktssyni, formanni Sjálfstæðisflokksins. Rætt er ítarlega um lánveitingar Glitn-
is til Svartháfs og Vafnings til að endurfjármagna félag í eigu fjölskyldu Bjarna. Farið
er hörðum orðum um lán Glitnis og þau sögð brot á reglum um lánveitingar til tengdra
aðila. Bjarni tók þátt í Vafningsviðskiptunum en fordæmir bankana á sama tíma.
BJARNI TÓK ÞÁTT Í BROTI
Bjarni Benediktsson í skýrslu Rannsóknarnefndarinnar.
1. Tók þátt í viðskiptum eigarhaldsfélagsins Vafnings þar sem milljarðar voru
fengnir að láni hjá Glitni í febrúar 2008 til að endurgreiða erlend lán. Bjarni
veðsetti hlutabréf föður síns og frænda í Vafningi hjá Glitni. Í skýrslunni er komist
svo að orði að þessi viðskipti hafi verulega aukið „samþjöppunaráhættu“ innan
bankanna.
2. Félag sem Bjarni stýrði og var í eigu fjölskyldu hans, BNT, móðurfélag
olíufélagsins N1, var tólfti stærsti skuldari Glitnis, samkvæmt rannsóknarskýrsl-
unni. Fjölskylda Bjarna átti hlut í Glitni með Milestone-mönnum í gegnum Þátt
International. Bjarni hætti sem stjórnarformaður N1 og BNT eftir bankahrunið í
desember 2008.
3. Bjarni var eini stjórnmálamaðurinn sem flaug með einkaþotum íslensku
bankanna og auðmannanna, samkvæmt því sem kemur fram í siðfræðihluta
skýrslunnar. Bjarni flaug með Glitnismönnum til Skotlands í golf í september
2007. Hermann Guðmundsson, forstjóri N1, var einnig með í för.
4. Bjarni sat fund í höfuðstöðvum Stoða, áður FL Group, í höfuðstöðvum félagsins
í lok september 2008, daginn fyrir yfirtöku Glitnis. Þar var rætt um slæma stöðu
Glitnis og hvernig hið opinbera ætlaði að bregðast við henni. Ekki er vitað af
hverju Bjarni var á fundinum en þar voru auk þess Jón Ásgeir Jóhannesson,
Þorsteinn Már Baldvinsson, Illugi Gunnarsson, Björgvin G. Sigurðsson og Jón
Sigurðsson, á mismunandi tímapunktum þennan dag.
5. Bjarni er á lista í skýrslunni yfir þá stjórnmálamenn sem skulduðu hvað mest
í íslenska bankakerfinu á árunum fyrir hrun. Hann skuldaði 174 milljónir króna í
ársbyrjun 2008. Bjarni segist hafa greitt þessar skuldir að fullu.
BJARNI Í SKÝRSLUNNI
INGI F. VILHJÁLMSSON
blaðamaður skrifar: ingi@dv.is
n Í skýrslu Rannsóknarnefndarinnar eru tilvitnanir í Davíð Oddsson þar sem hann
ræðir um Tryggva Þór Herbertsson, efnahagsráðgjafa ríkisstjórnarinnar og fyrrver-
andi forstjóra Askar Capital, og tengsl hans við Milestone-samstæðuna. „Hann
[Innskot blaðamanns: Tryggvi Þór Herbertsson] var gerandi með Milestone-
mönnum í fullt af hlutum og átti að koma aftur til baka í þessa starfsemi. Mér
fannst þetta allt saman mjög óþægilegt [...] og þegar var búið að segja mér þarna
áður af mínum starfsmönnum að hann væri hringjandi út að lýsa við „kontakta“
sína í farsíma hvað við værum að ræða þarna inni, þá fannst mér það algjörlega
forkastanlegt og undirstrika það sem ég, efasemdir mínar um það að hann gæti
komið fram sem fulltrúi forsætisráðherrans gagnvart Seðlabankanum og ætlast til
þess að við værum, sýndum honum fulla hreinskilni.“
DAVÍÐ ODDSSON Í 7. BINDI RANNSÓKNARNEFNDAR ALÞINGIS BLS. 31
TRYGGVI OG BJARNI
Veðsetti Vafning Í
skýrslu rannsóknar-
nefndar Alþingis er rætt
ítarlega um viðskipti
eignarhaldsfélagsins
Vafnings. Undirskriftir
Bjarna sjást hér þrívegis
á veðsamningunum
út af Vafningsviðskipt-
unum.