Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.2010, Qupperneq 17

Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.2010, Qupperneq 17
arnir sjálfir taki þátt í því að reyna að sniðganga reglur um stórar áhætt- ur. Þetta finnst rannsóknarnefndinni aðfinnsluvert. Fjölmörg dæmi um þetta eru nefnd í skýrslunni, eins og til dæmis lán Glitnis til Svartháfs ehf. Þetta varð til þess að auka verulega samþjöppunaráhættu innan bank- anna,“ segir í skýrslunni en tilgang- urinn með þátttöku Bjarna í viðskipt- unum var að verja þá hagsmuni sem fjölskylda hans, faðir hans og föður- bróðir, höfðu af því að bjarga Glitnis- bréfum Þáttar International frá veð- kalli Morgan Stanley. Þrátt fyrir þessa tengingu Bjarna við vafasamar lánveitingar úr íslensku bönkunum á árunum fyrir hrunið sagði hann á Alþingi á mánudag, þar sem hann ræddi um efni Rannsókn- arskýrslu Alþingis: „Mér, líkt og öllum þeim landsmönnum sem hlýddu á niðurstöður rannsóknarnefndarinnar á blaðamannafundi hennar í morgun, misbauð sú lýsing sem þar var borin á borð um framferði og framgöngu eig- enda og stjórnenda stóru viðskipta- bankanna. Það verður ekki fram hjá því litið að í skýrslunni koma fram sterkar vísbendingar um að eigendur þeirra hafi misnotað aðstöðu sína gróflega í eigin þágu og að sú framganga hafi fyrst og fremst leitt til þess að íslenska bankakerfið hrundi á endanum til grunna með öllum þeim alvarlegu af- leiðingum fyrir íslenska efnahagslífið sem við höfum síðan fengið að kynn- ast. ,“ sagði Bjarni og lýsti því jafnframt yfir að hann hefði orðið fyrir vonbrigð- um með hversu hægt hefði gengið að koma lögum yfir þá sem fóru á svig við reglur í aðdraganda hrunsins. Bjarni sjálfur tók hins vegar veg- ar þátt í þessari óstjórn bankanna þar sem hann tók þátt í og naut lánafyr- irgreiðslu sem veikti íslenska banka- kerfið og rannsóknarnefndin tekur sérstaklega til umfjöllunar og fordæm- ir. Orð Bjarna um skýrsluna - þó þau megi vitanlega til sanns vegar færa sem slík - eiga því ekki hvað síst við um hann sjálfan þar sem viðskiptin sem hann tók þátt í eru lýsandi dæmi um þá vafasömu stjórnunarhætti sem einkenndu bankanna á árunum fyrir hrunið. 14. apríl 2010 MIÐVIKUDAGUR 17 BJARNI TÓK ÞÁTT Í BROTI n „Til að greiða upp skuldir Þáttar International og Racon við Morgan Stanley voru stofnuð tvö félög sem á endanum báru heitin Svartháfur og Földungur. Svartháfur var skráður í eigu Werners Rasmussonar, föður aðaleigenda Milestone, Karls og Steingríms Wernerssona. Földungur (Vafningur) var hins vegar í eigu Milestone, Skeggja ehf. og Fjárfestingafé- lagsins Máttar ehf. í sömu hlutföllum og félögin áttu Þátt International ehf. Í febrúar 2008 lánaði Glitnir rúmlega 100 milljónir evra inn í Földung með veði í Glitnisbréfum Þáttar International og fleiri eignum. Í mars voru síðan greiddar 50 milljónir evra inn á það lán til að losa veðin af Glitnishlut- unum en þá voru Svartháfi lánaðar rúmlega 190 milljónir evra. Hluti þess láns var lánaður áfram til Þáttar International en hluti til Racon. Glitnir fékk þannig Invik banka og 7% hlut í sjálfum sér sem veð fyrir láninu.“ 2. BINDI BLS. 175-176 EINAR SVEINSSON BROT Á REGLUM UM LÁNVEITINGAR n „Þáttur International ehf. var fyrirtæki í eigu Mile- stone [Innskot blaðamanns: Og Einars og Benedikts Sveinssona] sem hafði tekið lán hjá Morgan Stanl- ey-banka til kaupa á hlutum í Glitni. Á árinu 2008 krafðist Morgan Stanley þess að lánið, að andvirði 217 milljónir evra, yrði greitt. Þá endurfjármagnaði Glitnir hlutabréfin með 190 milljóna evra láni til Svartháfs ehf. (í eigu föður Karls Wernerssonar), en fyrirtækið lánaði upphæðina áfram til Þáttar International ehf. Hér er um að ræða skýr brot á reglum um lán til tengdra aðila. Í raun hafði Glitnir í sjónhendingu afhent um 6,8% eigna sinna og án þess að tilkynna það opinberlega!“ 2. BINDI BLS. 305 KARL WERNERSSON OG GUÐMUNDUR ÓLASON Kemur víða við í skýrslunni Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokks- ins, kemur víða við í skýrslu rannsóknar- nefndar Alþingis. Hann og fjölskylda hans nutu góðs af eignarhaldi sínu í Glitni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.