Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.2010, Síða 32
Aldrei nokkurn tímann hefur bókmenntaþjóð fengið aðra eins þjóðargjöf og Íslend-ingar fá með reyfarakenndri
skýrslu rannsóknarnefndar Alþing-
is. En það vantar einn kafla í hana.
Kaflinn sem vantar er einn sá mikilvægasti og það er raunar furðulegt að hann sé ekki með. Hann fjallar um
algert lykilatriði. Hann er sálfræðileg
umfjöllun um hugarástand og sið-
ferði fólks í æðstu stjórnunarstöðum
íslensks samfélags og áhrif Davíðs
Oddssonar á það. Vísbendingar eru í
öðrum köflum um úrslitaáhrif hinn-
ar hrífandi nærveru Davíðs á atferli
ráðamanna.
Þú getur ekki gert mér þetta. Ég get ekki farið þarna upp og sagt þetta við Davíð,“ hefur Össur Skarphéðins-
son eftir Geir Haarde, sem átti að
tilkynna Davíð um að hann myndi
ekki leiða neyðarstjórn landsins.
„Ef þetta gengur ekki fram mun ég
persónulega sjá til þess að þér verði
ólíft á Íslandi það sem eftir er!“ sagði
Davíð við Tryggva Þór Herbertsson,
efnahagsráðgjafa Geirs, um skyndi-
lega þjóðnýtingu Glitnis, sem var í
eigu höfuðandstæðings Davíðs. Geir
forsætisráðherra sat frammi á með-
an, skjálfandi eins og lauf í vindi, að
sögn Davíðs.
Um áhrif Davíðs á stjórn-endur í valdastöðum á Íslandi hefur verið rætt í mörg ár. Hann hefur þótt
vera hótunargjarn og hefnigjarn,
sem eru hættulegir eiginleikar
valdamesta manns landsins. Hann
lagði til dæmis niður Þjóðhags-
stofnun, eftir að hún varð honum
ósammála. Loksins hefur fengist
staðfesting á þessu ósýnilega afli í
stjórnsýslunni, viðskiptunum og
stjórnmálunum. En staðfestingunni
var ekki fylgt eftir.
Þá lamdi ég nú fast í borðið og sagði: „Þú talar ekki svona við mig, drengur!“ sagði Davíð við rannsóknarnefnd-
ina. Þar lýsti hann samskiptum sín-
um við forstjóra Fjármálaeftirlitsins,
sem var hin stofnunin sem átti að
veita viðskiptalífinu eftirlit. Forstjór-
inn hafði sagt Davíð misskilja. Þegar
þetta var voru bankarnir komnir
að falli og skömmu síðar var Glitnir
yfirtekinn undir stjórn Davíðs, án
viðunandi athugunar á mögulegum
afleiðingum þess, samkvæmt því
sem segir í skýrslunni. Um þetta leyti
hafði Davíð seðlabankastjóri ekki
talað við bankamálaráðherrann í eitt
ár, vegna þess að þeir voru ósam-
mála um Evrópusambandið.
Hann átti það til svona í tveggja manna tali okkar að fara að rægja keppi-nauta okkar,“ sagði Hreið-
ar Már Sigurðsson, forstjóri Kaup-
þings, um Davíð. Bankastjórarnir
voru hættir að treysta seðlabanka-
stjóranum. Forsætisráðherrann var
samkvæmt mörgum frásögnum
hræddur við hann. Geir var algerlega
laus við allt frumkvæði og virtist
stöðugt bíða eftir því að Davíð tæki
af skarið. Frásögnin er eins og af kúg-
aðri eiginkonu.
Rannsóknarskýrslan bendir ekki aðeins til þess að Davíð hafi vanrækt skyldur sínar sem seðlabankastjóri, held-
ur þess að hann hafi sálfræðilegt
ægivald yfir æðstráðandi ríkisins
og öðrum. Margt bendir til þess að
samskipti hans við aðra hafi valdið
úrslitaáhrifum á hvernig fór. Það
sem vantar í skýrsluna er sálfræði-
mat á Davíð Oddssyni og félagssál-
fræðileg rannsókn á áhrifum hans
á Geir Haarde og aðra sem hann átti
samskipti við. Hún er ókláruð.
VANTAÐI Í SKÝRSLUNA
„Geir er „sorrí“ gaur.
Þjóðin kaupir Sorrí-Geir.
Hún kaupir ekki
Egó-Geir,“ segir Andrés
Jónsson almanna-
tengill. Geir H. Haarde
gekkst ekki við því,
frekar en aðrir þeir sem
sýndu vanrækslu í starfi, samkvæmt
rannsóknarskýrslu Alþingis, að hafa
brugðist. Í viðtölum eftir að skýrslan
var opinberuð sagðist Geir ekki
sammála því að hann hefði gerst
sekur um vanrækslu í starfi.
ÁTTI GEIR AÐ
SEGJA „SORRÍ“?
„Takk Meira en
nog :-).“
n Svar Magnúsar
Guðmundssonar, forstjóra
Kaupþings í Lúxemborg, við spurningu
Sigurðar Einarssonar, stjórnarformanns
Kaupþings, hvort milljón evra væri ekki nægur
bónus fyrir árið 2007. - Skýrsla rannsóknarnefnd-
ar Alþingis.
„Lalli var svona,
litið á hann sem
kannski dálítið
peð á milli
þeirra.“
n Jón Ásgeir Jóhannesson við skýrslutöku
rannsóknarskýrslunanr um Lárus Welding hafi
verið peð milli Hreiðars Más Sigurðssonar og
Sigurjóns Þ. Árnasonar. En Jón segir þá tvo varla
hafa getað verið í sama herbergi sökum
metings. - Skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis.
„...aldrei á ævi
minni verið
tekinn annað
eins í rassgatið.“
n Gestur Jónsson, lögfræðingur Jóns Ásgeirs
Jóhannessonar, í skýrslu rannsóknarnefndar
Alþingis um ummæli Þorsteins Más Baldvins-
sonar, stjórnarformanns Glitnis, er Glitnir var
tekinn yfir af ríkinu. - Skýrsla rannsóknarnefndar
Alþingis.
„Þetta er búið.“
n Sigurður Einarsson, fyrrverandi
stjórnarformaður Kaupþings, um ummæli
Kjartans Gunnarssonar þegar ljóst var í hvað
stefndi og hann spurði Sigurð hvort Kaupþing
gæti ekki tekið Landsbankann yfir. - Skýrsla
rannsóknarnefndar Alþingis.
„...ekki mínar
skuldir.“
n Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir, varaformaður
Sjálfstæðisflokksins og
fyrrverandi menntamálaráðherra, aðspurð út í
skuldir sína og eiginmanns síns Kristjáns
Arasonar. - Rás 2
Siðblindir lesa skýrsluna
Þau eru öll sek. Sekt stjórnmálamanna gerir ekki ábyrgð glæpamanna í bönkunum minni. Sekt glæpamanna í bönkunum minnkar ekki ábyrgð
stjórnmálamanna. Ábyrgð þjóðarinnar er að
losa sig við siðlaust fólk úr valdastöðum.
Viðbrögð hinna seku við rannsóknar-
skýrslunni leiða í ljós að siðleysið, einn helsti
orsakaþáttur hrunsins, er ennþá í ríkum mæli
í efstu lögum samfélagsins. Það þrífst enn inni
á Alþingi, í fjölmiðlum og í bankakerfinu.
Það segir sína sögu um hversu margt er
óunnið að blað, sem Davíð Oddsson stýrir fyr-
ir hönd hagsmunaklíku, skuli slá upp á forsíðu
þeirri takmörkuðu niðurstöðu að ábyrgðin á
hruninu sé bankanna. Honum er ekki treyst-
andi fyrir dagblaði.
Jónas Fr. Jónsson, fyrrverandi forstjóri
Fjármálaeftirlitsins, færði þær skýringar
í sjónvarpsviðtali að hann hefði staðið að
miklum umbótum innan FME og því væri
gagnrýni í skýrslunni ósanngjörn. Lög-
reglumaður sem stendur einhvern að alvar-
legu lögbroti og sleppir honum síðan, með
hörmulegum afleiðingum, er jafnsekur um
vanrækslu, þótt hann hafi gert eitthvað ann-
að rétt. Skýringar Jónasar bera vott um firr-
ingu á eigin ábyrgð og gagnrýni hans á rann-
sóknarnefndina er ósvífin. Honum er ekki
treystandi fyrir ábyrgð því hann gengst ekki
við henni.
Nánast klínísk firring birtist í tilsvör-
um Geirs H. Haarde, sem var æðstráðandi á
landinu þegar hrunið varð. Hann svelti eftir-
litsstofnanir, gerði stórkostleg mistök í hag-
stjórn sem fjármála- og forsætisráðherra,
brást ekki við ítrekuðum viðvörunum, hélt
upplýsingum frá þjóðinni allri og meira að
segja bankamálaráðherranum. Hann sat að-
gerðarlaus mánuðum saman frammi fyr-
ir þekktri hættu, en segir að svona hafi farið
vegna þess að bankarnir hafi starfað eins og
þeir gerðu undir evrópsku regluverki. Eftir út-
komu skýrslunnar á mánudag þakkaði hann
sér fyrir að hægt hefði verið að nota kreditkort
og peninga eftir hrunið. Sá sem svaf á vaktinni
sér sjálfan sig enn, á einhvern sjúklegan hátt,
sem bjargvætt.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir er enn
varaformaður Sjálfstæðisflokksins. Hún
hafði annarlega og leynda hagsmuni í bönk-
unum upp á 1,7 milljarða króna – meira en tólf
venjulegir launþegar afla á heilli starfsævi. Á
sama tíma kom hún fram af óhóflegri hörku
og fautaskap gegn gagnrýnendum bankanna.
Hún á að víkja, en siðleysi hennar og kjósenda
hennar sameinaðist í endurkjöri síðasta vor.
Skýringar Þorgerðar og fleiri af hennar toga
snúast um að þeir hafi tapað á fjárfestingunum,
og því séu þeir fórnarlömb bankahrunsins – eins
og allir aðrir! En mælikvarði á siðferðið er ekki
það sama og niðurstaðan í bókhaldi. Siðferði er
allt annað en fjárhagsleg niðurstaða og sá sem
trúir öðru gefur sterkar vísbendingar um sið-
blindu. Þetta fólk er ekki gagnrýnt fyrir að hafa
fjárfest, heldur fyrir að hafa sem kjörnir fulltrú-
ar þjóðarinnar fengið óeðlilega fyrirgreiðslu
hjá bönkunum, leynt gríðarlegum hagsmunum
sínum í bönkunum og fyrir frammistöðu þeirra
í starfi í samhengi við það. Skýringar þeirra
sýna að þau eru enn jafnsiðlaus og áður, þótt
bókhaldsstaða þeirra sé önnur.
JÓN TRAUSTI REYNISSON RITSTJÓRI SKRIFAR. Skýringar þeirra sýna að þau eru enn jafnsiðlaus og áður.
32 MIÐVIKUDAGUR 14. apríl 2010 UMRÆÐA
SANDKORN
LYNGHÁLS 5, 110 REYKJAVÍK
ÚTGÁFUFÉLAG:
DV ehf.
STJÓRNARFORMAÐUR:
Lilja Skaftadóttir
FRAMKVÆMDASTJÓRI:
Bogi Örn Emilsson
RITSTJÓRAR:
Jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is
og Reynir Traustason, rt@dv.is
DV Á NETINU: DV.IS
AÐALNÚMER: 512 7000, RITSTJÓRN: 512 7010,
ÁSKRIFTARSÍMI: 512 7080, AUGLÝSINGAR: 512 7050.
SMÁAUGLÝSINGAR: 515 5550.
Umbrot: DV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins
á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
ÁRÓÐURSSTRÍÐ
MOGGANS
n Það er fátt sem bendir til þess að
allir fjölmiðlar hafi lært sína lexíu
af hruninu. Morgunblaðið hef-
ur undanfarið
reynt að skella
skuldinni á valda
aðila svo sem
útrásarvíking-
ana Jón Ásgeir
Jóhannesson og
hugsanlega Ólaf
Ólafsson. Aðal-
uppsláttur blaðs-
ins er sá að hrunið sé bönkunum að
kenna. Bloggarinn Mörður Árnason
vakti athygli á því að inni í blaðinu
var að vísu að finna áfellisdóma yfir
ritstjóra Moggans, Davíð Oddssyni,
og öðrum í stjórnsýslunni. Einhverj-
um er orðið ljóst að áróðursstríði
hinna spilltu er síður en svo lokið.
SAKLEYSIÐ UPPMÁLAÐ
n Einhver allra hlægilegasta grein-
ing á þætti Davíðs Oddssonar, fyrr-
verandi seðlabankastjóra, í hrun-
inu kemur frá Hannesi Hólmsteini
Gissurarsyni prófessor. Hannes
bloggar um mál-
ið á Pressunni
og lýsir því að
sökin sé annarra
þar sem Davíð
hafi verið „... ör-
væntingarfullur
af því að enginn
virtist vilja hlusta
á hann.“ Í anda
áróðursmálaráðherrans Göbbels
endurtekur Hannes þetta síðan sem
smáfugl á amx. Hannes er ekki í vafa
um sakleysi hans: „Auðvitað var
það sök þeirra sem ekki hlustuðu á
hann.“ Davíð er sem sagt sakleysið
uppmálað, þrátt fyrir allt.
HIMINHÁAR
SKULDIR ÓLA
n Í Sannleiksskýrslunni er vakin
athygli á skuldastöðu einstaklinga.
Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóri Press-
unnar, dró sig strax í hlé frá starfi
sínu þegar upplýst var um skuldir
hans við Kaupþing. Athyglisvert er
að í skýrslunni er fjallað um skuld-
ir Styrmis Gunnarssonar, fyrrver-
andi ritstjóra Moggans. Rétt eins og
DV hefur fjallað ítarlega um höfðu
ákveðnir bankar kverkatak á honum
vegna 130 milljóna króna skuldar. Þá
er vakin athygli á himinháum skuld-
um Óla Björns Kárasonar, álitsgjafa
og fyrrverandi ritstjóra, sem hafði
náð að klóra nokkur hundruð millj-
ónir út úr bankakerfinu.
ALLSBER ÖSSUR
n Ein fyndnasta frétt gærdagsins
var um það þegar Össur Skarphéð-
insson var allsnakinn í World Class,
sunnudaginn 28. september 2008, á
leið í gufu. Þegar hann komst í tæri
við farsíma sinn
var fjöldinn allur
af ósvöruðum
símtölum frá
aðstoðarmanni
hans. Össur
hringdi í Ingi-
björgu Sólrúnu
Gísladóttur, for-
mann sinn, sem
vildi að hann mætti strax á fund í
Seðlabankanum til að ræða yfirtöku
Glitnis. Skýrt var að hann mætti ekki
láta Björgvin G. Sigurðsson banka-
málaráðherra vita.
LEIÐARI
SPURNINGIN
SVARTHÖFÐI
BÓKSTAFLEGA