Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.2010, Page 40
„Ég geri mér grein fyrir pressunni,
hún er náttúrlega svakaleg,“ segir
Logi Geirsson, að vanda hress, en
hann skrifaði í gærdag undir samn-
ing við uppeldisfélag sitt, FH. Logi er
að koma heim eftir sex ára atvinnu-
mennsku en síðasta ár var honum
mjög erfitt vegna meiðsa. „Það er
margt sem spilar inn í að ég komi
heim. Mér finnst ég skulda að spila
eitt tímabil ómeiddur og ná mér
á strik. Ég er kominn til að sækja
hunrgið aftur sem hefur vantað á
þessum meiðslatíma. Í mínu hjarta
er FH stærsta lið í heimi og í raun
eini munurinn á því og Lemgo fyrir
mér eru peningarnir,“ segir Logi sem
ætlar að prófa sig áfram í einkaþjálf-
aranum ásamt því að sinna konunni
sem er að eignast fyrsta barn pars-
ins.
Ætlar aftur út
Logi ætlar sér að klára næsta tímabil
með FH. „Guð gefi mér það að spila
eitt gott tímabil án þess að meið-
ast eitthvað,“ segir hann brosmild-
ur. Hann hefur aðeins spilað með
tveimur liðum á ferlinum, báðum
draumaliðum sínum, FH og Lemgo.
Heimsklassafélag er það eina sem
hann „nennir“ að spila með eins og
hann orðar það sjálfur.
„Samningurinn er þannig hjá
FH að ég get verið keyptur út fyrir
ákveðna summu. Ég geri það samt
ekkert nema tilboðið sé svaka-
lega spennandi. Ég vil komast að
hjá heimsklassafélagi aftur og ég er
farinn að hugsa út fyrir Þýskaland,
kannski Spán. Það er ekkert verra að
koma heima aftur, ég komst í Lemgo
í gegnum FH á sínum tíma,“ segir
Logi sem gat ekki valið úr góðum til-
boðum vegna meiðslanna á síðasta
ári.
„Mín samningsstaða var þannig
að ég hefði þurft að lækka mig í
launum. Ég vildi ekkert vera í þessu
óvissuástandi. Eina tilboðið sem var
komið var frá félagi í Dúbaí og svo
höfðu lið úr neðri hlutanum í Þýska-
landi áhuga. Ég nenni ekkert að
standa í þessu fyrir svoleiðis dæmi,“
segir hann.
Flugeldasýning í fyrsta leik
„Ég ætla ekki bara að skora tíu mörk
í leik, ég ætla að standa mig fyrir FH
og deildina,“ segir Logi aðspurður
hvort hann ætli að hjálpa N1-deild-
inni að nýta þann meðbyr sem heim-
komu hans ætti að fylgja. „Þetta er
gott fyrir handboltann held ég að at-
vinnumenn sýni að það er allt í lagi
að koma heim. Ég vænti þess að sjá
minnst 2.000 manns í Krikanum í
fyrsta leik, annað væri skandall. Ef
það mæta tvö þúsund lofa ég alla-
vega flugeldasýningu,“ segir Logi
sem er kominn til að vinna.
„Ég er ekkert að koma heim til að
hvíla mig eða fela mig eitthvað. Ég
ætla að standa mig og reyna að vinna
titil með FH. Þetta eru bara spenn-
andi tímar. Þetta er mjög stórt skref
hjá mér en ég er ánægður að komast
heim núna,“ segir Logi Geirsson FH-
ingur.
„Þetta er mjög gleðilegt. Ég held að
þetta komi til með að hafa áhrif á
alla uppbyggingu í FH, bæði meist-
araflokk og yngri flokka,“ segir hand-
boltagoðsögnin, Geir Hallsteinsson,
um heimskomu sonar síns, Loga
Geirssonar í FH. „Þetta gefur heil-
mikið til félagsins þannig að ég vona
að hann verði sem lengst. Það er
nú líka þannig þegar liðin styrkjast
svona mikið vilja fleiri utanaðkom-
andi leikmenn koma líka. Ég held
það sé bara kominn tími á að við
vinnum titil,“ segir Geir sem er talinn
einn albesti handknattleiksmaður í
Íslandssögunni.
Geir þekkir handboltann inn og
út eftir að hafa bæði keppt og þjálf-
að síðar meir. Hann segir ekkert að
því að Logi komi heim núna, það
geti bara orðið honum til góðs. „Við
sjáum bara Sverre Jakobsson. Hann
kom heim í HK í eitt ár og fór svo út
aftur. Logi er líka það ungur, bara
tuttugu og sjö ára gamall. Það er gott
fyrir hann að koma heim, fá bestu
meðhöndlun sem hann getur fengið
og ná sér til baka aftur,“ segir hann.
Heimkoma Loga er í raun þreföld
ánægja fyrir Geir. Hann fær son sinn
heim, sonurinn leikur með uppeldis-
félagi þeirra beggja og svo er barna-
barn á leiðinni frá Loga og kærustu
hans, Ingibjörgu Elvu Vilbergsdótt-
ur. „Það er mjög gaman að þessu.
Þetta spilar náttúrulega inn í líka að
hann sé að eignast sitt fyrsta barn.
Hann vill eiga með því fyrsta árið á
Íslandi. Svo getur maður sjálfur tekið
afabarnið í kerruna í göngutúr,“ segir
Geir Hallsteinsson.
tomas@dv.is
Geir Hallsteinsson fær son, barnabarn og leikmann:
Ánægður að fá soninn heim
BERBATOV Á ÚTLEIÐ Götublöðin ensku keppast nú við það að skrifa búlgarska
sóknarmanninn, Dimitar Berbatov, frá Manchester United. Talið er að þolinmæði sir Alex Fergu-
son gagnvart 30 milljóna punda manninum sé þrotin. Sást það hvað best þegar Wayne
Rooney var látinn spila Meistaradeildarleikinn gegn FC Bayern á annarri löppinni á
meðan Berbatov horfði á. Hægt er að útiloka að Manchester United fái svipaða
upphæð til baka og það greiddi fyrir leikmanninn en þó einhverjar fjárhæðir
til að styrkja sóknarlínuna fyrir næsta tímabil. Eru þar sagðir efstir á blaði
Karim Benzema sem hefur ekki fengið mörg tækifæri hjá Real Madrid, og
spænski landsliðsframherinn David Villa sem leikur með Valencia.
UMSJÓN: TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON, tomas@dv.is
40 MIÐVIKUDAGUR 14. apríl 2010
HVERNIG ERTU?
n John Terry hefur sent James
Milner, leikmanni Aston Villa,
sms-skila-
boð þar
sem hann
spyr Milner
hvernig hon-
um líði eftir
tæklinguna
svakalegu
um síðustu
helgi. Chels-
ea og Villa mættust þá í undan-
úrslitum bikarsins og tæklaði
Terry Milner gróflega en fékk
aðeins gult spjald að launum.
Terry reyndi að fara inn í klefa
til Villa eftir leik en það var læst.
Hann hefur ekki enn beðist fyr-
irgefningar en hefur spurt Miln-
er hvernig honum líði.
SKOÐANAKÖNNUN
COLLYMORES
n Stan „The Man“ Collymore,
fyrrverandi framherji Liver-
pool og fleiri
liða, finnst
að Rafael
Benitez,
knattspyrnu-
stjóri Liver-
pool, eigi að
hætta nái fé-
lagið ekki að
enda á meðal
fjögurra efstu. Hann fram-
kvæmdi einnig óvísindalega
skoðanakönnun á málinu um
daginn. „Fyrir Evrópuleikinn
gegn Benfica um daginn talaði
ég við um tuttugu aðdáendur
fyrir utan völlinn. Svona sjö
af tíu vildu að hann færi sama
hvað. Það kom mér á óvart,“
segir Collymore.
HENRY EKKI
POTTÞÉTTUR
n Raymond Domenech, hinn gíf-
urlega umdeildi þjálfari landsliðs
Frakklands,
segist ekki
geta bókað
sæti fyrir Thi-
erry Henry á
heimsmeist-
aramótinu í
sumar. Henry
hefur lítið
fengið að spila
með Barcelona að undanförnu og
getur Domenech sótt í marga góða
framherja sem eru fastamenn í
sínum liðum. „Þetta er spurn-
ing sem ég svara um ellefta maí.
Henry hefur lítið fengið að spila en
hann er samt frábær leikmaður,“
segir Domenech.
DAWSON BESTI
ENGLENDINGURINN
n Carlos Tevez, framherji
Manchester City, segir Michael
Dawson, varnarmann Totten-
ham, besta
enska varn-
armann sem
hann hefur
mætt á knatt-
spyrnuvell-
inum. Tevez
hefur spilað
gegn öllum
leikmönn-
um enska landsliðsins en finnst
Dawson samt bestur, en á eftir
honum koma Serbinn Nem-
anja Vidic og Frakkinn Sylvain
Distin. „Ég veit að hann er ekki í
landsliðinu en Dawson er samt
besti enski varnarmaðurinn sem
ég hef mætt. Hann er virkilega
sterkur,“ segir Carlos Tevez sem
hefur verið frábær á tímabilinu.
MOLAR
Ánægður faðir Handboltagoðsögnin Geir Hallsteinsson fagnar heimkomu sonarins.
Hér er hann með stráknum fyrir HM 2007. MYND AME
Logi Geirsson, landsliðsmaður í handbolta, skrifaði í gær undir samning við sitt upp-
eldisfélag FH. Logi ætlar að ná sér heilum af meiðslum sínum og finna hungrið aftur
samhliða því að vinna titil með FH. Hann lofar flugeldasýningu á næsta tímabili.
Ég komst í Lem-go í gegnum FH á
sínum tíma.
TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
GUÐ GEFI MÉR
EITT GOTT R
Kominn heim Logi Geirsson spilar í tíunni á næsta tímabili, ekki þristinum eins og
alltaf. Logi er fæddur 10.10 og í sumar kemur út bókin hans, 10.10.10. MYND RÓBERT