Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.2010, Page 4
4 fréttir 5. júlí 2010 mánudagur
Rannsókn lokið á mannsláti við Látrabjarg:
Féll fram af bjargi við myndatöku
Lögreglan á Vestfjörðum hefur lok-
ið rannsókn á aðdraganda þess að
maður féll fram af Látrabjargi þann
9. júní og lést. Talið er að maðurinn
hafi fallið um hundrað og fjörutíu
til hundrað og sextíu metra.
Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglunni á Vestfjörðum er tal-
ið að maðurinn hafi verið að taka
mynd á bjargbrúninni þegar hann
féll fram af henni. Hann hafði kom-
ið myndavélinni fyrir á einfæti á
bjargbrúninni. Fóturinn er notað-
ur til að myndavélin verði stöðugri.
Maðurinn var með þunga tösku um
hálsinn og missti jafnvægið þannig
að hann féll fram af brúninni. Kona
mannsins, sem var með honum
í för, varð vitni að því þegar hann
missti fótanna.
Björgunarsveitir voru kallaðar
út og komust að manninum um
tveimur tímum síðar við erfiðar að-
stæður. Talið er að hann hafi látist
samstundis við fallið. Lík hans var
síðan flutt með þyrlu Landhelgis-
gæslunnar til Reykjavíkur. Niður-
stöður krufningar liggja ekki fyrir.
Lögreglan á Vestfjörðum vill
brýna fyrir fólki sem er á ferð um
landið að gæta fyllsta öryggis og
sýna aðgætni við hvert fótmál.
Bjargbrúnir og árbakkar geta ver-
ið varasamir staðir skriki fólki fót-
ur. Árbakkar geta líka oft gefið sig
þar sem árnar grafi undan þeim. Þá
koma oft mál upp hjá lögreglunni
þar sem fólk er ekki með fullnægj-
andi öryggisbúnað þegar það ferð-
ast á kajökum eða öðrum bátum.
Einnig hafi komið upp mál þar sem
fólk hafi verið að klifra í klettum en
síðan lent í sjálfheldu.
Látrabjarg er stærsta bjarg
landsins sem liggur að sjó. Bjargið
er um fjórtán kílómetrar að lengd.
Það nær 441 metra yfir sjó þar sem
það rís hæst.
Féll um hundrað og fjörutíu
metra Patreksfjörður er næsta
byggðarlag við Látrabjarg.
Ólafur Johnson, skólastjóri og eigandi
Menntaskólans Hraðbrautar, hætti
sem kennari í viðskiptagreinum við
Fjölbrautaskólann í Breiðholti, FB,
vegna þess að stjórnendur FB stóðu
hann að því að kenna við einkaskóla
sinn, Hraðlestrarskólann, á meðan
hann var í veikindaleyfi frá skólan-
um. Þetta herma traustar heimild-
ir DV innan úr Fjölbrautaskólanum í
Breiðholti.
Þetta átti sér stað nokkrum árum
áður en Ólafur fékk stuðning til þess
frá ríkisstjórninni og fjárveitingu á
fjárlögum að stofna Hraðbraut árið
2003.
Heimildir DV herma að Ólafur hafi
skilað læknisvottorði sem sýndi að
hann væri veikur og fékk þess vegna
leyfi frá störfum við fjölbrautaskólann
á fullum launum. Fljótlega eftir þetta
fór stjórnendur skólans hins vegar að
gruna að Ólafur sinnti einkafyrirtæki
sínu þrátt fyrir veikindin.
Hraðlestrarskólinn var annar af
tveimur einkareknum skólum sem
Ólafur átti og rak á þessum tíma. Hinn
hét Sumarskólinn. Báðir áttu skólarn-
ir eftir að valda Ólafi vandræðum í
starfi hans hjá fjölbrautaskólanum
þar sem hagsmunaárekstrar komu
upp vegna þessara einkaumsvifa
hans.
DV hefur undanfarið greint frá
fjármálastöðu Hraðbrautar og tug-
milljóna arðgreiðslum út úr honum til
Ólafs sjálfs og annarra hluthafa skól-
ans. Ríkisendurskoðun mun rann-
saka skólann.
Rektorinn stóð hann að verki
Samkvæmt heimildum DV fór þá-
verandi rektor FB á stúfana til að at-
huga hvort eitthvað væri til í þess-
um grun. Eitt kvöldið fór rektorinn
þangað sem Hraðlestrarskólinn var
til húsa og komst þá að því að Ólaf-
ur var að kenna þar á meðan hann
var í veikindaleyfi og á fullum laun-
um hjá FB. Ólafur var því staðinn að
verki ef svo má segja. Eftir að upp
komst um þessa hegðun Ólafs varð
æ erfiðara fyrir hann að halda áfram
að kenna við skólann.
Stjórnendur FB ætluðu sér að
krefjast þess að Ólafur greiddi til
baka þau laun sem hann hafði feng-
ið frá skólanum á meðan hann var
í veikindafríi og sinnti kennslu í
einkafyrirtæki sínu. Ljóst var að
stjórnendurnir ætluðu sér ekki að
láta hátterni Ólafs yfir sig ganga.
Áður en til þess kom að stjórn-
endur FB refsuðu Ólafi með ein-
hverjum hætti skilaði hann inn
uppsagnarbréfi. Ólafur hætti því í
skólanum þegar hann var kominn
upp að vegg eftir því sem heimildir
DV herma.
Fékk áminningu fyrir brottnám
gagna
Þegar Ólafur lét af störfum í skól-
anum vegna þessara hagsmuna-
árekstra á milli kennarastarfs síns
í fjölbrautaskólanum og einkaum-
svifa höfðu komið upp nokkur önn-
ur mál á milli hans og stjórnenda
skólans sem gerðu sambúð þeirra
erfiða.
Tvö dómsmál sem tengdust
sumarskóla Ólafs rötuðu nefni-
lega fyrir Hæstarétt á meðan hann
var kennari við fjölbrautaskólann.
Annað málið snérist um að Hið ís-
lenska kennarafélag hefði hindrað
starfsemi sumarskóla Ólafs og kvatt
nemendur til að sækja ekki skólann,
meðal annars vegna þess að Ólafur
greiddi ekki kjarasamningsbund-
in laun. Í því máli var dæmt Ólafi í
hag í Hæstarétti og fékk hann 800
þúsund krónur í bætur vegna þess
tjóns sem talið var að hann hefði
orðið fyrir vegna aðgerða kennara-
félagsins.
Í hinu málinu komst Hæstiréttur
að þeirri niðurstöðu að ekki bæri að
ógilda áminningu sem Ólafur hafði
fengið frá rektor skólans vegna stuldar
á prófgögnum frá fjölbrautaskólanum
sem síðar voru notuð í starfsemi sum-
arskóla Ólafs. Áminningin stóð því og
var Ólafi gert að greiða málskostnað
fjölbrautaskólans.
Til viðbótar við þetta komu upp
deilur á milli Ólafs og stjórnenda FB
vegna þess að Ólafur taldi að hann
fengi ekki að auglýsa sumarskóla sinn
til jafns við sumarskóla FB í húsnæði
skólans. Sú deila rataði til samkeppn-
isráðs.
Því var ljóst að á þessum tíma
voru samskipti Ólafs og stjórnenda
skólans orðin afar stirð. Fyrir þess-
ar deilur hafði Ólafur hins veg-
ar verið í nokkrum metum innan
skólans og þótti góður kennari og
skemmtilegur maður, samkvæmt
heimildum DV. Þetta breyttist hins
vegar vegna hagsmunaárekstr-
anna.
Ólafur hélt hins vegar áfram að
reka einkafyrirtæki sín eftir upp-
sögn sína hjá FB. Skömmu síðar
fékk hann stuðning menntamála-
ráðuneytisins og árlega fjárveit-
ingu til að stofna Hraðbraut.
Ólafur Johnson kenndi í einkareknum skóla sínum á meðan hann var á launum hjá
Fjölbrautaskólanum í Breiðholti fyrir tíu árum. Málið leiddi til starfsloka hans í skól-
anum. Önnur mál höfðu komið upp sem gerðu sambúð Ólafs við stjórnendur skólans
erfiða. Ríkisendurskoðun skoðar nú starfsemi Hraðbrautar.
SINNTI EINKAREKSTRI
Í VEIKINDAFRÍI FRÁ FB
ingi F. vilhJálmsson
fréttastjóri skrifar: ingi@dv.is
n „Við höfum fengið bréf frá mennta-
málaráðuneytinu um að skoða
framkvæmd samstarfssamningsins
við Hraðbraut,“ segir Jón Björnsson,
skrifstofustjóri Ríkisendurskoðunar,
um stöðu athugunar stofnunarinnar á
málefnum Hraðbrautar. Jón situr fyrir
svörum um málið í fjarveru Sveins
Arasonar ríkisendurskoðanda sem
kominn er í sumarfrí.
Aðspurður segir Jón að úttektin á
skólanum sé ekki hafin. „Við erum bara að undirbúa okkur fyrir það að skoða
þennan samning... Nei, hún er ekki hafin... Bréfið kom til okkar í síðustu viku,“ segir
Jón. Hann segist ekki vita hvenær úttektinni verði lokið en að stofnunin þurfi að
ræða betur við menntamálaráðuneytið um málið. „Við reynum að ljúka þessu eins
fljótt og vel og við getum.“
Klára útteKtina vonandi sem fyrst
Kenndi í veikindafríinu Ólafur
kenndi í einkaskóla sínum á meðan
hann var í veikindafríi frá FB. Rektor
skólans stóð hann að verki og sagði
Ólafur upp skömmu síðar.
Icesave-fundir
í Reykjavík
Starfsmenn fjármálaeftirlitsins hittu
starfsbræður sína frá Bretlandi og
Hollandi fyrir helgi til að ræða um
Icesave-deiluna. Fréttastöðin Sky
segir að William Hague, utanríkis-
ráðherra Breta, hafi gefið til kynna
að hann vilji reyna að hindra inn-
göngu Íslands í ESB verði deilan ekki
leyst.
Sky hefur eftir starfsmanni fjár-
málaráðuneytisins að útsendar-
ar Breta og Hollendinga hafi verið
í Reykjavík fyrir helgi þar sem rætt
hafi verið um Icesave. „Tilgangur
fundanna var í meginatriðum að
skiptast á upplýsingum og undirbúa
frekari fundi síðar á árinu,“ segir fjár-
málaráðuneytið íslenska.
Vodafone stefnir
ríkinu og Símanum
Vodafone hefur stefnt Fjarskipta-
sjóði og Símanum vegna samnings
sem gerður var um uppsetningu
háhraðanettengingar í dreifbýli á
Íslandi. Telur Vodafone að ríkið
greiði hundruð milljóna króna fyrir
uppbyggingu á netþjónustu sem
þegar í er boði og að tilboð Símans,
til að byggja hana upp, hafi hækkað
frá 378 milljónum í einn milljarð án
útboðs. Þá telur Vodafone að Síminn
hafi samið beint við Kristján Möller
samgönguráðherra á einkafundum
um hærri greiðslur. Telur Vodafone
að samningurinn feli í sér ólögmæta
ríkisaðstoð við Símann.
Tilkynnt um nakinn
ferðalang
Lögreglan á Selfossi fékk tilkynningu
um nakinn mann á Suðurlandsvegi
við Selfoss um kvöldmatarleytið á
laugardag. Fylgdi tilkynningunni að
maðurinn var að húkka sér far.
„Þegar lögreglumenn komu á
staðinn var engan nakinn mann að
sjá. Annaðhvort hefur verið um gabb
að ræða eða einhverjum vegfaranda
litist vel á manninn og tekið hann
upp,“ segir í dagbók lögreglunnar á
Selfossi en helgin var nokkuð eril-
söm hjá embættinu.
Leiðréttingar
Missagt var í DV 23. júní síðast-
liðinn að leikstjóri heimilda-
myndarinnar Uppistandsstelpur
héti Ása Einarsdóttir. Leikstjórinn
heitir Áslaug, kölluð Áa. Beðist er
velvirðingar á þessu.
Í Nærmynd af Ólafi Johnson,
eiganda og skólastjóra Hrað-
brautar, í helgarblaði DV kom
fram að Helga Guðrún Johnson,
stjórnarmaður í skólanum, væri
systir Ólafs. Þetta er ekki rétt.
Helga Guðrún er frænka Ólafs.