Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.2010, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.2010, Blaðsíða 7
mánudagur 5. júlí 2010 fréttir 7 RÆTT VIÐ EINN AÐILA UM KAUPIN Á SJÓVÁ Einn áhugasamur aðili stendur eftir sem hugsanlegur kaupandi tryggingafélagsins Sjóvár. Árni Tóm- asson, formaður skilanefndar Glitnis, segir að meðal annars sé deilt um verðið á félaginu og önnur samningsatriði. Milestone skildi eftir gat í eignasafni tryggingafélagsins upp á um 10 milljarða króna og þurftu ríkið, Glitnir og Íslandsbanki að leggja því til 16 milljarða. Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka á nú í viðræðum við einn aðila um kaupin á tryggingafélaginu Sjó- vá. Bankinn hefur verið með Sjó- vá í opnu söluferli og stendur einn hugsanlegur kaupandi eftir. Þetta segir Árni Tómasson, formaður skilanefndar Glitnis, um sölumeð- ferðina á Sjóvá hjá Íslandsbanka. Árni segist vitanlega ekki geta greint frá því hver þessi aðili er. DV hafði samband við fyrir- tækjaráðgjöf Íslandsbanka til að spyrja út í söluna á Sjóvá en það eina sem starfsmaður hennar gat sagt um málið var að sölumeðferð- in stæði enn yfir. Seðlabankinn stærsti hluthafinn Sjóvá er í eigu eignarhaldsum- sýslufélags Seðlabanka Íslands, Eignsafns SÍ, að 73 prósenta leyti, og Íslandsbanki á tæplega 18 prósenta hlut. Glitnir á svo þau 9 prósent sem eftir eru í fé- laginu. Ástæðan er sú að þegar Sjóvá var bjargað frá gjaldþroti í fyrra, eftir slælegan rekstur Milestone- manna á árunum þar á undan, þurfti að leggja félaginu til um 16 milljarða króna eiginfjárfram- lag vegna þess að félagið var ekki gjaldfært og gat því ekki staðið við skuldbindingar sínar. Miles- tone skildi eftir um 10 milljarða króna gat í eignasafni Sjóvár en félagið hafði notað sjóði trygg- ingafélagsins í alls kyns áhættu- fjárfestingar víða um heim. Rík- issjóður lagði Sjóvá til nærri 12 milljarða króna í veðkröfum og fékk handveð í 73 prósenta hlut í tryggingafélaginu í staðinn. Glitnir og Íslandsbanki lögðu svo fram það eiginfjárframlag sem upp á vantaði. Þeir sem nefndir hafa ver- ið til sögunnar sem hugsanleg- ir kaupendur tryggingafélagsins eru Heiðar Már Guðjónsson, fyrr- verandi starfsmaður Novator, eða fjárfestar á hans vegum, og Guð- björg Matthíasdóttir, útgerðarkona í Vestmannaeyjum. Heimildir DV herma þó að Guðbjörg hafi ekki haft áhuga á félaginu og ekki sóst eftir því að kaupa það. Heiðar Már býr í Sviss þar sem hann starfar fyrir þarlendan vog- unarsjóð. DV reyndi að ná tali af Heiðari Má á sunnudaginn en náði ekki í hann. Deilt um verðið Árni segir að helsti ásteytingar- steinninn í umræðunum við hugs- anlegan kaupanda Sjóvár sé verð- ið á tryggingafélaginu og nokkur önnur atriði. „Deilt er um verð og einhver önnur samningsatriði,“ segir Árni í samtali við DV. Fullyrða má að kaupandi tryggingafélagsins muni þurfa að greiða nokkuð hátt verð fyrir það þar sem ríkissjóður, Glitnir og Íslandsbanki munu auð- vitað vilja fá til baka þá fjármuni sem voru lagðir inn í tryggingafé- lagið til að bjarga því frá þroti. Ekki er sjálfgefið að þetta takist þar sem ekki er víst að kaupandi finnist sem sé reiðubúinn að greiða svo hátt verð fyrir félagið. Erfitt er að gera sér grein fyrir hversu háa upphæð Ís- landsbanki vill fá fyrir félag- ið en reikna má með að það gæti verið á milli 20 og 30 milljarðar króna. Sem dæmi má nefna að þegar Karl Wernersson keypti meirihluta í félag- inu árið 2005, 66 prósenta hlut, af Íslandsbanka var kaupverðið 17,5 milljarðar króna. Árni segir að ekki liggi ljóst fyrir hver niðurstaðan verður af viðræðun- um við hinn áhugasama kaup- anda. Hann segist því ekki geta svarað til um hvort og þá hvenær gengið verður verður frá sölunni á Sjóvá. Deilt er um verð og ein- hver önnur samnings- atriði. Eigendur og seljendur Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hefur átt í viðræðum við einn tiltekinn aðila vegna kaupanna á tryggingafélaginu Sjóvá sem er í eigu Seðlabanka Íslands, Glitnis og Íslandsbanka. Árni Tómasson er formaður skilanefndar Glitnis og Friðrik Sophusson er stjórnarformaður Íslandsbanka. ingi f. vilhjÁlmSSon fréttastjóri skrifar: ingi@dv.is Eigendur Sjóvár n Eignasafn SÍ 73,30 prósent n Glitnir 17,67 prósent n Íslandsbanki 9,30 prósent n Fjármálaeftirlitið veitti tryggingafélaginu Sjóvá, sem þá var í eigu Milestone, að minnsta kosti fjórum sinnum frest til að laga eignastöðu félagsins svo það uppfyllti lögbundin skilyrði um lágmarksgjaldþol tryggingafélaga. Frestirnir voru veittir frá október 2008 og fram í apríl 2009. Eigendur Sjóvár urðu hins vegar ekki við ábendingum Fjármálaeftirlitsins og er líklegasta skýringin sú að þeir hafi einfaldlega ekki átt þá fjármuni sem vantaði upp á eignasafn Sjóvár til að gjaldþolsskilyrðið væri uppfyllt. n Eignastaða Sjóvár var þá orðin það slæm að félagið átti ekki fyrir vátrygginga- skuld sinni en það eru þeir fjármunir sem tryggingafélag skuldar viðskiptavinum sínum vegna greiddra iðgjalda, svonefndur bótasjóður. Eigendur Milestone, sem sá um fjárfestingar Sjóvár, höfðu gengið þannig á eignasafn félagsins, meðal annars bótasjóðinn, að tryggingafélagið gat ekki staðið við lögbundnar skuld- bindingar sínar gagnvart viðskiptavinum félagsins. Á endanum þurfti íslenska ríkið að lána Sjóvá um 12 milljarða króna sumarið 2009 svo það uppfyllti skilyrði um gjaldþol og gæti staðið við vátryggingaskuldbindingar sínar. n Upplýsingarnar um frestina ítrekuðu sem Milestone-menn fengu koma fram í bréfi frá Fjármálaeftirlitinu sem sent var til Karls Wernerssonar, aðaleiganda Milestone og stjórnarformanns Sjóvár, og Þórs Sigfússonar, forstjóra trygginga- félagsins, og er dagsett 3. mars 2009. Undir bréfið rituðu starfsmenn Fjármálaeftirlitsins, Rúnar Guðmundsson og Inga Birna Einarsdóttir. n Þegar ekki gekk eftir að laga eignastöðu Sjóvár lá ljóst fyrir að tryggingafélagið færi í þrot ef ekki tækist að leggja félaginu til nýtt eigin fé. Eiginfjárframlagið kom frá ríkinu, Glitni og Íslandsbanka. Nú reynir Íslandsbanki að endurheimta þessa fjármuni með sölunni á Sjóvá. Fengu ítrekuð tækifæri guðbjörg hvergi nærri Guðbjörg Matthíasdóttir, útgerðarkona í Eyjum, hafði aldrei áhuga á Sjóvá og skilaði ekki inn tilboði í félagið. Hún er því ekki sá væntanlegi kaupandi sem eftir stendur. gat í eignasafninu Karl Wernersson og félagar hans hjá Milestone skildu eftir sig um tíu milljarða króna gat í eignasafni Sjóvár á meðan þeir áttu félagið. Ríkissjóður, Glitnir og Íslandsbanki þurftu að leggja félaginu til 16 milljarða króna sem erfitt gæti reynst að innheimta aftur við sölu félagsins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.