Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.2010, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.2010, Blaðsíða 25
Laun ForLans vandamáL Harry Redknapp, þjálf- ari Tottenham, hefur fylgst grannt með heimsmeistaramótinu enda er hann á staðnum sem sérfræðingur breska ríkissjónvarpsins, BBC. Hann er mjög hrifinn af Úrúgvæ og þá sérstaklega Diego Forlan. Harry hefur áður talað vel um Forlan og gert það ljóst að hann væri til í að landa þessum mikla markaskorara. „Ég held að Forlan gæti átt tvö til þrjú góð ár í ensku úrvalsdeildinni. Launakostnaður hans gæti þó orðið vanda- mál,“ segir Harry Redknapp sem ætlar að bæta við sveit sína áður en tímabilið hefst enda Tottenham komið í Meistaradeildina. FyLLerí hjá BBC Breska götublaðið Daily Star greindi frá því um helgina að starfsfólk BBC hefði verið iðið við kolann í drykkju á hótelinu þar sem það gistir meðan á HM stendur. BBC borgaði 29.000 pund undir tæplega 300 manna starfslið á hótelinu en nú hefur fólkið rakað saman 30.000 punda reikningi á barnum og mini-börunum á herbergjunum. Fólkinu hefur verið sagt að það geti borgað þessa reikninga sjálft. Sjónvarpsstjörnurnar hafa þó verið hógværastar til þessa. Alan Shearer skuldar aðeins 110 pund, Lee Dixon 95 pund en Harry Redknapp er skuldlaus. Mörkin tvö sem Miroslav Klose skor- aði gegn Argentínu í átta liða úrslit- um heimsmeistaramótsins voru mörk númer þrettán og fjórtán hjá honum í lokakeppni HM. Hann jafnaði því met þýsku hetjunnar Gerds Muller sem skoraði fjórtán mörk á sínum tíma. Muller skoraði þó mörkin fjórtán í tveimur keppnum en HM í Suður-Afr- íku er þriðja heimsmeistaramót Miro- slavs Klose. Efstur á listanum er hinn brasilíski Ronaldo sem skoraði fimmtán mörk í keppnunum frá 1998-2006. Fimmt- ánda markið kom í 16 liða úrslitunum gegn Gana fyrir fjórum árum en hann fékk aldrei tækifæri til að bæta við þar sem Frakkar slógu út Brassa í átta liða úrslitunum, 1-0. Klose fær í það minnsta tvo leiki til viðbótar, fyrst gegn Spáni í undan- úrslitunum og svo úrslitaleikinn eða leikinn um þriðja sætið. Gæti hann því vel verið kominn upp að hlið Ron- aldos eða yfir áður en heimsmeist- aramótinu lýkur. Klose er ekki sami maðurinn þegar hann klæðist þýsku landsliðstreyjunni en hann átti skelfi- legt tímabil með FC Bayern í vetur og skoraði aðeins þrjú mörk í þýsku úr- valsdeildinni. tomas@dv.is Miroslav Klose er kominn með fjórtán mörk í lokakeppni HM: Einu marki frá meti Ronaldos mánudagur 5. júlí 2010 25 Úrúgvæ og Holland mætast í fyrri und- anúrslitaleik heimsmeistaramótsins í knattspyrnu á þriðjudagskvöldið. Úr- úgvæjar komust í undanúrslitin með því að leggja Gana í vægast sagt spenn- andi leik sem fór alla leið í vítaspyrnu- keppni. Holland aftur á móti lagði fimmfalda heimsmeistara Brasilíu sem voru taldir einna líklegastir til að vinna keppnina. Langt er síðan bæði lið léku til úrslita en síðasti úrslitaleikur hjá Úrúgvæ var árið 1950 þegar lið- ið varð heimsmeistari í annað sinn með sigri á Brasilíu, í Brasilíu. Hol- land hefur tvisvar leikið til úrslita, árin 1974 og 1978, en tapaði báðum leikjunum. Bæði lið fá nú tækifæri til að koma sér aftur í stærsta einstaka knattspyrnuleik sem fyrir finnst. Þetta er svo fallegt Úrúgvæ er „sofandi risi“ í knatt- spyrnunni en þó þetta ágæta land sé ekki alltaf mikið í umræðunni er það eitt mest verðlaunaða lið í Suður- Ameríku. Það á að baki tvo heims- meistaratitla, árin 1930 og 1950, og fjórtán sinnum hefur það unnið Suð- ur-Ameríkukeppnina. Alls hefur Úr- úgvæ 29 sinnum unnið til verðlauna í Suður-Ameríkukeppninni, oftar en Brasilía. Úrúgvæjar enduðu í fimmta sæti undankeppninnar í Suður-Amer- íku og þurftu umspilsleik gegn Kosta- ríka. Hefur því árangurinn komið skemmtilega á óvart. „Þetta er svo fallegt,“ segir Oscar Taberz, þjálfari liðsins, sem er að stýra því í annað sinn á ferlinum. „Það er erf- itt að melta allt það sem hefur gerst hjá okkur. Við erum svo ánægðir. Ég veit ekki hvort þetta sé endurfæðing fót- boltans í Úrúgvæ. Vonandi verðum við bara ekki 20 ár að koma okkur svona langt aftur,“ segir hann en Úrúgvæ hef- ur ekki komist í undanúrslit síðan á HM árið 1970. „Í Úrúgvæ er fótboltinn ástríða. Börnin æfa mikið og þó við séum ekki fjölmenn þjóð höldum við alltaf áfram að búa til frábæra leikmenn. Nú verð- um við að passa að halda haus og nýta þetta ótrúlega tækifæri sem við höfum fengið og koma okkur í úrslitaleikinn,“ segir Tabarez en Úrúgvæ verður án framherjans Luis Suarez sem fékk rautt gegn Gana. Höfum ekkert unnið „Við höfum horft á marga leiki Úrúgvæ og þekkjum leikmenn þess vel. Þetta verður hættu- legur leikur fyrir okkur,“ seg- ir Bert van Marwijk, þjálfari Hollands, um undanúrslita- leikinn. „Það er allt svo brjál- að heima að kannski er það bara best að við séum svona langt í burtu og verðum ekki vitni að brjálæðinu. Við þurfum að halda fók- us því leikurinn gegn Úr- úgvæ verður ekki auð- veldur. Það er ástæða fyrir því að Úrúgvæ er komið svona langt,“ segir hann. Van Marwijk hefur gert leikmönnum sínum grein fyr- ir að þeir eigi enn eftir að spila leikinn. „Við höfum séð svona hluti áður. Fyrir tveimur árum á EM vorum við búnir að vinna Ítalíu og Frakkland í riðlunum og allir héldu að við yrðum Evrópumeist- arar. Svo komumst við ekki einu sinni lengra en í átta liða úrslit því allir héldu að þetta yrði svo auðvelt. Ég hef gert mönnum það alveg ljóst að við höfum ekkert unnið enn þá og eigum enn eftir að leggja Úrúgvæ að velli. Ég hef samt mikla trú á þessu liði og því hvernig all- ur hópurinn vinnur sem lið,“ segir Bert van Marwijk. tóMas Þór Þórðarson blaðamaður skrifar: tomas@dv.is Úrúgvæ og Holland mætast í undanúrslitum heimsmeistarakeppninnar í Suður-Afr- íku. Það eru mörg ár frá því liðin sáust í úrslitaleik HM. Holland lék síðast til úrslita fyrir 32 árum en 60 ár eru frá því Úrúgvæ spilaði úrslitaleik á heimsmeistaramóti. Langt frá síðasta úrsLitaLeik magnaður Diego Forlan hefur verið frábær í liði Úrúgvæ. Mynd reuters Fjögurra marka maður Wesley Sneijder hefur verið hættulegastur í hollenska liðinu og skaut hann liðinu í undanúrslitin. Mynd reuters nafn Land Mörk Ronaldo Brasilía 15 Miroslav Klose Þýskaland 14 Gerd Muller Þýskaland 14 Just Fontaine Frakkland 13 Pelé Brasilía 12 Jurgen Klinsmann Þýskaland 11 Sándor Kocsis Ungverjaland 11 Markahæstir á lokakeppni HM: engum Líkur í þýska Búningnum Klose skoraði þrjú mörk í þýsku deildinni í vetur en er kominn með fimm á HM. karL- menn geta grátið Tilfinningarnar geta borið menn ofurliði þegar þeir falla úr leik á eins stóru móti og HM er, hvað þá ef þeir eiga sök á slæmu gengi. Julio Cesar, markvörður Brasilíu, hágrét eftir að liðið féll úr leik gegn Hollandi á heimsmeistaramótinu og brotnaði svo aftur saman eftir leik. Hann var svo enn grátandi við komuna til Brasilíu á sunnudag en þar biðu tugir ljósmyndara eftir brasilíska liðinu og fór Cesar grátandi inn í bíl. Ganamaðurinn Asamoah Gyan var gjörsamlega óhuggandi eftir að Gana féll úr leik gegn Úrúgvæ í átta liða úrslitunum í vítaspyrnukeppni. Gyan fékk tækifæri til að koma Gana í undanúrslitin með vítaspyrnu í uppbótartíma í framlengingu en skaut í slána. Hann sýndi mikinn kjark með því að taka fyrstu spyrnuna í vítaspyrnukeppninni en þegar ljóst var að Gana væri úr leik brotnaði hann saman. Markvörður Portúgal, Eduardo, var á meðal bestu manna liðsins í keppninni en liðið fékk aðeins á sig eitt mark. Það mark skoraði David Villa, framherji Spánar, þegar hann tryggði Evrópumeisturunum farseðilinn í átta liða úrslitin með eina markinu sem Portúgal fékk á sig. Það var einu marki of mikið fyrir Eduardo sem byrjaði að gráta um leið og flautað var af og grét alla leið inn í búningsklefann. Oscar Cardozo, framherji Paragvæ, brenndi af vítaspyrnu þegar um klukkustund var liðin af leiknum gegn Spáni í átta liða úrslitum HM. Það varð liðinu dýrt því á endanum fór Spánn áfram með eins marks sigri og aftur skoraði David Villa sigurmarkið. Cardozo fattaði um leið og flautað var til leiksloka að hann var skúrkurinn. Hann gat því ekki annað en fellt nokkur tár en Cardozo var gjörsamlega óhuggandi eftir leikinn að sögn liðsfélaga hans.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.