Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.2010, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.2010, Blaðsíða 22
22 úttekt 5. júlí 2010 mánudagur Finndu kynhvötina aFtur eftir breytingaskeið Þótt minnkandi löngun í kynlíf sé eðlilegur fylgifiskur breytingaskeiðsins veldur löngunarleysið oft pirr- ingi hjá konum auk þess sem margar upplifa samviskubit gagnvart makanum. Góðu fréttirnar eru þær að það er hægt að vekja kynhvötina á ný og njóta heilbrigðs kynlífs aftur. Læknirinn David B. Schwartz segir umræðu um breytingaskeið ótrúlega litla miðað við þau áhrif sem tímabilið hefur á samlíf hjóna. Meira en tveir þriðju kvenna á aldr- inum 50–70 ára þjást af einkenn- um sem hafa áhrif á vilja og getu þeirra til að lifa kynlífi með maka sínum. Samkvæmt rannsókninni, Sex, Menopause & Relationships, sem var studd af Duramed Pharma- ceuticals Inc. og framkvæmd af fyr- irtækinu Harris Interactiv, eru fæst- ar konur viðbúnar því sem gerist þegar þær komast á þetta tímabil en yfir 72% aðspurðra sögðust hafa fundið fyrir þurrki í leggöngum, 70% sögðust hafa misst kynhvöt- ina og 34% fundu fyrir sársauka við kynmök. Kvensjúkdómalæknirinn David B. Schwartz frá Christ Hospital í Cincinnati, Ohio, segir í raun ótrú- legt hversu lítið sé vitað um breyt- ingaskeiðið miðað við áhrifin sem það hefur á kynlífið. „Því miður lif- um við enn í karlmennskusamfé- lagi sem tekur af mun meiri alvar- leika á risvandamálum karlmanna en því sem viðkemur kvenlíkaman- um. Vandamál kvenna eru enn þá tabú,“ segir Schwartz sem mælir með því að konur ræði við lækni og afli sér upplýsinga um breytingaskeið- ið og áhrif þess á líkama þeirra og sambandið við makann áður en þær komast á fimmtugsaldur eða áður en breytingarnar hefjast. Eins segir Schwartz mikilvægt að konur ræði málið við makann en í rannsókninni kom í ljós að 75% þeirra sem töluðu um vandamálið við maka voru ham- ingjusöm í hjónabandi sínu. „Ef hjón vilja halda áfram að lifa skemmtilegu kynlífi eftir því sem árin líða verður æ mikilvægara að treysta hvort öðru og samræður og hreinskilni verður mikilvægari en nokkur tímann með árunum.“ Schwartz segir sleipiefni sem seld eru án lyfseðils geta hjálpað mörgum konum en þegar þurrkur og sársauki haldast í hendur gera sleipiefni ekk- ert fyrir það síðarnefnda. Sársauk- inn sé oftast til kominn vegna vöðva- rýrnunar í leggöngum en slíkt, segir Schwartz, hendir allar konur með ár- unum þótt einungis þær sem halda áfram að vera kynferðislega virkar finni fyrir því. Schwartz mælir með litlum skömmtum af estrógeni sem berst gegn rýrnuninni. „Ef kynlíf er farið að leiða til meiri sársauka en unaðar þá skiptir ekki máli hversu mikið konan elskar eiginmann sinn – skiptunum mun fækka stórlega,“ segir Schwarts en í rannókninni kom í ljós að flestar konur, sem missa áhuga á kynlífi með aldrinum, segja sársauka við kynmök um að kenna. „Ef þær fá réttu lyfin og byrja aftur að njóta kynlífs er ekki spurning hvort heldur hvenær kynhvötin fer aftur á fullt.“ Í rannsókninni, Sex, Menopause & Relationships, kom fram að flest- ar konurnar vildu óska að þær lifðu meira kynlífi og flestar þeirra sögðu heilbrigt kynlíf mikilvægt fyrir sam- bandið við makann. Af þeim konum sem höfðu upplifað neikvæð áhrif breytingaskeiðsins höfðu 63% leit- að sér hjálpar en oftast var sú hjálp í formi sleipiefna úr kjörbúðinni eða náttúrulegra lækningajurta. „Við höf- um engar sannanir fyrir því að þessi efni geri nokkurt gagn, en öll lyf, þar á meðal „saklausar“ jurtablöndur úr heilsuverslunum, ætti að nota í samráði við lækna. Pantaðu tíma hjá kvensjúkdómalækninum þínum og ræddu málið við hann og farðu svo heim og spjallaðu við makann,“ segir Schwartz. n Um 52% karla á aldrinum 40–70 ára þjást af einhvers konar risvandamálum. n Karlmenn finna einnig fyrir flóknum hormónatruflunum sem hafa áhrif á skapgerð þeirra, líkamsástand og kynhvöt. n Andleg einkenni eru pirringur, áhyggjur, valkvíði og þunglyndi. n Líkamleg einkenni eru þreyta, þyngdaraukn- ing, verra skammtímaminni og svefntruflanir. n Kynferðisleg einkenni eru minni kynhvöt, ótti við slaka frammistöðu og aukin þörf til að sanna fyrir sjálfum sér með því að reyna við sér yngri konur. n Breytingaskeið karlmanna virkar eins og seinna kynþroskaskeið – karlmaðurinn stendur frammi fyrir hugsunum um sjálfsmynd, kynhvöt, sjálfstæði og ósjálfstæði. n Margir karlmenn finna fyrir erfiðleikum við barnauppeldi þegar þeir fara í gegnum breytingaskeið. Byggt á greinum Jeds Diamond. Breytingaskeiðið n Meðalaldur kvenna þegar breytingaskeið hefst er 51 árs. n Engar tvær konur upplifa breytingaskeiðið nákvæmlega eins. n Það fyrsta sem flestar taka eftir eru óreglulegar blæðingar. Á þessum tíma minnkar framleiðsla hormóna en í rauninni fer framleiðsla á testesteróni minnkandi frá þrítugu. n Ofan á vanlíðanina hlaðast oft önnur vandamál sem valda álagi, eins og að börnin eru að flytja að heiman, breytt atvinnuástand og aldraðir foreldrar. Allt þetta veldur stressi sem kemur niður á kynhvötinni. n Efnaskiptin hægja á sér um 10–15% sem veldur því að konur þyngjast og þreytast svo oft verður kynlíf það síðasta sem þær hugsa um. Líkamleg einkenni: Hitaköst Nætursviti Óreglulegur hjartsláttur Höfuðverkur Þurrkur í leggöngum Hárlos Kláði og pirringur í húð Þyngdaraukning Verkir í vöðvum og liðum Viðkvæm brjóst Sárir gómar og viðkvæmari tennur Ógleði og uppþemba Vont bragð í munni andleg einkenni: Svefntruflanir Minnkandi kynhvöt Þunglyndi Skapgerðarsveiflur Pirringur Grátur við minnsta tilefni Minnisleysi Athyglisbrestur Jafnvægisleysi Breytt líkamslykt Beinþynning (með árunum) 5 leiðir til að vekja kynhvötina 1 Gerðu eitthvað fyrir sjálfa þigEf þér tekst að komast í rétta gírinn aukast líkurnar. Farðu í ræktina, passaðu upp á svefninn og og búðu til pláss í dagskránni fyrir ástarleiki með makanum. Reyndu að forðast stress og álag. 2 Skoðaðu lyfin þínMörg algeng lyf hafa neikvæð áhrif á kynhvötina, þar á meðal geðlyf líkt og Prozac og Zoloft og ýmis blóðþrýstingslyf. Talaðu opinskátt við lækni og athugaðu hvort önnur lyf ættu kannski betur við þig. 3Íhugaðu að taka testósterón Fleiri en 20 rannsóknir hafa sýnt að testósterón hefur jákvæð áhrif á kynhvötina. Ræddu við lækni. 4 Estrógen fyrir leggöngÞurrkur og sársauki við kynmök getur lagast með réttri meðferð. Þú getur platað leggöngin til að halda að þau séu yngri en þau eru sem þýðir meiri teygjan- leiki og raki. Hægt að fá bæði sem krem og töflur. 5HjónabandsráðgjöfOpin og hreinskilin umræða við makann með leiðsögn sérfræðings getur orðið til þess að önnur vandamál koma upp á yfirborðið svo sem stress og álag, vandamál með sjálfsmynd og samviskubit. Reyndur kynlífsráðgjafi getur hjálpað ykkur að slaka á og ræða málin af alvöru. Mundu að það eru engin töfraráð til að endurvekja kynhvötina en fyrsta skrefið er opin umræða við maka og lækni. karlmenn fara líka á breytingaskeið

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.