Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.2010, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.2010, Blaðsíða 16
16 erlent 5. júlí 2010 mánudagur Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, sagði í ræðu á laugardaginn að nýjar refsiaðgerðir Vesturlanda í garð Írans sýndu að Vesturlönd væru staðráðin í að koma í veg fyrir að iðn- aður í landinu styrktist og það „næði sínum réttmæta sessi“. Mahmoud Ahmadinejad sagði að þrátt fyrir það væru Íranar orðnir góðir í að komast fram hjá hindrun- um og að „ekkert gæti stöðvað fram- gang iðnaðar landsins“. Ræðuna flutti Ahmadinejad á degi sem til- einkaður er iðnaði og námavinnslu í landinu.  Þetta var fyrsta ræða Ahmadin- ejads síðan Barack Obama Banda- ríkjaforseti staðfesti lög um nýjar refsiaðgerðir gegn Íran vegna kjarn- orkuáætlunar landsins, en bæði öld- ungadeildin og fulltrúadeildin höfðu lagt blessun sína yfir refsiaðgerðirnar.  Refsiaðgerðum Bandaríkjanna er beint gegn fyrirtækjum sem selja hreinar steinolíuafurðir til Írans og alþjóðlegum bönkum sem eru í við- skiptum við íranska byltingarvörð- inn. Barack Obama sagði að refsiað- gerðirnar myndu gera Írönum erfið- ara um vik að kaupa hreinsaða stein- olíu og vörur, þjónustu og efni sem nauðsynleg væru til að nútímavæða olíu- og jarðgasiðnað landsins. „Þær gera aðgengi byltingarvarðarins og banka, sem styðja við kjarnorkuáætl- un Írans og hryðjuverk að alþjóðlegu fjármagni, verra,“ sagði Obama.  Hann sagði að refsiaðgerðirnar væru skilaboð til verktakafyrirtækja sem sæktust eftir viðskiptum við Bandaríkin: „Ef þið viljið eiga við- skipti við okkur verðið þið fyrst að staðfesta að þið stundið ekki bönnuð viðskipti við Íran.“  Í ræðu sinni sagði Ahmadinejad að „hótanir, pólitískur þrýstingur og refsiaðgerðir Vesturlanda“ mið- uðu að því að hindra framþróun í Íran. „Við erum öll hluti af einni fjöl- skyldu og ættum að vinna að fram- þróun í Íran,“ sagði hann og bætti við að landið sæktist ekki eftir heimsyf- irráðum. Engu að síður sendi Ah- madinejad frá sér þá viðvörun að „Íran myndi kenna óvinum sínum ógleymanlega lexíu“ ef þeir létu ekki af fjandsamlegu viðmóti. Íransforseti segir refsiaðgerðir miða að hindrun framþróunar í Íran: Lofar „ógleymanlegri lexíu“ Fíkniefnakafbátur Yfirvöld í Ekvador lögðu á föstudag- inn hald á kafbát sem smíðaður var með það eitt í huga að vera notaður til fíkniefnaflutnings. Kafbáturinn er búinn tveimur skrúfum og er með rafmótor sem knúinn er með olíu. Hann er 30 metra langur, með nærri þriggja metra lofthæð og búinn loft- ræstikerfi og sjónpípu. Kafbáturinn var smíðaður á af- skekktu svæði inni í skógi, en þrátt fyrir það fór smíðin ekki nógu leynt því ekvadorskum yfirvöldum tókst að koma höndum yfir hann, með aðstoð bandarísku alríkislögregl- unnar, áður en hann fór í jómfrúar- ferð sína. Einn hefur verið handtek- inn vegna málsins. Verðlaunastytta úr kókaíni Fíkniefnalögreglan í Kólumbíu hefur lagt hald á eftirlíkingu af HM-verð- launastyttunni, sem búin var til úr kókaíni. Styttan fannst á flugvellin- um í Bogota þar sem hún beið þess í vöruhúsi að verða send til Spán- ar, sagði yfirmaður fíkniefnadeildar flugvallarins, Jose Piedrahita. Verðlaunastuttan var búin til úr ellefu kílóum af kókaíni sem bland- að hafði verið asetóni eða bensíni svo hægt væri að móta hana. Styttan fannst við reglubundna leit á flug- vellinum í Bogota á föstudag, að sögn kólumbískra yfirvalda. Í hættu vegna hungurverkfalls Guillermo Farinas, 48 ára stjórnar- andstæðingur á Kúbu, er í lífshættu að sögn lækna sem annast hann. Farinas hefur farið fram á að öllum veikum pólitískum föngum á Kúbu verði sleppt og verið í hungurverk- falli síðan í febrúar til að undirstrika kröfu sína. Stjórnvöld á Kúbu segja að þau muni ekki verða „kúguð“ af Farinas og ef hann deyi verði það honum sjálfum að kenna. Þau neita því að pólitískir fangar fyrirfinnist á Kúbu og segja fangelsaða stjórnarand- stæðinga vera venjulega glæpamenn eða „málaliða“ á vegum Banda- ríkjanna. Óopinber mannréttinda- efnd Kúbu telur að pólitískir fangar landsins séu um 180 talsins. Kjarnorkuver í Bushehr í Íran Bandaríkjamenn hafa samþykkt nýjar refsiaðgerðir gegn Íran vegna kjarnorkuáætlunar landsins. Mynd ReuteRs Í bobba Vegna blóðdemants Í síðustu viku var ofurfyrirsætunni skapbráðu Naomi Campbell fyrirskip- að að bera vitni við réttarhöldin yfir Charles Taylor, fyrrverandi forseta Líb- eríu. Stríðsglæpadómstóllinn í Afríku- ríkinu Síerra Leóne gaf út stefnu sem neyðir Naomi Campbell til að bera vitni eftir að ásakanir um að hún hefði þegið svonefndan „blóðdemant“ af Taylor komu upp á yfirborðið, en það á hún að hafa gert í matarboði sem Nel- son Mandela hélt í Suður-Afríku árið 1997. Sjálfur er Charles Taylor sakaður um að hafa selt demanta til að fjár- magna blóðuga styrjöld sem kostaði þúsundir mannslífa. Demanturinn sem Campbell er gefið að sök að hafa þegið af Charles Taylor er einn slíkra demanta. „Gríðarstór“ lítill demantur Leikkonan Mia Farrow var gestur í sama matarboði og fullyrðir hún að Naomi Campbell hafi sagt henni að hún hafi verið ónáðuð um miðja nótt af karlmönnum sem sögðust vera full- trúar Taylors og hafi síðan rétt henni „gríðarstóran demant“. Þáverandi umboðsmaður Naomi Campbell, Carol White, fullyrðir að hún hafi verið viðstödd atburðinn. „Hann gaf henni hann [demantinn]. Þetta var lítill, óskorinn demantur. Ég er afar undrandi á af hverju Naomi hefur ekki viðurkennt þetta,“ sagði Carol White. Mia Farrow og Carol White verða báðar kallaðar til vitnis við réttarhöld- in. Sjálf hefur Naomi Campbell ítrekað neitað að gefa réttinum upplýsingar og hefur brugðist ókvæða við þegar málið ber á góma. Hellti sér út í góðgerðamál Nýlega strunsaði Campbell út úr sjónvarpsviðtali við ABC News þeg- ar fréttamaður gerðist svo ósvíf- inn að vekja máls á ásökununum á hendur henni. Þykja viðbrögð henn- ar undarleg í ljósi þess að hún hefur reynt að fjarlægjast fyrirsætubrans- ann sem heltekinn er af æskublóma, enda er Naomi komin á fimmtugs- aldurinn.  Í viðleitni sinni til að söðla um hefur Campbell gefið sig út fyrir að vera baráttukona fyrir hin ýmsu góð- gerðamál. Hún er „alheimssendi- herra“ fyrir White Ribbons Alliance, samtök sem reyna að vekja athygli á þeim mikla fjölda kvenna sem deyja ár hvert af barnsförum. Einnig hef- ur hún látið sig málefni eyðnisjúkra varða og safnað fé í baráttunni gegn fátækt í heiminum. Vitnisburður Campbell gæti vegið þungt Saksóknarar í máli Charles Taylor höfðu kvartað yfir því að hafa án ár- angurs reynt að ná sambandi við Na- omi Campbell síðan í júní í fyrra, en þá barst þeim til eyrna orðrómur um að hún hefði þegið þessa gjöf. Það eina sem saksóknarar höfðu upp úr krafs- inu voru opinberar yfirlýsingar fyrir- sætunnar um að hún „vildi ekki bland- ast í málið“. Saksóknarar telja að vitnisburð- ur Campbell myndi styðja við þau rök þeirra að Charles Taylor hafi logið þegar hann bar vitni um að hann hefði aldrei átt óskorna demanta. Rétturinn féllst á beiðni saksóknara um stefnu á hendur Campbell og taldi að það væri í það minnsta „góður möguleiki á að vitnisburður Naomi Campbell yrði gagnlegur“. Forsetinn fyrrverandi neitar sök Charles Taylor er ákærður fyrir að hafa selt demanta og keypt vopn fyrir upp- reisnarher Síerra Leóne, RUF, sem var alræmdur fyrir að höggva hendur og fætur af borgurum í borgarastríðinu sem stóð frá 1991 til 2001. Þegar réttarhöld yfir honum hóf- ust árið 2007 sagðist Taylor saklaus af ellefu ákæruatriðum sem varða stríðs- glæpi og glæpi gegn mannkyni í borg- arastríðinu. Taylor hefur einnig vísað á bug fullyrðingum um að hann hafi gef- ið Naomi Campbell blóðdemant. Samkvæmt fyrirmælum dómstóls- ins eiga Mia Farrow, Carol White og Naomi Campbell að mæta fyrir dóm- inn eins fljótt og auðið er. KolBeinn þoRsteinsson blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is Ofurfyrirsætan naomi Campbell hefur fengið stefnu sem gerir henni skylt að bera vitni við stríðsglæparéttarhöldin yfir fyrr- verandi forseta Líberíu, Charles taylor. Vitnisburður fyrirsætunnar varðar blóð- demant sem sagt er að hún hafi þegið af for- setanum fyrrverandi. Charles taylor Forsetinn fyrrverandi neitar að hafa gefið fyrirsætunni demant. Mynd ReuteRs

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.