Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.2010, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.2010, Blaðsíða 32
n Útrásarvíkingurinn Karl Wern- ersson í Milestone fékk á milli 4 og 5 milljónir króna í sinn hlut fyrir útihátíðina sem haldin var í landi hans í Galtalækjarskógi í Lands- sveit um helgina. Margmenni var á hátíðinni og kostaði miðinn 5.500 krónur. Frægasti gestur hátíðar- innar var europopparinn Scooter. Galtalækjarskógur er hvað þekkt- astur fyrir bindindishátið sem hald- in var þar árlega í mörg ár á sínum tíma. Karl keypti Galtalækjarskóg árið 2007 fyrir tæpar 300 milljónir króna og hefur svæðið verið lokað almenningi síðan. Karl fær því eitt- hvað fyrir sinn snúð með leigunni á Galtalækjarskógi til hátíðarhaldaranna og kemur það sér örugglega vel fyrir hann því auðmað- urinn hefur misst stærstan hluta eigna sinna í kjölfar efna- hagshrunsins. Fær milljónir Fyrir útihátíð Serbneski arkitektinn Mirjana Demic kom hingað til Íslands í síðustu viku í fyrsta sinn síðan 1976. Þá starfaði hún í tíu mánuði við byggingu Sigöldu- virkjunar á vegum serbnesks fyrirtæk- is. Mirjana heimsótti Sigölduvirkjun fyrir helgi en hún hefur þráð að koma til Íslands í fjöldamörg ár vegna þeirra minninga sem hún á héðan. Draum- ur Mirjönu um endurkomu til Íslands varð að veruleika þegar elsta dóttir hennar gaf henni ferð til Íslands í sex- tugsafmælisgjöf. „Þegar ég kom til Sigöldu á sínum tíma áttaði ég mig ekki á því strax hvað það var sem ég saknaði: Það voru tré. Þarna upp frá þreifst eiginlega ekkert líf, þar var bara sandur og grjót,“ seg- ir Mirjana sem vann að frágangi Sig- ölduvirkjunar sem arkitekt. Hún seg- ir að helsti munurinn sem hún sjái á Reykjavík þá og nú sé hversu miklu gróðursælli borgin er orðin á síðustu þrjátíu árum. Demic segir að hún hafi upplifað ýmislegt meðan hún dvaldi á Íslandi. Eftirminnilegasta upplifun hennar er frá því þegar íslenskur trésmiður bað um hönd hennar í Sigöldu. „Fé- lagar hans komu til mín og sögðu að hann vildi hitta mig en að hann vissi ekki hvernig hann gæti nálgast mig. Ég sagði þeim að ég væri til í að hitta manninn sem vin,“ segir Mirjana. „Svo kom maðurinn til mín. Hann var 25 til 30 árum eldri en ég. Hann þorði ekki að líta í augun á mér og sat mjög taugaóstyrkur á meðan við vorum að tala saman. Hann gaf mér flösku af Hennessy-koníaki sem hefur verið mjög dýr. Fljótlega stóð hann upp og sagðist þurfa að fara.“ Skömmu síðar frétti Mirjana að smiðurinn væri hættur að vinna við virkjunina. „Áður en hann fór skrif- aði hann mér bréf og spurði mig hvort ég vildi giftast honum og að ef ég vildi það myndi ég hafa uppi á honum. Fé- lagar hans sögðu mér síðar að maður- inn hefði misst konuna sína mörgum árum áður og að ég hefði minnt hann mjög á hana og þess vegna hefði hann orðið svo meyr þegar hann sá mig. Hann var bugaður maður og ég sá hann aldrei aftur,“ segir Mirjana sem man því miður ekki hvað maðurinn hét. „Hann er líklega dáinn í dag því hann væri líklega á tíræðisaldri,“ segir Mirjana sem fór af landi brott eftir Ís- landsdvölina langþráðu á sunnudag- inn og hélt til Moskvu þar sem hún býr. ingi@dv.is Mirjana Demic heimsótti Sigölduvirkjun í fyrsta skipti síðan hún vann þar 1976: Gleymir aldrei bónorðinu í Sigöldu n Mígandi rigning var annars í Galtalækjarskógi Karls þegar Scoo- ter steig á svið og lék tryllt euro- popp fyrir dansi. Áður en Scooter hóf leik spurði hann áheyrendurna hvort þeir kynnu að meta rigning- una. Þegar þeir svöruðu því játandi sagði Scooter: „It is all part of the special effects,“ og lét þar með í það skína að meira að segja rigning- in væri hluti af þeirri sýningu sem Scooter bauð upp á. Annars fregn- aðist það að Scooter hefði auðvitað alls ekki komið ókeypis í Galtalækj- arskóg þessa helgi. Scooter mun hafa fengið á sjöundu milljón fyrir spilamennsk- una. Gestir hátíðar- innar gerðu góðan róm að Scooter enda er hann þekktur fyrir flest annað en að taka sig of alvarlega. Ætli Karl hafi dansað teknó við Scooter? DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til fréttar. Fyrir fréttaskot sem verður aðalfrétt á forsíðu greiðast 25.000 krónur. Fyrir besta fréttaskot vikunnar greiðast allt að 50.000 krónur. Alls eru greiddar 100.000 krónur fyrir besta fréttaskot hvers mánaðar. veðrið í dag kl. 15 ...og næstu daga sólarupprás 03:14 sólsetur 23:49 Áskriftarsíminn er 512 70 80 Fréttaskot 512 70 70 hluti aF sýningu scooters Reykjavík íslandsferð á afmælinu. Mirjana fékk ferð til Íslands í afmælisgjöf. MynD sigtRygguR aRi 20/15 23/16 24/17 23/17 29/22 29/22 28/14 25/20 29/22 26/15 23/17 22/17 22/18 29/22 24/17 24/17 25/20 28/22 21/15 23/14 23/17 23/15 27/20 27/20 21/19 25/21 28/22 23/16 21/15 23/17 23/14 28/20 28/20 26/22 24/19 27/22 0-3 11/9 3-5 10/8 5-8 13/11 3-5 11/10 3-5 13/10 3-5 13/11 8-10 9/8 8-10 8/6 3-5 11/9 5-8 13/11 8-10 9/8 8-10 11/8 8-10 11/9 8-10 9/8 8-10 8/6 10-15 10/8 5-8 14/11 8-10 13/11 5-8 15/12 5-8 15/12 8-10 13/10 0-3 14/12 0-3 8/6 3-5 11/9 5-8 9/7 0-3 14/12 0-3 14/13 0-3 15/12 5-8 10/8 3-5 9/7 3-5 8/6 0-3 9/7 0-3 8/6 3-5 7/6 3-5 7/6 8-10 9/7 8-10 7/4 8-12 5/4 5-8 4/3 3-5 4/3 3-5 6/5 8-10 6/5 10-12 14/12 8-10 11/9 5-8 9/7 5-8 6/4 8-10 10/8 3-5 8/6 8-10 8/6 0-3 14/12 3-5 11/9 3-5 12-9 3-5 11/9 0-3 13/11 3-5 12/8 3-5 12/10 Þri Mið Fim Fös vindur í m/s hiti á bilinu Stykkishólmur vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu Þri Mið Fim Fös vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu Höfn Reykjavík Egilsstaðir Ísafjörður Vestmannaeyjar Patreksfjörður Kirkjubæjarkl. Akureyri Selfoss Sauðárkrókur Þingvellir Húsavík Keflavík Mán Þri Mið Fim hiti á bilinu Kaupmannahöfn hiti á bilinu Osló hiti á bilinu Stokkhólmur hiti á bilinu Helsinki hiti á bilinu London hiti á bilinu París hiti á bilinu Berlín hiti á bilinu Tenerife hiti á bilinu Alicante veðrið úti í heimi í dag og næstu daga Rigning og Rok! Yfirleitt hægur vindur í dag, svolítil væta á Suður- og Vesturlandi, annars þurrt. Hiti núll til níu stig yfir daginn, hlýjast suðvestan til. Austan þrír til átta metrar á sekúndu og víða bjartviðri, en hvassara, skýjað og lítils háttar úrkoma við suður- ströndina. athugaseMD veðuRfRæðings 14 14 13 14 14 12 16 16 1914 16 12 4 3 3 00 4 3 3 3 6 6 4 6 hitakort Litirnir í kortinu tákna hitafar á landinu. Sjá kvarða. BEST Í NÁLÆGÐ VIÐ KLAUSTUR höfuðboRgaRsvæðið Það verður hægviðrasamt í borginni í dag og fram eftir öllum degi á morgun. Það bætir heldur í vind annað kvöld. Það verður skýjað og hætt við skúrum bæði í dag og á morgun. Á miðvikudag fer hann í norðaustanátt og þá stefnir allt í að hann verði þurr í borginni. Hitatölurnar verða ágætar, þetta 10-15 stig að deginum. lanDsbyggðin Við erum ekki laus við úrkomuloft yfir landinu þó úrkoman sé sums staðar hverfandi. Svæðið austan Mýrdalsjökuls, þ.e. í nálægð við Kirkjubæjarklaustur, lítur vel út í dag, horfur á björtu með köflum og hita um 18-20 stig. Annars staðar verður skýjaðra með rigningu austan til annars skúrum á víð og dreif. Reyndar verður ágætlega milt til landsins, þetta 12–16 stig, hlýjast í Borgarfirði. Vindur verður hægur í dag um allt land, þetta 3-8 m/s. næstu DagaR Annað kvöld og á miðvikudag verður hvasst sunnan til á landinu með 10-18 m/s, hvassast við ströndina. Einnig hvessir norðvestan til og við Breiðafjörð. Rigning verður á austurhelmingi landsins og norðavestan til en þurrt að mestu og skýjað með köflum suðvestan til. <5 Mjög hægur vindur 5-10 Fremur hægur vindur. 10-20 Talsverður vindur 20-30 Mjög hvasst, fólk þarf að gá að sér. >30 Stórviðri, fólk ætti ekki að vera á ferli að nauðsynjalausu.veðRið Með sigga stoRMi siggistormur@dv.is blessuð Rigningin! Í dag verður almennt úrkomulítið en stöku skúrir á stangli. A að kvöld erum við hins ve ar að tala um alvöru rigningu á Suðausturlandi og síðan á Austurlandi á mið- vikudag og Norðausturlandi síðdegis á miðvikudag. Þá verður vætusamt á Ströndum og nyrðra á Vestfjörðum. athugaseMD veðuRfRæðings

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.