Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.2010, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.2010, Blaðsíða 24
Kaldhæðinn Martino Gerardo Martino var kaldhæðinn í garð Alþjóðaknattspyrnusambandsins, FIFA, aðspurður um markið sem dæmt var af Paragvæ í fyrri hálfleik gegn Spáni. Nelson Valdez skoraði þá löglegt mark sem dæmt var af vegna rangstöðu. „FIFA mun biðjast afsökunar á morgun og allt verður í lagi,“ sagði Martino kaldhæðinn og vitnaði í af- sökunarbeiðnir sambandsins til Englands og Mexíkó eftir að illa var brotið á þeim. Talsmaður FIFA sagði á sunnudagsmorgun að FIFA hefði ekki borist nein kvörtun vegna ummælanna. Chelsea lítur til Brassa Nú fer að líða að lokum heimsmeistaramótsins og þá fara félagsliðin að reyna sanka að sér þeim mönnum sem stóðu sig vel á mótinu. Englands- meistarar Chelsea líta til brasilíska miðvallarleikmannsins Ramires ef marka má umboðsmann hans. „Það hafa mörg stór lið í Evrópu haft samband vegna Ramires,“ segir hann. „Chelsea og Bayern hafa rætt við Benfica um hann en meira get ég ekki sagt,“ segir umboðsmaðurinn en Ramires varð Portúgalsmeistari með Benfica í vetur og lék fjóra leiki af fimm með brasilíska landsliðinu á HM. hMmolar Gleði í Þýskalandi n Hin óvægna þýska pressa fagn- aði með liðinu eftir sigurinn á Argentínu enda varla annað hægt. Þýska blaðið Die Welt sagði á sunnudaginn: „Þetta unga þýska lið er að spila fótbolta sem heldur heimsbyggðinni við sjónvarpið.“ „Betri en Messi: Schweinsteiger klárar meistaraverkið sitt,“ bætir blaðið við. Blaðið Suddeutsche segir það hafa verið gott að Michael Ballack meiddist fyrir mótið. „Án Ballacks gat Löw þjálfari sett meiri ábyrgð á herðar Lahm, Schweinsteiger, Mertesacker og Podolski,“ segir í blaðinu og bætir við að mótið sé algjör snilld frá upphafi til enda. loksins, seGja spánverjar n „Blóð, sviti og sigur,“ var fyrirsögnin á spænska íþrótta- blaðinu AS eftir sigur Spánverja á Paragvæ en á Spáni eru menn vægast sagt ánægðir að vera komnir í undanúrslitin í fyrsta skiptið í sögunni. „Núna kom það,“ var forðsíðufyrir- sögnin í El Periodico og „Bölvun- inni er aflétt,“ var yfirskriftin hjá hinu víðfræga íþróttablaði Marca. Spánn hefur ótrúlegt en satt aldrei komist lengra en í átta liða úrslitin en nú verður breyting á því liðið mætir Þýskalandi á miðvikudaginn í undanúrslitum. rooney á erfitt með að aðlaGast n Xabi Alonso, leikmaður Spánar og Real Madrid, finnst Wayne Rooney og England ekki njóta þess nóg að spila landsleiki og því hafi ekki farið betur. „Þegar ég horfi á ensku úrvalsdeildinni og sé Wayne Rooney trúi ég stundum ekki mínum eigin augum. Hann er alveg frábær í úrvalsdeildinni en bara fínn í Meistaradeildinni. Það er svo eins og hann og England eigi í erfiðleikum með að aðlagast alþjóðboltanum. Mér fannst eins og Englendingarnir væru ekkert að njóta þess að spila HM. Kannski eiga þeir allir erfitt með að aðlagast,“ segir Xabi Alonso. tekur ekki við Brasilíu strax n Dunga er hættur að þjálfa brasilíska landsliðið og hefur Luis Felipe Scolari verið nefnd- ur sem arftaki hans. Brasilía heldur næstu heimsmeist- arakeppni sem fer fram eftir fjögur ár. „Það væri frábært að enda ferilinn á því að þjálfa Brasilíu á HM á heimavelli. Ég mun samt ekki taka neinum til- boðum fyrr en eftir 2012 þegar samningur minn hjá Palmeiras rennur út. Eftir það mun ég sjá til,“ segir Scolari. 24 uMSjóN: TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON tomas@dv.is 5. júlí 2010 mánudagur Þýskaland niðurlægði Argentínu, 4–0, í átta liða úrslitum heimsmeistaramótsins og tryggði sér þar með farseðilinn í undanúrslitin. Þátttöku skemmtikraftsins Diegos Armandos Maradona er því lokið og er eftirsjá að honum. Hann er ekki viss um hvort hann haldi áfram með liðið en tapið segir hann það versta sem gerst hafi í lífi sínu. Bless, Maradona „Ég gæti hætt á morgun,“ sagði nið- urbrotinn Diego Armando Mara- dona eftir 4-0 tap Argentínu gegn Þýskalandi á heimsmeistaramótinu í Suður-Afríku. Maradona hefur þó ekki enn látið af störfum en stað- reyndin er sú að Argentína er úr leik eftir niðurlægingu gegn Þýskalandi. Þjóðverjar léku við hvurn sinn fing- ur og voru miklu betri en Argentína í leiknum. Bæjarinn ungi Thomas Muller kom Þjóðverjum á bragðið strax á þriðju mínútu en tvö mörk frá Miroslav Klose og eitt frá Arne Fried- rich innsigluðu sannfærandi sigur Þýskalands. Stuðningsmenn þýska liðsins mættu með risastóran borða sem á stóð: „Bless, Maradona“ en þátttöku þessa skemmtilega manns og strákanna hans er nú lokið. Heimskingjar sem bauna á Messi Maradona var eðlilega hundsvekkt- ur eftir tapið enda maður sem felur ekki tilfinningar sínar. „Ég er svekkt- ur eins og allir Argentínumenn. Að sjá liðið mitt tapa fótboltaleik er erf- itt fyrir hvern þann sem hefur klæðst treyjunni,“ sagði Maradona á blaða- mannafundi eftir leikinn. „Úrslitin gefa þó ekki rétta mynd af því sem gerðist í leiknum og því er ég enn stoltur af liðinu. Draumurinn rætt- ist ekki að þessu sinni en ég vil þakka leikmönnum fyrir,“ sagði hann. Þeg- ar talið barst að því að Lionel Messi hefði ekkert skorað á mótinu brást hann ókvæða við og svaraði: „Þeir sem að segja að hann leggi sig ekki fram fyrir landsliðið eru heimskir. Það var skelfilegt að sjá hann gráta í búningsklefanum.“ Maradona er auðvitað í guðatölu í Argentínu en hann vann heims- meistaratitilinn nánast upp á sitt einsdæmi árið 1986. Hann hafði fyrir leikinn sagt að guð vildi að Argentína yrði heimsmeistari í ár en eitthvað klikkaði á himnum. „Við náðum ekki að láta draum- inn okkar rætast en maður finnur alltaf leið til baka,“ sagði Maradona. „Það mikilvæga er að við spiluðum okkar leik. Ég gæti yfirgefið liðið á endanum en ég vil að þessir strák- ar haldi áfram. Ég vil að þeir haldi áfram að sýna fólki hvernig argent- ínskur fótbolti á að vera. Fólk hef- ur haldið því fram að leikmenn sem fara utan og verða milljónamæringar vilji ekki lengur spila fyrir Argentínu, það höfum við afsannað núna. Allir leikmennirnir sem komu frá Evrópu lögðu sig alla fram. Við náðum ekki á þann stað sem við vildum í keppn- inni en ég er viss um að allt fólkið sem fylgir mér er allavega sammála mér í þessu,“ sagði Diego Armando Maradona. Vill Maradona áfram Eftir að Þýskaland komst í 1-0 eftir aðeins þriggja mínútna leik virtust Argentínumenn aldrei eiga nein svör. Maradona beið lengi með skiptingarnar og þegar það vantaði mörk var hann seinn að setja inn á framherja. Tengdasonurinn Sergio Aguero kom inn á en markamask- ínan Diego Milito sem skoraði bæði mörkin í úrslitaleik Meistaradeild- arinnar í maí var látinn sitja allan tímann á bekknum. „Ég mun verja þetta leikmanna- val og allan hópinn,“ sagði Gabriel Heinze, bakvörður Argentínu, að- spurður út í taktík Maradona eft- ir leikinn. „Við getum tekið fullt af jákvæðum hlutum með okkur frá þessu móti þó við vitum alveg að við klúðruðum þessu sjálfir,“ sagði hann en Heinze vill að Maradona haldi áfram með liðið. „Það á ekki að ákveða neitt strax. Við verðum að bíða þar til allir eru orðnir rólegri og búnir að ná sér niður. Mara dona hefur samt skilað frábæru starfi og það væri stórkostlegt ef hann héldi áfram með liðið,“ sagði Heinze. Liðið nánast fullkomið Þjálfari sem klikkaði ekki á neinu í leiknum var kollegi Maradona í þýska liðinu, Joachim Löw. Þýska liðið spilaði hreint frábærlega og skoraði fjögur mörk í þriðja sinn á mótinu. „Liðið var nánast fullkom- ið í dag,“ sagði Löw kátur eftir leik- inn. „Þetta eru ótrúleg úrslit því Argentína er með sterka vörn. Það var framúrskarandi að hafa náð að skora svona mörg mörk. Það er al- gert brjálæði að vinna Argentínu 4-0. Maður er nánast orðlaus yfir þessu Ég held að Þýskaland titri í dag og það er viðeigandi að fagna þessum sigri á þann máta,“ sagði Löw. Eini skugginn sem féll á annars frábæran sigur Þýskalands var gult spjald sem Thomas Muller fékk, að því er virtist fyrir litlar sakir, á 34. mínútu þegar hann handlék knött- inn. Spjaldið þýðir að hann verði ekki með í undanúrslitaleiknum gegn Spáni sem er mikið áfall fyrir Þýskaland. Muller er búinn að skora fjögur mörk í keppninni til þessa. „Þetta er mikið áfall fyrir okkur því hann hefur sýnt hversu hættu- legur hann er. Ég sá að hann fékk áminningu en skildi ekki fyrir hvað. Ég set stórt spurningamerki við gula spjaldið,“ sagði þó mjög svo kátur þjálfari Þýskalands, Joachim Löw. TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON blaðamaður skrifar: tomas@dv.is átti eKKi orð Maradona stóð stjarfur síðustu mínúturnar þar sem hann gat ekkert gert í niðurlægingu sinna manna. MyND ReuTeRS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.