Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.2010, Blaðsíða 26
Manuela Ósk Harðardóttir, feg-
urðardrottning Íslands 2002, og
eiginmaður hennar Grétar Rafn
Steinsson, knattspyrnumaður
hjá Bolton á Englandi, eru kom-
in frá Flórída þar sem þau hafa
verið í fríi síðustu vikur. Manúela
segir í færslu á manuelaosk.com
að ferðalagið heim til Englands
hafa tekið fimmtán klukkustund-
ir og að eftir slíkt ferðalag sé ekk-
ert betra en eigið rúm, „... eða jú,
betra er að nýja rúmið okkar er
komið – og það er LOVELY! 7 ft x
7 ft – takk fyrir!..jáhh, það er sko
pláss fyrir alla!“ segir Manúela.
Hún kveðst einnig djúpt snortin
yfir öllum kveðjunum og hrósinu
sem hún hafi fengið frá lesend-
um síðunnar upp á síðkastið.
„Okkur fannst bara vanta svona
blað fyrir karlmenn á Íslandi, það
er bara ekkert í boði,“ segir Högni
Auðunsson, ritstjóri Dude Magaz-
ine sem er nýtt veftímarit fyrir karl-
menn. Fyrsta blaðið kom út í síð-
ustu viku og í því má meðal annars
finna góð ráð í sambandi við hár-
vöxt, umfjöllun um póker, fótbolta,
bíla, tísku og margt fleira. Ætlunin
er að nýtt blað komi á vefinn viku-
lega og standa sömu aðilar að baki
Dude Magazine og eru að baki vef-
tímaritinu Nude Magazine en það
er ætlað konum.
„Þetta á fyrst og fremst að vera
flott og skemmtilegt afþreyingar-
blað fyrir karlmenn. Markhópur-
inn er strákar á aldrinum 18-40 ára,“
segir Högni og bætir við: „Þetta er
auðvitað bara fyrsta blaðið sem var
að koma út svo þetta er í sífelldri
þróun og við erum opnir fyrir öllum
hugmyndum. Við ætlum okkur að
verða hrikalega töff og vinsælt blað.“
Blaðið má nálgast á vefsíðunni
dude.is og þar er einnig hægt að
skrá sig á póstlista og fá blaðið sent
til sín í tölvupósti.
viktoria@dv.is
Fannst vanta blað
Fyrir karlmenn
Egill Gillz Einarsson er þessa
dagana staddur í Bandaríkj-
unum ásamt þeim Auðuni
Blöndal, Sverri Þór Sverrissyni
og Vilhelm Anton Jónssyni.
Þar taka þeir upp sjónvarps-
þátt þar sem þeir keppa sín á
milli um að komast sem fyrst
á milli staða og safna í leiðinni
stigum. Egill segir frá því á
Facebook-síðu sinni að hann
sakni kuldans á Íslandi þar
sem hann þurfi nú að þola 40
stiga hita. Hinn hógværi Egill
sagðist einnig hafa orðið fyrir
leiðindaáreitni í ferðinni. „Það
er búið að ruglast á mér og
David Beckham hérna í USA
10 sinnum og ég er bùinn ad
vera hérna ì korter! Óþolandi.“
26 fólkið 5. júlí 2010 mánudagur
kristján kristjánsson:
Nýtt veftímarit ætlað karlmöNNum hefur litið dagsiNs ljós:
Högni Auðunsson Ritstjóri karlatímaritsins Dude Magazine. MYND SigtrYggur Ari
nýtt rúm
og heim-
koma
saknar
kuldans
með útrásar-
víkingum á
monkey class
„Ég var búinn að prófa alls konar
aðferðir, búinn að fá ýmsar hug-
myndir, en ekkert var nógu gott.
Svo bara allt í einu upp úr þurru
kom alveg nýtt lag, eins og þruma úr
heiðskíru lofti,“ segir tónlistarmaður-
inn Kristján Kristjánsson, KK, sem er
höfundur þjóðhátíðarlagsins í ár en
það var frumflutt rétt fyrir helgi. Lag-
ið heitir Viltu elska mig á morgun?
og er afar hugljúft, eins og kannski
við mátti búast af hendi meistara KK.
Þegar hann er spurður hvort lag-
ið sé ekki töluvert rólegra en flest
þjóðhátíðarlögin í gegnum tíðina
er hann fljótur til svars, en þó á
sínum rólyndisnótum.
„Þeir báðu mig um að
gera þetta og þá hljóta
þeir að vita hvað
þeir fá. Ef þeir vilja
skagfirsku sveifl-
una þá láta þeir
bara einhvern
annan um
þetta,“ segir
KK og hlær.
„Annars
skiptir engu
máli hvern-
ig lagið er, ef
það er gott.“
KK bætir
við að mjög
gaman sé að
vera beðinn
um að semja
Þjóðhátíðar-
lagið. „Það
er gaman að
vera beðinn
um svona, en
um leið svo-
lítið þungt.
Þetta er þjóð-
hátíðarlagið
og því fylgja
væntingar og
ábyrgð og þess
vegna verð-
ur maður að
reyna að gera
það flott. Maður
pantar ekki bara
flott lag. Menn
eru alltaf að reyna að gera flott lög, í
Eurovision og svoleiðis, hafa langan
tíma fyrir sér en samt tekst þeim eig-
inlega aldrei að gera það. Jafnvel þótt
þeir séu hinir bestu lagasmiðir. En ég
var heppinn, ég fékk gott lag,“ segir
hann kíminn.
Spurður hvort lagið sé betra en
þjóðhátíðarlagið í fyrra sem Bubbi
Morthens samdi hlær KK hátt. Seg-
ir svo:
„Það var mjög gott, lagið hans
Bubba. Mjög fínt.“
KK er annars nýkominn heim úr
ellefu daga ferðalagi til Sjanghæ þar
sem hann spilaði ásamt KK-band-
inu á heimssýningunni. Hann segir
það hafa verið afskaplega ánægju-
lega ferð.
„Það var mjög gaman. Og mjög
fjölmennt. Það er mjög fjölmennt í
Kína,“ segir hann og skellir upp úr.
Bætir svo við í alvarlegri tón:
„Íslenska húsið var ofboðslega
flott. Þeir höfðu auðvitað úr mjög
litlu að moða eftir hrunið, það var
margskorið niður hjá þeim, og fyrir
vikið kom gott út úr þessu. Það er
ekki gott að hafa alltof mikið að
bruðla með. Þá kemur oft ekki neitt.“
KK segir áhugann á íslensku kynn-
ingunni líka hafa verið mikinn. Bið-
raðirnar inn í íslenska húsið hafi yfir-
leitt verið mjög langar.
Þrátt fyrir að ferðalagið austur
hafi verið langt fannst KK það ekki
svo strangt. „Maður var svolítið das-
aður eftir flugið út, þar sem maður
flýgur með möndulsnúningi jarðar.
En þegar þú flýgur til baka, á móti
snúningnum, þá virðist það hafa
meiri áhrif. En þetta er allt orðið svo
þægilegt í þessum flugvélum, með
einkasjónvarpsskjá með bíómyndir
til að velja úr og svoleiðis. Jafnvel þótt
þú sért á „monkey class“. En það var
svolítið gaman að því í vélinni heim
að þar var mikið af þessum útrásar-
víkingum í monkey class. Ég kann
bara ekki nöfnin á þeim. Og ég held
að sérstaki saksóknarinn hafi verið
þarna líka. Það eru bara allir komnir
í monkey class!“
kristjanh@dv.is
Þjóðhátíðarlagið fyrir samnefnda hátíð í eyjum er tilbúið. höf-
undurinn, KK, er ánægður með það og kveðst heppinn að hafa
„fengið“ þetta góða lag. kk er nýkominn frá sjanghæ en í flug-
vélinni á leið heim segir hann nokkra útrásarvíkinga hafa
verið með sér á „monkey class“.
Ólafur Þór Hauksson Sérstaki saksóknarinn var með KK og hópi útrásarvíkinga í
flugvélinni á leið heim frá Sjanghæ. Tónlistarmaðurinn veit ekki hvort víkingarnir voru
með Ólafi í för. MYND rÓbert reYNiSSoN
KK Búinn að semja þjóðhátíðarlagið í
ár, Viltu elska mig á morgun?