Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.2010, Side 6
6 fréttir 5. júlí 2010 mánudagur
Betra loft
betri líðan
Airfree lofthreinsitækið
• Eyðir frjókornum og svifryki
• Vinnur gegn myglusveppi og ólykt
• Eyðir bakteríum og gæludýraflösu
• Er hljóðlaust og sjálfhreinsandi
Hæð aðeins 27 cm
Sími 569 3100 • Stórhöfða 25 • www.eirberg.is
Heilbrigðisráðuneytið vinnur að tillögum til fjárlaga 2011:
Skoða sameiningu
Heilbrigðisráðuneytið kannar nú hag-
kvæmni og skynsemi þess að sameina
starfsemi heilsugæslustöðva á höfuð-
borgarsvæðinu. Til greina kemur að
fækka heilsugæslustöðvum úr sextán
í sjö til níu. Sameiningin er skoðuð
vegna undirbúnings fjárlagagerðar
fyrir árið 2011. Þar má gera ráð fyrir
að skera þurfi niður um tugi milljarða
króna í ríkisrekstrinum, eða um fimm
til tíu prósent.
Álfheiður Ingadóttir, heilbrigðis-
ráðherra, segir sameiningu heilsu-
gæslustöðva vera eitt af því sem þarfn-
ist skoðunar. Þetta eigi ekki aðeins við
höfuðborgarsvæðið heldur landið allt.
Hún segir ákveðna hagkvæmni geta
falist í því að hafa fleiri en færri lækna
á heilsugæslustöðvum. Hún segir að
stærri einingar geti einnig hugsanlega
þjónað fólki betur en margar smærri.
Þannig sé stefnt að því að bæta og efla
þjónustu heilsugæslunnar. Hún segir
ráðuneytið ekki hafa lagt fram tillög-
ur sínar til fjárlaga og því hafi engin
ákvörðun verið tekin um sameiningu
heilsugæslustöðva. Gera má ráð fyrir
að starfshópur ráðuneytisins skili nið-
urstöðum sínum síðsumars.
Halldór Jónsson, formaður Félags
heimilislækna, segir að fara verði var-
lega í sameiningar heilsugæslustöðva.
Hann segir ákveðna þekkingu liggja að
baki hverri og einni þeirra. Þær bjóði
upp á fjölbreytta þjónustu og þangað
leiti fólk á mismunandi aldri. „Stórar
starfseiningar eru ekki endilega heppi-
legri. Þær litlu hafa meiri þekkingu á
viðkomandi hverfi sem gæti tapast við
sameiningu,“ segir hann.
Halldór segir að verði heilsugæslur
sameinaðar gæti kostnaður sjúklinga
aukist. Þeir þurfi þá að leita lengra
eftir læknisþjónustu, en eldra fólk og
barnafólk sé fjölmennt í hópi þeirra
sem sæki þjónustu heilsugæslustöðv-
anna. Hafa verði í huga þá nálægð sem
hugmyndafræði heimilislækninga feli í
sér. Verði heilsugæslustöðvar samein-
aðar í stærri einingar feli það sér hugs-
anlega í sér annað form heimilislækn-
inga en hefur áður verið. rhb@dv.is
Skera þarf niður í ríkisrekstrinum
Starfshópur heilbrigðisráðuneytisins
skilar af sér niðurstöðum um skynsemi
sameininga síðsumars.
Rektor Listaháskóla Íslands, Hjálmar H. Ragnarsson, segir formann Félags prófessora
við ríkisháskóla, Gísla Má Gíslason, bulla út í loftið. Ástæðan er gagnrýni þess síðar-
nefnda á ráðningu rektorsins í stöðu prófessors í leiklist. Hjálmar leggur á það áherslu
að æðsti mælikvarði á afrakstur listamanna sé hvorki menntun þeirra né prófgráður.
Hjálmar H. Ragnarsson, rektor
Listaháskóla Íslands, LÍ, er síður
en svo ánægður með gagnrýni for-
manns Félags prófessora við rík-
isháskóla, Gísla Más Gíslasonar,
á nýlega prófessorsráðningu þess
fyrrnefnda. Hjálmar segir Gísla
bara bulla út í loftið og hefur sent
honum, ásamt öðrum rektorum ís-
lenskra háskóla, harðort bréf.
Ráðningin sem um ræðir er
staða prófessors í leiklist við LÍ en
Hjálmar réð nýverið leikarann og
leikstjórann Stefán Jónsson í starf-
ið. Mat rektorinn, og sérstök val-
nefnd á vegum skólans sem hafði
það hlutverk að meta hæfi umsækj-
enda, það svo að mikil reynsla Stef-
áns vægi upp á móti þeirri stað-
reynd að hann hefði hvorki lokið
meistaraprófi né doktorsgráðu í
greininni. Það gagnrýndi Gísli Már
í helgarblaði DV og sagði æskilegt
að LÍ gerði sömu kröfur og ríkishá-
skólarnir um menntun þeirra sem
ráðnir eru. Hjálmar segir Gísla ekk-
ert vita um hvað hann sé að tala.
Ekki sáttur
„Þú bara bullar út í loftið, og hefur
ekki einu sinni fyrir því að kynna
þér forsendur fyrir háskólastarfi
í listum, hvað þá hvernig Lista-
háskóli Íslands fer með ráðning-
ar akademískra starfsmanna,“ seg-
ir Hjálmar í bréfi sem hann sendi
Gísla Má og öðrum háskólarektor-
um fyrir helgi.
„Ummæli þín lýsa ótrúlegri van-
þekkingu á fræðasviðinu listum. Þú
veist greinilega ekki hvað það er
sem gerir góðan listamann að góð-
um listamanni, þú veist ekki hver er
afrakstur góðs listamanns og með
hvaða hætti hann er birtur, og þú
veist ekki hvaða mælistikur notað-
ar eru alþjóðlega í listum til mats
á afrakstri listamanna, hvort sem
þeir eru túlkandi eða skapandi. Af-
rakstur listamanna eru ekki ritgerð-
ir í ritrýndum fræðitímaritum, eins
og þú heldur, og æðsti mælikvarði
á afrakstur listamanna er ekki dokt-
orsgráðan,“ bætir Hjálmar við.
Verkin tala
Af bréfi Hjálmars að dæma er ljóst
að hann er ekki sáttur við gagnrýni
á menntunarleysi hins nýja próf-
essors í leiklist en í svari Gísla Más
til Hjálmars ítrekar hann þá skoð-
un sína að rétt væri að gerðar séu
sömu kröfur til prófessora líkt og
hjá ríkisháskólum. „Ríkisháskólar
hafa fastmótaðar kröfur með al-
þjóðleg viðmið. Það er svo undir
Listaháskóla Íslands komið hvort
alþjóðleg viðmið séu viðhöfð við
ráðningu prófessora,“ segir Gísli
Már.
Hjálmar bendir á að þetta sé því
miður ekki í fyrsta sinn sem gagn-
rýni komi fram frá félagi á próf-
essora LÍ. „Við fyrstu ráðningar í
störf prófessora við skólann árið
2000 varð skólinn fyrir hnútukasti
frá forystumönnum félagsins og
þá fullyrt að prófessorar við skól-
ann væri engir „alvöru“ prófessor-
ar. Í listsköpun gildir að verkin tala.
Hljómleikarnir eru doktorsvörn
tónlistarmannsins og leiksýning-
in prófsteinn leikarans. Prófgráð-
an er aðeins vitnisburður um fram-
gang hans og getur aldrei gilt sem
altæk sönnun fyrir listrænni getu
eða ávísun á frama,” segir Hjálmar.
tRauSti HafStEinSSon
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
Æðsti mælikvarði á afrakstur lista-
manna er ekki doktors-
gráðan.
Háskólamenn
í Hár sa an
Prófessor Stefán hefur mikla reynslu á sviði leiklistar og
hefur hlotið verðlaun og viðurkenningar fyrir störf sín.Vill skapa 150
ný störf
150 manns geta fengið vinnu, ef
hugmyndir Jóns Gnarr borgarstjóra
verða að veruleika. Hann vill að
Reykjavík eyði 500 milljónum til við-
bótar í framkvæmdir í ár.
Jón Gnarr vill skapa ný störf og lagði
hann þetta til á borgarráðsfundi fyrir
helgi, en hugmyndin verður rædd á
aukafundi í dag, mánudag.
Breytingarnar fela í sér að 500 millj-
ónum króna verði varið til sérstakra
atvinnuátaksverkefna til viðbót-
ar við 150 milljónir sem verja átti í
atvinnumál á fjárhagsáætlun þessa
árs, að því er fram kom í fréttum
RÚV á sunnudag.
syntu í Hvítá
Þrír ungir menn skelltu sér í sund í
Hvítá á Suðurlandi aðfaranótt sunnu-
dags. Þeir höfðu setið að sumbli í
sumarbústað í grenndinni.
Óttaslegnir félagar þeirra hringdu á
lögreglu þegar þeir skiluðu sér ekki.
Lögreglan á Selfossi ræsti út björgun-
arsveitir. Hálftíma síðar komu menn-
irnir blautir og kaldir í leitirnar, höfðu
synt yfir Hvítá en gengið til baka.
Mennirnir hófu sundið í Laugar-
ási í Bláskógabyggð og komu upp á
bakkann í Hrunamannahreppnum
við Auðsholt. Að sögn lögreglunnar
fengu þeir föðurlegt tiltal, enda þykir
óskynsamlegt að synda í jökulá undir
áhrifum áfengis og láta ekki félaga
sína vita.
Þorgerður Katrín
snýr aftur í haust
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir,
fyrrverandi varaformaður Sjálf-
stæðisflokksins, hyggst taka á ný
sæti sitt á Alþingi í haust. Þor-
gerður tók sér hlé frá þingstörf-
um í apríl eftir mikla gagnrýni á
hana vegna lánveitinga til eigin-
manns hennar, Kristjáns Arason-
ar. Í samtali við Pressuna segist
Þorgerður ekki telja að hún þurfi
að segja af sér þingmennsku. Á
landsfundi Sjálfstæðisflokksins
um þarsíðustu helgi var ályktun
þess efnis að þeir, sem hlotið hafa
óeðlilega háa prófkjörsstyrki, segi
af sér þingmennsku. „Ég var ekki
með þessa háu styrki sem hlaupa
á tugum milljóna,“ segir Þorgerð-
ur Katrín meðal annars.