Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.2010, Side 21
Jóhann Guðjónsson
líffræðikennari við flensborg
Jóhann fæddist á Akureyri og ólst
þar upp. Hann var í Hreiðarsskóla,
Barnaskóla Akureyrar, Gagnfræða-
skóla Akureyrar og lauk þar lands-
prófi 1966, lauk stúdentsprófi frá
MA 1970, lauk BS-prófi í líffræði við
Hí 1974 og prófum í uppeldis- og
kennslufræði við HÍ 1978. Þá hef-
ur hann sótt fjölda námskeiða sem
tengjast líffræði og líffræðikennslu.
Jóhann hefur verið líffræðikenn-
ari við Flensborgarskólann í Hafn-
arfirði frá 1974. Hann hefur verið
deildarstjóri í líffræði, áfangastjóri,
og aðstoðarskólameistari innan
skólans í lengri og skemmri tíma.
Jóhann var fulltrúi í heilbrigð-
isnefnd Hafnarfjarðarbæjar 1978-
86, formaður gróðurverndarnefnd-
ar Hafnarfjarðarbæjar 1986-90,
var verkefnisstjóri Globe-verkefn-
isins sem er langstærsta alþjóða-
kennsluverkefni í umhverfismál-
um, stýrimaður vettvangsnáms
í raungreinum á vegum Endur-
menntunarstofnunar HÍ 2000-
2001.
Jóhann hefur setið í stjórn Sam-
lífs, samtaka líffræðikennara, frá
1990, var formaður 1991-93 og aft-
ur formaður 1998-2010, var tengi-
liður við Coastwatch – evrópskt
fjöruverndarverkefni 1989-99, sat
í stjórn Náttúruverndarfélags Suð-
vesturlands 1984-90, sat í stjórn
Sjálfboðaliðasamtaka um náttúru-
vernd 1991-96 og var formaður
þeirra 1993-95, sat í verkfallsstjórn
í verkfalli kennara 1995, í stjórn Al-
þýðubandalagsfélags Hafnarfjarð-
ar 1983-88 og var formaður þess
1985-86, og sat í miðnefnd Samtaka
herstöðvaandstæðinga 1978-79.
Jóhann samdi ritið Vistfræði –
æfingar og greinar, útg. af mennta-
málaráðuneytinu 1978. Hann hefur
skrifað greinar í blöð og tímarit. Þá
þýddi hann og staðfærði, ásamt Ei-
ríki Jenssyni, ritið Umhverfisbókin,
útg. 1996.
Fjölskylda
Dóttir Jóhanns er Guðrún Eva Jó-
hannsdóttir, f. 18.7. 1978, jarðfræð-
ingur Í Reykjavík, en maður hennar
er Óskar Pétur Einarsson vélaverk-
fræðingur og er dóttir þeirra Jó-
hanna Eldey Óskarsdóttir, f. 1.9.
2008.
Systkini Jóhanns eru Jón Trausti
Guðjónsson, f. 23.12. 1944, tjóna-
matsmaður, búsettur í Hafnarfirði;
Gunnsteinn Guðjónsson, f. 22.11
1946, lyfjafræðingur á Akureyri;
Anna Guðjónsdóttir, f. 14.2. 1949,
skrifstofumaður á Akureyri; Magn-
ús Guðjónsson, f. 28.3. 1954, húsa-
smíðameistari á Akureyri; Ingvar
Guðjónsson, f. 30.10. 1958, vakt-
maður í Reykjavík.
Foreldrar Jóhanns: Guðjón
Gunnlaugsson, f. á Hamarskoti í
Svarfaðardal 18.5. 1917, d. 20.8.
1994, húsasmiður á Akureyri, og
Guðrún Jónsdóttir, f. að Keldunesi
í Kelduhverfi 12.8. 1918, d. 28.8.
2007, húsmóðir á Akureyri.
Ætt
Guðjón var sonur Gunnlaugs, b. á
Upsum í Svarfaðardal Daníelsson-
ar, skipstjóra í Tjarnargarðskoti
Jónssonar, b. í Miðkoti Jónssonar.
Móðir Daníels var Guðrún Gunn-
laugsdóttir, b. í Efstakoti Illugason-
ar. Móðir Gunnlaugs var Guðrún
Jónsdóttir, b. í Litlakoti Guðmunds-
sonar, b. á Bjarnastöðum Guð-
mundssonar. Móðir Guðrúnar var
Ragnhildur Árnadóttir, b. á Búrfelli
Guðmundssonar.
Móðir Guðjóns var Steinunn,
systir Margrétar, móður Aðalsteins
Júlíussonar, fyrrv. vitamálastjóra.
Steinunn var dóttir Sigtryggs, b. í
Klaufabrekkum, bróður Jóns, afa
Þráins Guðmundssonar, skóla-
stjóra og fyrrv. forseta Skáksam-
bands Íslands. Sigtryggur var son-
ur Jóns, b. í Klaufabrekkum, bróður
Sigurðar, afa Sigurðar Hauks Guð-
jónssonar prests. Jón var sonur
Halldórs, b. í Urðum Þorkelssonar,
ættföður Tungufellsættar Jónsson-
ar. Móðir Jóns í Klaufabrekkum var
Guðrún, systir Kristínar, langömmu
Snjólaugar, móður Sigurðar Þórar-
inssonar jarðfræðings. Guðrún var
dóttir Sigurðar, b. á Hæringsstöð-
um Ólafssonar. Móðir Sigtryggs var
Ingibjörg Jónsdóttir, hreppstjóra í
Göngustaðakoti, bróður Halldórs í
Urðum. Móðir Ingibjargar var Mar-
grét Jónsdóttir. Móðir Steinunn-
ar var Steinunn Þorkelsdóttir, b. í
Göngustaðakoti, bróður Ingibjarg-
ar í Klaufabrekkum. Móðir Stein-
unnar Þorkelsdóttur var Kristín
Sigurðardóttir, ættföður Hreiðars-
staðakotsættar Jónssonar.
Guðrún er dóttir Jóns, b. á Ein-
arsstöðum, bróður Jóns Trausta
rithöfundar. Jón var sonur Magn-
úsar, b. á Hrauntanga Magnús-
sonar, b. á Daðastöðum Helga-
sonar. Móðir Jóns á Einarsstöðum
var Guðbjörg Guðmundsdóttir, b.
á Sigurðarstöðum, bróður Magn-
úsar á Víkingavatni, langafa Guð-
mundar Benediktssonar ráðuneyt-
isstjóra, föður séra Sólveigar Láru.
Magnús var einnig afi Benedikts al-
þingisforseta, föður Bjarna Bene-
diktssonar forsætisráðherra, föður
Björns, fyrrv. ráðherra og Valgerðar
alþm., en bróðir Bjarna var Sveinn,
afi Bjarna Benediktssonar, alþm.
og formanns Sjálfstæðisflokksins.
Guðmundur var sonur Gottskálks,
ættföður Gottskálksættar Pálsson-
ar.
Móðir Guðrúnar var Anna
Kristín Jóhannesdóttir, b. á Sjör-
hóli í Öxarfirði Gíslasonar, b. í
Sauðaneskoti Jónssonar. Móðir
Önnu Kristínar var Friðfinna Ingi-
björg Jónsdóttur, b. í Krossavíkur-
seli Grímssonar.
30 ára
n Robert Jan van Spanje Selvaði 3, Reykjavík
n Vignir Hreinsson Hlíðarhjalla 66, Kópavogi
n Ásgerður Þórunn Hannesdóttir Hrefnugötu 7,
Reykjavík
n Anna Kristín Karlsdóttir Lækjarbergi 27, Hafn-
arfirði
n Stefán Ingi Valdimarsson Rauðalæk 29, Reykjavík
n Kristinn Þór Sigurbergsson Nýbýlavegi 72,
Kópavogi
n Jón Marz Eiríksson Bergstaðastræti 46, Reykjavík
n Björn Birgir Þorláksson Ljósheimum 2, Reykjavík
n Samúel Þór Hermannsson Lindarhvammi 7,
Kópavogi
n Irma Stanisauskiene Heiðarbóli 8c, Reykjanesbæ
40 ára
n Mirvet Shillova Brattholti 3, Hafnarfirði
n Krzysztof Szalwinski Kambastíg 2, Sauðárkróki
n Sigurður Óli Ólason Lambastöðum, Borgarnesi
n Jóhanna Kjartansdóttir Hraðastaðavegi 15,
Mosfellsbæ
n Ingólfur Ingólfsson Breiðuvík 51, Reykjavík
n Jónína Katrín Guðnadóttir Norðurgötu 32,
Akureyri
n Egill Helgason Skeljatanga 26, Mosfellsbæ
n Þorvarður Ingi Magnússon Breiðvangi 22,
Hafnarfirði
n Stefán Þór Stefánsson Álfheimum 68, Reykjavík
n Birgir Brynjólfsson Egilsbraut 20, Þorlákshöfn
50 ára
n Krzysztof Zalewski Gilsbakka 16, Hvolsvelli
n Marek Tadeusz Juraszek Hverfisgötu 57, Reykjavík
n Frantisek Uhliarik Réttarseli 7, Reykjavík
n Edward Galan Hvammstangabraut 13a, Hvamms-
tanga
n Kristín Sandholt Grundarhvarfi 20, Kópavogi
n Guðlaugur Þór Ásgeirsson Brávallagötu 18,
Reykjavík
n Margrét Jóhanna Loftsdóttir Kotárgerði 14,
Akureyri
n Kristín Þóra Ágústsdóttir Keldulandi 17, Reykjavík
n Anna Rósa Jóhannsdóttir Langholtsvegi 21,
Reykjavík
n Þórdís Árnadóttir Laugarnesvegi 76, Reykjavík
n Sigurður Ólafsson Kríuási 25, Hafnarfirði
n Ingileif S. Finnbogadóttir Eyrarholti 3, Hafn-
arfirði
n Páll Freysteinsson Blómsturvöllum 27, Nes-
kaupstað
60 ára
n Páll Sigurðsson Kelduskógum 14, Egilsstöðum
n Kristján Þórðarson Tunguvegi 7, Reykjavík
n Þóra Björg Ólafsdóttir Löngulínu 11, Garðabæ
n Guðrún Guðmundsdóttir Holtaseli 32, Reykjavík
n Sigurlína Elíasdóttir Ástúni 14, Kópavogi
n Ólafur Guðmundur Jósefsson Rauðási 15,
Reykjavík
n Sigríður Friðriksdóttir Háaleitisbraut 46,
Reykjavík
n Alda Sigrún Ottósdóttir Bollatanga 9, Mosfellsbæ
n Sigríður Gísladóttir Klapparhlíð 5, Mosfellsbæ
n Hrönn Antonsdóttir Ásakór 11, Kópavogi
n Jónína Jóhannsdóttir Klettabyggð 4, Hafnarfirði
n Friðrik Fabricius Karlsson Langholti 29, Akureyri
n Logi Jóhannsson Suðurgötu 38, Akranesi
70 ára
n Sonja Einara Svansdóttir Steinagerði 11,
Reykjavík
n Ingibjörg Gestsdóttir Fríholti 8, Garði
n Ásta Borg Jóhannsdóttir Þórsmörk 3, Hveragerði
n Hafdís Björk Hermannsdóttir Einilundi 2f,
Akureyri
n Auðunn Björnsson Hörðalandi 18, Reykjavík
n Helga Jónsdóttir Hafnarbergi 20, Þorlákshöfn
n Margrét Alda Úlfarsdóttir Suðurtúni 13, Álftanesi
n Selma Jóhannsdóttir Gránufélagsgötu 19,
Akureyri
n Baldur S. Einarsson Þúfubarði 17, Hafnarfirði
n Bjarnveig Samúelsdóttir Völusteinsstræti 1,
Bolungarvík
n Guðríður Borghildur Jónsdóttir Tungusíðu 20,
Akureyri
75 ára
n Einar Sigurður Ingvarsson Safamýri 81, Reykjavík
n Kristín Ólafsdóttir Ólafsvegi 2, Ólafsfirði
80 ára
n Jóhann Axelsson Grenimel 4, Reykjavík
n Gunnvör Rósa Jóhannesdóttir Grýtubakka 30,
Reykjavík
n Danfríður Ásgeirsdóttir Snorrabraut 58, Reykjavík
85 ára
n Olga Guðleifsdóttir Hagatúni 12, Höfn í Hornafirði
n Karitas Pétursdóttir Fossum, Kirkjubæjarklaustri
90 ára
n Sigríður Svava Runólfsdóttir Hörgshlíð 4,
Reykjavík
95 ára
n Anna S Magnúsdóttir Stangarholti 8, Reykjavík
30 ára
n Piotr Szczesny Þórsgötu 4, Patreksfirði
n Hannah Jensson Austurbergi 20, Reykjavík
n Ausra Geciené Drekavöllum 34, Hafnarfirði
n Anna Maria Witos-Biegun Háaleitisbraut 20,
Reykjavík
n Nikolas Peter Sellheim Drekagili 21, Akureyri
n Íris Ósk Birgisdóttir Selbrekku 13, Kópavogi
n María Fanney Leifsdóttir Bakkabakka 10,
Neskaupstað
n Erlendur Jóhann Guðmundsson Mávahlíð
43, Reykjavík
n Bjarki Már Jónsson Miðvangi 59, Hafnarfirði
n Benedikta Lilja Karlsdóttir Engihjalla 19,
Kópavogi
n Ragnhildur Helga Ragnarsdóttir Hvassaleiti
12, Reykjavík
n Katrín Sif Árnadóttir Vestursíðu 30, Akureyri
n Garðar Örn Þórsson Eggertsgötu 22, Reykjavík
n Svanhvít Guðmundsdóttir Hjallabraut 4,
Hafnarfirði
n Edda Guðrún Pálsdóttir Óðinsvöllum 9,
Reykjanesbæ
40 ára
n Jan Kolka Rjúpufelli 48, Reykjavík
n Elzbieta Beata Pienkowska Kjarrhólma 6,
Kópavogi
n Sjöfn Sigurðardóttir Hjallabraut 39, Hafnarfirði
n Kristín G. Ingimundardóttir Hæðarseli 16,
Reykjavík
n Karítas Guðmundsdóttir Stekkjarbergi 3,
Hafnarfirði
n Bergur Einarsson Króksholti 5, Fáskrúðsfirði
n Kolbeinn Agnarsson Heiðarvegi 46, Vest-
mannaeyjum
n Margrét Hugrún Gústavsdóttir Nesvegi 102,
Seltjarnarnesi
n Tómas Sigurðsson Aðalbraut 51, Raufarhöfn
50 ára
n Miroslaw Andrzej Skibowski Fellsmúla 4,
Reykjavík
n Páll Ingólfur Arnarson Sogavegi 220, Reykjavík
n Jón Ellert Gíslason Skálholtsbraut 3, Þorlákshöfn
n Stefán Árni Arngrímsson Snæfellsási 9, Hell-
issandi
n Skúli Bjarnason Faxabraut 64, Reykjanesbæ
n Jóhanna Guðmundsdóttir Suðurengi 13,
Selfossi
n Ásgeir Helgason Borgarholtsbraut 24, Kópavogi
n Karl Ásbjörn Hjartarson Klapparhlíð 24,
Mosfellsbæ
n Jóhanna Pétursdóttir Lerkilundi 13, Akureyri
n Þóra Þórarinsdóttir Norðurbæ, Selfossi
60 ára
n Gunnhildur Baldvinsdóttir Sólvöllum 19,
Akureyri
n Nikolaos Valavanis Dvergholti 12, Mosfellsbæ
n Erna Jóhannesdóttir Smáragötu 24, Vest-
mannaeyjum
n Sigurbjörg Ásgeirsdóttir Staðarhrauni 15,
Grindavík
n Björn Jónsson Sævangi 43, Hafnarfirði
n Þorsteinn Gíslason Hátúni 12, Reykjavík
n Ása María Valdimarsdóttir Klapparholti 12,
Hafnarfirði
n Lárus Hafsteinn Sigurðsson Gilsá, Breiðdalsvík
n Guðbjörg Guðjónsdóttir Einholti 14e, Akureyri
n Ágústa Guðmundsdóttir Brekkustíg 35c,
Reykjanesbæ
n Viðar Bjarnason Brekkuflöt 1, Akranesi
70 ára
n Diljá Sjöfn P. Snæfeld Fitjasmára 9, Kópavogi
n Hafsteina Helga Magliolo Móabarði 34,
Hafnarfirði
n Berglind Gísladóttir Laugarnesvegi 40,
Reykjavík
n Jón Guðmundsson Kjarrmóum 16, Garðabæ
n Steinunn Thorarensen Miðholti 7, Mosfellsbæ
n Erlingur Sigurðsson Sörlaskjóli 8, Reykjavík
n Kristín Jónsdóttir Dalbrún 9, Egilsstöðum
n Björn Haraldur Sveinsson Hafnarstræti 3,
Akureyri
75 ára
n Elsa Björnsdóttir Garðatorgi 17, Garðabæ
80 ára
n Maggý H Kristjánsdóttir Aðalstræti 4, Patr-
eksfirði
n Sigurjón Guðjónsson Vorsabæ 8, Reykjavík
n Betúel Betúelsson Fjarðarseli 11, Reykjavík
n Sigurður Guðmundsson Flétturima 4, Reykjavík
85 ára
n Þuríður Gísladóttir Hofteigi 42, Reykjavík
n Böðvar Jónsson Miðtúni 7, Reykjavík
90 ára
n Jóhannes Leifsson Norðurbrún 1, Reykjavík
100 ára
n Halldóra Halldórsdóttir Freyvangi 5, Hellu
til hamingju hamingju
afmæli 5. júlí
Guðmundur Magnús Guðlaugs-
son, sem er klippari á Skjá einum,
er þrítugur í dag. Hann ætlar ekkert
að halda neitt sérstaklega upp á af-
mælið en er hins vegar að þeysast
um landið í útilegum þessa dagana,
hér og þar, með unnustunni, Sigríði
Ástu Þorgeirsdóttur læknanema.
Þegar blaðamaður DV náði í
drenginn, rétt fyrir hádegi á föstu-
dag, var hann í þann veginn að
taka saman tjaldið eftir að hafa sof-
ið norður í Hjaltadal í Skagafirði.
Hann var spurður um afmælisund-
irbúning.
„Afmælis-hvað? Ég er í útilegu
– er núna í Hjaltadalnum en verð
mættur í Skorradalinn í kvöld á ætt-
armót. Við fórum út úr bænum sl.
miðvikudag og komum ekki aftur í
bæinn fyrr en eftir helgi. Við erum
að njóta landsins og náttúrunnar og
ég má því ekkert vera að því að spá í
hefðbundnar afmælisveislur.“
Það verður sem sagt ekkert af-
mælisboð?
„Ónei. Ég fer ekki að spilla há-
sumrinu með því að halda sjálfum
mér og öðrum í bænum þegar mað-
ur á að njóta veðurblíðunnar. Kær-
astan hefur að vísu verið að gefa
eitthvað í skyn um óvænta uppá-
komu í tilefni afmælisins. Ég veit að
vísu ekkert hvort af því verður eða
hvernig það verður, en það verður
allavega ekki óvæntara en svo að
þar verður ekkert margmenni. Lík-
lega bara við tvö. Ætli ég haldi svo
ekki bara upp á afmælið í Skorra-
dalnum. Er það ekki alveg sérstak-
lega við hæfi fyrir ættrækna Ís-
lendinga að halda upp á afmælið á
ættarmóti? Það held ég.“
En þá færðu nú ekki margar af-
mælisgjafir.
„Ég er nú bara þessa stundina
að teyga í mig sólina og sumarið í
frábæru veðri í þessu frábæra landi
okkar. Ég held að það sé ekki hægt
að biðja um betri afmælisgjöf.“
Ættarmóts- og útileguafmæli
guðmundur á skjánum
til hamingju
afmæli 6. júlí
mánudagur 5. júlí 2010 umsjón: kjartan gunnar kjartansson kjartan@dv.is ættfræði 21
60 ára í dag
afmælisbarn dagsins