Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2010, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2010, Side 2
2 FRÉTTIR 9. ágúst 2010 MÁNUDAGUR MÓTMÆLANDA ÚTHÝST ÚR MAGMA-NEFND Sveinn Margeirsson iðnaðarverkfræð- ingur fær ekki að taka sæti í Magma- nefndinni og bera stjórnvöld við vanhæfi hans. Sveinn hefur látið til sín taka, með- al annars til varnar almennum stofnfjár- eigendum í Byr, og tók þátt í mótmælum við heimili Steinunnar Valdísar Óskars- dóttur snemma í vor. Hann er ósammála forsætisráðuneytinu um vanhæfi til setu í Magma-nefndinni og þykir málið undar- legt. Sveinn Margeirsson, doktor í iðnað- arverkfræði, hefur gagnrýnt forystu Samfylkingarinnar á opnum fund- um og var meðal þeirra sem tóku sér stöðu fyrir utan heimili Steinunn- ar Valdísar Óskarsdóttur í tengslum við umræðuna um framboðsstyrki útrásarvíkinga við stjórnmálamenn. Hann fær ekki að taka sæti sitt í Mag- ma-nefndinni vegna meints vanhæf- is. Sveinn er einn þeirra fimm ein- staklinga sem Jóhanna Sigurðardótt- ir forsætisráðherra skipaði í nefnd í byrjun mánaðarins til þess að meta lögmæti kaupa Magma Energy á eignarhlutum í HS Orku. Nefnd- inni var jafnframt falið að rannsaka einkavæðingu orkufyrirtækja og varpa ljósi á starfsumhverfi þeirra og var Sveini ætlað að stýra þeirri rann- sókn. Eftir skipan Sveins í Magma- nefndina brá svo við að Ragnhild- ur Arnljótsdóttir, ráðuneytisstjóri í forsætisráðuneytinu, kallaði Svein á sinn fund þann 4. ágúst og til- kynnti honum að Jóhanna Sigurðar- dóttir forsætisráðherra myndi ekki undirrita skipunarbréf hans vegna fjölskyldutengsla við Unni G. Kristj- ánsdóttur. Unnur er formaður nefndar um erlenda fjárfestingu en búast má við að störf þeirrar nefndar verði tekin til athugunar af hálfu Magma-nefndar- innar. Unnur er gift móðurbróður Sveins. Samkvæmt heimildum DV gerði hún sjálf viðvart um mögulegt vanhæfi Sveins með þeim orðum að hann hefði í símtali hvatt hana til að hafna kaupum Magma Energy á hlutum í HS Orku. Skrítið mál Sveinn hefur sjálfur sagt opinberlega að samkvæmt stjórnsýslulögum sé nægjanlegt að hann víki af fundum þegar störf Unnar og nefndar henn- ar séu til umfjöllunar. „Allt er þetta heldur skrítið og undarlegt mál. Það er hið besta mál að fylgja reglum um vanhæfi í hvívetna. Ég er hins veg- ar ósammála mati stjórnvalda,“ seg- ir Sveinn í samtali við DV. Hann hef- ur farið fram á að forsætisráðuneytið birti rökstuðning sinn opinberlega, en sjáfur hefur hann fengið í hendur minnisblað þar sem sjónarmið ráðu- neytisins koma fram. Sveinn hefur ekki uppi neinar get- gátur um að afskipti hans af pólitísk- um hitamálum hafi haft áhrif á nið- urstöðu forsætisráðherra varðandi setu hans í Magma-nefndinni. Hann er óflokksbundinn, en hefur tekið til máls á pólitískum fundum, meðal annars á vegum Samfylkingarinnar, í kjölfar bankahrunsins. Hann kveðst ekki vera neinn æsingamaður en sé fastur fyrir þegar kemur að réttlætis- málum og grundvallarsjónarmiðum, meðal annars um siðvæðingu stjórn- mála, gagnsæi, heiðarleika og ábyrga stjórnsýslu. Mótmælandinn Aðspurður dregur Sveinn ekki fjöð- ur yfir að hann hafi tekið sér stöðu að minnsta kosti þrisvar sinnum fyr- ir utan heimili Steinunnar Valdís- ar Óskarsdóttur og kveðst hafa gert það í samræmi við skoðanir sínar um ábyrgð stjórnmálamanna. Um- ræðan um styrki banka og stórfyr- irtækja í kosningasjóði Steinunnar Valdísar og síðar mótmælastaða fyr- ir utan heimili hennar urðu á endan- um til þess að hún sagði af sér þing- mennsku fyrir Samfylkinguna. Sveinn hefur einnig lagt orð í belg, meðal annars á opnum fund- um Samfylkingarinnar, um dagana örlagaríku þegar ríkið og Seðlabank- inn þjóðnýttu Glitni í lok septemb- er 2008. Mun Sveinn hafa gagnrýnt sérstaklega að Björgvin G. Sigurðs- son, þáverandi ráðherra bankamála, hafi verið haldið utan við atburðarás- ina og ákvarðanatökuna. Þess í stað hafi Össur Skarphéðinsson, þáver- andi iðnaðarráðherra, verið kallað- ur til, sem og Jón Þór Sturluson, að- stoðarmaður Björgvins. Þetta telur Sveinn óverjandi stjórnsýslu hvern- ig sem á það sé litið og vikið hafi verið til hliðar grundvallarreglum um ábyrgð. Málið hafi borið keim af skuggastjórnun manna sem vísvit- andi héldu ráðherra utan við alvar- lega atburðarás og ákvarðanatöku. Engin tengsl Þess má geta að Björgvin sagði af sér sem ráðherra í janúar 2008. Í kjöl- far útgáfu skýrslu rannsóknarnefnd- ar Alþingis sagði hann einnig af sér þingflokksformennsku fyrir Samfylk- inguna og vék síðan af þingi með- JÓHANN HAUKSSON blaðamaður skrifar: johannh@dv.is Sveinn Margeirsson er doktor í iðnaðarverkfræði og sérfróður um rekjanleika. Hann er sviðsstjóri hjá Matís sem sinnir rannsóknum og nýsköpun í matvælaiðn- aði. Í mars árið 2009 fór hann að grennslast fyrir um viðskipti stjórnenda Byrs með stofnfjárbréf í bankanum en sjálfur er hann stofnfjáreigandi. Í kjölfar frétta DV í sama mánuði af lánveitingum Byrs til stjórnenda bankans í svokölluðu Exeter-máli efndu Sveinn og Rakel Gylfadóttir, eiginkona hans, til fundahalda með almennum stofnfjáreigendum. Stofnuð var vefsíðan „Verjum Byr“. Þar er lýst áhuga á að heilbrigt sparisjóðakerfi fái að dafna í landinu. Sem kunnugt er gaf sérstakur saksóknari nýverið út ákærur í Exeter-málinu gegn þremur fyrrverandi yfirmönnum hjá Byr, Jóni Þorsteini Jónssyni, Ragnari Z. Guðjónssyni og Styrmi Bragasyni. Allir lýstu yfir sakleysi sínu við þingfestingu málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur snemma í júlí síðastliðnum. HVER ER SVEINN MARGEIRSSON? „Ríkisstjórnin einsetur sér að stöðva það einkavæðingarferli á orkufyrirtækjum landsins sem hafið var í tíð ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks og tryggja samfélagslegt forræði á auðlindum og orkufyrirtækjum. Í samræmi við þessa markmiðssetningu hefur ríkisstjórnin ákveðið að sérstaklega skuli rannsaka tildrög þess að HS Orka sé komin í meirihlutaeigu einkaaðila með það fyrir augum að hægt sé að vinda ofan af þeirri niðurstöðu. Í þessu skyni hefur ríkisstjórnin, eftir viðræður við fulltrúa þingflokka sinna, samþykkt eftirfarandi: 1. Forsætisráðherra skipi sérstaka nefnd óháðra sérfræðinga til þess að rannsaka og yfirfara einkavæðingu í orkugeiranum á undanförnum árum. Sérstaklega verði horft til einkavæðingarferlis Hitaveitu Suðurnesja, síðar HS Orku, og söluferlis einstakra eignarhluta, ekki síst kaupa Magma Energy á eignarhlutum í fyrirtækinu í ljósi vafa um lögmæti þeirra viðskipta.“ ÚR YFIRLÝSINGU STJÓRNVALDA UM ORKU- OG AUÐLINDAMÁL Í LOK JÚLÍ: Heilbrigt sparisjóðakerfi Sveinn efndi til fundahalda stofnfjáreigenda í Byr þegar upplýst var um óeðlilegar lánveitingar stjórnenda. Myndin er frá aðalfundi Byrs. Sveinn margeirsson „Skrítið og undarlegt mál.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.