Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2010, Síða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2010, Síða 3
Yfirlæknir Ísafjarðarspítala, Þor- steinn Jóhannesson, seldi spítalan- um þjónustu í gegnum einkahluta- félag í sinni eigu. Um var að ræða bakvaktir, en greiðslur fyrir þær fóru í gegnum einkahlutafélagið Skurð- læknirinn ehf. sem síðan greiddi Þorsteini laun fyrir vaktirnar. Laun Þorsteins hafa vakið athygli fyrir vestan en samkvæmt álagningarskrá fyrir árið 2009 hækkaði hann um 7,2 milljónir króna í launum á milli ára. Þorsteinn segir hluta skýringarinn- ar vera þá að hann hafi áður rukkað fyrir bakvaktir í gegnum einkahluta- félag, en sé nú hættur því. Þorsteinn viðurkennir að slík við- skipti hafi ekki verið eðlileg og seg- ist vera hættur að rukka bakvakt- irnar í gegnum einkahlutafélagið. Hann segist hafa selt hluta út úr fé- laginu árið 2009 en það sé ennþá til, og í gegnum það rukki hann fyrir aðra þjónustu. Sú þjónusta yfirlækn- isins felist í því að skrifa vottorð, gera greinargerðir og annað í þeim dúr. „Hluti greiðslnanna sem ég fékk áður í gegnum ehf-ið lögðust af og fóru bara yfir á mig,“ segir Þorsteinn aðspurður um 600 þúsund króna tekjuhækkun á mánuði á milli ára. Neitaði í fyrstu Þorsteinn neitaði því í fyrstu að eiga einkahlutafélag þegar DV hafði sam- band við hann, og tók fram að hann hefði selt það árið 2009. „Nei ég á ekki einkahlutafélag, ekki lengur,“ sagði hann. Í öðru samtali sagð- ist hann ennþá eiga hlutafélagið og léti greiðslur fyrir ýmsa þjónustu fara í gegnum það. Þorsteinn segir félagið á engan hátt tengt spítalan- um en viðurkennir að spítalinn hafi keypt þjónustu því. Þegar hann var spurður hvers konar þjónustu spít- alinn hafi keypt af félaginu svaraði hann: „Ákveðna vaktþjónustu, það er að segja bakvaktir voru keyptar þannig.“ Aðspurður um það hvort það hafi verið hans eigin bakvakt- ir sem spítalinn greiddi einkahluta- félaginu fyrir svarar hann játandi. Spurður um það hvort að hann hafi sjálfur fengið greidd laun í gegnum félagið svarar hann:„Já náttúrulega, ehf. verður síðan að borga mér laun, það er ekkert hlutafélag rekið öðru- vísi en að það borgi laun, er það?“ Ekki eðlilegt Þorsteinn segir ýmsa liði fara í gegn- um félagið: „Ég skrifa vottorð, ég geri greinagerðir, ég er stundum dóm- kvaddur maður, hef verið í dómi með ýmislegt og það hefur komið í gegnum þetta félag.“ Þá hafi hann þurft að ferðast mikið í tengslum við ákveðin störf og því sé fullkomlega eðlilegt að láta slíkt fara í gegnum einkahlutafélagið: „Auðvitað já, því ég hef þurft að fara suður til þess að tala við fólk og skoða það og annað slíkt, auðvitað er það alveg eðlilegt. Þetta er utan við mitt starf á sjúkra- húsinu.“ Aðspurður um það hvort honum þyki eðlilegt að greiðslur fyrir bakvaktir yfirlæknis á sjúkar- húsinu fari í gegnum einkahlutafé- lag svarar hann: „Nei, mér þótti það ekkert eðlilegt og þess vegna hætti ég þessu,“ segir Þorsteinn. Ekki hækkað í launum „Bara svo það sé alveg á hreinu, hef- ur kostnaður heilbrigðisstofnunar- innar aukist milli ára vegna mín?“ spyr Þorsteinn sem segist ekkert hafa hækkað í launum hjá spítalan- um. Hann segist ekki vera með það á hreinu hvaða meiri tekjur hafi far- ið í gegnum þetta félag: „Ég hef farið til útlanda á ári hverju, til að skoða og lækna og þar komu tekjur inn á þetta félag.“ Lýður Árnason, fyrrverandi sam- starfsmaður Þorsteins, og læknir skrifaði á fimmtudaginn pistil á vef- inn bb.is þar sem hann gagnrýnir það sem hann segir vera sjálftöku- hreiður yfirlæknisins, Þorsteins Jó- hannessonar, á Ísafirði. Lýður benti í pistli sínum á að yfirlæknirinn væri með himinhá laun á meðan verið væri að skera niður í grunn- þjónustu. Undanfarin misseri hefur sprottið upp umræða þess efnis að þrátt fyrir mikinn niðurskurð í heil- brigðiskerfinu haldi læknar háum tekjum. MÁNUDAGUR 9. ágúst 2010 FRÉTTIR 3 MÓTMÆLANDA ÚTHÝST ÚR MAGMA-NEFND an sérstök þingnefnd fjallar um mál hans og þriggja annarra ráðherra sem í skýrslunni voru taldir hafa sýnt vanrækslu í störfum sínum fyrir bankahrunið. Eins og áður vill Sveinn ekki hafa uppi neinar getgátur um það hvort ofangreind gagnrýni og mótmæli, sem snéru að Samfylkingunni, hafi haft áhrif á þá ákvörðun forsætisráð- herra að samþykkja ekki skipan sína í Magma-nefndina. Málið sé engu að síður einkennilegt þegar litið sé til ákvæða stjórnsýslulaga um van- hæfi. „Fulltrúi í skipulagsnefnd sveit- arfélags verður ekki fyrirfram van- hæfur til þess að afgreiða umsóknir um byggingarlóðir þótt frændi hans kunni mögulega einhvern tíma að sækja um lóð. Þá víkur fulltrúinn sæti í því þegar mál frændans kemur til afgreiðslu.“ Ráðuneytið vísar á bug að nokk- uð annað komi við sögu í máli Sveins en venjulegt stjórnsýsluvanhæfi. Þar skipti tvö atriði máli; annars vegar fjölskyldutengsl Sveins við Unni G. Kristjánsdóttur, formann nefndar um erlenda fjárfestingu og hins veg- ar sé staðfest að Sveinn hafi í símtali látið orð falla í eyru Unnar gegn fjár- festingum Magma í HS Orku. Sjáfur hefur hann feng-ið í hendur minnisblað þar sem sjónarmið ráðuneytisins koma fram. Vanhæfisástæður - 3. grein: Starfsmaður eða nefndarmaður er vanhæfur til meðferðar máls: 1. Ef hann er aðili máls, fyrirsvarsmaður eða umboðsmaður aðila. 2. Ef hann er eða hefur verið maki aðila, skyldur eða mægður aðila í beinan legg eða að öðrum lið til hliðar eða tengdur aðila með sama hætti vegna ættleiðingar. 3. Ef hann tengist fyrirsvarsmanni eða umboðsmanni aðila með þeim hætti sem segir í 2. tölul. 4. Á kærustigi hafi hann áður tekið þátt í meðferð málsins á lægra stjórnsýslustigi. Það sama á við um starfsmann sem fer með umsjónar- eða eftirlitsvald hafi hann áður haft afskipti af málinu hjá þeirri stofnun sem eftirlitið lýtur að. 5. [Ef hann á sjálfur sérstakra og verulegra hagsmuna að gæta, venslamenn hans skv. 2. tölul. eða sjálfseignarstofnun eða fyrirtæki í einkaeigu sem hann er í fyrirsvari fyrir. Sama á við ef næstu yfirmenn hans hjá hlutaðeigandi stjórnvaldi eiga sjálfir sérstakra og verulegra hagsmuna að gæta. Verði undirmaður vanhæfur til meðferðar máls verða næstu yfirmenn hans aftur á móti ekki vanhæfir til meðferðar þess af þeirri ástæðu einni.] 6. Ef að öðru leyti eru fyrir hendi þær aðstæður sem eru fallnar til þess að draga óhlutdrægni hans í efa með réttu. Eigi er þó um vanhæfi að ræða ef þeir hagsmunir, sem málið snýst um, eru það smávægilegir, eðli málsins er með þeim hætti eða þáttur starfsmanns eða nefndar- manns í meðferð málsins er það lítilfjörlegur að ekki er talin hætta á að ómálefnaleg sjónarmið hafi áhrif á ákvörðun. HVAÐ SEGJA STJÓRNSÝSLULÖG? Mótmæli Sveinn Margeirsson var meðal mótmæl- enda við heimili Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur. Yfirlæknir Ísafjarðarspítala, Þorsteinn Jóhannesson, seldi spítal- anum bakvaktir sínar í gegnum einkahlutafélag. Hann viðurkenn- ir að það hafi ekki verið eðlilegt og segist vera hættur því. Hann á hlutafélagið ennþá og selur ákveðna þjónustu í gegnum það. HLUTAFÉLAG YFIRLÆKNIS INNHEIMTI BAKVAKTIR JÓN BJARKI MAGNÚSSON blaðamaður skrifar: jonbjarki@dv.is Nei mér þótti það ekkert eðli- legt og þess vegna hætti ég þessu. Bakvaktir í gegnum hlutafélagn Þor- steinn Jóhannesson yfirlæknir Ísafjarðarspít- ala viðurkennir í samtali við DV að spítalinn hafi keypt bakvaktir af honum í gegnum einkahlutafélagið Skurðlæknirinn ehf.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.