Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2010, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2010, Side 8
8 fréttir 9. ágúst 2010 mánudagur Undirbýr löggjöf gegn VítisenglUm Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra hefur beðið sérfræðinga um að setja saman lagafrumvörp í þeim tilgangi að sporna gegn skipulagðri glæpastarfsemi. Annars vegar fengju stjórnvöld skýrar heimildir til að leysa upp félagasamtök með ólögmætan tilgang og hins vegar heimild til forvirkra rannsóknarheimilda. „Ég vildi óska þess að við þyrftum ekki að gera tillögur um þetta í okkar samfélagi. Sjálf vildi ég helst komast af án slíkra heimilda en það er svo að skipulögð glæpastarfsemi er orðin staðreynd hjá okkur og við þurfum því miður aukin úrræði til að geta brugðist við. Það er í raun það sorglega við þetta allt saman,“ segir Ragna Árnadóttir dómsmála- ráðherra. Ragna undirbýr lagafrumvörp til að koma í veg fyrir að alþjóðlegu mótorhjólasamtökin Hells Ang- els, Vítisenglar, geti fest rætur hér á landi. Lögin myndu gefa stjórn- völdum skýrar heimildir til að leysa upp félagasamtök sem beinlínis eru talin hafa ólögmætan tilgang. Þar að auki fengju lögregluyfirvöld heimild til að fylgjast með og safna upplýsingum um einstaklinga án þess að sérstök mál gegn þeim séu í gangi. Stenst stjórnarskrá Á vormánuðum skilaði starfshópur á vegum Rögnu áliti á því hvort það standist íslensk lög að banna tilvist Vítisengla hér á landi. Álitið hef- ur ekki verið gert opinbert ennþá og þegar DV óskaði eftir því feng- ust þau svör hjá ráðuneytinu að leynd vegna niðurstaðanna fram til þessa væri liður í því að halda að sér vopnunum í baráttunni gegn skipulagðri glæpastarfsemi. Helstu niðurstöður álitsgerð- arinnar væru þó í þá veru að ekki þurfi sérstök lög til þess að leysa upp félagasamtök á Íslandi, sem talið er að hafi ólögmætan tilgang. Í stjórnarskrá lýðveldisins sé þess sérstaklega getið að ekki sé hægt að koma í veg fyrir félög með lögmæt- an tilgang en þess einnig getið að banna megi félög, að minnsta kosti tímabundið fram að því að mál sé höfðað, sem talin eru hafa ólög- mætan tilgang. Afar brýnt Ragna hefur nú þegar beðið sér- fræðinga um að setja saman laga- texta í þeim tilgangi að sporna gegn skipulagðri glæpastarfsemi hérlendis. Annars vegar fengju stjórnvöld skýrar heimildir til að leysa upp félagasamtök með ólögmætan tilgang og hins vegar heimild til forvirkra rannsóknar- heimilda. „Hér eru að slá sér niður skipulögð glæpasamtök sem jafn- vel hika ekki við að gera það und- ir nafni. Það er mat erlendra lög- gæsluyfirvalda að Vítisenglar séu skipulögð glæpasamtök og ég hef enga ástæðu til að ætla annað en að svo verði líka hér. Það felur ekki í sér neina töfralausn að banna félagið. Það þarf eitthvað annað og meira að koma til svo að við náum tökum á skipulagðri glæpa- starfsemi af þessu tagi. Þess vegna legg ég til forvirkar rannsóknar- heimildir, með skýrum skilyrðum og undir eftirliti sem kæmi fram í lagatexta. Stjörnvöld verða nú að einbeita sér að því að útrýma og koma í veg fyrir frekari glæpastarf- semi af þessu tagi hér á landi,“ seg- ir Ragna. Vernda borgarana Aðspurð á Ragna von á því að ræða málið von bráðar á ríkis- stjórnarfundi. Hún segir vinnu gegn skipulagðri glæpastarfsemi forgangsverkefni hjá sér. „Sér- fræðingar líta svo á að stjórnvöld geti, að ákveðnum skilyrðum uppfylltum og án sérstakra laga- breytinga, leyst upp félög sem beinlínis hafa ólögmætan til- gang. Ég tel eftir nánari umhugs- un að stjórnvöldum yrði þó mik- ill styrkur að því að fá sérstakar lagaheimildir í þessum tilgangi og hef því beðið ráðuneytið um að fá tillögur hjá sérfræðingum um hvernig slík löggjöf myndi líta út,“ segir Ragna. „Ég mun kynna þetta fyr- ir ríkisstjórninni von bráðar. Að sporna gegn skipulagðri glæpa- starfsemi er meðal forgangsverk- efna ráðuneytisins. Við ætlum að beita frávísunum frá landinu í auknum mæli auk allra annarra ráða sem stjörnvöld yfirleitt hafa til að vernda borgara landsins.“ tRAuSti hAfSteinSSon blaðamaður skrifar: trausti@dv.is Við þurfum aukin úrræði til að geta brugðist við skipulagðri glæpa- starfsemi. n„Héraðframanerkomistaðþeirriniðurstöðuaðákvæði74.greinarstjórnar- skrárinnargeymisjálfstæðaheimildtilaðleysauppfélagogaðekkiþurfisérstaka lagaheimildtilaðauki.Heimildríkisvaldsinstilaðtakmarkafélagafrelsi,ískilningi 74.greinarstjórnarskrárinnar,meðupplausnfélagsogaðgerðumsemþvífylgja eruþótakmarkaðarogberaðgætaákvæðisannarrarmálsgreinar11.greinar MannréttindasáttmálaEvrópuogólögfestrarmeðalhófsreglustjórnskipunarrétt- arinsviðbeitinguþeirra.Erljóstaðríkarástæðurþyrftuaðliggjatilgrundvallar slíkriskerðinguáfélagafrelsinuogyrðiísérhverjutilvikiaðskoðahvortkoma megiívegfyrirólögmætantilgangeðastarfsemifélagsmeðöðrumhættien leysaþaðupp.Áhinnbóginnereinnigljóstaðstjórnarskrárákvæðinuerekki ætlaðaðhaldahlífisskildiyfirfélögumsemgrundvallastarfsemisína,tilgang eðaathafnirsembeinlíniserubannaðareðajafnvelrefsiverðarendagætaslíkar athafnirorðiðennhættulegriþegarþæreigasérstaðávettvangifélagaheldur enþegareinstaklingareigaíhlut.Íslíkumtilvikumertilætlunstjórnarskrárgjafans augljóslegasúaðstjörnvöldhöfðimálgegnfélagitilþessaðfáþaðleystupp meðdómi.“ Úr niðurstöðum álitsgerðarinnar: Vill vernda Ragnatelurbrýntað styrkjaheimildirstjórnvaldatilað bannafélagasamtöksembeinlínishafi ólögmætantilgang.Húnsegirerlend lögregluyfirvöldlítaáVítisenglasem skipulögðglæpasamtökogsegirekki annaðhægtenaðætlaaðsvoverði einnigáÍslandi. einar „Boom“ FormaðurMCIcelandsegirmótorhjólasamtökiníraunþegar orðinhlutaafHellsAngelsogaðekkertkomiívegfyrirfullgildinguklúbbsins. Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands 74. grein Rétteigamennáaðstofnafélögísérhverjumlöglegumtilgangi,þarmeðtalin stjórnmálafélögogstéttarfélög,ánþessaðsækjaumleyfitilþess.Félagmáekki leysauppmeðráðstöfunstjórnvalds.Bannamáþóumsinnstarfsemifélagssem ertaliðhafaólöglegantilgang,enhöfðaverðurþáánástæðulausrartafarmál gegnþvítilaðfáþvíslitiðmeðdómi. Mannréttindasáttmáli Evrópu 11. gr. fundA- og félAgAfRelSi 1.Réttskalmönnumaðkomasamanmeðfriðsömumhættiogmyndafélög meðöðrum,þarámeðalaðstofnaoggangaístéttarfélögtilverndarhagsmun- umsínum.  2. Eigiskalrétturþessiháðuröðrumtakmörkunumenþeimsemlögmæla fyrirumognauðsynbertilílýðræðisleguþjóðfélagivegnaþjóðaröryggiseða almannaheilla,tilþessaðfirraglundroðaeðaglæpum,tilverndarheilsueða siðgæðimannaeðaréttindumogfrelsi.Ákvæðiþessarargreinarskulueigivera þvítilfyrirstöðuaðlöglegartakmarkanirséusettarviðþvíaðliðsmennhersog lögreglueðastjórnarstarfsmennbeitiþessumrétti.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.