Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2010, Side 13
MánUDAGUR 9. ágúst 2010 fréttir 13
Anna Kristín Gunnarsdóttir, stjórn-
arformaður Byggðastofnunar, bar
fyrir sig lög um bankaleynd þegar
DV óskaði upplýsinga um lánveit-
ingar stofnunarinnar til fyrirtækja í
rækjuútgerð. Magnús Helgason, for-
stöðumaður rekstrarsviðs stofnun-
arinnar, vill ekki veita neinar upplýs-
ingar um þau útistandandi lán sem
Byggðastofnun hefur veitt til fyrir-
tækja í rækjuútgerð og vinnslu. Þar á
meðal hefur hann verið spurður um
þau veð sem liggi til grundvallar lán-
veitingum Byggðastofnunar til fyrir-
tækja í rækjuútgerð og hversu mikið
af þeim þurfi að afskrifa.
Háar afskriftir væntanlegar
DV greindi frá því á miðvikudag að
blaðið hefði heimildir fyrir því að
Byggðastofnun teldi hættu á að hún
þyrfti að afskrifa um 571 milljón
króna vegna ótryggra lána sem hún
hafði veitt fyrirtækjum til kaupa á
rækjukvóta. Álitið lá fyrir áður en Jón
Bjarnason, sjávarútvegs- og land-
búnaðarráðherra, gaf veiðar á út-
hafsrækju frjálsar.
Stofnunin hefur veitt lán til fjög-
urra fyrirtækja í rækjuútgerð og nema
þau lán 1.260 milljónum króna. Þessi
lán hafa verið veitt til fjögurra fyrir-
tækja í rækjuútgerð. Byggðastofnun
hefur talið um 700 milljónir króna
hafi tapast þegar ákveðið var að gefa
veiðarnar frjálsar. Þrátt fyrir að stofn-
unin hafi gefið sér að um 700 millj-
ónir króna hafi tapast vegna þessara
lána, má hins vegar telja að þau séu
mest megnis töpuð ef ekki öll. Þetta
er vegna þess að stofnunin hefur nú
nánast aðeins veð í kvótanum sjálf-
um vegna þessara lánveitinga. Aðrar
eignir eru af skornum skammti.
Þá greindi DV einnig frá því þeg-
ar útgerðarfyrirtækið Birnir hefði
tekið yfir lán sem Bakkavík, sem þá
var gjaldþrota, var með hjá Byggða-
stofnun vegna kaupa á rækjukvóta
fyrir 160 milljónir króna. Samkvæmt
því má gera ráð fyrir því að verð rækj-
unnar hafi verið um 400 krónur kíló-
ið. Talið er að markaðsverð rækjunn-
ar sé nær 150 krónum eða jafnvel enn
lægra, nær 70 krónum. Byggðastofn-
un átti sautján prósenta hlut í Bakka-
vík og yfir þrjátíu prósent í Kampa,
rækjuvinnslu sem Birnir er aðaleig-
andi í. Því fór lánið á milli tveggja fyr-
irtækja í eigu hennar.
Engar aðgerðir
DV leitaði álits iðnaðarráðuneytisins
á lánveitingum stofnunarinnar. Þar
var meðal annars leitað svara við því
hvort ráðuneytinu hefði verið kunn-
ugt um að Byggðastofnun hefði úti-
standandi lán þar sem aðeins veð í
kvóta lægju til grundvallar. Í svörum
ráðuneytisins kemur fram að því hafi
ekki verið kunnugt um slíkar lánveit-
ingar. Svo kunni að vera að aðskiln-
aður hafi orðið um meðferð eða ráð-
stöfun aflaheimilda á viðkomandi
skipi.
Ráðuneytið hyggst ekki grípa
til sérstakra aðgerða vegna stöðu
Byggðastofnunar að svo stöddu.
Stjórn Byggðastofnunar hafi það
hlutverk að gæta hagsmuna stofnun-
arinnar við afgreiðslu mála og Ríkis-
endurskoðun hafi eftirlit með starf-
seminni. Ráðuneytið bíði þess að
stjórn og starfsmenn Byggðastofn-
unar hafi farið yfir stöðu fyrirtækja
í rækjuveiðum og vinnslu og hvaða
áhrif breytt rekstrarumhverfi grein-
arinnar hafi á fjárhag stofnunarinn-
ar. Það telur ekki tilefni til sérstakrar
endurskoðunar á starfsemi Byggða-
stofnunar vegna þess að hún hafi
ekki veitt ný lán til þeirrar greinar eft-
ir árið 2005. Ráðuneytið vísar til þess
að Ríkisendurskoðun hafi ekki gert
athugasemdir við eignamat stofnun-
arinnar í fyrra. „Leiði skoðun stjórn-
ar Byggðastofnunar í ljós þörf fyrir
aukningu eigin fjár berst erindi um
slíkt sem lagt verður mat á. Eiginfjár-
aukning yrði hluti af fjárlagagerðinni
og endanlega tekin til meðferðar á
Alþingi,“ segir í svari ráðuneytisins.
Tilefni til rannsóknar
Þórður Már Jónsson, lögfræðingur og
varaþingmaður Samfylkingarinnar,
telur tilefni til opinberrar rannsókn-
ar á lánamálum Byggðastofnunar og
því ferli sem lá að baki lánveitingum
hennar. Hann segir með ólíkindum
að opinber stofnun hafi útistand-
andi lán með veði í kvóta þegar lagt
sé bann við því í lögum um samn-
ingsveð. Hann spyr hvaða hagsmun-
ir liggi þar að baki og hvort Byggða-
stofnun hafi nokkurn tímann talið
Þagnarhjúpur
um ótrygg lán
Anna Kristín Gunnarsdóttir, stjórnar-
formaður Byggðastofnunar, ber fyrir sig
bankaleynd þegar óskað er upplýsinga
um lánveitingar stofnunarinnar til fyr-
irtækja í rækjuútgerð. DV hefur greint
frá því að stofnunin hafi talið hættu á að
afskrifa þyrfti helming lánanna áður en
Jón Bjarnason, sjávarútvegsráðherra,
gaf veiðar á úthafsrækju frjálsar. Iðnaðar-
ráðuneytið telur ekki tilefni vera til opin-
berrar rannsóknar á starfseminni.
RóBERT HlynuR BAlduRsson
blaðamaður skrifar: rhb@dv.is
Spurningar DV til
magnúSar helgaSonar
dV:Er það rétt að stjórnendur Byggða-
stofnunar telji að afskrifa þurfi 571
milljón króna vegna þess að rækjuveið-
arnar voru gefnar frjálsar?*
Magnús: Einsogéghefáðursagt
þámunégekkitjámigumfjármál
stofnunarinnarífjölmiðlum.Égget
hinsvegarsagtaðnýlántilkaupaá
rækjukvótahafaekkiveriðveittsíðan
2005. Hinsvegargeturveriðaðlánin
hafiveriðyfirtekinafnýjumfélögum
síðanþá.Þónýskuldabréfhafiverið
útbúinþáerekkiumnýjalánveitingu
aðræða.
dV: Hvers vegna hefur Byggðastofnun
tekið þá stefnu í útlánum sínum að selja
kvótann á tvöföldu markaðsverði? Er það
rétt áætlað hjá mér að Byggðastofnun
hafi miðað við 400 krónur á kílóið þegar
lán hafa verið veitt til kaupa á slíkum
kvóta þegar markaðsverð er aðeins 150
krónur?
Magnús:Miðaðerviðmarkaðsverðá
kvótaþegarlánsumsóknirerumetnar.
Varðandi150krónursemþúnefnir,
þáheldégaðþaðhafiekkimikiðaf
rækjukvótaveriðseltáþvíverði.Svovil
égleiðréttaþaðhjáþéraðByggða-
stofnunhafiáttkvóta.Stofnuninhefur
ekkieignastrækjukvótaímörgár.
dV: Hefur þetta einnig verið gert vegna
lána Byggðastofnunar til kaupa á kvóta í
öðrum fiskitegendum?
Magnús: Þegarlánsumsóknireru
metnarþáermiðaðviðmarkaðsverð
ákvóta.
dV: Nú hef ég nokkur dæmi í höndunum
þar sem Byggðastofnun hefur lánað
til kaupa á kvóta í rækju hjá tengdum
fyrirtækjum, það er þar sem stofnunin
á sjálf eignarhluta og jafnvel fulltrúa í
stjórn. Jafnvel þannig að lán hafi verið
veitt til kaupa á kvóta með veði í honum
sjálfum, þar sem ekkert skip virðist
sjáanlega koma við sögu. Ég reikna þá
með að það þurfi að afskrifa lán til slíkra
fyrirtækja?
Magnús:Égveitekkihvaðadæmi
þúertaðtalaumoggetþvíekki
tjáðmigumþað. Éggethinsvegar
sagtaðstofnunináekkihlutíneinni
rækjuútgerð.
dV:Hvaða starfsmenn Byggðastofn-
unar hafa helst séð um lánveitingar til
sjávarútvegsfyrirtækja vegna kaupa á
kvóta eða vegna fjárhagslegrar aðkomu
Byggðastofnunar að þeim?
Magnús: Starfsmennfyrirtækjasviðs
greinalánsumsóknirsemkoma
ogleggjasíðantillögursínarfyrir
lánanefndstofnunarinnarsemtekur
ákvörðunoghefurheimildtilaðlána
alltað35milljónumkrónatileinstakra
verkefna. Vísaannarsíverklagsreglur
stofnunarinnarsemfinnamáá
heimasíðunni.
*Þegar DV sendi Magnúsi fyrirspurn
um málið hermdu heimildir blaðsins
að stofnunin hefði þurft að afskrifa 571
milljón vegna ákvörðunar Jóns Bjarna-
sonar um að gefa veiðarnar frjálsar. Við
vinnslu fréttar DV á miðvikudag kom í
ljós að Byggðastofnun hafði metið hættu
á slíkum afföllum áður en Jón kynnti
ákvörðun sína.
sig geta gengið á eftir þessum lán-
um. „Byggðastofnun tekur af skarið
með því að taka veð í aflaheimild-
um og hvert er farið með eðli þess-
ara réttinda. Hvaða líkur eru á því
að Byggðastofnun geri kröfu um að
þessi fyrirtæki verði gerð gjaldþrota
án þess að geta gengið að veðum að
baki láninu? Núna er Byggðastofn-
un farin að víkka út eðli aflaheim-
ilda sem sjálfstæðs veðandlags,“ seg-
ir Þórður.
Eins og ég hef áður sagt þá
mun ég ekki tjá mig um
fjármál stofnunarinnar í
fjölmiðlum.
Mikil áhætta Byggðastofnuntaldi
hættuáað571milljónmynditapast
vegnaótryggralánavegnakaupaá
kvótaíúthafsrækju.
Vísar til bankaleyndar
AnnaKristínGunnars-
dóttir,stjórnarformaður
Byggðastofnunar,segirlög
umbankaleyndgildaum
lánastarfsemistofnunarinnar.
Vill opinbera rannsókn ÞórðurMár
Jónsson,lögfræðingurogvaraþing-
maðurSamfylkingarinnar,telurtilefnitil
opinberrarrannsóknar.