Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2010, Síða 14
DÍSILOLÍA
Algengt verð VERÐ Á LÍTRA 197,5 kr. VERÐ Á LÍTRA 193,4 kr.
Almennt verð VERÐ Á LÍTRA 197,1 kr. VERÐ Á LÍTRA 193,4 kr.
Algengt verð VERÐ Á LÍTRA 198,5 kr. VERÐ Á LÍTRA 194,5 kr.
BENSÍN
Almennt verð VERÐ Á LÍTRA 197,0 kr. VERÐ Á LÍTRA 193,0 kr.
Almennt verð VERÐ Á LÍTRA 197,1 kr. VERÐ Á LÍTRA 193,1 kr.
Almennt verð VERÐ Á LÍTRA 197,4 kr. VERÐ Á LÍTRA 193,4 kr.
LEIGUVERÐ
HÆKKAR
Neytendasamtökin gerðu nýlega
könnun á leiguverði á árinu. Í þess-
ari könnun kemur fram að leigu-
verð hafi farið hækkandi á árinu, á
öllum könnuðum íbúðarstærðum
nema tveggja herbergja íbúðum.
Meðaltals hækkun á leiguverði á
fermetra frá febrúar og fram í júlí
var 6,14 prósent, en áberandi mest
var hækkunin á 5 herbergja íbúð-
um, um 17,5 prósent. Næst mest var
hækkunin á stúdíó-íbúðum um 6,9
prósent, en þar á eftir fylgja þriggja
herbergja íbúðir með 4,3 prósent
hækkun, og fjögurra herbergja með
3,9 prósent hækkun. Leiga tveggja
herbergja íbúða lækkaði um 1,9
prósent. Nánari upplýsingar má sjá
á vef neytendasamtakanna, ns.is.
RÁNDÝRT BRAUÐ
n Lastið að þessu sinni fær Vöru-
val í Vestmannaeyjum. Óánægður
viðskiptavinur keypti þar brauð frá
Myllunni um verslunarmannahelg-
ina, en þótti verðið fyrir það heldur
hátt. Brauðið kostaði 448 krónur, en
til samanburðar kostar álíka brauð-
poki í kringum 370 krónur í 10-11.
Sams konar brauð kost-
ar svo í kringum 200
krónur í Bónus. Verðið
í Vöruval var því um
150 prósent hærra en
í Bónus.
SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS
LÁGT LINSUVERÐ
n Ánægður viðskiptavinur stund-
ar öll sín viðskipti hjá Sjónauganu í
Glæsibæ. Þar er hægt að fá gæða-
linsur fyrir lítinn pening. Mánaðar-
linsur sem hægt er að nota dag og
nótt kosta þar 7.500 krónur pakkn-
ingin, en það eru þrjú pör. Í sömu
búð er hægt að fá lakari mánaðar-
linsur fyrir 4.500 krónur, sem
eru einnig þrjár í pakka. Enn
fremur er ekki rukkað fyrir
sjónmælingu á staðnum,
sem telst góð þjónusta.
Viðskiptavinurinn hef-
ur verslað í búðinni í
fimm ár og hyggst gera
það áfram.
LOF&LAST
14 NEYTENDUR UMSJÓN: BALDUR GUÐMUNDSSON baldur@dv.is 9. ágúst 2010 MÁNUDAGUR
IPHONE EÐA ANDROID? Helstu keppinautar snjallsíma-
markaðarins eru iPhone og símar sem nýtast með Android-stýrikerfinu.
Hið seinna er hannað af Google, en hið fyrra af Apple. Það er oft stóra
spurningin þegar velja á snjallsíma, við hvort kerfið síminn styðst, líkt og
spurningin um Mac- eða PC-tölvu. Notendur Android hafa aðgang að 30
prósent færri forritum í símann sinn, eða um 70.000, á móti þeim 100.000
sem iPhone notendum býðst, en fróðir segja netnotkun auðveldari í And-
roid. Þannig eru notendur iPhone örlítið duglegri við notkun símans til fé-
lagslegra samskipta, á meðan Android-notendur vafra meira um vefinn.E
L
D
S
N
E
Y
T
I
VELDU RÉTTA SÍMANN
Oft er erfitt að meta hvernig síma skal kaupa hverju sinni. Dóma um símtækin er
erfitt að finna, og gæðin eru oft mismunandi. Vefsíðan mobile-phones.co.uk státar af
ítarlegum gagnagrunni byggðum á gæðamati á símtækjum. Þar er hægt að sjá bæði
stjörnugjöf frá ritstjórn vefsins, sem og frá almenningi. Það er hægt að lesa ítarlegar
lýsingar á hverju tæki sem tekið hefur verið fyrir, og sjá má hverjir kostir og gallar
þess eru.
Nýi iPhone 4 er besti snjallsíminn á markaðinum samkvæmt vefsíðunni. Síminn
er með snertiskjá, nóg af forritum og með bestu skjáupplausn á síma í dag. Hann
tekur upp myndbönd í háskerpu, styður myndsímtöl við aðra síma af sömu gerð og
hægt er að vinna myndbönd í símanum sjálfum. Helsti galli símans er hinn þekkti
loftnetsgalli, en sambandið rofnar ef haldið er á símanum á ákveðinn máta. Þennan
galla er þó auðvelt að bæta með því að hafa símann í hulstri. Rafhlaðan er með þeim
betri í snjallsímum.
BESTA VERÐ:Vefsíðan iphone.is hyggst selja símann, en fyrsta sending er
ekki komin og því hefur verð ekki verið endanlegan ákveðið.
Snjallsími með snertiskjá. Í umsögninni er sagt lítið sem ekkert hægt að setja út á
þennan síma. Lögun hans er smekkleg, hann er auðveldur og notkun hans skjótvirk.
Síminn býr yfir góðu GPS-tæki, fjöldanum af forritum og hraðan örgjörva, sem gerir
þér kleift að keyra mörg forrit án vandkvæða. Helsti galli þessa síma er takmörkuð
ending rafhlöðunnar, en hún endist aðeins í um einn dag með hóflegri notkun.
Ending rafhlaðna er hins vegar alltaf stutt þegar um snjallsíma er að ræða.
BESTA VERÐ: Hátækni - 119.995 kr. staðgreitt.
Eldri iPhone-gerðin fær ekki lakari dóm en sú nýjasta. Líkt og iPhone 4 hefur þessi sími snertiskjá, mikinn fjölda af forritum, og getur keyrt upp mörg í einu. Síminn hefur
margar skemmtilegar viðbætur á borð við áttavita, sem sýnir í hvaða átt síminn snýr. 3GS-gerðin er fljótvirkari en forverinn, sem er iPhone 3G. Síminn getur keyrt upp fleiri
forrit í einu og tekið myndir og myndbönd í þokkalegum gæðum. Þessi gerð er fyrst og fremst hraðvirkari en forverinn. Helsti galli símans eru léleg gæði símtala.
BESTA VERÐ**: NOVA - 139.900 krónur staðgreitt, ásamt 18.000 króna inneign.
Apple iPhone 4
Apple iPhone 3GS
HTC Desire