Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2010, Qupperneq 17

Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2010, Qupperneq 17
MánUDAGUR 9. ágúst 2010 erlent 17 Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, segir að stjórnvöld í land- inu stefni að því að senda menn út í geiminn árið 2017. Íranska fréttastofan Fars greinir frá þessu. Ahmadinejad hélt ræðu í borg- inni Hamedan í vesturhluta lands- ins. Hann sagði að Íranar myndu senda fyrsta mannaða geimskip- ið frá jörðu árið 1396 [2017 sam- kvæmt okkar tímatali]. Það væri lið- ur í að auka umsvif Íran í geimnum og myndi sýna fram á stórkostleg- ar framfarir landsins á sviði geim- vísinda. Írönsk stjórnvöld ætla að beita sér fyrir að geimferðastofnun Írans, sem stofnuð var árið 2003, verði komin í hóp tíu fremstu stofn- ananna á þessu sviði innan nokk- urra ára. Íranar sendu fyrst gervi- hnött á sporbraut um jörðu árið 2009. Fjölþrepa eldflaug Ahmadinejad sagði að vísinda- menn ynnu að eldflauginni Si- morgh (ísl. Fönix), sem á að geta flutt gervihnetti 1.000 kílómetra út í geiminn. „Síðast sendum við gervi- hnött upp í 250 kílómetra hæð. Á næsta ári verður gervihnöttur sendur 700 kílómetra og árið eft- ir það 1.000 kílómetra,“ sagði for- setinn. „Eldflaugin sem notuð var til að flytja fyrsta gervihnöttinn var með 32 tonna þrýstikraft þegar henni var skotið upp, en eldflaugin sem við erum að byggja núna verð- ur með 120 til 140 tonna þrýsti- kraft.“ Hin 27 metra háa eldflaug er fjölþrepa og vegur 85 tonn. Hún getur borið 60 kílóa gervihnött á sporbaug. Helmz í geimnum Í febrúar í fyrra var fyrsta gervi- hnettinum sem smíðaður var í Íran skotið út í geiminn. Hann heitir Omid (ísl. Von) og var skotið á loft til að fagna 30 ára afmæli íslömsku byltingarinnar í Íran. Í byrjun þessa árs sendu Íranir tilraunageimflaug í geiminn, Kavoshgar-3 (ísl. Könnun- arfar-3). Í sérstöku lífhlyki ferðuð- ust rottan Helmz fyrsti, tvær skjald- bökur og ánamaðkar til geimsins. Dýrin komust klakklaust í gegnum geimævintýrið og lentu heilu og höldnu á jörðu niðri. Ahmadinejad sagði við heimkomu dýranna að afrekið væri aðeins byrjunin þess sem koma skal í geimferðarmálum þjóðarinnar. „Vísindin eru sá vett- vangur þar sem við getum haft bet- ur gegn yfirráðum vestrænu ríkj- anna,“ sagði forsetinn í ávarpi sem var sjónvarpað í beinni útsendingu og milljónir Írana fylgdust með. Bandaríkjamenn áhyggjufullir Bandaríkjamenn og bandamenn þeirra á Vesturlöndum hafa lýst yfir áhyggjum sínum af eldflauga- smíði stjórnvalda í Tehran. Eins og alþjóð veit hefur styrr staðið á milli þjóðanna vegna kjarnorku- tilrauna Írana. Bandarískir stjórn- málamenn hafa lýst yfir áhyggjum sínum af velferð Ísraela af þessum sökum og stjórnmálaskýrendur segja að hvers kyns starf sem hafi með eldflaugatilraunir að gera séu sem þyrnir í augum stjórnvalda í Washington, jafnvel þó flaugarnar séu aðeins byggðar til að flytja dýr og menn á sporbraut um jörðu. íranar út í geim 2017 Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, segir að íranska geim- ferðastofnunin muni senda menn út í geim árið 2017. Írönsk stjórnvöld hófu geimferðaáætlun landsins fyrir nokkrum árum en fyrsta gervitunglið var sent á sporbraut um jörðu árið 2009. Vísindin eru sá vettvangur þar sem við getum haft bet- ur gegn yfirráðum vest- rænu ríkjanna. Helgi HrAFn guðMundsson blaðamaður skrifar: helgihrafn@dv.is Horfir til himins MahmoudAhmad- inejadhefurlagtmikiðféígeimferða- áætlunÍrans.Hannsegiraðlandiðmuni sendamennútígeimárið2017.reuters langt yfir mörkum Mörg villisvín sem veidd eru inn- an vébanda Þýskalands enda á mat- arborði landsmanna, en það er hins vegar bannað að selja kjöt sem inni- heldur mikið magn af geislavirka efn- inu cesium 137. Eyða verður hræjum allra dýra sem mælast með meira en 600 becquerel í hverju kílógrammi. En í sumum héruðum Þýskalands, aðallega í suðri, mælist sífellt meiri geislavirkni í villisvínunum. Sam- kvæmt umhverfisráðuneytinu reynd- ist meðalgeislavirkni í villisvín- um sem skotin voru í Bæjaraskógi, skammt frá landamærum Tékklands, heil sjö þúsund becquerel í hverju kílói. Viðvarandi vandamál næstu 50 ár Villisvín eru mjög næm fyrir geisla- virkri mengun vegna tilhneigingar þeirra til þess að éta sveppi og jarð- keppi, sem eru gríðarlega afkasta- miklar lífverur við að soga í sig geisla- virkni. Talið er að þó geislavirkni í flestum gróðurtegundum og öðrum lífverum fari dvínandi, muni lengi eima eftir af henni í sumum sveppa- tegundum. Geislavirknin gæti meira að segja aukist, jafnvel þó heill ald- arfjórðungur sé nú liðinn frá Tsjern- obyl-slysinu. Það er því ekki talið að geisla- virknin dvíni í villisvínunum í bráð. „Vandamálið hefur verið alvarlegt lengi,“ segir Joachim Reddeman, sér- fræðingur hjá þýskum veiðisamtök- um. „Og það verður líklega þannig næstu 50 árin.“ geislavirkum svínum fjölgar í Þýskalandi Mörg svínin mæl-ast geislavirk en það er rakið til kjarnorku- slyssins mikla í Tsjerno- byl-kjarnorkuverinu. geislavirkt villisvín Villisvínerunæm fyrirgeislavirknivegna fæðuvalsins.Svíninborða mikiðafsveppumsem sogageislavirkefniísig. reuters Írönsk eldflaug Íranskirvísindamennhafa hannaðeldflaugarsemgetafluttgervihnetti oglítilförútígeim.Bandarískstjórnvölderu tortryggingagnvartþeirriþróun.reuters mannskæð flóð í kína Gríðarleg aurflóð runnu yfir norð- vesturhluta Kína á sunnudag með þeim afleiðingum að um 127 manns létu lífið. Flestir íbúarnir eru Tíbetar. Wen Jiabao forsætisráðherra flaug til Gansu eftir að hafa fengið fregnir af flóðunum. Hann sagði að yfirvöld myndu beita öllum kröftum sínum til þess að reyna að bjarga mannslífum á svæðinu að sögn bresku fréttaveitunnar BBC. 45 þús- und manns hafa yfirgefið heimili sitt en flóðin eru talinn þau verstu í Kína síðastliðinn áratug. kyrrsettu fiskiskip Norðurkóreski sjóherinn hefur handtekið áhöfn á á suðurkóresku fiskiskipi og kyrrsett skipið, sam- kvæmt fréttum frá Suður-Kóreu. Mikil spenna hefur verið í samskipt- um ríkjanna síðan suðurkóresku herskipi var sökkt fyrr á árinu. Emb- ættismenn í Suður-Kóreu hafa sagt að þeiri viti ekki hvers vegna bát- urinn var kyrrsettur. Fjórir Kóreu- menn og einn Kínverji voru um borð í skipinu. sluppu af réttargeðdeild Sex grænlenskir fangar flúðu af rétt- argeðdeild háskólasjúkrahússins í Risskov í Árósum aðfaranótt sunnu- dags. Talið er að einn fanganna hafi ráðist á tvær konur þá um nóttina og reynt að nauðga þeim. Fram kemur í dönskum fjölmiðl- um að fimm karlmenn og ein kona frá Grænlandi hafi skömmu eftir miðnætti brotist út um hurð á geð- deildinni, brotið rúðu á sjúkrahús- inu til að komast út og loks hoppað yfir gamla girðingu sem til stóð að endurnýja. flugfreyjur sendar í megrun Tyrkneska flugfélagið Turkish Airli- nes hefur sett verkbann á 28 flug- þjóna og flugfreyjur fyrir þá sök að þau teljast of feit og hefur félagið gefið þeim sex mánuði til að létta sig. Takist þeim það ekki verða þau sett í önnur verkefni hjá flugfélaginu. Það sem meira er þá hefur Te- legraph eftir tyrkneska blaðinu Ha- ber Turk að starfsmennirnir séu í launalausu fríi á meðan þeir losa sig við hin meintu aukakíló.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.