Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2010, Síða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2010, Síða 18
RunólfuR og áskRiftin n Runólfur Ágústsson, fyrrverandi umboðsmaður skuldara, er með húmorinn í lagi þótt hann gangi um þann dimma dal að þurfa að hverfa frá emb- ætti. Skulda- mál Runólfs voru upphaf- lega reifuð í DV. Um helgina var síðan nærmynd af kappanum þar sem meðal annars er upplýst að hann og Árni Páll Árnason félags- málaráðherra eru skólabræður úr MH. Runólfur er á Facebook og á föstudagsmorgun mátti lesa eftirfar- andi: „Runólfur Ágústsson farinn út í sjoppu að kaupa DV...það hefði borg- að sig að gerast áskrifandi þennan mánuðinn!“ Agnes og gosi n Athafnamaðurinn Jón Ásgeir Jó- hannesson er hundeltur þessa dag- ana af yfirvöldum nokkurra landa. Hinn fallni út- rásarvíkingur hefur verið sér- stakt áhugamál Morgunblaðsins allt frá því Davíð Oddsson tók við ritstjórninni. Dýrasti pistlahöf- undur Íslands, Agnes Bragadóttir, ritar vikulega pistla í Moggann og þá yfirleitt um Jón Ásgeir sem hún þáði áður greiða af. Agnes, sem er með 800 þúsund á mánuði, hefur undanfarið verið í fríi. En nú er hún mætt aftur og viti menn: Pistill hennar var um Jón Ás- geir sem hún líkti við Gosa. slAguR MoggA og fRéttAblAðs n Barátta Morgunblaðsins og Frétta- blaðsins um það hvort lifir hitt er nú í hámarki. Fréttablaðið hefur gripið til þess örvæntingarúrræðis að mis- muna viðskiptavinum sínum með því að selja fólkinu á landsbyggðinni blaðið en gefa það áfram í Reykja- vík. Mogginn siglir áfram í stórtapi með slagsíðu á meðan sægreifar með Guðbjörgu Matthíasdóttur eru tilbúnir til að niðurgreiða fagnaðar- erindið. Því er spáð að rekstur beggja blaðanna muni enda með ósköpum ef ekki verði gripið í taumana. Þar er talið vænlegast að sameina þau. En slíkt gerist væntanlega ekki á meðan Jón Ásgeir Jóhannesson er aðaleig- andi Fréttablaðsins og Davíð Odds- son ritstýrir Mogganum í umboði sægreifanna. Heltekinn Af glæpuM n Stjörnulögmaðurinn Sveinn Andri Sveinsson var á meðal gesta í þætti Sirrýar á Rás 2 á sunnudagsmorg- un. Lögmaðurinn er einn sá helsti þegar kemur að því að verja afbrota- menn á Íslandi. Þeir eru fáir stór- glæpamennirnir sem ekki hafa verið skjólstæðingar hans. Í þættinum var upplýst að Sveinn Andri hrærist ekki aðeins dagana langa í heimi afbrota. Frístundir sínar notar hann gjarnan til að lesa glæpareifara. Hann mætti því sem sérfræðingur í glæpum og ekki síður glæpasögum. Þetta heitir að sameina starf og áhugamál. Svarthöfði er ákafur stuðn-ingsmaður þess að samkyn-hneigðir njóti fullra réttinda. Í þeirri afstöðu felst þó ekki fordómaleysi gagnvart hinum ýmsu kynjamyndum lífsins heldur einfald- lega það að kynlíf eða kynhneigð fólks er einkamál. Í hinum breiða vinahópi Svarthöfða skiptir kyn engu máli nema þá sjaldan að sambönd brotna upp og grípa þarf til áfallahjálpar. Í einföldu máli þá er það þannig að vinasambönd eru hafin yfir kynferði. Réttindabarátta homma og lesbía varð fyrst opinber þegar Hörður Torfason steig fram á sviðið og lýsti yfir því að hann gæti ekki elskað konur en laðaðist að kyn- bræðrum sínum. Samfé- lagið stóð á öndinni af hneykslun vegna þess að sátt- málinn var rofinn. Allar götur fram að þessu höfðu hommar og lesbíur farið með veggjum. Það var gert gys að fólkinu sem þannig braut lögmál náttúrunnar með gróf- um hætti. Fyrirlitning- in var alls staðar en hatrið var í láginni. Þegar Hörður steig fram og lét mynda sig með hjarta saumað á afturendann gaus hatrið upp. Hann var barinn, smáður og loks hrakinn af landi brott. En Hörður er fyrir löngu kom-inn heim. Samkynhneigðir njóta fullra réttinda og virð-ingar sem borgarar. Forsætis- ráðherra landsins er lesbía og borgar- stjórinn í Reykjavík klæðir sig gjarnan eins og kona þótt karl sé og meira að segja gagnkynhneigður. Ísland er á meðal fremstu ríkja heims hvað varðar réttindi samkynhneigðra sem eru þau sömu og allra hinna sem að- hyllast gagnstætt kyn. Fullur árangur hefur því náðst þótt fordómar séu til staðar hjá einstaklingum. Það mun aldrei breytast þótt sá árangur hafi náðst að Gunnar Þorsteins- son í Krossin- um sé orðinn vinveittur hommum og sé hættur að tala um þá sem sjúk- linga. Þrátt fyrir allt þetta heldur stríðið áfram. Gleðiganga, Hinsegin dagar og allskon-ar uppákomur fara fram til að undirstrika sérstöðu homma og lesbía sem hafa barist fyrir því að verða sjálfsagður hluti af samfélag- inu. Svathöfði veltir því fyrir sér hvort þessu stríði sé ekki lokið. Er ekki tím- inn til þess kominn að samfélagið allt taki upp daglegt líf þar sem almenn sátt er um að kynhneigð skipti ekki máli. Væri kannski ráð að vekja athygi á málstað allra þeirra sem eru kyn- hneigðir og efna til gleðigöngu árlega. Hvað á þá að gera við þann minni- hlutahóp sem engan áhuga hefur á kynlífi og glímir jafnvel við kynkulda? Hvers eiga þeir að gjalda? Þar er þörf á baráttu. Eða hvað? ganga kynhneigðra „Já ég dró sjálfan mig út í þetta. Vegna fjölda áskorana frá sjálfum mér,“ segir GeORG eRlinGSSOn MeRRitt. Hann var kynnir og skipuleggjandi Dragkeppni Íslands sem haldin var í síðustu viku í Íslensku Óperunni. Sjálfur vann hann titilinn drag- drottning ársins 1998. Þurfti að draga Þig út í Þetta? „Við höfum litið þannig á að það væri allt undir núna þegar að við erum að fara yfir fjárlögin.“ n Guðbjartur Hannesson alþingismaður í samtali við vefmiðilinn Vísi um fyrirhugaðan niðurskurð hjá Þjóðkirkjunni. „Fulltrúar okkar erlendis og stjórnmála- menn okkar verða að vera ábyrgir í tali og gjörðum. Stjórnvöld verða að gera sér grein fyrir þeirri ábyrgð sem þau bera.“ n Jórunn Frímannsdóttir á bloggsíðu sinni á Eyjunni. „Næsta vika er tileinkuð skipulagsmálum. Hvað er deiliskipulag? Hver er framtíð Ingólfstorgs? Samgöngumiðstöð? Hvað kostar að hætta við?“ n Jón Gnarr borgarstjóri á Facebook-síðu sinni „7-0 er fínt en ég hefði viljað meira.“ n Jóhannes Karl Sigursteinsson þjálfari Breiðabliks eftir 7-0 sigur á rúmenska liðinu Targu Mures í Meistaradeild kvenna, í viðtali við Fótbolti.net „En Davíð hefur sosum aldrei viljað láta bjóða sér nein almúgakjör, eins og eftirlaunafrumvarpið hans staðfesti.“ n Ólafur Arnarson pistlahöfundur á Pressunni. Glæpir hrunsins Eitt af stærri vandamálunum við upp-gjörið við hrunið blasti við áhorf-endum Kastljóssins í síðustu viku. Þar sat Runólfur Ágústsson fyrir svörum, sagði af sér embætti umboðsmanns skuldara og reyndi að útskýra þau hluta- bréfaviðskipti sem hann tók þátt í þegar hann var framkvæmdastjóri Keilis í Reykja- nesbæ. Fyrirfram hefði mátt búast við því að jafn- aðarmaðurinn, lögfræðingurinn, háskóla- kennarinn, fyrrverandi rektorinn og fram- kvæmdastjórinn Runólfur Ágústsson ætti ekki að eiga í erfiðleikum með að sjá hinar vafasömu hliðar þeirra viðskipta sem hann tók þátt í. Eðli viðskipta Runólfs var jú það sama og eðli stórs hluta þeirra viðskipta sem rætt hefur verið um eftir hrunið. Ein- staklingur sem er tengdur inn í banka-, fjár- mála- og atvinnukerfið með einhverjum hætti fær lánafyrirgreiðslu upp á milljónir til að stunda gróðabrask með því að kaupa hlutabréf í tengdu fyrirtæki. Engin haldbær veð, önnur en hlutabréfin sem keypt eru, eru lögð fram. Fyrir liggur því strax að af- skrifa þarf lánið ef hlutabréfin hrynja í verði. Slík lánafyrirgreiðsla getur því ekki þjónað hagsmunum fjármálafyrirtækisins nema í einhverjum annarlegum tilgangi eins og að búa til falska eftirspurn eftir bréfunum eða að halda verði þeirra uppi. Frá hruninu 2008 hefur íslenska þjóðin heyrt svo margar sam- bærilegar sögur frá lykilmönnum, og eins minni spámönnum, hrunsins. Runólfur bar fyrir sig að viðskiptin hefðu verið lögmæt og hann virtist ekki átta sig á því að hann hefði gert neitt sem talist gæti á gráu svæði í sið- ferðilegum skilningi. Viðskiptin sem hann stundaði voru þó langt í frá eðlileg í siðferði- legu ljósi sama hvað lögin segja um þau. Þessi blinda og þrákelkni, þeirra manna sem stunduðu slík viðskipti, við að átta sig á og viðurkenna að slík viðskipti geta ekki með nokkru móti talist hafa verið stunduð á eðlilegum forsendum er hættuleg og spill- andi fyrir það uppgjör sem nú fer fram við hrunið. Ef fáir eða enginn þeirra manna sem mökuðu krókinn á hillingarfé góðærisins á Íslandi geta séð hvað var athugavert við við- skipti þeirra þá er ekki mikil von á siðvæð- ingu í efnahagslífinu og samfélaginu öllu. Ástæðan er sú að flestir þessara manna, meðal annars Runólfur, átta sig ekki á því hvað það var í þessum viðskiptum sem er bæði siðlaust í sjálfu sér og eins siðlaust í ljósi þess hvernig fór fyrir íslenska efnahagskerf- inu. Inntakið í viðskiptum margra þeirra sem verið hafa í umræðunni upp á síðkastið er að þeir fengu fyrirgreiðslu sem hefði get- að gert þeim kleift að hagnast verulega án þess í raun að taka neina áhættu því áhætt- an hvíldi öll á fjármálafyrirtækinu sem lán- aði þeim fé. Þegar X margir menn, viðskipta- jöfrar, lykilstarfsmenn bankanna, Runólfur og fleiri, höfðu allir fengið slíka fyrirgreiðslu varð til gríðarleg áhætta sem hvíldi öll á fjár- málakerfinu sjálfu en ekki á þeim sem fjár- festu og áttu von á að græða. Þegar kerf- ið hrynur þá sitja þeir ekki uppi með tapið. Fjármálakerfið, kröfuhafar bankanna og ís- lenska þjóðarbúið í heild sinni fá skellinn. ingi f. Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar. „Þegar kerfið hrynur þá sitja þeir ekki uppi með tapið.“ sandkorn tryggvagötu 11, 101 reykjavÍk Útgáfufélag: Dv ehf. Stjórnarformaður: Lilja Skaftadóttir framkvæmdaStjóri: Bogi örn emilsson ritStjórar: jón trausti reynisson, jontrausti@dv.is og reynir traustason, rt@dv.is fréttaStjóri: Ingi Freyr vilhjálmsson, ingi@dv.is dv á netinu: Dv.IS aðalnÚmer: 512 7000, ritStjórn: 512 7010, áSkriftarSími: 512 7080, auglýSingar: 512 7050. SmáauglýSingar: 515 5550. umbrot: Dv. Prentvinnsla: Landsprent. dreifing: Árvakur. Dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. leiðari spurningin svarthöfði bókstaflega 18 umræða 9. ágúst 2010 mánudagur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.