Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2010, Page 29
MánUDAGUR 9. ágúst 2010 sviðsljós 29
OXYTARM
Endurnærir og hreinsar ristilinn
Allir dásama OXYTARM
Í boði eru 60-150 töflu skammtar
DETOX
30days&
Betri apótekin og Maður lifandi www.sologheilsa.is.
Losnið við hættulega kviðfitu og
komið maganum í lag með því að
nota náttúrulyfin Oxytarm og
30 days saman -120 töflu skammtur -
www.birkiaska.is
Minnistöflur
Bætir skammtímaminnið. Nýtist
fólki sem er undir álagi og fæst
við flókin verkefni. Hentar vel
fyrir eldri borgara, lesblinda og
nemendur í prófum. Dregur úr
streitu, eykur ró og bætir skap.
www.birkiaska.is
Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði
vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar
starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar
efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum,
dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox).
Birkilaufstöflur
súpermódelið Elle Macpherson eyðir töluverðum tíma á ströndinni svo halda mætti að sjór, sól og sandur hefðu slípað til fegurð hennar. Sólin er ekki góð í miklu magni fyrir húðina og saltvatnið rústar hárinu. Elle segist þó nota náttúruöflin sér til góðs. „Ég snerti eiginlega ekki á mér hárið. Það á það til að mynda dreddlokka á sumrin, en ég læt þá bara eiga sig,“ segir súpermódelið. „Og ég skil sjóinn eftir
í hárinu sem mótunarefni, alveg eins og ég nota saltvatnsspreiið frá Bumble and Bumble þegar ég kemst ekki
í sjóinn. Allt sem ég geri ýkir náttúrulegt útlitið.“
Fyrirsætan hefur oft sést með kúrekahatt úr tágum og hafa slúðurblöð velt sér upp úr því. „Það snýst meira
um notagildið en tískuna. Margir halda að ég noti kúrekahatt sem hluta af útliti mínu, en það er í rauninni til
þess að vernda hárið fyrir sólinni. Ég safna þessum höttum á ferðum mínum um heiminn, ég gæti til dæmis
keypt einn þeirra í verslun með notaðar vörur á Costa Rica. Það er svo einfalt.“ Að lokum er ágætt að nefna að
Elle notar ávallt sólarvörn og gætir þess að sólin eyðileggi ekki húðina.
„Ég sný andlitinu ekki í sólina og nota alltaf sólarvörn. Ég er með gyllta húð að upplagi og það fullkomnar
strandútlitið.“
leikarinn smáfríði Leonardo DiCaprio fékk nýverið nálgunarbann á brjálaðan aðdá-anda, Arethu Wilson, sem kastaði brot-inni bjórflösku í andlit hans árið 2005. Leo
var staddur í einkapartíi í Hollywood þegar konan
kastaði flöskunni í vanga hans. Hann þurfti í kjöl-
farið að leita sér hjálpar á sjúkrahúsi þar sem mörg
spor voru saumuð í andlit hans og ber hann ör eft-
ir árásina. Aretha flúði til Kanada en var framseld
til Los Angeles nýlega og var ákærð fyrir alvarlega
líkamsárás. Henni hefur verið skipað að halda sig
í minnst 150 metra fjarlægð frá leikaranum og má
ekki hafa samband við hann. Aretha sagði fyrir rétti
að hún hafi talið að leikarinn væri fyrrverandi sam-
býlismaður sinn og að árásin væri einn stór mis-
skilningur.
Elle Macpherson notar náttúruöflin í sína þágu:
Fílar sig á
ströndinni
leo fær nálgunarbann á brjálaðan aðdáanda
Réttlæti í flöskumáli
Elle Macpherson
Líður vel á ströndinni.
Leonardo DiCaprio
Fékk flösku í nefið.