Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2011, Síða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2011, Síða 3
Fréttir | 3Miðvikudagur 5. janúar 2011 Laun, sem skilanefndar- og slita- stjórnarmenn þiggja, þykja há á ís- lenskan mælikvarða og hafa sætt gagnrýni. Augljóslega hafa margir þeirra nú allt að tvöfalt hærri laun en eftirsóttustu lögfræðingar, sem geta haft 2 til 3 milljónir króna á mánuði. Talað er um eftirlitslausa sjálftöku og á það bent að í raun hafi lögfræðing- ar og endurskoðendur innan þeirra lítinn hag af því að hraða uppgjöri og slitum bankanna. Því lengri tími, því meiri verða tekjurnar yfir lengri tíma. Jafnframt er reglulega gagnrýnt að skilanefndir bankanna og slita- stjórnir séu óháðar eftirliti og hafi öðlast stöðu eins og ríki í ríkinu. DV hefur látið reyna á þetta og fengið þau svör hjá FME, stjórnvöld- um og dómstólum, að erfitt sé að að- hafast nokkuð nema athugasemd- ir berist frá kröfuhöfum. Í mörgum tilvikum virðast einnig kröfuhafar vera óvirkir gagnvart skilanefndun- um og slitastjórnunum. Sérfróðir hafa meðal annars bent blaðamanni DV á að kröfur hafi í mörgum tilvik- um ekki enn verið viðurkenndar og því eigi fulltrúar erlendra sem inn- lendra kröfuhafa einnig bágt með að beita sér. Takmarkað eftirlit „FME kom að skipun í skilanefnd- irnar á sínum tíma og við þekkjum kostnaðinn við þetta,“ segir Gunn- ar Andersen, forstjóri Fjármála- eftirlitsins, í samtali við DV. „Það er varla sanngjarnt að halda því fram að skilanefndir og slitastjórn- ir séu að tefja mál í eigin þágu að- eins tveimur árum eftir hrun stóru bankanna. Um eftirlitið er það að segja að við misstum ákveðið boð- vald yfir skilanefndunum með lög- um sem sett voru í apríl 2009. Við höfum samt ákveðið eftirlit með gömlu bönkunum þar sem þeir hafa starfsleyfi ennþá af ýmsum ástæðum. Við fáum þannig skýrslur frá þeim reglulega. Þá hafa einnig verið skipaðar slitastjórnir af dóm- stólum og skilanefndir og slita- stjórnir eru með ákveðna verka- skiptingu og samvinnu. Þannig að þetta á ekki að vera með öllu eft- irlitslaust. En boðvald okkar er minna en áður.“ Gunnar segir að ábendingar um hagsmunaárekstra og vanhæfi slita- stjórnar- og skilanefndarmanna við meðferð mikilla eigna hafi hon- um vitanlega ekki komið inn á borð FME. „Skilanefndarmaður sendi þó árið 2009 innheimtumál til eig- in lögfræðistofu og við höfðum bein afskipti af því á sínum tíma. Það var leiðrétt,“ segir Gunnar. Með vissu er hér um að ræða milljarða innheimtumál á hendur Exista sem skilanefnd Landsbanka Íslands sendi til Lögfræðistofu Reykjavíkur sem er meðal annars í eigu Lárentsínusar Kristjánssonar, formanns skilanefndar bankans. Kostnaði á að halda niðri Ríkið og Seðlabanki Íslands eru meðal stórra kröfuhafa í bönkunum. Þannig á Seðlabankinn til að mynda um 200 milljarða króna kröfu í Spari- sjóðabankann sem slitastjórnin við- urkennir ekki og hefur hafnað þar af leiðandi. „Við í fjármálaráðuneytinu höf- um ekki miklar upplýsingar um þetta. Það helgast meðal annars af því að meðferð krafnanna er núna að uppistöðu til í höndum eignar- haldsfélags Seðlabankans sem fer sameiginlega með kröfur ríkisins og Seðlabankans,“ segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra í sam- tali við DV. „Að því marki sem þessi mál heyra undir einhvern er það væntanlega efnahags- og viðskipta- ráðuneytið. Ég held að þetta sé mjög misjafnt. Ég hef ástæðu til að ætla að menn dæmi kannski allan skóginn eftir tilteknum trjám. Við höfum vissulega heyrt ýmsar svona sögur. Ég held að að uppistöðu til séu nú skilanefndirnar og svo hinar dómskipuðu slitastjórnir að vinna samkvæmt því sem eðlilegt getur talist við það að endurheimta eignir og vinna úr búunum. Maður hefur svo líka heyrt sögur af því að menn séu að gera vel við sjálfa sig og ekk- ert að flýta sér við úrvinnsluna og þá er það eitthvað sem þarf að taka á. Að sjálfsögðu þarf að sjá til þess að kostnaði sé haldið í lágmarki og að hann fari ekki upp úr öllu valdi. Gallinn við þetta er sá að þetta eru að miklu leyti erlendir kröfuhaf- ar, stórir bankar og sjóðir, sem eru með kröfur alla vega í stóru bank- ana. Og þeir eru vanir þannig töxt- um að þeim finnst þetta örugglega lágt tímakaup sem menn skammta sér hér á Íslandi þótt það sé mjög hátt í okkar umhverfi.“ Steingrímur kveðst sjálfur hafa reynt á eigin skinni hvað það kost- ar að kaupa lögfræðiráðgjöf frá er- lendum aðilum. „Við þurfum að borga heilmikla reikninga vegna ónefndra mála og þá fyrst sér mað- ur kauptaxta sem fá mann til að svitna. Þótt þessar tölur séu háar hér og stingi í augu þykja þetta ekki endilega háar tölur í erlendu sam- hengi. Þegar upp er staðið skipt- ir rekstrarkostnaður sem hlutfall af eignum þrotabúanna mestu máli.“ „Kostnaðinum sé haldið í lágmarki“ n Fjármálaráðherra vill að kostnaði við slit bankanna sé haldið í lágmarki n Vanhæfi og hagsmunaárekstrar slitastjórna og skilanefnda koma lítið til kasta FME Jóhann Hauksson blaðamaður skrifar johannh@dv.is Skert boðvald Gunnar Andersen, forstjóri FME, segir vanhæfismál og hagsmunaárekstra innan skilanefnda eða slitastjórna ekki koma inn á borð FME. Stjórnarherrar og skilanefndarmenn Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir að taka verði á því sannist að menn séu að gera vel við sig og hraði ekki verkum sínum. „Maður hefur svo líka heyrt sögur af því að menn séu að gera vel við sjálfa sig og ekk- ert að flýta sér við úrvinnsluna og þá er það eitthvað sem þarf að taka á. n Þeir sem eru í skilanefndum og slitastjórnum bankanna eru í hópi tekjuhæstu einstaklinga þjóðarinnar eftir hrunið n Tólf þeirra högnuðust samanlagt um 460 milljónir króna í gegnum einkahlutafélög sín allt árið 2009 n Það jafngildir á fjórðu milljón króna á mánuði Hin nýja auðstétt hrunsins stöðvun og slit gamla Lands- bankans nam tæpum 6 millj- örðum króna fyrstu sex mánuði nýliðins árs eða sem nemur einum milljarði króna á mánuði. Skilanefnd- armenn töldu í ágúst síðast- liðnum að kostnaðurinn yrði nokkru minni síðari hluta árs- ins. Hann gæti engu að síður hæglega hafa orðið 10 millj- arðar króna. Til samanburðar má geta þess að samanlagð- ur kostnaður skilanefndar og slitastjórnar Glitnis nam 4,6 milljörðum króna árið 2009. Sex milljarða króna kostn- aður við skil og slit gamla Landsbankans á fyrri hluta síðasta árs skiptist þannig að um 1,6 milljarðar króna eru laun og launatengd gjöld. Það er liðlega fjórðungur heildar- upphæðarinnar. Réttum helm- ingi upphæðarinnar, tæpum 3 milljörðum króna, var varið til kaupa á þjónustu lögfræðinga og öðrum sérfræðikostnaði. Þar af nam kostnaður erlend- is um 2,5 milljörðum króna en lögfræði- og sérfræðikostnað- ur hérlendis nam á sex mán- uðum 470 milljónum króna. Lárentsínus Kristjánsson, lögfræðingur og formaður skilanefndar Landsbankans, sagði á þessum tíma að kröfu- hafar hefðu engar athuga- semdir gert við kostnað vegna umsýslu með eignir bank- ans og störf skilanefndar og slitastjórnar við að innheimta kröfur og verja eignasafn bús- ins. Þótt taxtar skilanefndanna og slitastjórnanna þyki háir á íslenskan mælikvarða þykja þeir ekki ýkja háir í nágranna- löndunum, svo sem í Bret- landi, eins og bæði fjármála- ráðherra og forstjóri FME geta um hægra megin á opnunni. Í New York Páll Eiríksson og Steinunn Guðbjartsdóttir á tröppum dómstóls í New York þegar máli slitastjórnar gegn fyrrverandi eigendum og stjórnendum Glitnis var vísað frá. Málareksturinn kostaði hundruð milljóna króna. MYNd JóhaNNES Kr. KriSTJáNSSoN

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.