Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2011, Qupperneq 4
4 | Fréttir 5. janúar 2011 Miðvikudagur
Ólafur Gottskálksson tekinn af lögreglu vegna líkamsárásar:
Sleppt að lokinni skýrslutöku
Fjölþrepa
bakbrettið
• Eykur sveigjanleika
• Linar bakverki
• Bætir líkamsstöðu
• Auðvelt í notkun
• Má nota hvar sem er
Opið virka daga kl. 9 -18 og á laugardögum kl. 11 - 16
Verð: 7.950 kr.
Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • www.eirberg.is
Eva Björg Sigurðardóttir lenti í þeirri
óvenjulegu lífsreynslu á gamlársdag
að fæða barn í heita pottinum í garðin-
um heima hjá sér í Grindavík. Það var
faðir barnsins, Rafn Franklín Arnar-
son, sem tók á móti syni sínum í pott-
inum en fyrir eiga þau tvo stráka.
Ætlaði að eiga heima
„Við ætluðum að eiga hann hérna
heima og vorum búin að vera með til-
búna fæðingarlaug hér inni í þrjár vik-
ur. Við ætluðum að hafa þetta mjög
náttúrulegt með kertaljósum, rólegri
tónlist og ilmolíum og það átti að
koma ljósmóðir,“ segir Eva Björg en af
fyrri reynslu bjóst hún við að fæðingin
tæki talsvert langan tíma.
„En svo vakna ég með verki klukk-
an sex að morgni gamlársdags og fer á
fætur um hálfsjö. Ég sendi ljósmóður-
inni smáskeyti um að ég sé að byrja að
fara af stað og hún hringir í mig róleg
og segir mér að hafa samband ef eitt-
hvað breytist. Ég er síðan inni í um það
bil 40 mínútur en ákveð síðan að fara
í pottinn úti í garði til að lina verkina
og svo að maðurinn minn geti gert allt
tilbúið fyrir fæðinguna hérna inni á
meðan.“
Kom syndandi út
Eva Björg var búin að vera í fimmtán
mínútur í heita pottinum þegar hún
fann að barnið væri að fara að fæð-
ast. Þá kallaði hún í Rafn Franklín og
sagði honum að hann yrði að koma út
og taka á móti barninu. Hann hringdi
strax í ljósmóðurina sem býr á Vatns-
leysuströnd og lagði hún strax af stað.
„Síðan líða um 10 mínútur og þegar
maðurinn minn sér hausinn vera að
koma hringir hann í ofboði aftur í ljós-
móðurina sem var ókomin. Hún talar
hann í gegnum þetta og biður hann
um að segja mér að vera bara róleg og
bíða eftir næstu hríð. Maðurinn minn
kraup síðan við pottinn og í sömu
andrá og strákurinn kom syndandi út
kom mamma hlaupandi fyrir hornið.
Þannig að klukkan hálfátta á gamlárs-
dagsmorgun vorum við með nýfætt
barn hérna í pottinum úti í garði. Þetta
var alveg æðislegt,“ segir nýbakaða
móðirin og ljómar.
Grét af gleði
Nágrannakona sem vaknaði við um-
stangið sagði við Evu að hún hefði
hreinlega farið að gráta af gleði þegar
hún áttaði sig á því að hún væri vitni
að fæðingu og fannst þetta mögnuð
upplifun.
Ljósmóðirin hafði hringt í sjúkrabíl
til vonar og vara ef drengurinn þyrfti
að komast fljótt undir læknishend-
ur og komu sjúkraflutningamenn-
irnir skömmu eftir að drengurinn var
kominn í heiminn. Þeir hurfu þó fljót-
lega frá þar sem bæði móður og barni
heilsaðist vel. Ljósmóðirin kom einn-
ig fljótlega á staðinn og var hjá Evu á
meðan hún fæddi fylgjuna í pottin-
um. „Þetta var bara yndislegt og hálf-
tíma eftir fæðinguna fékk ég mér ristað
brauð með graflaxi og kaffi inni í eld-
húsi. Við erum alveg í skýjunum.“
Hanna Ólafsdóttir
blaðamaður skrifar hanna@dv.is
Ólafur Gottskálksson, fyrrverandi
markvörður íslenska landsliðsins í
knattspyrnu, var færður á lögreglu-
stöðina í Reykjanesbæ á nýársdags-
morgun, grunaður um að hafa í fé-
lagi við annan mann brotist inn á
heimili í bænum þar sem íbúi lá sof-
andi og ráðist á hann. Ekki er vitað
um tilefni meintrar árásar.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni í Reykjanesbæ barst til-
kynning klukkan 8.44 á nýársdags-
morgun um að verið væri að ráðast
á mann á Hafnargötunni í Keflavík.
Lögreglumenn fóru á staðinn en
urðu einskis varir. Í lögregluskýrslu
kemur fram að lögreglumenn hafi
síðar fengið upplýsingar um að árás-
in ætti sér stað á heimili manns við
götuna. Lögreglan fór inn á heimil-
ið og var Ólafur færður á lögreglu-
stöðina í viðtal en fékk að fara heim
að því loknu. Í lögregluskýrslu segir
að fórnarlamb árásarinnar hafi ver-
ið með smávægilega áverka í andliti
en hafi ekki viljað þiggja aðstoð frá
lögreglu á vettvangi. Meint árás hef-
ur ekki verið kærð og mun lögregl-
an ekkert aðhafast fyrr en kæra hef-
ur borist.
Fórnarlambið þurfti að leggjast
inn á sjúkrahús á nýársdag þar sem
hann lá í tvo sólarhringa. Samkvæmt
heimildum DV er fórnarlambið með
samfallið lunga og rifbeinsbrotið.
Ólafur, sem er grunaður um að
eiga þátt í málinu, var á síðasta ári
dæmdur í 10 mánaða fangelsi fyr-
ir að hafa ráðist inn á heimili í félagi
við annan mann, gengið í skrokk á
heimilismanni og haft á brott með
sér fartölvu. Hann lék á sínum tíma
9 landsleiki fyrir A-landslið Íslands
og var atvinnumaður í knattspyrnu
þar til hann var dæmdur í ævilangt
keppnisbann fyrir að mæta ekki í
lyfjapróf.
Árás Ólafi Gottskálkssyni var sleppt að
lokinni skýrslutöku.
Fæddi
barnið
í heita
pottinum
n Barnið fæddist í heita pottinum heima á
gamlársdag n Faðirinn tók á móti barninu
n Nágrannakonan grét af gleði þegar hún heyrði barnið koma í heiminn
Potturinn góði Eva Björg og Rafn
Franklín við heita pottinn í garðinum.
Hamingja Eva Björg segir
fæðinguna hafa verið æðislega
og að allt hafi gengið eins vel og
hugsast gat.
MyNdir rÓBert reyNiSSoN
Fjölskyldan Eva Björg og Rafn Franklín ásamt strákunum sínum þremur.
Siv gegn
Sigmundi
Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Fram-
sóknarflokksins, vill ekki þjóðstjórn
líkt og formaður Framsóknarflokks-
ins. Hún vill heldur ekki að boðað
verði til kosninga. Talar hún þar með
þvert gegn Sigmundi Davíð Gunn-
laugssyni, formanni flokks hennar,
sem hefur ítrekað talað um þjóð-
stjórn og nýjar kosningar. Ummælin
lét Siv falla í Morgunútvarpinu á Rás
2 á þriðjudagsmorgun.
Sagði hún meðal annars að hún
teldi að kosningar á þessum tíma-
punkti væru eitt af því sísta sem
samfélagið þyrfti á að halda. Siv
sagðist aldrei hafa verið hrifin af
hugmyndinni um þjóðstjórn. Sagði
hún að lýðræðinu væri betur þjón-
að með því að hafa bæði stjórn og
stjórnarandstöðu sem gæti veitt að-
hald og bent á það sem betur mætti
fara.
Lottóvinningshafi
fer huldu höfði
Lottóvinningshafinn heppni á Þing-
eyri fer ennþá huldu höfði. Þorps-
búar hafa margir hverjir bendlað
ákveðinn aðila við vinninginn en
sá segist ekki hafa keypt lottómiða í
mörg ár. Hann hefði þó glaður tekið
á móti 25 milljónunum ef miðinn
hefði verið hans.
Leitin að milljónamæringnum á
Þingeyri heldur því áfram og þorps-
búar verða að halda áfram með
getgáturnar þangað til hinn heppni
stígur fram, ef hann gerir það þá.
Vinningsmiðinn var keyptur í
söluskála N1 á Þingeyri á milli jóla
og nýárs. Starfsstúlka í söluskálan-
um sagði í samtali við DV í byrjun
vikunnar að hún teldi nokkuð víst að
vinningshafinn væri heimamaður,
enda hefði verið lítið um að utan-
bæjarfólk væri á ferðinni á þessum
tíma.