Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2011, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2011, Page 6
Starfskjör Bíllinn er hluti af starfskjörum Hilmars sem er bæði formaður og framkvæmdastjóri FIT. 6 | Fréttir 5. janúar 2011 Miðvikudagur Íslendingur liggur alvarlega slasaður á sjúkrahúsi í Austurríki: Féll tuttugu metra Endurnærir og hreinsar ristilinn allir dásama OXYTARM Í boði eru 60-150 töflu skammtar 30+ Betr i apotekin og Maður l i fandi www.sologhei lsa. is OXYTARM Sól og heilsa ehf = Losnið við hættulega kviðfitu og komið maganum í lag með því að nota náttúrulyfin Oxytarm og 30 days saman120 töflu skammtur days detox n Formaður Félags iðn- og tæknigreina fékk nýjan jeppa til afnota n Kostar fimm og hálfa milljón n Kom til álita að kaupa ódýrari bifreið Keyptu lúxusjeppa fyrir formanninn Félag iðn- og tæknigreina, FIT, fjár- festi í desember í glænýrri Chevro- let Captiva-jeppabifreið. Bifreiðin kostaði rúmlega fimm og hálfa millj- ón króna og er ætluð formanni fé- lagsins til afnota. Félagið virðist hafa nóg fjármagn í höndunum en nýver- ið greindi DV frá því að tíu stjórnar- menn félagsins fóru til Seattle á dög- unum á kostnað félagsins þar sem Boeing-verksmiðjurnar voru meðal annars heimsóttar. Tilgangur ferðar- innar var að sækja endurmenntun- arnámskeið hjá Boeing. Rúmlega 300 félagsmenn eru atvinnulausir. Fríðindi formanns „Þetta er bara endurnýjun á bíl sem framkvæmdastjóri hefur. Félagið er með þrjá bíla. Þetta er til að þjón- usta meðal annars orlofshúsin af því að það er nú snjór og við erum með þrjátíu og tvö orlofshús og við þjónustum þau yfir vetrartímann,“ segir Hilmar Harðarson, formað- ur og framkvæmdastjóri félagsins, um sjö manna lúxus-jeppabifreið- ina. „Þetta hefur alltaf verið bíll fyr- ir framkvæmdastjóra hjá félaginu og að sjálfsögðu eru borguð öll hlunn- indi af því til skattsins eins og ber að gera,“ segir hann en hann segir jafn- framt að endurskoðendur félags- ins hafi ráðlagt því að kaupa bifreið í stað þess að borga aksturspeninga. „Það hefði verið hægt að gera það en þetta hefur verið bíllinn sem hefur verið í gangi síðustu árin,“ segir hann aðspurður hvort ekki hafi komið til greina að kaupa ódýrari bíl. Fríðindi formanns Hilmar segir að sú bifreið sé keypt sem hagstæðast sé að kaupa á hverj- um tíma, í þessum stærðar- og verð- flokki. „Stjórn félagsins tók ákvörð- un um að endurnýja þetta vegna þess að við vissum að bifreiðar væru að hækka verulega um áramótin út af endurskoðun á tollum og öðru,“ segir hann. „Það hefur þótt eðlilegt að hafa einn jeppa til að geta far- ið í hvaða sumarhús sem er.“ Hilm- ar ítrekaði það oft í samtali sínu við blaðamann að bíllinn sé nauðsyn- legur til að þjónusta orlofshús félags- ins en þrír iðnaðarmenn vinna við að þjónusta orlofshúsin. Þeir hafa þó tvær aðrar bifreiðar til að sinna verk- efnum sínum. Sinnir viðhaldi „Nei, hann er nýttur fyrst og fremst fyrir mig til að komast á fundi, alls staðar á okkar félagssvæði, og jafn- framt þar sem þarf jeppabifreið til þess að komast ef það þarf að draga eða koma kerru eða einhverju að, þá er hann nýttur í það,“ segir hann aðspurður hvort bifreiðin sé einnig nýtt til að sinna viðhaldi á orlofshús- um félagsins. Hann segir að skoðað hafi verið í þaula hvort hægt væri að kaupa ódýrari bifreið og segir hann að niðurstaðan hafi verið sú að þessi bifreið væri sú ódýrasta. „Raunverulegur lúxus“ Bifreiðin er af gerðinni Chevrolet Captiva og kostar ný, samkvæmt upplýsingum frá umboðsaðila Chevrolet á Íslandi, rúmlega fimm og hálfa milljón króna. Samkvæmt skráningu bifreiðarinnar var hún nýskráð 16. desember. Bifreiðin er búin alls kyns lúxus sem þó er stað- albúnaður í bílnum. Þar á meðal má nefna tengi fyrir MP3-spilara, álfelg- ur, hraðastilli og rúðuþurrkuhitara. Bifreiðin hækkar í verði nú um ára- mótin vegna aukinna vörugjalda á innfluttum bifreiðum. Á heimasíðu umboðsaðila segir um bílinn að hann sé sjö manna sportjeppi og tal- að um hann sé „raunverulegur lúx- us“. „Það hefur þótt eðlilegt að hafa einn jeppa til að geta farið í hvaða sumarhús sem er. Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is Formannsbíllinn Hilmar segir bílinn fyrst og f remst notaðan til að hann komist á fundi, en einnig til að s inna viðhaldi orlofs- húsa. Hann segir þó bílinn vera hluta af sta rfskjörum sínum. Tuttugu og fimm ára Íslending- ur liggur alvarlega slasaður á sjúkrahúsi í borginni Innsbruck í Austur ríki, eftir að hann hrapaði niður fjallshlíð í skógi í borginni á gamlárskvöld. Maðurinn hef- ur búið í borginni að undanförnu ásamt fleiri Íslendingum. Hon- um var haldið sofandi á sjúkra- húsi fyrstu dagana eftir slysið en samkvæmt heimildum DV er hann ekki í lífshættu. Hann er hins veg- ar bæði rifbeins- og hryggbrotinn, með samfallið lunga, auk þess sem hann hefur gengist undir aðgerð. Hann hlaut einnig höfuðáverka við fallið. Maðurinn var á gangi ásamt öðrum manni á svæðinu, í þeim tilgangi að stytta sér leið eftir að þeir misstu af strætisvagni. Talið er að honum hafi skrikað fótur með þeim afleiðingum að hann hrap- aði um 20 metra niður fjallshlíðina og er talið að þar af hafi verið um 7 til 8 metrar í frjálsu falli. Mjög erf- iðlega gekk að koma hinum slas- aða undir læknishendur en hann lá í um tvær klukkustundir áður en hjálp barst. valgeir@dv.is Innsbruck 25 ára Íslending- ur liggur alvarlega slasaður á sjúkrahúsi í Austurríki. Óboðinn gestur um jólin: Jólatréð iðaði af lífi Íbúi einn í Hafnarfirði fékk heldur meira en hann bað um þegar hann keypti jólatré í ræktunarreit í Mos- fellsbæ fyrir jólin. Tréð tók nefnilega að iða af lífi þegar það var komið á sinn stað inni í stofu. Frá þessu er sagt á vef Náttúrufræðistofnunar en þar segir að asparglyttan alræmda hafi fylgt trénu. Asparglyttan er ann- álaður skaðvaldur á öspum og víði- tegundum ýmiss konar. Samkvæmt vef Náttúrufræðistofnunar duttu hátt í hundrað bjöllur af trénu þegar eitri var úðað á það. Asparglyttan er nýlegur landnemi og sögð afar efnilegur skaðvaldur á trjám og runnum í görðum. Hún er orðin einkar fjölliðuð í Mosfellsbæ, í nágrenni meintra upptaka tegund- arinnar hér á landi, og eykur hún útbreiðslu sína í höfuðborginni jafnt og þétt með hverju árinu. Á haustin koma fullorðnar aspar- glyttur, það er bjöllurnar grænu, sér fyrir til vetrardvalar, gjarnan í sprungum í trjáberki og undir laus- um berki. Ofangreint dæmi úr Hafn- arfirði gefur til kynna að grenitré veiti glyttunum ákjósanlegt vetrar- skjól. Myndina hér að ofan tók Er- ling Ólafsson. Vegtollum mótmælt Hátt í tíu þúsund manns hafa mótmælt fyrirhuguðum vega- tollum umhverfis höfuðborgar- svæðið. Félag íslenskra bif- reiðaeigenda stendur fyrir undirskriftasöfnun á vefsíðu sinni. Kennitölur þurfa að fylgja nöfnum þannig að nær öruggt er að nöfn séu ekki tvítalin á list- anum. Undirskriftasöfnuninni var hrundið af stað síðdegis á mánudag. „Það er því að verða ljóst hvern hug almenningur ber til þeirrar fyrirætlunar stjórnvalda að girða höfuðborgarsvæðið af með tollmúr og leggja vegtolla á alla umferð um þjóðvegina inn á og út af svæðinu þegar endurbót- um á þessum vegum verður lokið eftir fá ár,“ segir í tilkynningu. Mynd eRlIng ÓlaFSSon

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.