Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2011, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2011, Síða 14
Góð þjónusta n Sáttur viðskiptavinur Max1 hafði samband við DV og vildi koma á framfæri þakklæti sínu. Konan segir að starfsmenn bílaþjónustunnar hafi verið einkar liðlegir og greið- viknir þegar hún þurfti að leita til þeirra. Dekk sprakk á bílnum hennar en að hún notar hún dekk sem ekki fást alls stað- ar. Starfsmennirnir gerðu dauðaleit að dekki fyrir hana og fundu. Hún var mjög ánægð með þessa góðu og jákvæðu þjónustu. Geymsluaðferð mikilvæg Nú þegar hátíðirnar eru yfirstaðnar fer fólk að hugsa betur um pyngjuna og nýta sér tilboð verslana og setja í frystinn. Á heimasíðu Leiðbeininga- stöðvar heimilanna eru leiðbeining- ar um hvernig best sé að ganga frá matvælum í frystingu og kælingu. Þar segir að góður frágangur sé mik- ilvægur en þegar geyma skal kjöt, fisk eða aðra matvöru þarf að geyma hana í lofttæmdum umbúðum. Kjöt sem er geymt í plastpoka hefur helmingi minni geymslutíma en það sem geymt er við lofttæmingu. Eins er ráðlagt að merkja ílátin með innihaldi og dagsetningu og ganga þarf frá kæli- og frystivöru sem allra fyrst eftir að hún er keypt. Engin afsökunar- beiðni n Viðskiptavinur Olís lét vita af eftir- farandi samskiptum við starfsmann fyrirtækisins. „Ég fæ mér oft ham- borgara á Olís því mér finnst þeir góðir en í þetta skipti gekk allt á aft- urfótunum. Ég pantaði tvö ostborg- aratilboð en fékk einungis annað tilboðið og í þokkabót var sá ham- borgari brenndur. Þegar ég ræddi þetta við afgreiðslustúlkuna varð hún pirruð, tók hamborgarann með höndunum og sagðist ætla að gera nýjan. Við vorum því með fransk- ar en enga borgara. Þegar þeir loks komu voru þeir hálfhráir. Ég átti ekki orð yfir þessari framkomu og aldrei vorum við beðin afsökunar.“ SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS Lof&Last Fáðu vöruna á hilluverði Neytendastofa bendir á að allar vörur í verslunum eiga að vera skýrt verðmerktar og á heimasíðu hennar segir að almenna reglan sé að verslanir skuli selja vöru á því verði sem varan er verðmerkt á, jafnvel þótt um mistök sé að ræða. Þetta gildir þó ekki ef sjá má, eða það ætti að sjást, að um mistök er að ræða. Þá gildir þetta heldur ekki ef röng verðmerking er ekki sök fyrirtækisins heldur hafi til dæmis annar viðskiptavinur breytt verðmerkingu eða fært vörur til. Í matvöruverslunum getur verið misræmi á verðmerkingu á hillu og í afgreiðslukassa en þá á neytandinn að fá vöruna á hilluverðinu. Byggist þetta á því að neyt- endur velja vöruna á grundvelli verðmerkingarinnar en ekki á grundvelli verðs í afgreiðslukassa enda hafa neytendur engin tök á því að sjá það verð fyrr en komið er að því að greiða vöruna. 14 | Neytendur Umsjón: Gunnhildur Steinarsdóttir gunnhildur@dv.is 5. janúar 2011 Miðvikudagur E ld sn ey ti Verð á lítra 209,5 kr. Verð á lítra 211,3 kr. Bensín Dísilolía Verð á lítra 209,3 kr. Verð á lítra 211,1 kr. Verð á lítra 210,0 kr. Verð á lítra 211,3 kr. Verð á lítra 209,2 kr. Verð á lítra 211,1 kr. Verð á lítra 209,3 kr. Verð á lítra 211,1 kr. Verð á lítra 209,5 kr. Verð á lítra 211,3 kr. Algengt verð Almennt verð Algengt verð Akureyri Melabraut Algengt verð n Útsölur er hafnar af miklum krafti n Dæmi eru um 70 til 80 prósenta lækkun á völdum vörum n Verslunarmenn ánægðir með viðtökurnar Útsölurnar eru komnar á fullt og virðast flestir vera á sama máli um að þær séu betri en oft áður. Um er að ræða mikla verðlækkun á eldri vörum en einnig er meira um að nýjar vörur séu settar á útsölu. Verslunarmenn sem DV ræddi við sögðu að viðtökurnar hefðu verið góðar og mikið væri að gera fyrstu daga útsalanna. Í Kringlunni og Smáralind standa þær yfir þar til í byrjun febrúar en þá verða settir upp götumarkaðir. Blaðamaður DV fór á stúfana og athugaði hvað er í boði á útsölunum í nokkrum versl- unum. Gunnhildur Steinarsdóttir blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is SPARAÐU OG KAUPTU NÚNA Kvenfatnaður Hjá Benetton fengust þær upplýsingar að 40 prósenta afsláttur væri á völdum vörum en það eru flíkur sem eru að klárast. Nýjar vörur fara ekki á útsölu þar. Cobra, sem selur sokka og sokkabuxur, veitir einnig 40 prósenta afslátt á völdum vörum. ZikZak er með 30 prósenta afslátt, aðallega á eldri flíkum, en inni á milli eru þó nýjar vörur. Eins er þar tilboðsslá þar sem allt er á 1.000 krónur. Evans, sem selur kvenfatnað í yfirstærð, býður upp á 40 til 70 prósenta afslátt á völdum vörum en vinsælar vörur sem eru alltaf til eru á sama verði, sem og nýjustu vörurnar. Emami selur kvenföt sem eru skandinavísk hönnun. Þar er allt með afslætti á bilinu 10 til 60 prósent. Til dæmis má þar fá Limit less-kjólana í sumarlitum á 60 prósenta afslætti. Zara opnaði sína útsölu fyrir áramót en á henni er allt sem kom í búðina á síðasta ári. Afslátturinn er allt að 80 prósent en nýjar vörur eru ekki á útsölu. Herraföt Þeir karlmenn sem vilja bæta í fataskápinn ættu ekki að vera í vandræðum með að finna eina eða tvær flíkur á útsölunum í herrafatabúðunum. Herragarðurinn og Hugo Boss eru með langflestar vörur sínar á afslætti en þar býðst 30 prósenta afsláttur. Staðlaðar flíkur sem eru til sölu allt árið, svo sem nærföt og sokkar, eru þó á sama verði og áður. Verslunin Jack & Jones slær einnig 30 prósent af öllu nema nýjum vörum. Auk þess er hægt að fá nokkrar týpur af skóm á niðursettu verði. Í Selected er mikið af gallabuxum á útsölunni þar sem verið er að skipta út gömlum týpum og taka inn nýjar. Þar er einnig veittur 30 prósenta afsláttur af völdum vörum. Unga fólkið Unglingarnir ættu einnig að finna eitthvað við sitt hæfi en Outfitters Nation er með 30 til 40 prósenta afslátt á völdum vörum. Í Gallerý sautján eru bæði nýjar og eldri vörur á útsölunni. Dömudeildin býður upp á 40 prósenta afslátt af völdum vörum en í herradeildinni er afslátturinn á milli 30 og 40 prósent. Þar fyrir utan eru allar vörur með 10 prósenta afslætti. Bækur og ritföng Bókabúðirnar eru ekki byrjaðar með sínar útsölur þar sem þær hafa gefið fólki lengri skilafrest á jólagjöfum. Útsalan í Eymundsson hefst í kringum 11. janúar og um svipað leyti í Máli og menningu. Þar eru þó búið að lækka verð á skólavörum, ritföngum og skrifstofuvörum en sumar af þeim vörum er á 30 til 50 prósenta afslætti. Skóbúðir Bossa Nova veitir allt að 40 prósenta afslátt af völdum vörum. Það er meirihluti af skóm verslunarinnar fyrir utan þá sem komu í desember og klassíska skó sem eru alltaf vinsælir. Útsala hófst á sunnudaginn hjá Skór. is og þar er einnig boðið upp á 40 prósenta afslátt af skónum. Þeirra á meðal eru vinsælar vörur svo sem Sixmix-skór. Hjá Kaupfélaginu fengust þær upplýsingar að óvenjumikið af vörunum væri á útsölu. Þar eru mest áberandi dömuskór og leðurstígvél og er veittur 40 prósenta afsláttur af ústöluvörum. Örtröð Það var margt um manninn í verslunarmiðstöðvum þegar útsölur hófust. MYNDIR SIGTRYGGUR ARI JóHANNSSON

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.