Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2011, Blaðsíða 19
Heimsbyggðin fagnar fæðingu Jesú og boðskap hans á jól-unum. Þó 2.000 ár séu liðin
frá sporgöngu hans um eyðimörk-
ina er fagnaðarerindið enn leið-
arljós mannkyns. Ein helsta mót-
staða frelsarans voru þáverandi
ráðamenn sem virtust lítt hrifnir
af tjáningarfrelsi öðru en á eigin
nótum. Allt sem hreyfði við lýðn-
um var ógn og ögrun. Og sagan
endurtekur sig. Heimsbyggðin
leitar huggunar í fagnaðarerind-
inu en í reynd hefur mannkynið
ekki gengið götuna fram eftir veg.
Mannréttindamál eru víða í ólestri
og lýðræðisríki glíma við innan-
mein sem rekja má til sömu rótar
og fyrir 2.000 árum. Við eltum ein-
hverja hugsjón og komum okkur
fyrir í hópum sem að lokum verða
mikilvægari en hugsjónin sjálf.
Slík klíkumyndun virðist vera saga
mannkyns í hnotskurn og af henni
eigum við að læra.
Gerum okkur að leik að vafra
yfir veröldina. Kína, eitt mesta
stórveldi heims, er ekki beinlín-
is þekkt fyrir mannréttindi. Minni
spámenn í suðri, N-Kórea og
Búrma, grá fyrir járnum, og í vestri
blaka Rússar ekki mannúðarfána.
Tjsetsjenía státar af nýjum Stal-
ín og í Afganistan er stríðsástand.
Herforingja- og ógnarstjórnir ráða
ríkjum víðs vegar um Afríku ásamt
trúarofstæki. Miðausturlönd eru
eyrnabólga heimsins, þar rennur
gröfturinn án afláts og engin með-
ferð virðist duga til langframa. Írak
er í herkví og Íran hlær að lýðræð-
istilburðum heimsbyggðarinnar.
Skammt frá glottir svo Berlusconi.
Heimsmyndin batnar í raun lít-
ið hinum megin við hafið. Banda-
ríkjamenn, sjálfskipaðir öryggis-
verðir jarðarkringlunnar, talsmenn
frelsis og framtaks, hafa í gegnum
tíðina staðið í leynimakki gegn öllu
sem að þeirra dómi ógnar öryggi
heimsbyggðarinnar. Nefni Fidel
Castró, Saddam Hussein og nú síð-
ast Julian Assange hjá Wikileaks.
Þó við höfum misjafnar skoðan-
ir á þessum málum liggur eitt fyr-
ir: Mannkynið hefur hugsanlega
meðtekið boðskap Jesú Krists en
tileinkunin á langt í land.
Endum þetta veraldarvafst-
ur hér uppi á Íslandi, Ísland-
inu góða. Ég held við getum með
þokkalegri samvisku talið okk-
ur til skásta heimshlutans hvað
mannréttindi og spillingu varðar.
Við erum þó sýnu verst á svæðinu
og drögum meðalkúrvuna niður.
Hvar okkur varð á í messunni má
sjá í hrunskýrslunum og verkefn-
ið fram undan hlýtur að vera að
losa stjórnmálin upp úr farvegum
hagsmunahópa og leyfa valdinu
að flæða um þjóðfélagið allt.
Af öllum hagsmunahópunum
eru stjórnmálamennirnir sjálf-
ir sýnu verstir. Þetta sjá æ fleiri.
Spurningin er hvort sú uppgötvun
muni sameinast í einni allsherjar-
flóðbylgju og ryðja burtu varnar-
görðum hægrisins og vinstrisins.
Hvorutveggja byrgir okkur sýn og
eru einungis tafskaflar á leið okk-
ar til betra lífs. Við þurfum hvorki
né verðum sammála um allt en
við ættum að geta sameinast um
grundvöll, grundvöll sem trygg-
ir lausnir byggðar á þjóðarvilja og
þjóðarsátt. Þetta er lykilmál og ætti
að vera keppikefli nýs árs.
Umræða | 19Miðvikudagur 5. janúar 2011
Matrix og
Jurassic
Park alltaf
bestar
1 Davíð nefndur „drusla“ Hilmar Jónsson, bloggari á mbl.is, kallar
Davíð Oddsson druslu eftir að hluti
þess sem hann kallar drottningarvið-
tal Viðskiptablaðsins við Davíð birtist
á mbl.is.
2 Bankinn slær sérkjör af Lands-bankinn hefur slegið af sérkjör þeirra
innistæðueigenda sem töpuðu
peningum í peningamarkaðssjóðum
gamla Landsbankans.
3 Tíu ára gamall drengur skaut móður sína til bana Drengur í Ohio
myrti móður sína á heimili þeirra í Big
Prairie, mitt á milli Cleveland og Col-
umbus, síðastliðið sunnudagskvöld,
með því að skjóta hana í höfuðið.
4 H&M á Íslandi: Fulltrúar skoða verslunarhúsnæði Ásgeir Bolli
Kristinsson staðfesti í samtali við
Fréttablaðið að fulltrúar sænska
fatarisans H&M hafi komið hingað til
lands fyrir jól og skoðað verslunar-
húsnæði.
5 Óbreytt kerfi gæti valdið nýju hruni Lítið hefur verið rætt um
æskilegt lánshlutfall eftir hrunið
hérlendis en óbreytt kerfi gæti valdið
nýju hruni.
Erlingur Grétar Einarsson er
ritstjóri tímaritsins Mynda mánaðarins
og hefur í samstarfi við kvikmyndir.is
komið á fót nýjum íslenskum kvik-
myndaverðlaunum. Þar fær áhorfand-
inn að hafa áhrif því kosningin fer fram
á kvikmyndir.is.
Hver er maðurinn?
„Erlingur Grétar Einarsson, ritstjóri Mynda
mánaðarins.“
Hvart ertu uppalinn?
„Í sveit í Rangárvallasýslu.“
Hvað drífur þig áfram?
„Allavega ekki peningar. Ég myndi segja að
það væri vonin um að eignast hund.“
Hvar vildirðu helst búa ef ekki á Íslandi?
„San Diego í Kaliforníu, ekki spurning. Við
konan fórum þangað á Comic Con í sumar
og urðum ástfangin af þessari borg.“
Uppáhaldsbíómynd?
„Matrix og Jurassic Park enda alltaf á
toppnum.“
Hvernig kom þessi hugmynd upp með
kvikmyndaverðlaunin?
„Mér leiddist þannig að mér datt þetta í hug.
Ég ákvað að spyrja þá hjá kvikmyndir.is sem
við erum í samstarfi við hvort þeir hefðu
áhuga og þeim leist vel á þetta. Mig langaði
að búa til eitthvað spennandi í kringum kvik-
myndir á Íslandi. Þó að hver Íslendingur fari
5–6 sinnum á ári í bíó eru fréttir af kvikmynd-
um takmarkaðar. Sérstaklega langaði mig að
leyfa fólki að fá að vera með í þessu.“
Verður verðlaunahátíð af einhverri sort?
„Já, við ætlum að reyna það. Við ætlum
allavega að hafa einhverja smá athöfn fyrir
íslensku myndirnar.“
Finnst þér vanta vettvang fyrir kvik-
myndaunnendur að koma skoðunum
sínum á framfæri?
„Algjörlega. Við erum með Edduverðlaunin
sem eru svona akademísk verðlaun og eru
alveg frábær. En það vantaði svona alvöru
áhorfendaverðlaun. Með því að gera þetta
vel núna og vera ekkert að skjóta neitt yfir
markið langar okkur að styrkja þá tilfinningu
hjá áhorfandanum að hann geti fengið að
hafa áhrif á þetta.“
Hver fannst þér besta erlenda mynd
ársins?
„Mér fannst Inception alveg viðbjóðslega
góð en alveg á hinum skalanum var Scott
Pilgrim vs. the World algörlega æðisleg.“
„Mér fannst það vera í slappari kantinum.“
Guðrún Lína Thoroddsen
28 ára kvikmyndagerðarmaður
„Mér fannst það bara fínt.“
Hrafnhildur Faulk
32 ára vinnur á bókasafni
„Mér fannst það frábært.“
Þórbergur Bollason
11 ára nemi
„Mér fannst það geggjað skemmtilegt.“
Perla Ýr Kristjánsdóttir
11 ára nemi
„Mér fannst það mjög gott.“
Katrín Björgvinsdóttir
57 ára bankastarfsmaður
Mest lesið á dv.is Maður dagsins
Hvernig fannst þér Áramótaskaupið?
Nýtt ár Það er ófrávíkjanleg regla að ungir drengir leika sér með rakettuprikin, síðustu leifarnar af gamla
árinu. Þessir kappar voru nýverið í miðju ævintýri við Ægisíðuna. Mynd: Sigtryggur Ari Jóhannsson
Myndin
Jólaboðskapurinn á langt í land
Dómstóll götunnar
Kjallari
Lýður Árnason
læknir og kvikmyndagerðarmaður
„Af öllum hags-
munahópunum
eru stjórnmálamenn-
irnir sjálfir sýnu verstir.