Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2011, Qupperneq 22
Þótt ekki sé fallegt að dæma
bók af kápunni einni saman
hefur kápan mikið um það
að segja hvort bók höfðar
til okkar eða ekki. DV leitaði
til málsmetandi álitsgjafa í
leitinni að bestu og verstu
íslensku bókarkápum ársins
2010. Bækur Braga Ólafs-
sonar og Einars Kárasonar
deila efsta sætinu í flokkn-
um yfir bestu kápurnar en
það er hin forvitnilega bók
Biðukollur útum allt sem
fær þann vafasama heiður
að sitja efst á listanum yfir
verstu kápurnar.
1.–2. sæti 1.–2. sæti 3. sæti
4. sæti
f
l
o
t
t
a
r
k
á
p
u
r
S
l
Æ
M
a
r
k
á
p
u
r
Handritið að kvikmynd Arnar Featherby
og Jóns Magnússonar um uppnámið á
veitingahúsinu eftir Jenný Alexon
Höfundur: Bragi Ólafsson
„Hrátt og einfalt. Less is more.“
„Einfaldlega fallegasta bókarkápan í ár.“
„Langflottust! Jafnvel þó bókin væri ekki eftir
þekktan höfund myndi hún skera sig úr í fjöldanum.
Svona einföld og með þessari brjáluðu skrift sem er
ekki einu sinni neitt sérstaklega falleg en kallar samt
á mann langar leiðir.“
„Fallega ljót.“
„Stundum er best að hlutirnir séu bara það sem þeir
eru. Falleg og einföld lausn.“
„Ótrúlega áreynslulaus kápa sem lætur mann þó
strax langa til að kynnast innhaldinu betur.“
22 | Bækur 5. janúar 2011 Miðvikudagur
Mér er skemmt
Höfundur: Einar Kárason
„Formið og endurtekningin eru skemmtileg og passa
eitthvað svo vel við höfundinn. Maður gæti einhvern
veginn alveg ímyndað sér hann að pikka þetta á
meðan hann bíður eftir innblæstri.“
„Flott og frumleg kápa. Retró.“
„Flott og töff kápa og um leið gamaldags. Góð
litasamsetning.“
„Góð hugmynd að hönnun og flott útfærð.“
„Skemmtileg nálgun á titli bókarinnar. Ískrandi
húmor á kápunni er tilvitnun í innihaldið.“
„Einföld og grípandi kápa. Á afskaplega vel við um
innihald bókarinnar. Retro og skemmtileg ... maður
finnur næstum pappírslyktina.“
eiga bestu kápurnar
Bragi og Einar Kára
Gunnar Thoroddsen – Ævisaga
Höfundur: Guðni Th. Jóhannesson
„Kápan sýnir leiðtogann.“
„Lýsandi, flott og greinilega útpælt, flott að láta sjást
aftan á hann þar sem hann horfir í mannfjöldann.“
„Flott kápa sem býr yfir dulúð, sýnir mann með breitt
bak og virkar spennandi til lesningar.“
„Sérlega flott kápa og lýsandi. Maðurinn andspænis
fólkinu. Um leið og kápan hæfir svo mikilsverðum
stjórnmálaforingja þá er ákveðin mystík yfir henni
um leið sem vekur forvitni lesandans.“
„Dæmi um góða framsetningu á ævisögu, gefur vel
til kynna inntak bókar. Skemtilegt hvernig myndin er
notuð, bókin er spennandi valkostur fyrir kaupendur.“
Missir
Höfundur: Guðbergur Bergsson
„Einfalt og dekoratíft, fallegt í einfaldleika sínum og
lýsir hógværð.“
„Einföld og falleg týpógrafía. Fallegt efni á bókinni.“
„Einfalt útlit en áferðin á kápunni gerir hana áhuga-
verða. Svolítið eins og ung og smekkleg manneskja
sem er með gamla sál.“
„Ótrúlega „crispy“ bók. Engin pappírskápa að
þvælast fyrir. Góð og „lesleg“ viðkomu. Mann langar!
Leturgerð falleg – litir jarðbundnir og seðjandi.“
1. sæti
2. sæti
3.–5. sæti
3.–5. sæti
Biðukollur út um allt
Höfundur: Kleópatra Kristbjörg
„Fallega ljót og næstum „surreal“. Veit ekki alveg
hvort þetta er besta eða versta bókarkápan í ár?
Athyglisverð tilraun frá majónesdrottningunni.“
„Erfitt að rökstyðja af hverju þetta er ljót kápa, hún
er vægast sagt fáránleg og smekklaus en eftirtekt-
arverð samt.“
„Dæs – treysti mér ekki til að dæma þessa kápu.“
„Svo skelfilega ljót kápa að hún verður næstum því
flott. Næstum því.“
„Hræðilega ósmekkleg kápa og lítur út eins og
fræðibók frekar en skáldverk.“
„Með því versta sem ég hef séð. Algjörlega vinnings-
hafi í þessum flokki og dæmir sig sjálf.“
Loksins – sexbomba
á sextugsaldri
Höfundur: Helga Thorberg
„Þetta er voðalega vond kápa.“
„Hahahah! Alveg agalegt!“
„Var ekki búið að banna þetta letur? Svo er eins og konan
sé að flýja í dauðans ofboði upp úr sjónum. En Helga er
bráðskemmtileg svo bókin klikkar örugglega ekki.“
„Einhvern veginn er allt rangt við þessa kápu. Ferleg
mynd af konu sem á líklegast að líta út fyrir að vera að
skemmta sér en ég verð bara hrædd við hana og svo er
leturnotkunin fyrir neðan allar hellur.“
„Þrátt fyrir örugglega yndislega sögu þá er þetta
afskaplega „Word-lega“ hönnuð bókarkápa. Allt of þung
ásýndar. Leturtýpan hræðilegt fontafyllerí og ólæsileg.
Ekkert tælandi við hana. Amalegt fyrir annars lofandi
skáldsögu.“
Allt fínt …en þú?
Höfundur: Jónína Leósdóttir
„Leiðinlega uppstillt og óraunveruleg.“
„Gæti verið ágæt bók en kápan er það léleg að maður
missir alveg áhugann. Ætti betur við sem auglýsing
fyrir slysatryggingar! Svo skemmir að sjá andlit
aðalsöguhetjunnar, maður á að fá að ímynda sér
hana sjálfur.“
„Minnir helst á sjálfshjálparbók fyrir fólk í mjög, mjög
slæmum málum. Fæ martraðir ef ég horfi of mikið á
svip konunnar.“
Jónína Ben
Höfundur: Sölvi Tryggvason
„Ég fæ gæsahúð niður í rass þegar ég sé Jónínu Ben
á hverju strætóskýli. Aðallega vegna þess að myndin
er svo hræðilega illa fótósjoppuð. Konan er í raun
stórglæsileg en lítur út eins og leirkall á þessari
ógeðsmynd. Látið fagmenn um að vinna vinnuna sína.“
„Kannski klassísk kápa á endurminningabók en gerir
ekkert fyrir bókina. Myndin er ekki góð og er aðeins of
unnin.“
„Versta fótósjopp síðari ára. Verulega óhugnanleg
forsíða.“