Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2011, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2011, Síða 10
10 | Fréttir 26. janúar 2011 Miðvikudagur Þótt Hæstiréttur hafi nú ógilt kosn- ingar til stjórnlagaþings getur Al- þingi tekið sér fyrir hendur að kjósa 25 manna stjórnlagaþing eða ráðgefandi stjórnlaganefnd sem haldið getur áfram því starfi sem fela átti stjórnlagaþinginu. Ekkert mælir gegn því að það verði jafn- framt þeir sömu 25 og kosnir voru í lok nóvember. Jóhanna Sigurðardóttir forsæt- isráðherra nefndi þennan mögu- leika í umræðum á Alþingi á þriðjudag. Hún ítrekaði að óhugs- andi væri að stjórnlagaþing yrði af þjóðinni tekið enda hefðu end- urbætur á stjórnarskránni og lýð- ræðisumbætur verið ein helsta krafa almennings í kjölfar banka- hrunsins. Hinn möguleikinn væri að endurtaka kosningar til stjórn- lagaþings. Hún útilokaði hins veg- ar að stjórnlagaþing yrði slegið af í kjölfar niðurstöðu Hæstaréttar. „Stjórnlagaþingið verður ekki tek- ið af þjóðinni.“ 600 til 700 milljónir Kostnaður við stjórnlagaþing- ið hleypur þegar á hundruðum milljóna króna. Kostnaðurinn er í megin atriðum tvískiptur; annars vegar vegna kosninganna sjálfra í nóvember og síðan við þinghaldið sjálft, en sá möguleiki er opinn að það starfi lengur en í tvo mánuði. Heildarkostnaður var áætlaður um 600 milljónir króna. Heimildir eru fyrir því að kostnaðurinn við kosn- ingarnar hafi farið nokkuð fram úr áætlun. Nú bætist við úrskurður Hæstaréttar og því er fyrirsjáanlegt að kostnaðurinn verður mun meiri, eða 600 til 700 milljónir króna, og enn meiri ef efnt verður til nýrra kosninga til stjórnlagaþings. Forsætisráðherra hugsi sinn gang Ólöf Nordal, Sjálfstæðisflokki, sagði í umræðunum að í fyrsta skipti í lýðveldissögunni hefðu al- mennar kosningar verið ógiltar. Hæstiréttur hefði komist að því að lagagrundvölllur stjórnlaga- þingskosninganna hefði verið svo skakkur að nauðsynlegt hefði ver- ið að ógilda þær. Hún krafðist þess að Jóhanna tæki málið alvarlega og legði fram raunhæfar tillögur strax um viðbrögð. „Öll framkvæmdin var meirihluta þingsins til vansa. Farið var fram með of miklu offorsi,“ sagði Ólöf og bað forsætis- ráðherra að íhuga stöðu sína. Hún áréttaði að Sjálfstæð- isflokkurinn hefði verið á móti stjórnlagaþingskosningunum, málið hefði verið illa undirbúið og vanreifað auk þess sem flokk- urinn teldi að löggjöf ætti að vera í höndum Alþingis en ekki stjórn- lagaþings. „Íhaldið er órólegt“ Rifjað var upp, meðal annars af Margréti Tryggvadóttur í Hreyf- ingunni, að allir vissu hverjir lagst hefðu gegn stjórnlagaþinginu. Nú væri ekkert annað að gera en að kjósa til stjórnlagaþings á ný og standa þannig með lýðræðinu. „Íhaldið er órólegt því það er skíthrætt við stjórnlagaþing,“ sagði Jóhanna í lok umræðunnar. Hún bætti við að sú hræðsla ætti ræt- ur sínar að rekja til þess að með stjórnlagaþinginu gæti hugsanlega komið inn ákvæði í stjórnarskrá um að auðlindirnar ættu að vera í eigu þjóðarinnar. Raunverulegt efni til ógildingar? Í lögum um kosningar til Alþing- is eru ákvæði um að Alþingi sjálft geti ógilt kosningu þingmanns eða þingmanna komi í ljós að þeir hafi ekki kjörgengi eða kosningu sé áf- átt á einhvern hátt. Í 120. grein laganna er ekki gert ráð fyrir því að kosningarnar sem slíkar verði ógiltar með hliðstæðum hætti og Hæstiréttur gerði á þriðjudag varð- andi kosningarnar í lok nóvember síðastliðins til stjórnlagaþingsins. Að svo miklu leyti sem nýju lögin um stjórnlagaþingið duga ekki má ætla að umrædd lög um kosningar til Alþingis gildi, enda vísar Hæsti- réttur til umræddra laga jöfnum höndum í úrskurði sínum. Ýms- ir lögfræðingar sem DV hefur rætt við telja að Hæstiréttur hafi ekki rökstutt nægilega vel að gallarn- ir á framkvæmd kosninganna til stjórnlagaþings hafi raunverulega haft áhrif á úrslit kosninganna og nægt til þess að ógilda sjálfar kosn- ingarnar. Málsgreinin í lögunum um al- þingiskosningarnar, sem að þessu lýtur, hljóðar svo: „Ef þeir gall- ar eru á framboði eða kosningu þingmanns sem ætla má að hafi haft áhrif á úrslit kosningarinnar úrskurðar Alþingi kosningu hans ógilda og einnig án þess ef þing- maðurinn sjálfur, umboðsmenn hans eða meðmælendur hafa vís- vitandi átt sök á misfellunum, enda séu þær verulegar. Fer um alla þingmenn, kosna af listanum, eins og annars um einstakan þing- mann ef misfellurnar varða listann í heild.“ Sýna ekki áhrif á úrslit Eiríkur Tómasson lagaprófessor tekur undir þetta og segir Hæsta- rétt – sem gegnir sama hlutverki varðandi stjórnlagaþingið og Al- þingi gagnvart kjöri þingmanna – ekki rökstyðja á fullnægjandi hátt að ágallarnir hafi nægt til að ógilda kosningarnar sjálfar. „Þar kemur fram sú meginregla að ekki skuli ógilda kosningu nema að ætla megi að ágallar á þeim hafi haft áhrif á úrslit kosninganna. Hæstiréttur víkur ekkert beint að þessum sjónarmiðum í sín- um rökstuðningi en vísar í eldri hæstaréttardóm þar sem þetta er túlkað þannig að ekki þurfi mik- ið til að ógilda kosningar. Þetta er ekki í samræmi við orðalag þeirr- ar greinar sem hér er vitnað til. En hæstaréttardómurinn er góður að því leyti til að hann gerir mjög stíf- ar kröfur til kosninga og gefi í skyn að frávik, sérstaklega um leynileg- ar kosningar og að fylgst sé með talningu atkvæða á lögmætan hátt, verði illa liðin. Að þessu leyti vísar úrskurðurinn fram á veginn.“ Eiríkur segir að sú nýja aðferð sem fylgt var við stjórnlagaþing- skosningarnar sé alltaf áhættusöm. „Aðferðin er ekki aðeins framandi fyrir kjósendur heldur einnig þá sem eiga að framkvæma kosning- arnar. Og Hæstiréttur segir að setja hefði átt ýtarlegri lagaákvæði um framkvæmd kosninganna. Það er ekkert auðvelt verk, það þekki ég sjálfur, að framkvæmd kosninga er mjög flókið fyrirbæri. Menn hafa gert breytingar smátt og smátt á kosningareglum. Stundum fóru menn fram úr sér, til dæmis þegar byrjað var að flokka atkvæði fyrir talningu. Fyrir því var ekki laga- stoð. Menn voru ekki búnir að prufukeyra þetta, til dæmis í stað- bundnum kosningum, og það á þátt í því hvernig fór. Menn sjá ekki fyrir alla hluti, til dæmis fjölda frambjóðenda.“ Pólitískur þefur Þeir eru til í stétt lögfræðinga – eins og DV hefur komist að – sem telja að úrskurður Hæstaréttar um stjórnlagaþingskosningarnar sé rammpólitískur. Í því sambandi er bent á að flestir hæstaréttar- dómaranna, sem úrskurðuðu um stjórnlagaþingskosningarnar, séu sjálfstæðismenn. Fyrir liggur að Sjálfstæðisflokkurinn var og er einn á móti því að stjórnlagaþing hlutist til um breytingar á stjórn- arskránni. Þá liggur einnig fyrir, eins og DV hefur áður fjallað um, að helstu átökin um stjórnarskrá snúast um sameign eða einkaeign á náttúruauðlindum. Alþingi verði því að fjalla sérstaklega um það hvort það sætti sig við að brugðið sé pólitískum fæti fyrir áform um stjórnlagaþing og stjórnarskrár- breytingar. „Kostnaðurinn verður mun meiri, eða 600 til 700 milljón- ir króna, og enn meiri ef efnt verður til nýrra kosn- inga til stjórnlagaþings. „Stjórnlagaþingið verður“ n Óvíst hver viðbrögð stjórnvalda verða við úrskurði Hæsta- réttar um stjórnlagaþingið n Heildarkostnaður var áætlaður 600 milljónir króna en verður meiri n Íhaldið skíthrætt við stjórn- lagaþing, segir forsætisráðherra n Skortir rökstuðning Hæsta- réttar um áhrif á niðurstöður kosninga, að mati lagaprófessors Sjálfstæðisflokkurinn andvígur stjórnlagaþingi „Öll framkvæmdin var meirihluta þingsins til vansa,“ sagði Ólöf Nordal í umræðunum. Mynd RÓbeRt ReyniSSon Jóhann Hauksson blaðamaður skrifar johannh@dv.is illugi Jökulsson: „Mjög sérkennilegt“ „Ég er ansi undrandi á þessu,“ segir fjölmiðlamaðurinn Illugi Jökulsson um þá niðurstöðu Hæstaréttar að ógilda kosningu til stjórnlagaþings. Illugi var nýbúinn að frétta af ákvörðun Hæstaréttar þegar DV náði tali af honum. Illugi er einn þeirra 25 sem náðu kjöri til stjórnlagaþings. „Ég veit ekki til þess að nokkur hafi kvartað þegar kosningin fór fram. Mér finnst þetta mjög sérkennilegt.“ Á Facebook-síðu sinni sagði Illugi: „Óska þeim hjartanlega til hamingju sem vilja eng- ar breytingar á íslensku samfélagi, nema samkvæmt forsjá stjórnmálaflokkanna. Þeir hljóta að þakka nú þeim hugdjörfu hetjum sem kærðu stjórnlagaþingskosning- una. Miklir menn eru þeir þremenningar.“ Þorvaldur Gylfason: Tjáir sig ekki strax „Ég á eftir að lesa dóminn. Þú verður að tala við mig seinna,“ segir Þorvaldur Gylfason, prófessor í hagfræði, um þá niðurstöðu Hæstaréttar að kosning til stjórnlagaþings sé ógild. Þorvaldur hlaut langflest atkvæði til stjórnlagaþings, eða 7.192 – fimm þúsund atkvæðum fleiri en næsti maður á eftir. Þor- valdur sagðist í samtali við DV ætla að gefa sér tíma til að fara yfir dóm Hæstaréttar áður en hann tjáir sig um hann. Silja bára Ómarsdóttir: „Alltaf hægt að gera betur“ „Maður verður að lúta þessu. Þetta var alveg eins viðbúið,“ segir Silja Bára Ómarsdóttir stjórnmálafræðingur um niðurstöðu Hæstaréttar um að ógilda kosningu til stjórnlagaþings. „Maður býður sig fram til að leggja sitt af mörkum og ég verð svekkt ef þetta gengur ekki eftir,“ segir Silja Bára sem tekur fram að næstu skref séu óákveðin. Hvort stjórnlagaþingið verði lagt af eða hvort farið verði af stað í nýjar kosningar. Aðspurð hvað henni finnist um undirbúninginn og þá hvort ekki hafi verið vandað nóg til verka í aðdraganda kosn- inganna segir Silja: „Ekki þannig. Maður fann samt að þarna var fólk sem ekki hafði skilið kosningakerfið. Það er alltaf hægt að gera betur.“ Silja Bára hafði ekki kynnt sér niðurstöðu Hæstaréttar til hlítar þegar rætt var við hana.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.