Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2011, Side 15
Ofnæmisvaldandi efni Margar algengar snyrtivörur og hreinsiefni til
heimilisnota innihalda kemísk eða tilbúin efni sem geta valdið ofnæmi. Þar sem bæði börn
og fullorðnir geta verið viðkvæm fyrir þessum efnum er ekki úr vegi að hafa augun opin og
lesa innihaldslýsingar á vörunum áður en þær eru keyptar. Leiðbeiningastöð heimilanna
er með lista yfir þessi efni á heimasíðu sinni og þar segir að efni þessi séu mjög algeng í
snyrtivörum og í hreinsiefnum. Efnin eru lögleg í snyrtivörum samkvæmt reglugerðum Evr-
ópuráðsins þar sem ekki hefur verið sannað að þau hafi skaðleg áhrif á fólk þar sem magnið
sé yfirleitt lítið. Á hinn bóginn er heldur ekki sannað að þau séu skaðlaus að öllu leyti.
Neytendum er ráðlagt að kynna sér listann á heimasíðu Leiðbeiningastöðvar heimilanna.
Ginkgo biloba-bætiefni Úr laufum ginkgo biloba-trésins er unninn
safi sem er eitt vinsælasta jurtabætiefnið sem selt er í heiminum. Um þetta er fjallað
á heilsubankinn.is en þar segir einnig að vísindamenn hafi ritað greinar um virkni þess
en það er talið auka blóðstreymi og súrefnisflæði til hjarta, heila og annarra líkams-
svæða. Þessi virkni gerir jurtina góða til inntöku við öllum æðasjúkdómum, hún eflir
minni og hún vinnur gegn ótímabærri öldrun. Jurtin er einnig góð við sleni og svima,
hún virkar til lækkunar á blóðþrýstingi og dregur úr líkum á blóðtappa. Eins segir að
hún sé sérstaklega góð fyrir eldra fólk sem er gjarnan með lélegt blóðstreymi og að
það hafi verið sýnt fram á að jurtin geti unnið gegn byrjunareinkennum Alzheimer.
Neytendur | 15Miðvikudagur 26. janúar 2011
1. Vertu gagnrýninn
á tryggingarfélögin
Neytendur þurfa að huga vel að því hvað
þeir greiða í tryggingar. Oft má spara
töluvert á því að hringja í tryggingarfélögin
og biðja um tilboð. Stundum kemur í ljós að
maður hefur greitt of mikið eða jafnvel að
maður er ekki eins vel tryggður og maður
hélt.
2. Vertu bankaviðskiptavinur
frá helvíti
Herjaðu á bankann. Passaðu að þú fáir
alltaf bestu fáanlegu vextina og athugaðu
reglulega hvort aðrir bankar bjóða betur.
Skiptu um banka ef það borgar sig.
3. Vertu sparnaðarfíkill
Skoðaðu tilboð og afslætti. Þeir sem eru
bestir í þessu hafa gert leit að góðum
kaupum á netinu að listformi. Þetta tekur
tíma en það margborgar sig.
4. Leitaðu vítt og breitt
Við eigum það til að upplifa að sá sem
situr við hliðina á okkur í flugi hafi fengið
ferðina á mun lægra verði en við. Það er
vegna þess að sú manneskja er snillingur í
að skipuleggja og bóka ferðalagið ár fram
í tímann. Það er ódýrara að ferðast utan
mesta ferðamannatímans.
5. Vertu mjög skynsamur
Það getur verið leiðinlegt en sparar pening.
Ef markmiðið er að spara pening er fátt
meira pirrandi en að eyða óvart í eitthvað
sem þú alls ekki þarft. Það kæmi þér á óvart
hver mikill peningur fer í óþarfa.
6. Leigðu eða seldu
Það er hægt að selja allt á netinu. Leyfðu
öðrum að eignast það sem þú þarft ekki
lengur á að halda. Eins gefur það aukapen-
ing ef þú átt eitthvað sem þú getur leigt en
sem dæmi standa margir sumarbústaðir
tómir stóran hluta ársins. Þeir gætu laumað
aukapening vasann.
7. Auktu tekjurnar
Ef þú ert í tímabundnum fjárhagserfið-
leikum skaltu íhuga að fá þér aukavinnu.
Það getur verið strembið en maður fær
aukapening. Eins er tilvalið að skoða hvort
að hægt sé að fá aukapening fyrir að sinna
áhugamálunum. Til dæmis er hægt að
dæma leiki í fótbolta eða handbolta í yngri
flokkum og fá smá aur fyrir.
8. Vertu klár í sparnaðinum
Allt of margir fleygja peningum út um
gluggann í greiðsluþjónustu. Veldu einfalt,
ódýrt og gegnsætt. Best er þó að greiða
niður skuldir eða leggja aukapening inn
á reikning sem gefur háa vexti ef þú ert
skuldlaus.
Heimild: vg.no/dinepenger
Svona getum
við sparað
Nokkur sparnaðarráð:
n ELKO hefur boðið upp á lágt verð á raftækjum n Það gæti hins
vegar borgað sig að fara til Norðurlandanna til að kaupa raftæki
n Raftæki hér eru á allt að helmingi hærra verði en í Danmörku
RAFTÆKI ERU MIKLU
DÝRARI HÉR Á LANDI
Íslendingar eru vanir því að vöruverð
sé lægra erlendis en hér á landi. Við
höfum löngum farið í verslunarferð-
ir út fyrir landsteinana og það hefur
vart tíðkast að gera verðsamanburð á
milli íslenskra verslana og erlendra.
Hins vegar vekur athygli hinn mikli
verðmunur á vörum ELKO á Íslandi
og Elkjöp og Elgiganten, sambæri-
legum verslunum á Norðurlöndun-
um
Viðskiptasamingur við Elkjöp
Þegar gerður er verðsamanburður
á raftækjum í ELKO og versluninni
Elgiganten í Danmörku sést tölu-
verður munur á verði en þetta eru
sambærilegar búðir með sömu vöru-
merki undir sömu vörunúmerum.
Þar má nefna að verðmunur á Sam-
sung 3D Blu-ray-spilara var tæpar
40.000 krónur en munur á Samsung
Plasma-sjónvarpi var um 215.000
krónur. Þær upplýsingar fengust þó
hjá ELKO að þessar búðir væru ekki í
eigu sömu aðila líkt og ekki væri sami
eigandi á IKEA á Íslandi og í Dan-
mörku. ELKO er í eigu BYKO en El-
kjöp í eigu bresks fyrirtækis.
Keðjan stuðli að lágu verði
Á heimasíðu ELKO segir að fyrirtæk-
ið sé með viðskiptasaming við Elkjöp
sem sé stærsta raftækjakeðja Norð-
urlanda. Með því að vera í samstarfi
við keðjuna sé stuðlað að lágu raf-
tækjaverði á Íslandi. Keðjan kaupi
inn mikið magn fyrir allar sínar
verslanir og dreifi þeim svo á milli
verslananna í Evrópu frá einum lag-
er. Þar segir einnig að ELKO á Íslandi
sé þar engin undantekning, vörurn-
ar komi hingað frá risalager í Svíþjóð
og verslunin sé því alltaf með bestu
merkin á lægsta mögulegu verði.
Samkvæmt könnunum hafi raftækja-
verð lækkað um 40 til 60 prósent frá
opnun ELKO og fyrirtækið eigi stór-
an þátt í að breyta raftækjamarkað-
inum á Íslandi þar sem einkaumboð
réðu ríkjum.
Sömu vörur, ólíkt verð
Í ljósi þessa má teljast undarlegt að
slíkur verðmunur sé á sömu vörum
sem eru keyptar af sama aðila og
koma frá sama lager. Einnig var bor-
ið saman verð við Elkjöp í Noregi og
kom þá í ljós svipaður munur á tækj-
um fyrir utan Kenwood-hrærivélina
og Bosch-kæliskápinn sem voru á
svipuðu verði og í ELKO. Tekið skal
fram að ekki voru skoðaðar sam-
bærilega vörur í öðrum verslunum
hér á landi. Eins má nefna að þegar
borinn var saman munur á vöruverði
í IKEA og Rúmfatalagernum á Íslandi
og í Danmörku var vart merkjanleg-
ur munur og sumar vörurnar voru
ódýrari hér á landi.
Gunnhildur Steinarsdóttir
blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is
„Keðjan kaupi inn
mikið magn fyr-
ir allar sínar verslanir og
dreifi þeim svo á milli
verslananna í Evrópu frá
einum lager.
Hér má sjá nokkur dæmi um verðmuninn
á sömu tækjum í ELKO og Elgiganten:
Samsung 50‘‘ plasma-
sjónvarp - 3D ready / Full HD
Vörunúmer PS50C7705XXE
Á Íslandi 449.995 krónur
Í Danmörku 234.949 krónur
Mismunur 215.046 krónur
HP G5241sc-borðtölva
Vörunúmer HPG5241SC
Á Íslandi 89.995 krónur
Í Danmörku 53.381 krónur
Mismunur 36.614 krónur
Garmin Nuvi 1490TV GPS-
tæki - m/ TV-móttakara
Vörunúmer 0100084230
Á Íslandi 72.995 krónur
Í Danmörku 39.923 krónur
Mismunur 33.072 krónur
Kenwood-hrærivél
(900w) - Hvít
Vörunúmer KM615SP
Á Íslandi 49.995 krónur
Í Danmörku 36.292 krónur
Mismunur 13.703 krónur
Samsung 3D Blu-ray-spilari
Vörunúmer BDC6900XEE
Á Íslandi 79.900 krónur
Í Danmörku 40.350 krónur
Mismunur 39.550 krónur
Bosch-kæliskápur (186cm)
Vörunúmer KSR38N11
Á Íslandi 129.995 krónur
Í Danmörku 64.061 krónur
Mismunur 65.934 krónur
Raftæki ELKO
býður upp á ýmis
raftæki á lágu verði