Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2011, Side 17
Erlent | 17Miðvikudagur 26. janúar 2011
Nóbelsverðlaunahafinn Mohamed ElBaradei vonar að Egyptar fylgi fordæmi Túnisa:
„Það verður ekki aftur snúið“
Írar hafa fundið skemmtilega
leið til að fá útrás fyrir reiði sína í
garð þeirra bankamanna sem áttu
stærstan þátt í írska efnahagshrun-
inu. Á mánudag sagði DV frá Seán
nokkrum FitzPatrick, sem er fyrr-
verandi stjórnarformaður Anglo-
Irish-bankans, en fall hans lagði
öðru fremur grunninn að írska
hruninu. Nú hefur einn af bíl-
um FitzPatricks, BMW-bifreið úr
3-seríunni, verið seld hæstbjóð-
anda á uppboði á netinu. Boð-
ið gekk hins vegar ekki út á hver
myndi eignast bílinn til sinna eigin
afnota. Hæstbjóðandi, sem bauð
rúmlega fimm þúsund evrur, hefur
hins vegar öðlast þann heiður að
fá að þrýsta á hnappinn sem mun
setja af stað málmpressuna sem
mun kremja bíl bankastjórans.
Ágóði uppboðsins mun renna
til góðgerðarmála og þá eru einn-
ig hugmyndir um að selja kubbinn
sem úr pressunni kemur, en hann
væri hægt að nota sem lítið kaffi-
borð eða jafnvel sem skemil.
Eins og útrásarvíkingur
Saga FitzPatricks er keimlík þeim
sem lesendur ættu að kannast við
af hinum íslensku útrásarvíking-
um. Sem stjórnarformaður Anglo-
Irish-bankans samþykkti FitzPatr-
ick gegndarlaus lán til vildarvina
sinna, sem voru oftar en ekki bygg-
ingaverktakar. Í fasteignabólunni
á Írlandi voru það fyrst og fremst
verktakar sem keyrðu áfram hag-
kerfið, á lánum vitaskuld. Fitz-
Patrick lét ekki staðar numið við
vafasöm lán til vina sinna, held-
ur lánaði hann einnig sjálfum sér
rúmlega 150 milljón evrur, sem
samsvara um 24 milljörðum ís-
lenskra króna. FitzPatrick hefur
ekkert borgað af skuld sinni við
bankann.
FitzPatrick naut einnig víðtækra
tengsla í stjórnmálalífinu. Hann er
meðlimur Fianna Faíl-flokksins og
gegndi hann fjölmörgum embætt-
um og stjórnarsetum sem flokkur-
inn skipaði hann í. Á Írlandi, rétt
eins og á Íslandi, stendur yfir rann-
sókn þar sem reynt er að varpa ljósi á
þá óeðlilegu viðskiptahætti og mark-
aðsmisnotkun sem leiddu til hruns-
ins. Í mars í fyrra var FitzPatrick
handtekinn og færður til yfirheyrslu.
Eftir að hafa verið yfirheyrður í sólar-
hring gekk FitzPatrick hins vegar út
frjáls maður. Hann hefur enn ekki
verið ákærður fyrir neitt.
Engin eftirsjá
Skömmu eftir hrun Anglo-Irish-
bankans var FitzPatrick spurð-
ur í sjónvarpsviðtali hvort hann
hefði viljað gera eitthvað öðruvísi
í ljósi þess að bankinn væri fall-
inn vegna glæfralegrar lánastarf-
semi. FitzPatrick uppskar mikla
reiði írsku þjóðarinnar þegar
hann sagðist ekki sjá eftir neinu,
og að fall bankans mætti frekar
rekja til hinnar alþjóðlegu fjár-
málakreppu. Um sín eigin lán vildi
hann ekkert segja.
Bíll bankastjóra
verður kraminn
n Írar kepptust við að fá þann heiður að þrýsta á hnappinn sem ræsir málmpressu
til að kremja bíl Seáns FitzPatricks, fyrrverandi stjórnarformanns Anglo-Irish
n Ferill hans er spegilmynd íslensku útrásarvíkinganna n Sér ekki eftir neinu
Björn Teitsson
blaðamaður skrifar bjorn@dv.is
„Lánaði hann einn-
ig sjálfum sér rúm-
lega 150 milljón evrur, eða
það sem samsvarar um
24 milljörðum íslenskra
króna
Um það bil að verða kraminn Örlög
bifreiðar FitzPatricks verða í svipuðum dúr.
Seán FitzPatrick Sér ekki
eftir að hafa lánað sjálfum
sér 150 milljón evrur.
Loughner segist
saklaus
Maðurinn sem gekk berserksgang í
Tucson í Arizona-fylki í Bandaríkj-
unum þann 8. janúar, þar sem hann
myrti sex og særði 13, hefur lýst yfir
sakleysi sínu. Maðurinn, Jared Loug-
hner, gekk þá beint að þingkonunni
Gabrielle Giffords og skaut hana í
höfuðið. Hann hóf síðan skothríð
að fólki sem hafði safnast saman
á bílastæði á stjórnmálafundi sem
Giffords hafði boðað til. Loughner
mætti fyrir dómara í Tucson á
mánudag, hlekkjaður á höndum og
fótum, í appelsínugulum fangabún-
ingi. Samkvæmt vitnum mun hann
hafa brosað sínu breiðasta þegar
hann sagði dómara að hann væri
saklaus af ákærum þeim sem væru
bornar á hann.
Emanuel ekki
borgarstjóri
Dómstólar í Chicago hafa úrskurð-
að Rahm Emanuel, sem sækist eftir
embætti borgarstjóra, óhæfan til
framboðs. Ástæðan er sú að Emanu-
el hefur verið búsettur of lengi í
Washington til að geta talist fullgild-
ur íbúi Chicago-borgar. Emanuel,
sem sagði af sér sem skrifstofustjóri
Hvíta hússins, eins valdamesta emb-
ættisins í ríkisstjórn Baracks Obama,
hefur notið mikils fylgis í skoðana-
könnunum undanfarið. Hann hef-
ur sagt að það væri æskudraumur
sinn að verða borgarstjóri í Chicago,
en þar er hann alinn upp. Emanu-
el, sem gengur undir gælunafninu
„Rahmbo,“ starfaði einnig sem ráð-
gjafi Bills Clintons í forsetatíð hans.
Þingmenn
skiptast á sætum
Þingmenn í fulltrúadeild bandaríska
þingsins skiptust á sætum í gær á
fyrsta þingfundi ársins þegar Barack
Obama, forseti Bandaríkjanna, flutti
ræðu yfir þingheim. Ætla þeir þar
með að sýna samstöðu vegna morð-
tilraunarinnar á Gabrielle Giffords,
þingmanns demókrata. Mikið hefur
verið rætt um hina miklu gjá sem
hefur myndast milli repúblikana og
demókrata í bandarískum stjórn-
málum, og er þessi gjá jafnvel talin
eiga hlut að máli í morðtilrauninni á
Giffords. Bandarísku þingmennirnir
vilja sýna að samvinna milli flokka
sé möguleg, enda sé hún nauðsyn-
leg í fjölmörgum málum er varða
þjóðarhag Bandaríkjanna.
Mohamed ElBaradei, fyrrverandi
stjórnandi Alþjóða kjarnorkumála-
stofnunarinnar og handhafi friðar-
verðlauna Nóbels árið 2005, sagði
í viðtali við þýska fréttablaðið Der
Spiegel að hann styðji mótmæli
sem boðuð voru í gær í Egyptalandi.
Stjórnmálaskýrendur hafa mikið rætt
og ritað um stjórnmálaástandið í
Norður-Afríku og er því jafnvel spáð
að fleiri þjóðir fylgi í fótspor Túnisa,
sem hófu byltingu gegn ríkjandi
stjórnvöldum nú í byrjun janúar. Hin
svokallaða „Jasmín“-bylting í Túnis
varð til þess að Zine al-Abidine Ben
Ali, sem hafði verið forseti síðan 1987,
flúði land og er nú í útlegð í Sádi-Ar-
abíu.
Í gær var boðað til mótmæla í
Kaíró, höfuðborg Egyptalands, undir
yfirskriftinni „dagur reiði.“ ElBaradei
vonast til þess að breytingar séu einn-
ig í nánd í Egyptalandi. „Ég styð allar
friðsamlegar kröfur til breytinga. Mín-
ar eigin óskir um breytingar hafa ver-
ið hundsaðar af ríkisstjórninni og nú
sér fólkið ekki annan kost en að fylkja
liði á götum úti. Hér er á ferðinni ungt
og óþolinmótt fólk sem vill sýna í
verki að það vilji breytingar.“ En tel-
ur ElBaradei að stjórnvöld muni ein-
faldlega láta mótmælin óáreitt? „Ég
vona innilega að öryggissveitir beiti
mótmælendur ekki ofbeldi. Ég biðla
til Mubaraks [forseta Egyptalands]
að gera ástandið ekki verra en það er.
Stjórnvöld eiga að virða hinn alþjóð-
lega rétt fólksins til að mótmæla.“
ElBaradei hefur löngum verið tals-
maður betri og lýðræðislegri stjórnar-
hátta í Egyptalandi. Hann segist von-
ast til þess að byltingin í Túnis marki
upphaf „vorsins í Arabíu,“ og vísar þar
með til „vorsins í Prag,“ þegar Tékkar
reyndu að brjótast undan oki Sovét-
ríkjanna. Það vor endaði hins vegar
ekki vel. bjorn@dv.is
Mohamed ElBaradei Hann hefur lýst yfir áhuga
sínum á að taka við forsetaembætti í Egyptalandi.