Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2011, Side 20
20 | Fókus 26. janúar 2011 Miðvikudagur
Ekki missa af
Adèle
Rúmlega 1.000 gestir komu um síð-
ustu helgi á franska kvikmyndahátíð
sem nú stendur sem hæst í Háskóla-
bíói. Aðstandendur hátíðarinnar eru
Alliance Française í Reykjavík, Sendi-
ráð Frakklands á Íslandi og Græna
ljósið.
Opnunarmyndin Potiche, eða Bara
húsmóðir, er vinsælust myndanna tíu
sem boðið er upp á en óhætt er einnig
að mæla með myndinni sem fylgir fast
á hæla hennar: Ævintýri Adèle Blanc-
Sec eftir Luc Besson.
Ef einhver hefur velt fyrir sér
hvernig bræðingur af Indiana Jones,
Löru Croft og Nellie Bly lítur út, þá er
svarið Adèle, heillandi og sterk kven-
hetja í æsispennandi ævintýri.
Stutt- og heimildamyndahátíðin
Reykjavík Shorts & Docs stendur frá
27.–31. janúar. Alls verður boðið upp
á um 40 stutt- og heimildamyndir frá
Íslandi og Norðurlöndum. Opnunar-
mynd hátíðarinnar er myndin Roð-
laust og beinlaust, íslensk heimilda-
mynd sem Ingvar Þórisson leikstýrir
og framleiðir.
Á meðal mynda sem sýndar verða
á hátíðinni er stuttmyndin Yes yes
eftir Maríu Reyndal sem byggð er á
viðtölum við taílenskar konur sem
búa á Íslandi og lýsir hvernig þær eru
algjörlega háðar mönnunum sem
þær flytjast til en jafnframt hvern-
ig þær ná að sigrast á erfiðleikunum
sem þær lenda í, eins og segir á Face-
book-síðu hátíðarinnar.
Þá verður stuttmyndin Ég elska
þig eftir Sævar Sigurgeirsson sýnd
á hátíðinni, Þyngdarafl eftir Loga
Hilmarsson, Pleisið eftir Jakob Hall-
dórsson, Veran eftir Snorra Fair-
weather, Svefnrof eftir Ragnar
Snorrason og Heart to heart eftir
Veru Sölvadóttur.
Vera Sölvadóttir fer sjálf með
aðal hlutverkið í mynd sinni. „Þetta
er fantasíu-ástarsaga um stelpu sem
sendir manni ást í pósti. Þau drag-
ast hvort að öðru,“ segir Vera. „Ég
fer sjálf með aðalhlutverkið og vinur
minn Damon Younger leikur á móti
mér.“
Enn fremur verða sýndar mynd-
irnar Skáksaga eftir Ingvar Stefáns-
son, en með aðalhlutverk fara Ingvar
E. Sigurðsson og Thorsteinn Bach-
mann. Söguþáður þeirrar myndar er
svona: „Tveir virðulegir menn setjast
niður til að tefla hraðskák. Skákein-
vígið breytist í blóðugan bardaga en
ekki er allt sem sýnist.“
kristjana@dv.is
Stutt- og heimildamyndahátíðin Reykjavík Shorts & Docs í Bíó Paradís:
Spennandi kvikmyndahátíð
Fordkeppnin fer fram í Hafnar-húsinu þann 4. febrúar í Hafn-arhúsinu og 15 stúlkur hafa ver-
ið valdar til að taka þátt. Umgjörðin
í kringum keppnina er verulega frá-
brugðin því sem verið hefur og rík
áhersla er lögð á íslenska hönnun
og list. Parið Hildur Hermannsdótt-
ir og Jói Kjartans vann myndaþátt-
inn Project Runway fyrir keppnina.
Myndirnar koma einnig við sögu
í sjónvarpsþáttum Ásgríms. Hild-
ur Hermanns sat fyrir svörum um
myndirnar en nokkrar þeirra hafa
birst í Nýju Lífi og á Face book-síðu
Ford-keppninnar og hafa vakið
mikla athygli enda er þar myndefn-
ið langt frá meginstefnunni sem hef-
ur verið fegurð og kynþokki. Myndir
Hildar og Jóa þykja hins vegar teygja
sig í jaðarinn og vera listrænar og
fjörugar.
Vandræðaunglingaþema
Aðspurð um hvaða pælingar liggi á
bak við myndirnar segir Hildur hug-
myndina vera 90‘s grunge vandræða-
unglingaþema. „Myndirnar voru
teknar í Hlíðardalsskóla sem er gam-
all heimavistaskóli og þegar við viss-
um það ákváðum við að vera með
svona „cabin fever-fíling“ á þessu og
eins og þær væru að stinga af þaðan.“
Um samstarf sitt og Jóa segir Hild-
ur: „Við erum ekki alltaf sammála
en höfum mjög svipaðan smekk á
mörgu, við elskum til dæmis bæði
allt sem fer út í öfgar og mikla liti.
Ég var pínu hrædd við að taka svona
verkefni að okkur saman þar sem ég
bjóst við því að við myndum kannski
rífast yfir einhverju, en svo var alls
ekki, við vinnum rosalega vel saman!
Getum tekið gagnrýni frá hvort öðru
á mjög þroskaðan hátt sem var æðis-
legt að uppgötva og við eigum pott-
þétt eftir að vinna helling meira. It‘s
meant to be!“
Hildur segir undirbúninginn hafa
verið léttan og liðugan en Project
Runway er 24 mynda sería. „Við Jói
tókum nokkra góða „brainstorm“-
fundi um þetta og ég man ekki eftir
neinum hraðahindrunum, þetta bara
flaug af stað og fékk góða lendingu.“
Ford-keppnin tengd við
grasrótina
„Ford-keppnin hefur alltaf verið
tengd við grasrótina,“ segir Andr-
ea Brabin hjá Eskimo Models sem
sér um framkvæmd keppninnar um
þessar fersku áherslur í ár. „Tíska og
fersk tónlist hefur verið í fyrirrúmi.
Má til dæmis nefna að hljómsveitir
og tónlistarmenn á borð við Mínus og
Erp Eyvindarson komu fram í byrjun
síns ferils á Ford-keppninni.“
Andrea segir hönnunarteymið
Kiosk sjá um hönnun á klæðnaði fyr-
ir keppendur og verði alfarið um ís-
lenska hönnun að ræða. Þá standi
Eskimo og Sýrland/Benzin Music fyr-
ir hljómsveitarkeppni þar sem leitað
er að nýjum hljómsveitum (bílskúrs-
böndum). Í dómnefndinni eru Rósa
Birgitta Ísfeld, Heiðar Austmann,
Andrea Jónsdóttir, Börkur Hrafn
Birgisson og Dj. Casanova. Hljóm-
sveitin sem vinnur spilar á keppninni
með Feldberg og Sykri og þá verð-
ur lagið tekið upp og hljóðblandað
af Benzinbræðrunum Daða og Berki
Hrafni Birgissyni. Þá leikstýrir Ás-
grímur Már, fatahönnuður og leik-
stjóri, myndbandi. Skjár Einn mun
einnig sýna tvo sjónvarpsþætti um
keppnina, framleidda af Fjarkanum
og leikstýrðum af Ásgrími Má. Í þátt-
unum verður fylgst með stúlkunum
og hvernig þær eru fræddar um fyrir-
sætuheiminn.
„Viðburðurinn sjálfur verður
svo lifandi og skemmtilegur,“ bæt-
ir Andrea við. „Sýnd verða vídeó-
verk eftir Sögu Sigurðardóttur, Silju
Magg og Weird Girls og að sjálfsögðu
hlökkum við til að heyra vinnings-
bandið spila.“
kristjana@dv.is
Ein af merkilegri bókum sem út komu hér á landi í fyrra var tví-mælalaust endurútgáfa á 35 ára
gömlum æviminningum sveitapiltsins
Tryggva Emilssonar, Fátækt fólk. Um
er að ræða fyrsta bindið af þremur sem
Tryggvi skrifaði og gaf út þegar hann
var kominn á efri ár á áttunda og ní-
unda áratug síðustu aldar. Bókin kom
út hjá Forlaginu nokkru fyrir jól.
Í þessu fyrsta bindi ræðir Tryggvi
um erfiða barnæsku sína og unglings-
ár á fyrstu áratugum tuttugustu aldar.
Hann missti móður sína ungur og ólst
upp við kröpp kjör á Akureyri, í sveit
á Norðurlandi og í Reykjavík, hjá föð-
ur sínum og hjá ættingjum en einn-
ig vandalausum. Harðræðið sem ein-
kenndi tilveru Tryggva er á köflum afar
nöturlegt og þá hvað helst þegar hann
lýsir því atlæti sem hann fékk þegar
hann var sendur í vist til ókunnugra
en þar var hann pískaður út í vinnu og
þurfti að þola líkamlegt og andlegt of-
beldi.
Á köflum er erfitt að trúa að frásögn
Tryggva sé svo nálægt okkur í tíma
– hann dó 92 ára að aldri árið 1993 –
enda er samfélagið sem hann lýsir ís-
lenska samfélagið sem var óbreytt um
aldir fram á 20. öld. Hann leið skort,
bæði í mat og eins hvað varðar öll önn-
ur efnisleg gæði, og þurfti að fara fót-
gangandi langar vegalengdir í vonsku-
veðrum. Tryggvi lýsir þessu hokurlífi
sínu af mikilli næmni og fegurð og eins
eru náttúrulýsingar hans oft bæði
hrikalegar og fallegar enda ólst hann
upp í afar nánu samneyti við náttúr-
una líkt og almennt gilti um sveitafólk
á þessum tíma. Hann kunni því lagið á
náttúrunni og skepnunum sem hann
tók þátt í að sinna. Eins er bókin áhuga-
verð heimild að því leyti að hann lýsir
vel lífinu í íslenska torfbænum, kostum
þess og göllum.
Afar áhugaverð smáatriði eru í bók-
inni sem bregða upp mynd af dag-
legu lífi á Íslandi þessara tíma. Til að
mynda er sagt frá stjúpsystur Tryggva
sem vinnur fyrir sér sem vændiskona
á hóruhúsi á Akureyri og verður þung-
uð við starfann. Tryggvi kallar portkon-
urnar „píur“ í bókinni. Persónulega
vissi ég ekki að
vændi hefði
tíðkast með
svo skipulögð-
um hætti á Ís-
landi á þessum
tíma, rétt fyrir 1920.
Bókin er í alla staði afar vel heppn-
uð og er nánast ótrúlegt hversu vel
Tryggvi skrifar þegar litið er til þess að
hann gekk aldrei í skóla og hlaut aldrei
neina formlega menntun – hvernig
hefði hann eiginlega skrifað ef hann
hefði fengið tækifæri til að rækta eðlis-
læga stílgáfu sína betur? Ég varð djúpt
snortinn af þessari bók; í henni er ekki
vottur af tilgerð heldur er hún hrika-
lega einlæg og falleg og atburðir sem
hún lýsir afar dramatískir á köflum þó
ekki séu þeir merkilegir í stóra sam-
hengi hlutanna. Þetta er persónuleg
nærmynd af Íslandi sem var.
Persónuleg nærmynd
Burlesque í bíó
Myndin Burlesque hlaut nýverið þrjár
tilnefingar til Golden Globe verð-
launa, meðal annars sem besta mynd
ársins. Myndin er nú í sýningum í
Háskólabíói og Sambíóunum Smára-
torgi. Myndin er revíumynd og skartar
þeim Christinu Aquileru og Cher í
aðalhlutverkum. Svakalegir búning-
ar, djörf dansatriði og fallegur söngur
einkennir myndina.
Hvað ertu að gera?
Hvað ertu að lesa núna? „Ég er náttúrulega
í námi, þannig að ég eiginlega verð að stilla
mig um að lesa nokkuð annað en náms-
bækurnar. Ég stefni á að ljúka mastersprófi
í guðfræði í vor og það er slíkur stafli af
námsbókum á náttborðinu að ég verð að
setja bóklestur í salt fram á vor.“
Hvaða dagskrárliði horfir þú á í RÚV? „Ég
horfi á Aðþrengdar eiginkonur og má helst
ekki missa af þætti. Öll fimmtudagskvöld
hef ég haft frátekin fyrir þessa þætti. En svo
allt í einu hvarf þátturinn af dagskrá í miðri
seríu. Hvert fóru þær? Ég varð því að grípa
til þess ráðs að stelast í að horfa á hann á
netinu því ég var svo spenntur.“
Hvað gerir þú þér til afþreyingar um helg-
ar? „Á laugardagsmorgnum hitti ég nokkra
félaga mína og æskuvini úr Hafnarfirðinum.
Við förum í göngutúr um Hafnarfjörðinn og
endum á kaffi og hádegisverði í Súfistanum.
Þar ræðum við um heimspeki, menningu og
listir til þess að auðga andann og félagslífið.“
Hvaða vefsíður skoðar þú? „Ég nota netið
til afþreyingar, les fréttir og annað slíkt og
það er alltaf að aukast að ég bjargi mér um
sjónvarpsefni á netinu. Ég horfði til dæmis
á handboltann á netinu og eins og ég sagði
áður þá hef ég verið að stelast í að horfa á
Aðþrengdar eiginkonur. En svo er ég líka að
nota ákaflega gagnlegar og vandaðar síður
á netinu í náminu. Það má til að mynda lesa
heilaga ritningu á frummálinu á netinu. Á
síðunni interlinearbible.org get ég til að
mynda dvalið löngum stundum.“
Davíð Þór Jónsson leikari og
meistaranemi í guðfræði.
Ætlað að vinna saman
n Umgjörð Ford-keppninnar er frábrugðin því sem verið hefur n Íslensk hönnun og list í öndvegi
n Myndir Jóa Kjartans og Hildar Hermanns af fyrirsætunum hafa vakið mikla athygli fyrir fersk efnistök
Ekki allt sem sýnist Þessi gullfallega
snót virkar saklaus en blái varaliturinn er
grunsamlegur.
Prakkarar Þarna eru tveir vandræða-
unglingar búnir að vera að prakkarast og
reyna að fela það með því að þykjast vökva
blómin, en Andrés Önd grunar eitthvað.
Náttgalsi Tvær prinsessur búnar að vera með náttgalsa alla nóttina, morguninn er kominn
og þær ætla fá sér banana í morgunmat.
Vera Sölvadóttir sýnir Heart to Heart
Á stutt- og heimildarmyndahátið sem stend-
ur yfir dagana 27.–31.janúar í Bíó Paradís.
Hvert fóru
eiginkonur?
Aðþrengdar
Fátækt fólk
Höfundur: Tryggvi Emilsson
Útgefandi: Forlagið
Sería: Íslensk klassík
Bækur
Ingi Freyr
Vilhjálmsson