Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2011, Qupperneq 24
24 | Sport Umsjón: Tómas Þór Þórðarson tomas@dv.is 26. janúar 2011 Miðvikudagur
Til í Celtic núna
n Sol Campbell, fyrrverandi lands-
liðsmiðvörður Englands, segist nú
vera tilbúinn að ganga til liðs við
Glasgow Celtic
í sumar bjóð-
ist honum það.
Campbell af-
þakkaði Celtic
í fyrrasumar og
gekk í raðir New-
castle. „Ég væri
til í að skoða
málin, ég væri í
raun til í að skoða hvað sem er,“ seg-
ir Campbell. „Ég gat ekki komist að
samkomulagi við Celtic í fyrrasum-
ar en þannig ganga hlutirnir bara
fyrir sig. Stundum, þegar maður
horfir á heildarmyndina sex mán-
uðum síðar kemst maður kannski
að því að aðrir hlutir voru betri fyrir
mann,“ segir Campbell.
Vantaði hálfan
milljarð punda
n Eigendur Manchester United
neita því staðfastlega að hafa átt í
viðræðum við eignarhaldsfélagið
Qatar Holding
varðandi kaup
á félaginu en
greint var frá því
í Mail on Sun-
day að arabarnir
hefðu boðið 1,5
milljarða punda
í það. Talið er
víst að fundur-
inn hafi átt sér stað en samninga-
viðræður hafi ekki gengið upp. Er
því haldið fram að Glazer-feðg-
ar vilji fá tvo milljarða punda fyrir
Manchester United og vantaði því
hálfan milljarð upp á. Ekki er langt
síðan Qatar Holding gerði auglýs-
ingasamning upp á 150 milljónir
punda við Barcelona.
Teknir af leiknum
n Knattspyrnuþulurinn Richard
Keys og aðalsérfræðingur Sky
Sports um enska boltann, Andy
Gray, fengu
skömm í hattinn
fyrir orð sem
þeir létu falla
um línuvörðinn
Sian Massey á
laugardaginn.
Keys og Gray
áttu að sjá um
lýsingu á leik
Bolton og Chelsea á mánudags-
kvöldið sem Englandsmeistararn-
ir unnu örugglega, 4–0. Voru þeir
félagarnir teknir af leiknum en
Barney Francis, framkvæmdastjóri
Sky Sports, sagði: „Þeim hefur ver-
ið gerð grein fyrir að það sem þeir
sögðu er algjörlega óásættanlegt.“
Wenger vill nýjan
Messi
n Arsene Wenger, knattspyrnustjóri
Arsenal, hefur lýst opinberlega yfir
áhuga sínum á belgíska undra-
barninu Eden Hazard sem leikur
með Lille í frönsku úrvalsdeildinni.
Mörg félög fylgjast með framgöngu
þessa pilts sem þykir um margt
minna á sjálfan Lionel Messi. „Þetta
er leikmaður sem ég hef fylgst með
í svolítinn tíma. Ég vil samt ekki
vera að gera Lille þann
grikk að hrófla við hon-
um núna. Þegar
hann verður
laus sé ég til
hvort það
verði ekki
mögu-
leiki að fá
hann til
Arsen-
al,“ segir
Wenger.
Molar
Reykjavíkurslagur í Dalhúsum
Fimmtánda umferð Iceland Express-deildarinnar í
körfubolta hefst á fimmtudagskvöldið með þremur
leikjum. Tindastóll tekur á móti ÍR, Njarðvík fær Stjörnuna í
heimsókn og Grindavík tekur á móti Haukum. Á föstudag-
inn klárast svo umferðin með Reykjavíkurslag Fjölnis og KR
í Dalhúsum, Hamar heimsækir Keflavík og botnlið KFÍ fær
Íslands- og bikarmeistara Snæfells í heimsókn. Allir leikirnir
hefjast klukkan 19.15.
Þrír fínir fótboltaleikir Undirbúningstímabilið í
knattspyrnunni er komið á fullt en knattspyrnuáhugamenn geta
séð þrjá fína leiki í dag og á morgun. Í dag, miðvikudag, mætir
Fjölnir liði ÍR í Reykjavíkurmótinu klukkan 20.00 í Egilshöllinni.
Fótbolta.net-mótið heldur einnig áfram og er sannkallaður
Suðurnesjaslagur Keflavíkur og Grindavíkur er á dagskrá í
Reykjaneshöllinni klukkan 17.30. Á fimmtudagskvöldið fer fram
annar leikur í Fótbolta.net-mótinu en þar mætast ÍA og ÍBV á
Akranesi klukkan 19.00.
Nafn skoska miðjumannsins Charl-
ies Adams hjá Blackpool hefur ver-
ið á allra vörum undanfarna daga.
Adam hefur farið á kostum með
nýliðum Blackpool í ensku úrvals-
deildinni og lagði Liverpool inn
fjögurra milljóna punda tilboð í
leikmanninn um helgina. Því var
hafnað um hæl en Blackpool-menn
vilja sjá töluvert hærra tilboð svo
þeir íhugi yfirhöfuð að selja sína
skærustu stjörnu.
Eftir að tilboðið kom frá Liver-
pool var Adam ekki lengi að henda
inn beiðni um félagaskipti en hann
vill meira en allt komast til Liver-
pool. Breska blaðið Daily Express
greindi frá því í gær að með fé-
lagaskiptabeiðninni sé Adam að
henda frá sér vænni bónusgreiðslu.
Adam er með ákvæði í samningi
sínum sem tryggir honum tuttugu
prósent af því fé sem greitt verður
fyrir hann. Fær hann þau tuttugu
prósent beint í vasann. Ákvæðið
kveður á um að biðji hann sjálf-
ur um að fara falli fyrri liðurinn úr
gildi. Fari til dæmis svo að Black-
pool samþykki tilboð upp á sex
milljónir punda myndi Adam verða
af 1,2 milljónum.
Þetta þykir þó sýna hversu mik-
ið Skotann langar til Liverpool en
þar er við stjórnvölinn ein af hetj-
um hans og samlandi, Kenny Dal-
glish. Er það Dalglish sem pressar
nú stíft á peningamenn Liverpool
að bjóða sómasamlega upphæð í
Adam. Segir Ian Holloway, stjóri
Blackpool, að Adam sé 46 milljóna
punda virði en það er þó morgun-
ljóst að engar svoleiðis upphæðir
koma til greina.
tomas@dv.is
Charlie Adam gerir allt til að komast til Liverpool:
Fórnar vænum bónus
Samherjar? Charlie Adam
gæti spilað samhliða Lucas
áður en langt um líður.
MynD REuTERS
Íslenska landsliðið í handbolta, strák-
arnir okkar, töpuðu þriðja leik sínum
í röð á HM í handbolta í gærkvöldi
gegn Frakklandi, 34-28. Því er ljóst að
Ísland tapaði öllum leikjum sínum í
milliriðlinum en það er í fyrsta skipt-
ið í sögunni sem það gerist. Þrátt fyr-
ir þennan slaka árangur í millriðlum
spilar Ísland um fimmta sætið gegn
Króatíu á föstudaginn. Franska lið-
ið átti aldrei í nokkrum vandræðum
með strákana okkar og ef þeir gerðu
sig einhvern tíma líklega til að minnka
muninn skiptu Frakkar einfaldlega
upp um gír og keyrðu yfir strákana.
Frakkar númeri of stórir
Íslenska liðið byrjaði leikinn gegn
vel Frakklandi og komst í 3-1. Þá, eins
og svo oft í leiknum, skiptum Frakkar
einfaldlega upp um gír og settu vélina
í gang. Frakkar skoruðu þá sex mörk í
röð, breyttu stöðunni í 7-3 og eftir það
varð ekki aftur snúið. Heims, Evrópu-
og Ólympíumeistarar Frakkar voru
með leikinn í tangarhaldi og slepptu
því aldrei, sama hversu mörg áhlaup
íslenska liðið gerði.
Munurinn var þrjú mörk í hálfleik,
16-13, en varð sex mörk á endanum,
34-28. Strákarnir fá hrós fyrir baráttu-
anda í seinni hálfleik, þá sérstaklega
Vignir Svavarsson sem var staðráð-
inn í að gera sitt besta. Hann þurfti
að standa allan tímann í vörninni
þar sem Ingimundur Ingimundarson
meiddist fyrir leikinn.
Murinn á liðunum var einfald-
lega of mikill. Frakkar leyfðu sér að
hvíla helstu leikmenn sína drjúgan
hluta leiksins. Líklega besti mark-
vörður sögunnar, Thierry Omeyer,
kom ekki inn fyrr en um korter var eft-
ir og skellti hann í lás eins og honum
var von og vísa. Til að Íslandi geti lagt
Frakkland að velli verður einfaldlega
allt að ganga upp. Að annar varnar-
maðurinn meiðist fyrir leikinn, hinn
fái rautt spjald eftir þrjátíu mínútur og
sóknin sé ekki að ganga nægilega vel
eru einfaldlega of mörg vandamál til
að geta unnið Frakkland.
Geta jafnað besta árangurinn
Þrátt fyrir að Ísland hafi tapað öll-
um leikjum sínum í milliriðli eiga Ís-
lendingar enn möguleika á að jafna
besta árangur sinn á HM sem er
fimmta sætið. Ísland mætir Króatíu í
leik um fimmta sætið á föstudaginn.
Það voru þó ekki íslensku strákarn-
ir sem unnu fyrir því í milliriðlinum.
Frábær spilamennska liðsins í riðla-
keppninni lagði grunninn að þessum
árangri en heppnin var þó sannar-
lega með okkur í gær. Norðmenn tóku
sig til og rassskelltu Þjóðverja og þá
unnu Spánverjar lið Ungverja örugg-
lega. Var því orðið ljóst að Ísland væri
komið í forkeppni Ólympíuleikana
áður en leikurinn gegn Frakklandi fór
fram. Er skelfilegt að hugsa til þess að
Ísland tapaði illa fyrir Þjóðverjum en
svo tapar þýska stálið fyrir Noregi, liði
sem Ísland fór létt með að leggja að
velli.
Það er engin skömm að lenda í
fimmta sæti á heimsmeistaramóti en
liðið setti sér hærri markmið.
Fengu lítið að spila
Á meðan Frakkar leyfðu sér að hvíla
sína helstu menn nýtti Guðmund-
ur Guðmundsson ekki tækifærið að
leyfa þeim sem minna hafa spilað
að spreyta sig. Sigurbergur Sveins-
son fékk ekki nema nokkrar mínútur,
sömu sögu má segja um Odd Gretars-
son en Kári Kristján Kristjánsson sat
allan tímann á bekknum. Vildi Guð-
mundur væntanlega halda í við Frakk-
ana frekar en að gefa mönnum mínút-
ur en þetta var þó leikurinn til þess.
Ólafur Stefánsson spilaði ekkert vegna
meiðsla og sömu sögu má segja um
Ingimund Ingimundarson. Er óvís um
þátttöku þeirra í leiknum um fimmta
sætið. Hefði Guðmundur þó klárlega
mátt nýta mannskapinn betur gegn
Frakklandi þó liðið fái nú tveggja daga
hvíld fyrir leikinn gegn Króatíu.
Aldrei séns gegn frAkklAndi
n Frakkar unnu auðveldan sigur á Íslandi, 34-28 n Í fyrsta skipti
í sögunni vann Ísland ekki leik í milliriðli n Spila um fimmta
sætið við Króatíu á föstudag n Geta jafnað besta árangurinn
Tómas Þór Þórðarson
blaðamaður skrifar tomas@dv.is
Ísland – Frakkland 34-28
Mörk Íslands: Alexander Petersson 6,
Róbert Gunnarsson 5, Vignir Svavarsson 3,
Þórir Ólafsson 3, GuðjónValur Sigurðsson
3, Aron Pálmarsson 3, Snorri Steinn
Guðjónsson 2, Ásgeir Örn Hallgrímsson 1,
Arnór Atlason 1, Sigurbergur Sveinsson 1.
Varin Skot: Björgvin Páll Gústavsson 14,
Hreiðar Levy Guðmundsson 1.
Koma svo Ísland getur enn jafnað sinn besta árangur á HM.