Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2011, Síða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2011, Síða 26
26 | Fólk 26. janúar 2011 Miðvikudagur Nýjar auglýsingar fyrir Trygg-ingamiðstöðina voru teknar upp að hluta til um síðustu helgi. Tónlistarmaðurinn Harald- ur Ari Stefánsson úr hljómsveitinni Retro Stefsson fer með aðalhlut- verk í auglýsingunum sem eru eins og eins konar stuttmynd. Auglýs- ingarnar eiga að ganga í einhvern tíma og bætast alltaf fleiri við eftir því sem líður á, en auglýsingarn- ar eiga að segja ástarsögu. Tökum verður haldið áfram þegar eitthvað er liðið á sýningar fyrstu auglýsing- anna. Í auglýsingunum verður sögð lít- il ástarsaga sem á að eiga sér stað á Siglufirði á árunum 1982–1992. Siglufjarðarbær verður í aðalhlut- verki í auglýsingunum og voru íbúar nokkurra gatna beðnir um að færa bíla sína, svo að engir ný- legir bílar sæjust í auglýsingunni. „Þar sem auglýsingin gerist á 8. og 9. áratugnum mega ekki sjást nýlegir bílar í myndrammanum,“ sagði í bréfi sem framleiðslustjóri hjá auglýsingastofunni Jónsson & Le‘macks sendi bæjarbúum, og birt er á vefnum siglo.is. Miðbær Siglufjarðar lék stórt hlutverk í tökum á auglýsingunni. Flugeldar, með tilheyrandi ljósa- dýrð, voru meðal annars sprengd- ir á svæði Síldarminjasafnsins um helgina við tökurnar. Haraldur Ari Stefánsson leikur í tryggingaauglýsingu: Ástarsaga Á siglufirði Meðlimur í Retro Stefson Haraldur Ari er vinstra megin á myndinni. sirrý fyllir Á tankinn Fjölmiðlakonan Sirrý hefur látið til sín taka í kreppunni og fyrirlestrar hennar um hvernig hægt sé að halda í orkuna, sjálfstraustið og draumana þrátt fyrir mótbyr hafa slegið í gegn. Sirrý heldur opinn fyrirlestur í Heilsu- borg á fimmtudagskvöld kl. 19.30. Hann heitir „Fylltu á tankinn“. Einkar viðeigandi nafn enda samræmist framboð Sirrýjar á ókeypis jákvæðni mun betur eftirspurn almennings en síhækkandi bensíndropinn. frá Vr á golfvöllinn Gunnar Páll Pálsson, fyrrverandi formaður stéttarfélagsins VR, hefur fundið sér nýjan starfsvettvang, rekstur golfvalla, samkvæmt heimildum DV. Hann sér um rekstur nokkurra golfvalla á höfuðborgar- svæðinu, en það verður að teljast nokkur breyting hjá Gunnari Páli, sem áður var fulltrúi Lífeyrissjóðs Verslunarmanna, vegna formennsku sinnar í VR, í stjórnum margra stórra fyrirtækja. Hann hrökklaðist úr stöðu formanns í VR einmitt vegna stjórnarsetu sinnar í Kaupþingi, þar sem hann samþykkti meðal annars að fella niður persónulegar ábyrgðir nokkurra lykilstarfsmanna, eins og þeir voru sagðir vera, vegna margra milljarða króna lána. A gli Gillz Einarssyni hefur verið boðið hlutverk í mynd- inni Svartur á leik, byggðri á samnefndri glæpasögu Stef- áns Mána og getur látið draum sinn um að verða leikari rætast. Í viðtali við DV nýverið sagði Egill frá því að hann ætti sér þann draum að verða leikari og þann draum ætlaði hann að taka alla leið. Egill mætti í pruf- ur fyrir myndina og stóð sig betur en margir þrautreyndir leikarar sem börðust um sama hlutverk. Hann gefur ekki upp hvaða hlutverk sé um að ræða og segist líklega taka boð- inu. Framleiðslufyrirtækin ZikZak og Filmus standa að gerð mynd- arinnar en leikstjóri er Óskar Axel Óskarsson. Hann skrifaði handritið að myndinni ásamt Stefáni Mána. „Prufurnar fyrir hlutverkið gengu vel og það er líklegt að ég taki þessu góða boði þrátt fyrir að árið verði mjög annasamt hjá mér. Ég gef út bók, stýri símaskránni og stend í sjónvarpsþáttaframleiðslu og svo er ég auðvitað alltaf að þjálfa líka.“ Glerharður eins og þykki Hann er hrifinn af leikaravali leik- stjórans en eins og áður hefur ver- ið kunngert munu Þorvaldur Dav- íð Kristjánsson, Jóhannes Haukur, María Birta og Damon Younger fara með burðarhlutverk. „Þeir leikarar sem taka þátt í myndinni eru allir rándýrir og það er spurning hvort ég verði með allt lóðrétt niður um mig í samanburði. Nei, annars held ég að stjarna mín muni örugglega skína skært,“ segir hann og hlær og segir allar efasemdir auðvitað bannaðar. Hann segist líka bera virðingu fyrir rithöfundinum Stefáni Mána, þar sé á ferðinni glerharður náungi. „Ég get ekkert kennt honum, hann er glerharður eins og Þykki!“ n Gillz fékk tilboð um að leika í kvikmyndinni Svartur á leik n Líst vel á leikarana n Stefán Máni er gler- harður eins og Þykki Gillz boðið hlutverk í Svartur á leik Rándýrir leikarar Egill Gillz segist líklega taka að sér hlutverk í myndinni Svartur á leik. Honum líst vel á þá leikara sem hafa samþykkt að vera með. „Rándýrir leikarar,“ segir Gillz. Egill Gillz Einarsson: Glerharður Agli hugnast ekki bara leikarar myndar- innar heldur er hann hrifinn af Stefáni Mána. „Hann er glerharður, ég þarf ekkert að kenna honum!“ Gamlir bílar Range Rover-inn var sóttur var inn í Eyjafjörð og er árgerð 1982 og gamall Ford Escort líklegast árgerð 1988 var fenginn að láni í gegnum Fordbílaklúbb Akureyrar. Mynd: SiGLo.iS / HELGA SiGuRbjöRnSdóttiR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.