Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2011, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2011, Page 2
2 | Fréttir 31. janúar 2011 Mánudagur Talsverður munur er á eignum ís- lenskra stjórnmálaflokka og getur sá munur hlaupið á hundruðum millj- óna. Sjálfstæðisflokkurinn er langsam- lega ríkasta stjórnmálahreyfing á land- inu með eigið fé upp á 626 milljónir. Eigið fé annars ríkisstjórnarflokksins, Vinstri grænna, er hins vegar neikvætt um rúmar 50 milljónir króna. Samfylk- ingin sem í dag hefur flest sæti á þingi á um 20 milljónir í eigið fé. Framsókn- arflokkurinn hefur ekki enn skilað árs- reikningi og hafa því upplýsingar um fjárhagslega stöðu þess flokks ekki ver- ið kunngerðar. Þetta kemur fram í árs- reikningum stjórnmálaflokkanna fyrir árið 2009 sem ríkisendurskoðun hefur birt á vef sínum. Athygli vekur að Sjálfstæðisflokkur- inn fékk samanlagt hærri styrki frá fyr- irtækjum árið 2009 en hann fékk fyrir hrun árið 2008, þegar hann var jafn- framt í ríkisstjórn. 600 milljóna eigið fé Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið við völd mestallan lýðræðistímann og hefur hlotið fjárstyrki frá ríkinu und- anfarin ár miðað við fylgi í alþingis- kosningum. Ríkisstyrkur til Sjálfstæð- isflokksins fyrir árið 2009 nam um 158 milljónum króna. Fjárframlög fyrir- tækja námu um 29 milljónum króna en meðal þeirra fyrirtækja sem styrktu Sjálfstæðisflokkinn eru rekstraraðili IKEA á Íslandi, Brim, olíufélögin N1, Skeljungur og Atlantsolía, og Bæjarins bestu sf. Við það bætast svo styrkir frá sveitarfélögum, að upphæð tæplega 25 milljónir, og styrkir einstaklinga, að upphæð tæplega 35 milljónir króna. Samkvæmt úrdrætti úr ársreikningi Sjálfstæðisflokksins kemur fram að hann eigi 627 milljónir króna í eigið fé auk annarra verulegra eigna. Flokkur- inn á rétt tæpum 600 milljónum meira eigið fé en næsti flokkur þar á eftir, sem er Samfylkingin. Dýr rekstur flokksins Talsvert meiri peningur fer í rekstur Sjálfstæðisflokksins en annarra flokka. Gjaldaliður rekstrarreiknings flokksins sýnir að útgjöld vegna reksturs flokks- ins nema um 330 milljónum króna og rekstur fasteigna flokksins um rúm- lega 28,5 milljónum. Rekstrargjöld flokksins fyrir árið 2009 eru 140 milljónum króna hærri en rekstrargjöld hans voru árið áður. Kosningar fóru fram árið 2009 og gæti það útskýrt þennan mun á milli ára en meðal annars þurfti að halda próf- kjör og standa í kosningabaráttu með tilheyrandi kostnaði. Þessi munur á milli ára skilar sér hins vegar í 46 millj- óna króna tapi á rekstri flokksins, sem kemur þó varla að sök. Ef rekstrarreikningur Sjálfstæðis- flokksins er borinn saman við rekstra- reikning Vinstri grænna, sem stend- ur verst þeirra stjórnmálahreyfinga sem birtar hafa verið upplýsingar um, sést að mikill munur er á tekjum og útgjöldum flokkanna. Vinstri grænir fá ríkisstyrk upp á tæpar 160 milljón- ir króna og styrki frá fyrirtækjum upp á eina milljón og frá einstaklingum upp á 27 milljónir. Meðal styrktaraðila Vinstri grænna er aðeins eitt olíufélag en hæsti styrkurinn er greiddur af Ice- landair Group upp á 300 þúsund krón- ur, sem er lögbundið hámark. Munur á fjárframlögum fyrirtækja Talsverður munur er á fjárframlög- um lögaðila til stærstu stjórnmála- flokkanna. Munurinn felst bæði í því hvaða fyrirtæki, í hvaða geira, styrkja flokkana auk þess hversu háar upp- hæðirnar eru á milli flokka hjá þeim fyrirtækjum sem styrkja fleiri en einn flokk. Til að mynda styrkti útgerð- arfélagið Vísir Sjálfstæðisflokkinn og Samfylkinguna um 300 þúsund krónur en Vinstri græna um einung- is fimm þúsund krónur. Rekstrarað- ili IKEA styrkti þá einungis Sjálfstæð- isflokkinn og Vinstri græna en ekki Samfylkinguna. Fjárhæðirnar sem Sjálfstæðisflokk- urinn og Samfylkingin fengu í styrki voru að jafnaði talsvert hærri en þær sem Vinstri grænir voru styrktir um. 57 fyrirtæki af þeim 109 sem styrktu Sjálfstæðisflokkinn styrktu hann um 300 þúsund krónur, sem er lögbund- ið hámark. Sextán af 59 fyrirtækjum sem styrktu Samfylkinguna styrktu flokkinn um sömu upphæð en aðeins eitt fyrirtæki af þrettán styrkti Vinstri græna um svo háa upphæð. Flestir styrkir Vinstri grænna eru undir 100 þúsund krónum en átta af þrettán styrkjanna eru undir 50 þús- und krónum. Enginn af styrkjum fyr- irtækja til Sjálfstæðisflokksins er undir 50 þúsund krónum. Veikburða Vinstri grænir Staða Vinstri grænna er verst allra flokkanna en eigið fé flokksins er nei- kvætt um rúmar 50 milljónir króna. Tekjur flokksins eru þó verulegar á tímabilinu þrátt fyrir að styrkir frá fyrirtækjum og einstaklingum séu ekki jafnháir og hjá Sjálfstæðisflokki og Samfylkingunni. Staða flokks- ins fer versnandi á milli ára og stór- aukast skuldir hans frá árinu 2008. Rekstrarkostnaður flokksins hækkar vel rúmlega tvöfalt á milli ára og fer úr 43 milljónum í rúmar 118 millj- ónir. Líklegasta skýringin á svo mikl- um mun eru þingkosningarnar sem haldnar voru árið 2009. Svo virð- ist sem flokkurinn hafi enn verið að rétta úr sér fjárhagslega árinu áður, eftir síðustu kosningabaráttu. Árið 2008 er enga styrki frá fyrir- tækjum til Vinstri grænna að finna í ársreikningi flokksins en styrkir til þeirra frá fyrirtækjum árið 2009 námu um 4,3 prósentum af styrkjum til Sjálfstæðisflokksins og um 12,6 prósentum af styrkjum til Samfylk- ingarinnar. „Mest af þessum skuldum er til- komið vegna fasteignakaupa og þar standa náttúrulega fasteignirnar á bak við,“ segir Auður Lilja Erlings- dóttir, framkvæmdastýra Vinstri grænna, aðspurð um skuldir flokks- ins. Hún segir að miðað sé að því að greiða skuldirnar skref fyrir skref og nefnir að samkvæmt fjárhagsáætlun flokksins fyrir árið 2011 verði engar yfirdráttarskuldir eftir hjá flokknum í lok ársins. Tveir styrkja alla þrjá Aðeins tvö fyrirtæki styrktu alla flokk- ana þrjá sem DV tók til skoðunar, út- gerðarfélagið Vísir og olíufélagið N1. Talsverður munur var hins vegar á styrkupphæðunum. N1 styrkti Sam- fylkinguna mest, um 250 þúsund krónur, á meðan félagið styrkti Sjálf- stæðisflokkinn og Vinstri græna um 200 þúsund krónur. Fæstir þeirra sem styrktu ein- hvern stjórnmálaflokkanna styrktu fleiri en einn flokk. Það voru þó fimmtán fyrirtæki sem styrktu bæði Sjálfstæðisflokkinn og Samfylking- una, þrjú fyrirtæki sem styrktu bara Sjálfstæðisflokk og Vinstri græna og n Sjálfstæðisflokkurinn er ríkasti flokkurinn n Staða Vinstri grænna mjög slæm n Styrkir hækkuðu á milli áranna 2008 og 2009 n Óvæntar þingkosningar settu mark sitt á fjárhag flokkanna n Framsókn hefur ekki enn skilað ársreikningi FLOKKURINN Á 626 MILLJÓNIR Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is „Rekstrargjöld flokksins fyrir árið 2009 eru hundrað og fjörutíu milljónum meiri en rekstrargjöld hans voru árið áður. Aðili Fjárhæð Hagar hf.    300.000 kr.  Icelandair Group    300.000 kr.  N1 hf.    200.000 kr.  Miklatorg hf.    100.000 kr.  Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur      50.000 kr.  Samkaup    20.000 kr.  Verslunarmannafélag Suðurnesja   20.000 kr.  Mjólkursamsalan ehf.    15.000 kr.  Norðlenska ehf.    6.000 kr.  A1988    5.000 kr.  Rafvirkjafélag Norðurlands    5.000 kr.  Vísir hf.    5.000 kr.  Kaupfélag Eyfirðinga    3.000 kr.  Samtals 3.900.000 kr. Styrkir til VG Aðili Fjárhæð Akso hf.     300.000 kr.  Atlantsolía   300.000 kr.  Brim hf.   300.000 kr.  Exista   300.000 kr.  Hagar hf.   300.000 kr.  Húsasmiðjan     300.000 kr.  Icelandic Group hf.   300.000 kr.  Mannvit verkfræðistofa   300.000 kr.  MP banki   300.000 kr.  Samherji hf.   300.000 kr.  Samkaup   300.000 kr.  Samskip     300.000 kr.  Síldarvinnslan   300.000 kr.  Styrktarsjóður SUJ   300.000 kr.  Vísir   300.000 kr.  Ölgerðin Egill Skallagrímsson hf.   300.000 kr.  Avant   250.000 kr.  KPMG   250.000 kr.  N1   250.000 kr.  Delottie     200.000 kr.  Vinnslustöðin hf.   200.000 kr.  Valitor     175.000 kr.  Eyrir invest.     150.000 kr.  Frumherji hf.     150.000 kr.  Ístak hf.   150.000 kr.  Veritas Capital   150.000 kr.  Flugfélagið   125.000 kr.  Oddi     120.084 kr.  Alþýðuflokksfélag Grindavíkur  100.000 kr.  Borgun hf.     100.000 kr.  Rafafl ehf.   100.000 kr.  Verkís ehf.     100.000 kr.  Skýrr   75.000 kr.  Eskja     50.000 kr.  Gullberg   50.000 kr.  Hamraborg ehf.     50.000 kr.  Íslenska gámafélagið ehf.     50.000 kr.  Pfaff     50.000 kr.  Olís     43.500 kr.  Sparisjóður Vestmannaeyja   40.000 kr.  Árni Helgason hf.   30.000 kr.  Átak ehf.     30.000 kr.  Sparisjóður Svarfdæla   30.000 kr.  A300   25.000 kr.  Axis húsgögn ehf.     25.000 kr.  Sparisjóður Hornafjarðar   25.000 kr.  Sparisjóður Suðurlands      25.000 kr.  Hótel KEA   20.000 kr.  Miðás ehf.   20.000 kr.  Norðlenska matarborðið     20.000 kr.  Sparisjóður Norðfjarðar   20.000 kr.  Starfsgreinafélag Austurlands   15.000 kr.  Starfsgreinasamband Íslands   15.000 kr.  Útfararþjónusta kirkjugarðanna ehf.        15.000 kr.  Útfararþjónustan ehf.   13.000 kr.  Bólsturverk sf.     10.000 kr.  Íslandsbleikja ehf.   10.000 kr.  Samvinnufélag útgerðarmanna  10.000 kr.  Verkfræðistofa Austurlands   10.000 kr.  Samtals 8.146.584 kr. Styrkir til Samfylkingarinnar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.