Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2011, Blaðsíða 18
18 | Umræða 31. janúar 2011 Mánudagur
„Ég hætti í
sambúð með
manni sem ég
hafði flutt inn
með bara af því að
ég kunni ekki við að
móðga hann.“
n Auður Jónsdóttir um meðvirkni. – DV
„Þetta voru
einhverjir
pappakassar
eins og Högni í
Hjaltalín sem er
með rass í staðinn fyrir
andlit.“
n Egill Gillz Einarsson – Monitor
„Þetta var allt
saman ein
allsherjar-
svikamylla.“
n Útgerðarmaður um afleiðusamninga
við Landsbankann. – DV
„Ég nýt ennþá
lánstrausts.“
n Pálmi í Fons um lánveitingu frá Nupur
til Fengs. – DV
„Farið til and-
skotans, Kings
of Leon. Þið
eruð eigingjarnir
asnar.“
n Ryan Murphy þáttastjórnandi Glee.
– The Hollywood Reporter
Rekið Vilhjálm
Jóhanna Sigurðardóttir forsætis ráðherra hefur sýnt hárrétt viðbrögð við ofbeldishótunum
Samtaka atvinnulífsins. Í stað þess
að beina kröftum sínum að því að
búa í haginn fyrir íslensk fyrirtæki
í nauðvörn tilkynna forsvarsmenn
irnir réttkjörnum fulltrúum þjóðar
innar hvað þeir megi gera. Nú hef
ur þessi fínumannaklúbbur ákveðið
að ekki megi breyta lögum um
stjórn fiskveiða og tryggja þjóðar
eign á auðlindinni. Hótunin um að
skaða samfélagið með því að semja
ekki við launafólk er borin blygðun
arlaust fram. Þessi inngrip í stjórn
Íslands hljóta að skoðast sem alvar
leg tilraun til að taka völd sem að
eins þjóðin getur veitt.
Enginn atvinnurekandi með
sjálfsvirðingu og lýðræðisþroska
getur látið óátalið að forsvarsmenn
sínir gangi fram með slíkum dólgs
hætti. Gott fólk hlýtur að segja sig
úr samtökunum eða bylta stjórn
þeirra. Forsætisráðherra hefur rétt
fyrir sér þegar hann segir átökin
nú standa milli þjóðar og sægreifa.
Meirihluti Alþingis, sem starfar í
umboði þjóðarinnar, verður að fá
vinnufrið fyrir einstökum ofbeldis
mönnum og þeim sem eru í skipu
lögðum samtökum.
Þjóðin verður að rísa upp gegn
Samtökum atvinnulífsins. Hverjum
heiðarlegum manni í landinu ber
að fordæma aðför þeirra að stjórn
völdum. Heiðarlegt fólk innan
samtakanna þarf að reka fram
kvæmdastjórann, Vilhjálm Egils
son, og biðjast síðan afsökunar á
því að hafa gerst taglhnýtingar sæ
greifanna með því að hóta þjóð
inni grímulaust. Gangi það eftir er
mögulegt að fyrirgefa aðförina að
lýðræðinu.
Stjórnarflokkarnir eiga ekki
annan kost en þann að standa við
loforð sín frá því í kosningabarátt
unni og færa þjóðinni eign sína að
nýju. Jóhanna Sigurðardóttir sýnir
sanna hetjulund í viðbrögðum sín
um þar sem hún fordæmir fram
göngu atvinnurekenda. Nú þurfa
stjórnarflokkarnir að standa þétt
saman um að afnema forréttindi
sægreifanna og leiðrétta það sem
kallað hefur verið stærsta rán Ís
landssögunnar. Þetta er það rétt
lætismál sem gæti komið umdeildri
ríkisstjórn á spjöld sögunnar.
Leiðari
Er sannleikann að
finna í áfenginu?
„Já, þar sem pólitískur þanka-
gangur er í gegnum flöskuhálsinn,“
segir Kolbrún Þorfinnsdóttir, sem
skipar fyrsta
sæti á lista
Skrökvu en í
fréttatilkynn-
ingu félagsins
kemur fram
að þau
muni freista
háskólanema
með áfengi
og sýna þeim
sannleik-
ann. Skrökva, félag flokksbund-
inna framapotara, hefur ákveðið
að gefa aftur kost á sér í kosn-
ingum til stúdentaráðs Háskóla
Íslands.
Spurningin
Bókstaflega
Reynir Traustason
„Gott fólk hlýtur
að segja sig úr
samtökunum eða bylta
stjórn þeirra.
Félag íslenskra banka
n Augu manna hafa í vaxandi
mæli beinst að athafnamannin
um Steinþóri Jónssyni, hóteleiganda
og fyrrverandi
bæjarfulltrúa í
Reykjanesbæ,
sem hefur not
ið gríðarlegr
ar bankafyrir
greiðslu, einkum
í Sparisjóðnum
í Keflavík, gegn
ótryggum eða
engum veðum. Steinþór er sann
trúaður maður og í félagsskap Votta
Jehóva. Þá er hann stjórnarformað
ur FÍB, Félags íslenskra bifreiðaeig
enda. Óvildarmenn Steinþórs eru
ósparir á grínið um hann. Í sam
ræmi við það að hann og útrásarvík
ingar hafi í raun rænt banka innan
frá segja illar tungur að FÍB standi
nú fyrir Félag íslenskra bankaræn
ingja sem er auðvitað svívirða í garð
heiðvirðra samtaka.
Árni vinsæll
n Vestmannaeyingurinn Árni
Johnsen hefur unnið hug og hjörtu
íslenskra sjómanna með öflugri
framgöngu sinni
á Alþingi. Þing
maður hefur al
farið lagst gegn
því að sjómanna
afsláttur verðu
lagður af eins
og stjórnvöld
áforma. Bendir
Árni á að sjó
mannaafslátturinn sé í eðli sínu eins
og dagpeningar landkrabba sem
fara að heiman. Annar Vestmanna
eyingur á þingi, Róbert Marshall, er
á öndverðri skoðun og telur eðli
legt að sjómenn taki skerðingunni.
Róbert segist vera gamall sjómaður
með þekkingu á málum. Sjómenn
séu þessi árin að mokþéna og geti
því vel axlað byrðar.
Sendiherra í stuði
n Guðmundur Árni Stefánsson, sendi
herra Íslands í Svíþjóð, er mikill
gleðimaður. Þegar gengi íslenska
landsliðsins var sem best á HM
fór hópur Íslendinga á pöbb að
skemmta sér og fagna. Í för með ís
lensku stuðningsmönnunum voru
sendiherrahjónin. Sérstaka athygli
vakti hve alþýðleg og ófeimin þau
voru í taumlausum fögnuði sínum.
Fyrirskipun Álfheiðar
n Álfheiður Ingadóttir, fyrrverandi
heilbrigðisráðherra, er ekki hress
með það að í sandkorni var sagt frá
því að fyrir vest
an væri það álit
margra að hún
væri óvinur Flat
eyrar númer eitt.
Vísað var til þess
að hún hefði sem
ráðherra svelt
rekstur elliheim
ilisins Sólborgar
að dauðamörkum. Forstjóri Heil
brigðisstofnunar Vestfjarða lýsti því í
bréfi eftir áramót að ráðherrann Álf
heiður hefði bannað að fleiri en tvö
hjúkrunarrými yrðu á Sólborg. Þar
er hægt að hafa allt að sex vistmenn
í senn.
Sandkorn
TRYGGVAGÖTU 11, 101 REYKJAVÍK
Útgáfufélag: DV ehf.
Stjórnarformaður:
Lilja Skaftadóttir
Ritstjórar:
Jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is
og Reynir Traustason, rt@dv.is
Fréttastjóri:
Ingi Freyr Vilhjálmsson, ingi@dv.is
Ritstjórnarfulltrúi:
Jóhann Hauksson, johannh@dv.is
Umsjón helgarblaðs:
Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, ingibjorg@dv.is
Umsjón innblaðs:
Ásgeir Jónsson, asgeir@dv.is
DV á netinu: dv.is
Aðalnúmer: 512 7000, Ritstjórn: 512 7010,
Áskriftarsími: 512 7080, Auglýsingar: 512 7050.
Smáauglýsingar: 512 7004.
Umbrot: DV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins
á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
Þegar öllu er á botninn hvolft er auðvelt að finna sökudólginn í öllu því sem afvega fer á
Íslandi. Það eru fíflin.
Þau birtast í ýmsum gervum og leynast víðs vegar á meðal vor. Erfitt er að greina þau úr
nema með því að gaumgæfa atferli
þeirra. Þá er nauðsynlegt að þekkja
hegðunarmynstur fíflanna.
Það fyrsta sem fífl gerir þegar það mætir á vettvang er að leggja bílnum sínum ólög
lega. Yfirleitt gerir það sér far um
að leggja bifreiðinni upp á gang
stétt, með þeim afleiðingum að
fólk, og þá sérstaklega foreldrar
með barnavagna, þarf að ganga á
götunni til að komast fram hjá bif
reið fíflsins. Ef þú sérð Range Rover
uppi á gangstétt geturðu litið á það
sem óræk ummerki um að fífl sé
nærri. Mikilvægt er að horfa ekki í
augun á fíflinu þegar það er stað
ið að verki. Fífl skynjar augngotur
þeirra sem það angrar sem aðdáun
og espast það aðeins upp við þær.
Þess vegna breytir fíflið ekki hegð
unarmynstri sínu. Þegar fífl er hins
vegar ávarpað, eftir að hafa verið
staðið að háttsemi sinni, á það til
að belgja út brjóstkassann í tilraun
til að hrekja viðmælandann á brott.
Þegar fíflið uppveðrast á það til að þenja vélina á bifreið sinni. Til að hámarka há
vaða er fíflið gjarnt á að spóla á
malbikinu. Þetta gerir fíflið til að
vekja á sér athygli og fá útrás fyrir
fýsnir sínar. Fólki er sterklega ráðið
frá því að eiga samskipti við fífl.
Farsælast er að umgangast fíflið í
hæfilegri fjarlægð og beina athuga
semdum sínum um fíflið út í loftið,
nógu nálægt svo það heyri, en án
þess þó að mynda augnsamband
við það. Við svo búið er æskileg
ast að hringja í fagaðila, sem
sérhæfa sig í meðhöndl
un fíflanna. Þetta get
ur verið lögreglan,
stöðumælaverðir eða
sérstakur saksóknari,
eftir atvikum.
Fíflið er glysgjarnt og það klæðist gjarnan
jakkafötum. Það tekur
sér gjarnan bólfestu í einbýlishúsi,
þar sem það á erfitt með samlífi
með öðrum. Iðulega gerist fíflið
sníkjudýr á fyrirtækjum. Það nær
ist með því að soga til sín fjármuni
þar til hýsillinn er orðinn tómur að
innan og fer í þrot. Í kjölfarið stofn
ar fíflið nýja kennitölu og nærist á
nýju fyrirtæki, og svo koll af kolli.
Bankar hafa gjarnan verið kjörlendur fyrir fífl, en talið er að uppræta megi skæða
faraldra í bönkunum með því að
svipta af þeim svokallaðri banka
leynd. Bankaleyndin er eins konar
slímhjúpur
sem
fíflið sveipar sig þegar það fer í
hamskipti. Undir hjúpnum vex
síðan þéttur og stamur vefur sem
veitir næringu á milli fíflanna. Er
þetta talið til marks um að fíflin
eigi sér mýkri hliðar og séu fær
um hjálpsemi í garð eigin teg
undar. Slík net geta hins vegar
orðið ærið þéttriðin og teygt sig
milli þúsunda fífla innan banka,
fyrirtækja og stjórnkerfisins, með
þeim afleiðingum að hýslar þeirra
láta undan. Þegar fíflið nær
ist eða skiptir um ham þolir það
ekki dagsbirtuna og er því talið að
gegnsæi sé einhver besta vörnin
gegn útbreiddum faraldri.
Kenningar eru uppi um að fífl séu óforbetranleg. Hins vegar benda
dæmi til þess að fíflið geti
bælt eðli sitt, sé það tekið
rækilega í gegn. Þegar fíflið er
tekið á beinið eða dregið út
í dagsljósið gefur það frá sér
hátíðnivæl, sem er talið vera
öðrum fíflum til viðvörunar. Oft
hefur verið reynt að hunsa fíflin
til lengdar, einkum vegna þess
hve ógeðfellt er að veita þeim
athygli, en slíkt eykur aðeins far
aldurinn.
Svarthöfði
MINNISPUNKTAR UM FÍFL