Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2011, Blaðsíða 6
6 | Fréttir 31. janúar 2011 Mánudagur
Ögmundur fundaði með stjórnlagaþingmönnum:
Stjórnlagaþing verður haldið
Á sunnudaginn fundaði Ögmundur
Jónasson innanríkisráðherra með
kjörnum fulltrúum til stjórnlaga-
þings. Í kjölfar ógildingar Hæstarétts
á stjórnlagaþingskosningunum hef-
ur ríkt mikil óvissa um framtíðina og
vildu stjórnlagaþingmenn fá upplýs-
ingar um stöðu mála frá sjónarhóli
ríkisstjórnarinnar. Fundurinn gekk
vel fyrir sig að sögn Ögmundar.
„Þarna lýstu menn sínum sjónar-
miðum, og ég einnig. En aðallega var
það mitt að hlusta á viðhorf fulltrú-
anna,“ segir Ögmundur og bætir við
að hann muni koma sjónarmiðum
þeirra áleiðis til ríkisstjórnarinnar.
„Það er mjög brýnt að fá úr því skorið
hvert framhaldið verður í þessu máli.
En við megum ekki flana að neinu og
við verðum að hugsa hvert skref. Ég
hef í sjálfu sér ekkert umboð til þess
að taka ákvarðanir í þessu málefni,
heldur er það Alþingi sem sker úr um
það.“
Aðspurður hvort að hann vilji að
kosið verði aftur til stjórnlagaþings
segir hann það rökréttasta kostinn,
en vill ekki fullyrða um skoðanir
annarra þingmanna. „Á þessu stigi
málsins skulum við staðnæmast við
það eitt að segja, að okkar niðurstaða
sé sú að stjórnlagaþing verði hald-
ið. Ef menn ætla að vera sjálfum sér
samkvæmir í því efni þá er rökrétt að
efnt verði að nýju til kosninga. Það er
mitt persónulega sjónarmið,“ segir
Ögmundur í samtali við DV.
simon@dv.is
Eignarhaldsfélagið Sundagarðar,
sem meðal annars er í eigu Gunnars
Þórs Gíslasonar fyrrverandi stjórn-
arformanns knattspyrnufélagsins
Stoke og núverandi stjórnarmanns í
Sögu Fjárfestingarbanka, greiddi út
500 milljónir króna í arð til hluthafa
sinna árið 2009 þrátt fyrir að félagið
hefði tapað rúmum tveimur millj-
örðum á árunum 2008 og 2009. Þetta
kemur fram í ársreikningi félagsins
fyrir árið 2009.
Félagið á eignir upp á rúmar
1.800 milljónir króna og er eigið fé
þess jákvætt um rúmar 940 milljón-
ir króna. Félagið á einnig óráðstaf-
að eigið fé upp á rúmar 800 milljón-
ir króna. Því er eignum til að dreifa
inni í félaginu. Þar sem eiginfjár-
staðan er jákvæð, en ekki neikvæð,
er ekki ólöglegt að greiða út slíkan
arð. Sú staðreynd að Sundagarðar
greiðir út svo háan arð er hins veg-
ar sérstök í ljósi þess hversu tap fé-
lagsins var mikið á þessum tveimur
árum og einnig í ljósi þess að dótt-
urfélag þess skuldar milljarða sem
það getur ekki borgað.
Eigendur Sundagarða ehf. eru
Eignarhaldsfélagið Mata, Gísli V.
Einarsson og Edda Ingibjörg Egg-
ertsdóttir. Gísli og Edda eru foreldr-
ar Gunnars og framkvæmdastjóra
Sundagarða, Eggerts Árna Gíslason-
ar. Þau eru sömuleiðis stærstu hlut-
hafar Eignarhaldsfélagsins Mata.
Niðurfærðu eign í Sögu um 775
milljónir
Sundagarðar er nokkuð umsvifamik-
ið eignarhaldsfélag sem á hlut í fé-
lögum eins og CCP, grænmetis- og
ávaxtafyrirtækinu Mata, Borgarnes-
kjötvörum, nokkrum félögum í Lúx-
emborg, eignarhaldsfélaginu Nýrækt
og enska knattspyrnuliðinu Stoke.
Sundagarðar er fjölskyldufyrirtæki
sem stofnað er á grunni Mata en
Gísli V. Einarsson stofnaði fyrirtækið
á sínum tíma og starfaði sem forstjóri
þess. Synir hans tóku síðar við rekstr-
inum og gerðust nokkuð umsvifa-
miklir í annars konar fjárfestingum,
meðal annars í hlutabréfum. Sunda-
garðar áttu einnig verulegt magn
stofnfjárbréfa í SPRON fyrir hrun og
sat Gunnar í stjórn sjóðsins.
Stærsta eign félagsins er eign-
arhlutur í Sögu Fjárfestingarbanka
en nafnvirði hans er einn milljarður
króna. Sundagarðar er næststærsti
hluthafi bankans með tæplega 10,5
prósenta eignarhlut. Stærsta tap
Sundagarða árið 2009 er tilkomið
vegna niðurfærslu á hlutabréfum í
Sögu Capital. Á árinu 2009 var hluta-
bréfaeign félagsins í fjárfestingar-
bankanum færð niður um 775 millj-
ónir króna, í 325 milljónir króna.
Vegna erfiðleika á fjármálamörk-
uðum og verðhruns á hlutabréfum
fengu Sundagarðar ekki greiddan
neinn arð frá dótturfélögum sínum
inn í félagið árið 2009, samkvæmt
ársreikningnum, en greiddu eins og
áður segir út 500 milljóna króna arð.
593 milljónir komu inn
Í yfirliti yfir fjármögnunarhreyfingar
Sundagarða á árinu 2009 kemur fram
að félagið hafi tekið ný lán að upp-
hæð 240 milljónir króna og að 353
milljónir króna hafi komið inn í fé-
lagið frá tengdum aðilum. 593 millj-
ónir króna komu því inn í félagið.
500 milljónir af þessum tæplega 600
milljónum fóru svo aftur út úr félag-
inu í formi arðgreiðslna til hluthafa.
Taka arð og fá afskrifað
Félög í eigu þeirra aðila sem hér
um ræðir hafa ekki mikið verið til
umfjöllunar eftir bankahrunið árið
2008. Þó hefur DV greint frá því að
eitt af málunum sem sérstakur sak-
sóknari sé að skoða í rannsókn sinni
á meintri allsherjarmarkaðsmisnotk-
un Kaupþings með hlutabréf í bank-
anum séu viðskipti áðurnefnds fé-
lags, Nýræktar, í mars 2008. Þá fékk
Nýrækt lán frá Kaupþingi upp á 3,8
milljarða króna til að kaupa hluta-
bréf í bankanum.
Til rannsóknar er hvort viðskipt-
in hafi átt sér stað til þess eins að
halda uppi genginu á hlutabréfun-
um í Kaupþingi. Veðið fyrir láninu frá
Kaupþingi til Nýræktar var í hluta-
bréfunum sjálfum sem keypt voru.
Gunnar Þór er annar stjórnar-
manna og einn hluthafa Nýræktar og
sagði hann aðspurður í samtali við
DV í maí í fyrra að eigendur félagsins
hefðu haft trú á Kaupþingi þegar þeir
fjárfestu í bréfunum. „Við héldum að
þetta myndi hækka í verði og við ætl-
uðum okkur að græða á þessu. Við
ætluðum að selja þetta með hagn-
aði. Það gekk því miður ekki,“ sagði
Gunnar Þór þá.
Ætla má að fjárfesting Nýræktar í
Kaupþingi sé því töpuð – félagið hef-
ur ekki skilað ársreikningi síðan 2007
– og að afskrifa þurfi umrædda 3,8
milljarða. Þetta kemur þó ekki í veg
fyrir að móðurfélag Nýræktar geti
tekið 500 milljónir króna í arð út úr
félaginu þrátt fyrir þessa staðreynd
og tap tvö síðastliðin reikningsár.
„Það gekk því
miður ekki.
TÓKU 500 MILLJÓNIR Í
ARÐ EFTIR TVÖ TAPÁR
n Sundagarðar ehf. greiða út arð þrátt fyrir tvö tapár í röð n Einn stærsti
hluthafi Sögu Fjárfestingarbanka n Fjárfestu í Kaupþingi, CCP og Stoke
n Dótturfélag Sundagarða skuldar milljarða sem þarf að afskrifa
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Stjórnarformaður Stoke Gunnar Þór
er einna þekktastur fyrir að hafa verið
stjórnarformaður knattspyrnuliðsins Stoke á
árum áður.
Fundur Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra ásamt Eiríki Bergmann og Ómari
Ragnarssyni, kjörnum fulltrúum til stjórnlagaþings. MYND SIGTRYGGUR ARI
Skýtur á forsætisráðherra:
Biðst afsökunar
á frumvarpi
Lilja Mósesdóttir, alþingiskona
Vinstri grænna, hefur beðist afsök-
unar á þeim mistökum sem voru
gerð við meðferð frumvarps um
stjórnlagaþing á Alþingi. Lilja notar
Facebook sem vettvang afsökun-
arbeiðni sinnar
og segir: „Þegar
frumvarpið um
stjórnlagaþing-
ið var í þinginu
treysti ég á það
sem Jóhanna
kallar órofa
samstöðu innan
Samfylkingarinn-
ar og traust sam-
starf við formann
og stærstan hluta VG, enda er ég
hvorki lögfræðimenntuð né fulltrúi
VG í Allsherjarnefnd. Það voru mis-
tök og biðst ég afsökunar á því!“
Þarna var Lilja að vísa til um-
mæla sem Jóhanna Sigurðardóttir
forsætisráðherra lét falla á flokks-
tjórnarfundi Samfylkingarinnar um
að þrátt fyrir deilur innan Vinstri
grænna hefði samstarfið við stærst-
an hluta flokksins gengið vel.
Lilja Mósesdóttir
Viðhalda eigin
völdum
Félag flokksbundinna framapotara
hefur ákveðið að gefa aftur kost á
sér í kosningum til stúdentaráðs Há-
skóla Íslands. Í fréttatilkynningu frá
Skrökvu segir að stefnumál félagsins
séu hin sömu og hjá andstæðingum
þeirra, en einfaldlega betri.
Þá kemur einnig fram að félagið
telji mikilvægara að viðhalda flokka-
kerfinu og eigin völdum heldur en
að berjast fyrir hagsmunum stúd-
enta. Á meðal annarra stefnumála
eru stofnun nýs síldarbandalags við
Rússa og bygging hljóðmúrs í kring-
um Reykjavíkurflugvöll.
Í tilkynningu frá Skrökvu segir
að síðustu vikum hafi verið dyggi-
lega eytt í fjáröflun, skotgrafahernað
og djamm í stað hagsmunabaráttu.
Stúdentar þurfi nefnilega að gera sér
grein fyrir því að hagsmunir þeirra
skipti minna máli en stjórnmála-
frami framapotara í stúdentaráði.