Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2011, Blaðsíða 25
Sport | 25Mánudagur 31. janúar 2011
Gylfi kom við sögu í sigri Landsliðs-
maðurinn Gylfi Þór Sigurðsson kom inn á sem varamaður
á 86. mínútu hjá liði sínu Hoffenheim í þýsku úrvals-
deildinni um helgina. Hoffenheim vann þá góðan sigur á
stórliði Schalke, 1–0, en markið var skorað í fyrri hálfleik.
Hoffenheim er sem stendur í áttunda sæti deildarinnar
með tuttugu og níu stig, fimm stigum frá Hannover 96
sem er í fimmta sætinu. Það sæti gefur keppnisrétt í
Evrópudeildinni en þangað stefna Gylfi og félagar.
Ótrúlegur lokakafli Fram Stjarnan
fór heldur betur illa að ráði sínu í N1-deild kvenna þegar
það fékk bikarmeistara Fram í heimsókn. Stjarnan hafði
undirtökin í seinni hálfleik og leiddi með sex mörkum,
23–17, en Framkonur skoruðu sjö síðustu mörk leiksins
og unnu með einu marki, 24–23. Fram er því efst í
deildinni með 24 stig en Valskonur koma næstar með 22
og eiga leik til góða. Stjarnan er svo í þriðja sætinu með
20 stig og Fylkir hefur 18.
Úrslit
Enski bikarinn
Everton - Chelsea 1-1
1-0 Louis Saha (62.), 1-1 Salomon Kalou
(75.).
Aston Villa - Blackburn 3-1
1-0 Ciaran Clark (12.), 1-1 Nikola Kalinic (18.),
2-1 Robert Pires (35.), 3-1 Nathan Delfoun-
eso (43.).
Swansea - Leyton Orient 1-2
0-1 Jimmy Smith (35.), 1-1 Cedric van der Gun
(45.), 1-2 Alan Tate (88. sm.).
Torquay - Crawley Town 0-1
0-1 Matt Tubbs (39.).
Southampton - Man. United 1-2
0-1 Richard Chaplow (45.), 1-1 Michael Owen
(65.), 1-2 Javier Hernandez (76.).
Watford - Brighton 0-1
0-1 Ashley Barnes (16.).
Bolton - Wigan 0-0
Burnley - Burton Albion 3-1
1-0 Chris Eagles (29.), 2-0 Chris Eagles (70.),
2-1 Zola (81.), 3-1 Martin Paterson (90.).
Birmingham - Coventry 3-2
0-1 Marlon King (11.), 0-2 Richard
Wood (26.), 1-2 David Bentley (35.), 2-2
Stuart Parnaby (67.), 3-2 Kevin Phillips (74.).
Stevenage - Reading 1-2
0-1 Mikele Leigertwood (23.), 1-1 Darius
Charles (72.), 1-2 Shane Long (87.).
Sheff. Wed - Hereford 4-1
0-1 Stuart Fleetwood (9.), 1-1 Darren
Potter(15.), 2-1 Clinton Morrison (69. víti),
3-1 Jermaine Johnson (77.), 4-1 Clinton
Morrison (79. víti).
Arsenal - Huddersfield 2-1
1-0 Peter Clarke (22. sm), 1-1 Alan Lee (66.),
2-1 Cesc Fabregas (85. víti).
Úlfarnir - Stoke 0-1
0-1 Robert Huth (80.).
Notts County - Man. City 1-1
1-0 Neal Bishop (59.), 1-1 Edin Dzeko (79.).
West Ham - Nott. Forest 3-2
1-0 Victor Obinna (4.), 1-1 Dele Adebola (18.),
1-2 David McGoldrick (39.), 2-2 Victor Obinna
(41.), 3-2 Victor Obinna (51.).
Fulham - Tottenham 3-0
1-0 Danny Murphy (10.), 2-0 Danny Murphy
(14.), 3-0 Brede Hangeland (22.)
Enska B-deildin
Crystal Palace - Norwich 0-0
Hull - QPR 0-0
Heiðar Helguson var ekki í leikmannahópi
QPR.
Scunthorpe - Preston frestað
Staðan
Lið L U J T M St
1. QPR 28 14 11 3 46:18 53
2. Norwich 28 13 9 6 44:35 48
3. Cardiff 27 14 5 8 45:33 47
4. Swansea 28 14 5 9 35:26 47
5. Nottingham F. 26 12 10 4 36:22 46
6. Leeds 28 12 9 7 52:45 45
7. Watford 26 12 6 8 52:39 42
8. Millwall 28 11 9 8 37:28 42
9. Reading 27 10 11 6 41:28 41
10. Burnley 27 10 10 7 41:34 40
11. Leicester 28 11 6 11 41:46 39
12. Hull 28 9 11 8 29:30 38
13. Barnsley 28 10 7 11 33:40 37
14. Coventry 28 10 6 12 32:34 36
15. Derby 27 10 4 13 39:39 34
16. Doncaster 26 9 7 10 40:45 34
17. Bristol City 28 8 8 12 31:42 32
18. Portsmouth 27 8 7 12 38:43 31
19. Ipswich 26 9 4 13 30:36 31
20. Middlesbro 27 8 6 13 31:36 30
21. Sheffield Utd 27 7 6 14 26:43 27
22. Cr. Palace 28 7 6 15 26:47 27
23. Scunthorpe 25 7 3 15 26:44 24
24. Preston 26 5 6 15 29:47 21
Íþróttamaður ársins fór á kostum á HM:
Alexander valinn í úrvalsliðið
Alexander Petersson sýndi svo sann-
arlega hvers hann er megnugur á
heimsmeistaramótinu í handbolta
en þátttöku Ísland lauk á föstudag-
inn með tapi gegn Króatíu í leikn-
um um fimmta sætið. Alexander var
langbesti leikmaður Íslands á HM og
var hann valinn í úrvalslið mótsins
sem vinstri skytta.
Alexander var markahæsti leik-
maður Íslands með 47 mörk en þau
gerði hann úr 76 skotum sem þýðir
61 prósent skotnýting. Hann gaf auk
þess tólf stoðsendingar. Varnarlega
var hann magnaður sem fyrr og stal
hann tólf boltum auk þess að verja
tvö skot. Hann lék þriðja lengsta
tímann íslensku leikmannanna á
mótinu, samtals 6 klukkustundir
og 26 mínútur. Aðeins Björgvin Páll
Gústavsson og Guðjón Valur Sig-
urðsson léku meira. Þá fékk hann að-
eins á sig einn tveggja mínútna brott-
rekstur.
Úrvalsliðið er nokkuð fjölbreytt
en leikmennirnir sjö koma frá sex
þjóðum. Aðeins Frakkar eiga tvo
leikmenn, línumanninn Bertrand
Gille og markvörðinn ótrúlega Thi-
erry Omeyer. Skandinavar eiga fjóra
leikmenn, Frakkar tvo og Króatar
einn. tomas@v.is
Leikstaða Nafn Land
Vinstra horn: Håvard Tvedten Noregur
Hægra horn: Vedran Zrnic Króatía
Lína: Bertrand Gille Frakkland
Vinstri skytta: Mikkel Hansen Danmörk
Leikstjórnandi: Dalibor Doder Svíþjóð
Hægri skytta: Alexander Petersson Ísland
Markvörður: Thierry Omeyer Frakkland
Úrvalslið HM í Svíþjóð
Besti leikmaður Íslands Alexander fór á kostum á HM í Svíþjóð. MYND REUTERS
yrði að skora í þessum leik og það gerði
ég,“ segir Kolbeinn.
En býst nú fólk ekki við því að hann
fari að raða inn mörkum? „Það er allt-
af gott að það sé pressa á manni. Ég er
bara sáttur við það. Fólk kannski held-
ur að maður skori þrjú til fjögur mörk í
leik en það verður nú ekki. Ég er fram-
herji og sem slíkur stefni ég alltaf á að
skora. Ég vona nú samt að fólk haldi
ekki að ég sé að fara skora fimm í hverj-
um leik,“ segir Kolbeinn.
Skoðar sín mál í sumar
Kolbeinn samdi við AZ Alkmaar sum-
arið 2007 og er því á sínu fjórða ári hjá
félaginu. Honum líkar lífið vel í Hol-
landi. „Mér líður bara mjög vel, sér-
staklega þegar ég er að spila. Það er
ekkert skemmtilegra en þegar maður
er að spila fóbolta. Ég byrjaði illa hjá
félaginu og var mikið meiddur. Það er
samt allt miklu auðveldara þegar mað-
ur er að spila. Það er bara virkilega fínt
að vera hérna í Hollandi. Hér er ég bú-
inn að vera í fjögur ár. Ég stefni á að
klára þetta tímabil og skoða svo í sum-
ar hvað verður gert. Ég á eitt ár eftir af
samningnum þannig að kannski verð
ég áfram og það væri allt í lagi.“
Eftir leikinn gegn VVV var Kolbeinn
tekinn í viðtal af hollenskri sjónvarps-
stöð en þar talaði framherjinn ungi
hollenskuna reiprennandi. „Það tók
mig svona ár að komast inn í hana og
núna er ég að slípa hana til. Þetta er
kannski ekki skemmtilegasta tungu-
málið að tala en hún er fín,“ segir Kol-
beinn kátur.
Hjá AZ er annar Íslendingur, væng-
maðurinn Jóhann Berg Guðmunds-
son, sem einmitt skoraði eina mark
leiksins sem Kolbeinn setti ekki sjálfur.
Kolbeinn segir þá félaga eyða miklum
tíma saman og reyna að hjálpa hvor
öðrum innan sem utan vallar. Einnig
ferðast þeir ávallt saman í landsleiki,
bæði með A-liðinu og U21. „Við erum
búnir að spila fótbolta saman nánast
frá því við vorum á leikskóla. Við erum
góðir félagar og það er gaman að vera
með Jóa með sér í þessu,“ segir Kol-
beinn.
SVARAÐI ÞJÁLFARANUM
MEÐ FIMM MÖRKUM „Þjálfarinn sagði við mig að ég yrði að skora í þessum leik og það gerði ég.
Lífshlaup Kolbeins
Sigþórssonar
n 1990 Fæðist í Reykjavík 14. mars
n 1995 Byrjar að æfa knattspyrnu með Víkingi
n 1998 Spilar ár upp fyrir sig á Shellmótinu í Eyjum en verður
markakóngur með sextán mörk
n 1999 Verður markakóngur Shellmótsins annað árið í röð ásamt
Birni Jónssyni, ÍA, með fimmtán mörk
n 2000 Leiðir Víking til sigurs á Shellmótinu og verður marka-
kóngur þriðja árið í röð með 25 mörk. Enginn annar hefur orðið
markakóngur ofter en einu sinni
n 2003 Æfir með unglingaliði Arsenal í eina viku. Skoraði
eitt mark og lagði upp tvö í æfingaleik. Boðið að koma
aftur
n 2004 Fer aftur út til Arsenal og skorar eitt marka
U17 ára liðsins í 6–1 sigri á Southampton á gamla
Wembley
n 2005 Yfirgefur Víking eftir meiðslum hrjáð
tímabil með þriðja flokki Víkings og gengur í raðir
HK
n 2006 Spilar sinn fyrsta meistaraflokksleik
fyrir HK 7. júlí, sextán ára að aldri, gegn Víkingi
Ólafsvík í 1. deildinni og skorar sitt fyrsta mark
n 2006 Spilar sinn fyrsta U17 ára landsleik fyrir
Ísland 31. júlí og er í byrjunarliðinu í 5–2 sigri
gegn Finnlandi á Norðurlandamótinu
n 2007 Skorar sín fyrstu mörk fyrir U17 ára
landsliðið í 2–2 jafntefli gegn Norður–Írum
19. mars
n 2007 Tilboð berst frá enska úrvalsdeild-
arliðinu Arsenal í maí en ekkert verður úr
því að Kolbeinn fari þangað
n 2007 Semur við hollenska liðið AZ
Alkmaar til þriggja ára 20. júní en tíu
skrifleg tilboð bárust í Kolbein
n 2007 Valinn í U21 árs landsliðið
sautján ára gamall og spilar í
riðlakeppni EM gegn Kýpur
n 2008 Góð byrjun með varaliði AZ
eftir meiðslum hrjáð fyrsta tímabil.
Skorar fimm mörk í tveimur leikjum og
samningurinn er framlengdur um tvö ár
í ágúst
n 2009 Fer á kostum með varaliði AZ
og raðar inn mörkum. Spilar þrjá leiki
með U21 árs landsliðinu og skorar
eitt mark
n 2010 Spilar áfram með varaliði
AZ og skorar reglulega
n 2010 Spilar sinn fyrsta A-lands-
leik gegn Færeyjum í Kórnum og
skorar sitt fyrsta landsliðsmark í
2–0 sigri á Færeyjum í mars
n 2010 Skorar sitt annað lands-
liðsmark í sínum þriðja landsleik
gegn Andorra á Laugardalsvellinum
í maí
n 2010 Er byrjunarliðsmaður í U21
árs liði Ísland sem vinnur í fyrsta
skipti sæti á EM
n 2010 Spilar sinn fyrsta mótsleik
með aðalliði AZ Alkmaar gegn
IFK Gautaborg í Evrópudeildinni
n 2010 Skorar sitt
fyrsta mark fyrir
AZ Alkmaar gegn
Excelsior í hollensku
úrvalsdeildinni 29.
ágúst
n 2011 Skorar fimm mörk
gegn VV Venlo og jafnar 34 ára
gamalt met hjá félaginu
Markamaskína Kolbeinn Sigþórsson er
bróðir Andra Sigþórssonar. Hann er búinn
að skora þrjú mörk í fimm landsleikjum
með Íslandi. MYND REUTERS