Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2011, Síða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2011, Síða 13
Fréttir | 13Mánudagur 31. janúar 2011 fór gaumgæfilega yfir það að hon- um bæri að hætta að keyra og ég varð vitni að því. En sjúklingurinn gat alveg farið þvert á þessi tilmæli því hann hafði fullgild ökuréttindi. Í raun er verið að setja fullt traust á viðkomandi. Mér þætti reyndar forvitnilegt að sjá hvernig málið stæði fyrir dómi þegar viðkomandi fer á skjön við tilmæli læknis og heldur áfram að keyra. Ekki það, fólk á ekki að taka ákvarðanir út frá því hvort það geti fengið dóm eða sekt. Skynsemin og ábyrgðin á að skipta máli, maður ber ábyrgð á lífi sínu og annarra.“ Hann bendir á að okkur öllum beri borgaralega skylda til að láta vita ef ökumaður er vanhæfur til að stjórna ökutæki. „Ég tel að sú skylda eigi líka við um lækna. Að mínu mati ber þeim siðferðisleg skylda til að koma í veg fyrir að viðkomandi fari út í umferðina þegar þeir verða þess varir að tilmælum þeirra er ekki hlýtt. Dómgreind manna á að segja þeim hvenær þeir eigi að láta lög- reglu vita.“ Ástandið oftast þekkt fyrir slys Af þeim þrettán banaslysum sem rannsóknarnefndin rannsakaði á ár- unum 1999 til 2007, þar sem megin- orsök slyssins var veikindi ökumanns- ins var ástand ökumannsins nánast alltaf þekkt fyrir slysið, eða í ellefu tilvikum af þrettán. Aðeins í tveim- ur tilvikum var ástand ökumannsins óþekkt, í öðru þeirra var ökumaður- inn flogaveikur en í hinu með hjarta- eða æðasjúkdóma þannig að hann fékk aðsvif eða slag undir stýri. Samtals urðu fimm slík slys á þessu tímabili, tveir voru flogaveik- ir og tvisvar sinnum var ökumað- ur haldinn kæfisvefni. Í tveimur tilfellum voru geðræn vandamál or- sök slyssins þar sem ökumenn voru annaðhvort í tilfinningalegu ójafn- vægi eða undir áhrifum geðdeyfðar- lyfja og í báðum tilvikum var talið að ökumennirnir hefðu framið sjálfs- víg. Tveir ökumenn höfðu sykursýki og var talið að þeir hefðu orðið fyrir sykurfalli við akstur, lognast út af og valdið árekstrum. Eins og fyrr segir var nánast allt- af vitað af ástandi ökumannsins, ökumenn höfðu fengið greiningu og meðhöndlun lækna en mismunandi var hve lengi þeir höfðu átt við um- rædd veikindi að stríða. Í einu tilviki átti atvinnubílstjóri langa sjúkrasögu en hafði fengið starfshæfnivottorð hjá lækni eftir veikindafrí skömmu áður en slysið varð. Hafa heimild til að tilkynna sjúklinga Í umferðarlögum segir meðal ann- ars: „Ökumaður skal vera líkam- lega og andlega fær um að stjórna ökutæki því, sem hann fer með. Enginn má stjórna eða reyna stjórna ökutæki, ef hann vegna veikinda, hrörnunar, ofreynslu, svefnleysis, neyslu áfengis eða annarra örvandi eða deyfandi efna eða annarra orsaka er þannig á sig komin, að hann er ekki fær um að stjórna ökutæki örugglega.“ Útgef- andi getur afturkallað ökuréttindi ef ökumaður uppfyllir ekki lengur skilyrði fyrir veitingu ökuréttinda. Lagaleg ábyrgð lækna er aftur takmörkuð, þó að lagalegar heim- ildar séu fyrir því að rjúfa þag- mælsku vegna brýnnar nauðsynj- ar. Ef hætta er á ofbeldi hafa þeir tilkynningaskyldu sem er rökstudd með því að það þurfi að vernda saklausa borgara sem eru ekki í aðstöðu til að verja sig. Það gæti líka átt við um vegfarendur í um- ferðinni sem geta ekki varið sig gagnvart hættunni sem skapast af óhæfum ökumönnum. „Enda er kveðið á um það í drögum að nýj- um umferðarlögum sem liggja nú fyrir hjá ráðuneytinu að læknir til- kynni slík mál til trúnaðarlækn- is Umferðarstofu, sem á að skipa samkvæmt nýju lögunum,“ segir Einar Magnús. Veigra sér við vandanum Það getur nefnilega verið óþægi- leg staða fyrir lækna að þurfa að takast á við þennan vanda og þeir hafa sjálfir talað um tregðu til að blanda sér í slík mál, af ótta við að stofna trúnaðarsambandi sínu við sjúklinginn í hættu, eins og kom til dæmis fram í grein um ökumenn með heilabilun sem Helga María Hallgrímsdóttir og Jón Snædal skrifuðu í Læknablað- ið árið 2002. Landlæknir tók einn- ig í sama streng þegar hann sagði í samtali við blaðamann: „Þegar læknir hefur verið heimilislæknir einstak lings um árabil er það oft- ast þannig að hann nálgast þennan vanda með því að reyna að komast að sameiginlegri niðurstöðu með viðkomandi.“ Óþægilegt fyrir alla Staðan er ekki bara óþægileg fyr- ir lækna. Í grein sinni fara þau Helga María og Jón líka vel yfir það hversu erfitt það geti verið að taka völdin af nánum fjölskyldumeðlim og stöðva akstur hans. Þau segja ákvörðunina jafnvel þá erfiðustu sem fjölskyldur þurfi að taka. Akst- ur sé mikilvægur þáttur í nútíma- samfélagi, sá samgöngumáti sem flestir eldri borgarar kjósi og mikil- vægur fyrir sjálfstæði þeirra. Miss- ir réttinda hafi tilfinningalegar og hagrænar afleiðingar í för með sér og geti leitt til félagslegrar einangr- unar og þunglyndis. Óþægindi geti skapast vegna daglegra athafna og þátttöku í félags- og tómstunda- starfi. Viðkomandi verði öðrum háður og geti upplifað sig sem byrði. Neikvæðar tilfinningar um eigin verðleika geti komið fram. Auk þess sem missir ökuleyfis geti haft áhrif á fleiri því maki, vinir, aldraðir ættingjar og jafnvel full- orðin börn geti verið háð því að ökumaðurinn geti keyrt. Ók á öfugri akrein til læknis Guðrún Sveinsdóttir þekkir þetta af eigin raun. Maðurinn hennar veikt- ist þegar hann var 55 ára. Þá fékk hann blóðtappa í heila og lamað- ist hægra megin. Smám saman fékk hann aftur smámátt í líkamann og gat því gengið. „En bílprófið var ekki tekið af honum. Það gerði ég,“ segir hún. „Einu sinni þurfti hann að fara niður í Lágmúla á hjartadeildina í blóðþrýstingsmælingu og skoðun. Hann fór einn því hann mátti keyra en lenti í því að aka eftir öfugri ak- rein. Einhvern veginn, sennilega með hjálp einhvers, komst hann yfir á réttan vegarhelming og á áfanga- stað. Við það að fara yfir á rangan vegarhelming náði streitan tökun- um á honum og blóðþrýstingurinn hækkaði. Hann mældist með 200 í neðri mörkum og ég veit ekki hvað í efri mörkum en læknirinn sagði honum að fara heim, slaka á og koma aftur seinna. Átti hann ekki að senda hann heim í leigubíl? Mað- urinn var ekki fær um að aka bíl. Mér fannst þetta svakalega léleg af- greiðsla.“ Með hjartað í buxunum Hún ræddi það ekki við fjölskylduna en hún hafði stöðugar áhyggjur af honum í umferðinni. „Ég verð að segja eins og er að ég var alltaf með lífið í lúkunum og hjartað í buxunum þegar hann var að keyra. Í raun var það ekki mitt að ná af honum ökuskírteininu en læknarn- ir tóku það aldrei af honum þannig að ég gerði það á endanum. Þú hætt- ir ekki að keyra nema skírteinið sé tekið af þér því þú ert ekki dómbær á eigin getu þegar þú ert orðinn veik- ur. Það verður einhver að hafa vit fyr- ir þér,“ segir hún ákveðin. Einar Magnús tekur undir það og segir það skiljanlegt. „Þú getur ímyndað þér að þú fáir úrskurð frá lækni sem segir að þú megir ekki keyra en þér finnst þú vera í fínu formi. Þetta er ekki eins einfalt og ég vildi óska. Meginorsök slysa er að fólk ofmetur eigin hæfni.“ Hræddi hann til að hætta Guðrúnu reyndist ekki auðvelt að fá eiginmanninn til þess að hætta að keyra þótt það hafi á endanum tek- ist. „Ég hræddi hann og sagði að það myndi enda með því að hann fengi heilablóðfall ef hann héldi þessu áfram. Þannig náði ég ökuskírtein- inu af honum en það tók mig lang- an tíma. Ég tók aldrei þá umræðu að hann hefði gert vitleysu en talaði um að hann hefði ekki heilsu til að keyra og hræddi hann til þess að hætta því. Það var kannski kvikindisháttur, en hvað átti ég að gera? Þetta virkaði. Ég held að hann hafi nú samt ekki verið mjög þakklátur fyrir það.“ Tekur frekar leigubíl Sjálf minnist hún alltaf varnaðar- orða sem hún fékk að heyra þegar hún tók bílprófið. „Um leið og mér var óskað til hamingju með prófið var mér sagt að nú væri ég komin með drápsvopn í hendurnar. Þetta var nú svolítið svakalegt en þetta var alveg rétt. Ég hef keyrt í fimmtíu ár og var lengi eini bílstjórinn á heimilinu. All- an þann tíma hef ég haft það mottó að keyra ekki ef ég er lasin eða illa fyrirkölluð. Frekar tek ég leigubíl. Ég vil miklu heldur gera það en að lenda í slysi. Maður á ekki að keyra ef heils- an er ekki í lagi.“ Banaslys af völdum veikinda ökumanns á árunum 1999-2007 Flokkur Fjöldi Þekkt ástand fyrir slys Hjarta- og æðasjúkdómar 5 4 Geðræn vandamál 2 2 Sykursýki 2 2 Flogaveiki 2 1 Kæfisvefn 2 2 Alls 13 11 (UPPLÝSINGAR FRÁ UMFERÐARSTOFU) Banaslys af völdum veikinda ökumanns Fjöldi alvarlegra umferðarslysa 2002–2010 Ár Banaslys Alvarleg slys 2002 22 124 2003 20 115 2004 20 97 2005 16 106 2006 28 121 2007 15 163 2008 12 158 2009 15 150 Jan–nóv 2010 5 155 Samtals 153 1189 (UPPLÝSINGAR FRÁ UMFERÐARSTOFU) Alvarleg slys MEÐ DRÁPSVOPN Í HÖNDUNUM 1. janúar 2002 til 30. nóvember 2010. Banaslys Alvarleg slys Slys með litlum óhöppum Óhöpp án meiðsla Samtals Lyfjanotkun – lögleg lyf 8 13 42 201 264 Andleg veikindi 1 3 13 46 63 Svefn 9 42 168 369 588 Flogaveiki 0 0 12 29 41 Líkamleg veikindi 11 11 66 121 209 Andlát undir stýri 1 0 2 1 4 Samtals 30 69 303 767 1.169 (UPPLÝSINGAR FRÁ UMFERÐARSTOFU) Fjöldi slysa vegna veikinda ökumanns Banaslys af völdum áfengis eða vímuefna n Á árunum 2005–2009 urðu 86 banaslys í umferðinni n Áfengi, lyf og fíkniefni koma við sögu í 34 slysum, eða 40% banaslysa í umferðinni n Lögleg lyf koma við sögu í 6 banaslysum, ein og sér eða með áfengi n Oftast er um svefnlyf eða róandi lyf að ræða n Ólögleg fíkniefni koma við sögu í 5 banaslysum, ein og sér eða með áfengi n Amfetamín, alsæla, kannabis og kókaín hafa komið við sögu og amfetamínið oftar en hin „Læknir á taugadeild fór gaumgæfilega yfir það að honum bæri að hætta að keyra og ég varð vitni að því. En sjúklingurinn gat alveg farið þvert á þessi tilmæli því hann hafði fullgild ökuréttindi. Í raun er verið að setja fullt traust á viðkomandi. „Ég tók aldrei þá umræðu að hann hefði gert vitleysu en talaði um að hann hefði ekki heilsu til að keyra og hræddi hann til þess að hætta því. Það var kannski kvikindisháttur, en hvað átti ég að gera? Oftast vitað af ástandi ökumanns Í ellefu banaslysum af þrettán sem Rannsóknarnefnd umferðarslysa skoðaði, þar sem veikindi ökumanns voru meginorsök slyssins, var vitað af slæmu ástandi hans fyrir slysið en ekki gripið inn í með afgerandi hætti.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.