Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2011, Page 20

Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2011, Page 20
20 | Fókus 31. janúar 2011 Mánudagur Verslingar setja Drauminn á svið: Mun frægðarsólin rísa? Nemendamót Verslunarskóla Íslands hefur verið haldið ár hvert síðastliðin 79 ár. Hápunkt- ur nemendamótsins hefur undanfar- in ár verið leikrit sem sett er á svið, bæði fyrir nemendur og aðra áhuga- sama gesti. „Þetta gengur ljómandi. Við erum að setja sýninguna saman á sviðinu, púsla þessu saman,“ segir Sigríður Dagbjört Ásgeirsdóttir, for- maður nemendamótsnefndar Versl- unarskólans. Hún segir að sýningin í ár sé full af hæfileikaríkum krökk- um en margar íslenskar stjörnur hafa stigið sín fyrstu skref í nemendamóts- sýningum skólans. Spurning er hvort slík stjarna stígi fram í ár þegar skól- inn setur á svið Drauminn í leikstjórn Orra Hugins Ágústssonar, sem byggt er á Draumi á Jónsmessunótt, eftir Will iam Shakespeare. Friðrik Dór Jónsson tónlistarmað- ur og Ólöf Jara Skagfjörð eru meðal þeirra sem hafa tekið þátt í nemenda- mótssýningum síðustu árin. Frægð- arsól þeirra beggja hefur risið hratt frá því að þau tóku þátt í sýningunum, Ólöf Jara Skagfjörð sem leikkona og Friðrik Dór sem tónlistarmaður. Védís Hervör Árnadóttir og Þorvaldur Dav- íð Kristjánsson tóku þátt í nemenda- mótssýningunum, en bæði þóttu þau slá í gegn í hlutverkum sínum. Þorvaldur Davíð þótti strax þá einn efnilegasti leikari landsins, en hann stundar nú nám við hinn virta Juilli- ard-listaskóla í Bandaríkjunum. Þá hafa nokkrir leikstjórar stigið sín fyrstu skref í leikstjórn í tengsl- um við nemendamótið, en þar má meðal annarra nefna Selmu Björnsdóttur, söng- og leikkonu, en hún leikstýrði söngleiknum Sextán. Síðan hefur hún meðal annars verið leikstjóri í Þjóðleik- húsinu og víðar. Á meðan áhorfendur tínast inn í salinn standa leikend- ur á sviðinu – það er leikið á sléttu gólfi Nýja sviðsins fyrir upphækkuðum áhorfendapöllum – og horfa á okkur þungbúnir á svip. Manni hálfbregður; ætli maður hafi gert eitthvað af sér? Og þegar maður tekur upp leikskrána verður svipað uppi á teningnum: af forsíðu hennar stara sömu ásjónur á móti okkur líkt og á passamyndum, mjög alvöru- gefnar, eins og allar áhyggjur heims- ins hvíli á herðum þeirra. Já, hugsar áhorfandinn, það er greinilega ekk- ert hopp og hí og trallalla í vændum. Sú verður ekki heldur raunin. Leikritið Elsku barn, Taking Care of Baby, eftir breska leikskáldið Dennis Kelly, fjallar um konu sem er dæmd fyrir að hafa ráðið tveimur ungbörn- um sínum bana. Dómurinn er reistur á kenningu sálfræðings nokkurs um ákveðið heilkenni sem konan á að vera haldin; sjálf heldur hún statt og stöðugt fram sakleysi sínu, að börnin hafi dáið hinum óskiljanlega vöggu- dauða. Kenning sálfræðingsins reyn- ist bull og vitleysa, eins og svo margt í þeim vísindunum, og konan er sýknuð eftir nokkurra ára fangels- isvist. En þá er líf hennar vitaskuld í rúst, eiginmaðurinn farinn frá henni og hún á í rauninni engan að annan en móður sem er alger hryllingur. Þetta er nöturlegt efni og verður ekki hugþekkara í höndum Kellys. Leikurinn er settur upp sem einhvers konar stæling á heimildaleik – efn- ið er að nokkru sótt í þekkt breskt sakamál og dómsmorð sem menn geta lesið sér til um í leikskránni – eða réttarhaldi; leikskáldið kemur sjálft fram í mynd raddar sem hljóm- ar aftan úr salnum og yfirheyrir jafn- vel persónurnar í sumum atriðanna. Hann er í rauninni ein af persónun- um frá upphafi. Eintöl og ræðuhöld eru annars meginuppistaða verks- ins, en byggingin er óreiðukennd, það er hlaupið úr einu í annað, í tíma og rúmi; maður verður á köflum hálfringlaður og sumt er enn hálf- óljóst í huga manns, þegar upp er staðið. Meginatriði sögunnar raðast þó sæmilega skýrt upp. En um sekt konunnar eða sakleysi skilur skáld- ið okkur eftir í óvissu. Rétt eins og dómararnir í slíkum málum getum við aldrei verið hundrað prósent ör- ugg. Það er eins gott að þurfa ekki að kveða upp neinn úrskurð. Það er tvennt sem mér finnst aðallega að þessu leikriti. Í fyrsta lagi eru flestar persónurnar lítt áhuga- verðar eða aðlaðandi. Í öðru lagi er eins og höfundi liggi alltof margt á hjarta; honum dugar ekki aðeins að taka fyrir hið siðferðislega álita- efni sem tengist harmsögu móður- innar ungu, hann þarf líka að setja dómsdag yfir breskri pólitík, sið- lausri pressu, vísindamönnum sem nota fræðin til að upphefja sjálfa sig fremur en að leita sannleikans, hjálpa fólki. Honum er sérstaklega í nöp við afstæðishyggju nútíma hug- og félagsvísinda og kemur þeirri van- þóknun sinni svo skýrt til skila sem verða má. Þegar öllu þessu hefur ver- ið dembt í einn pakka er ekki laust við að hann sé kominn í talsverða yfirvikt – eins þótt leikstjórinn hafi strikað eitt og annað út úr texta höf- undar. Hvað fyrra atriðið varðar, hinar ógeðfelldu persónur, má vissulega svara því til á móti, að ágæt leikrit hafi verið skrifuð um slíkt fólk. Það er rétt, en þá verða menn að gá að einu: í slíkum leikritum er eitthvað sem vegur upp á móti ljótleikanum: hrífandi póesía, ljóðræna, áhuga- verð táknfærsla; það getur verið svo margt. Í leik Kellys er ekkert slíkt að finna. Á sviðinu hlýtur það því að standa eða falla með úrvinnslu leik- hússins. Og hér hefur vel til tekist: fjölbreytileg sviðsetning Jóns Páls Eyjólfssonar og stílhrein leikmynd Ilmar Stefánsdóttur eru einstaklega fallega unnin verk, og sama gildir um ljós og tóna sem styrk hönd leikstjór- ans heldur fast utan um. Þessi vinnu- brögð bjarga kvöldinu, gera stundina bærilega, en þau koma ekki í stað þess sem á vantar í skáldskapnum. Svipað gildir um frammistöðu leikenda. Unnur Ösp Stefánsdótt- ir hefur líkast til aldrei gert betur en í hlutverki hinnar dæmdu móður. Og ég veit ekki hvort það er hægt að fá meira út úr leiðindakellingunni móður hennar en Halldóra Geir- harðsdóttir gerir, þessu pólitíska prumphænsni sem skirrist ekki við að nýta sér ógæfu dótturinnar sér til framdráttar – ef ég hef skilið mein- ingu höfundar rétt. Halldóra sýnir enn og aftur að hún á að fá að leika burðugri hlutverk en leikhússtjórar hafa boðið henni í mörg ár. Bene- dikt Erlingsson var stórgóður í hlut- verki vonda vísindamannsins, ekki síst í yfirheyrslunni eftir hlé; mað- ur var beinlínis farinn að vorkenna karltuskunni þar sem hann iðaði í skinninu undir miskunnarlausum spurningum dómarans. Nína Dögg Filippusdóttir skilaði hlutverki hinn- ar subbulegu blaðakonu snyrtilega; úr vandræðalegu hlutverki eigin- konu vísindamannsins gat hún lít- ið gert. Og Valur Freyr Einarsson var frekar skringilegur sem vinur móð- urinnar og hlaupasnati. En bestur var Hallgrímur Ólafs- son sem eiginmaður konunnar, fað- ir hinna dánu barna. Ég hugsa að hlutverkið sé einnig það best skrif- aða í leiknum. Þetta er hversdags- maður sem lendir í aðstæðum sem hann hvorki skilur né höndlar; hann berst lengi gegn frekjunni í höfund- inum sem vill fá að hitta hann til að pumpa hann um líf hans, rífa ofan af sárum sem aldrei munu gróa, en gefst að lokum upp og opnar sig í löngu samtalsatriði þar sem hann gefur okkur hlutdeild í sársauka sín- um og kvöl. Þetta var frábærlega vel túlkað af Hallgrími, og auðheyrt og fundið að í salnum voru ýmsir djúpt snortnir. Það hefur verið gaman að fylgjast með þessum unga leikara frá því hann byrjaði hjá Leikfélagi Akur- eyrar, fór síðan í Borgarleikhúsið með Magnúsi Geir; hversu vel hann hef- ur nýtt öll tækifæri sem hann hefur fengið, bæði í alvöru og skopi, og vax- ið jafnt og þétt. Með sama áframhaldi stefnir hann í að verða stór dramat- ískur leikari; hann hefur alla tilfinn- ingalega og vitsmunalega burði til þess, eða annað fæ ég ekki ráðið af því sem ég hef séð til hans. En það er auðvitað allt undir því komið að leik- húsið búi vel að honum. Elsku barn er annað leikrit Dennis Kelly sem hér er leikið. Hitt var lítið þriggja manna verk sem nokkrir ung- ir leikarar sýndu í Norræna húsinu í fyrravetur. Það var hnitmiðað klass- ískt átakadrama, kammerleikur fyr- ir lítið svið, og mér fannst það miklu betra verk en þetta. Sumir grétu Elsku barn Leikfélag Reykjavíkur Höfundur: Dennis Kelly Þýðandi: Hafliði Arngrímsson Leikstjóri: Jón Páll Eyjólfsson Leikmynd og Búningar: Ilmur Stefánsdóttir Lýsing: Þórður Orri Pétursson Tónlist og hljóðmynd: Hallur Ingólfsson Leikrit Jón Viðar Jónsson í salnum Góð frammistaða leikara Unnur Ösp Stefánsdóttir hefur líkast til aldrei gert betur en í hlutverki hinnar dæmdu móður en bestur var Hallgrímur Ólafsson sem eiginmaður konunnar, faðir hinna dánu barna. Apakötturinn á Rás 1 Útvarpsleikritið Apakötturinn verður flutt á Rás 1 á fimmtudagskvöld klukkan 22.15. Um er að ræða gamanleik með söngvum eftir eina vinsælustu leikkonu Dana á 19. öldinni, Johanne Luise Heiberg, en hún var jafnframt virtur leikstjóri. Leikendur eru Haraldur Björnsson, Guðbjörg Þorbjarnardóttir, Inga Þórðardóttir, Brynjólfur Jóhannesson og Jón Sigurbjörnsson. frumsýnd á Íslandi Loksins, loksins verður hinn umtal- aði Svarti svanur frumsýndur hér á landi þann 4. febrúar næstkomandi. Natalie Portman hefur verið tilnefnd til Óskarsverðlauna fyrir leik sinn í myndinni sem er víst magnaður sál- fræðitryllir ef marka má dóma ytra. Natalie fer með hlutverk Ninu sem er ballettdansmær við New York City -ballettinn. Líf hennar snýst allt um ballett og þeim þrönga heimi deilir hún með stjórnsamri móður sinni, Ericu, fyrrverandi ballerínu. Andlit að austan á útsölu Í Listasafni Íslands er lagersala á listaverkabókum og kortum. Þar er allt að 70 prósenta afsláttur gefinn og listunnend- ur ættu að geta gert góð kaup. Sem dæmi má nefna bókina Ljósbrigði um verk Ásgríms Jónsson- ar, bók um Guðmundu Andrésdóttur, Júlíönu Sveinsdótt- ur, og bókina Andlit að austan. Í Andlitum að austan eru teikningar Jóhannesar S. Kjarval af alþýðu- fólki á Borgarfirði eystra, sem hann gerði árið 1926 og skipa sérstakan sess í íslenskri listasögu og teljast meðal gersema safnsins. Lagersal- an stendur yfir til 31. janúar. sigrar heiminn Litla tuskubrúðan Sackboy, úr tölvu- leiknum LittleBigPlanet, hefur sigrað heiminn. Leikurinn er með þeim allra vinsælustu sem gefnir hafa verið út hin síðari ár og þótti vera ákveðin bylting því að í honum reynir mikið á sköpunarkraft þeirra sem spila. Leikmenn geta búið til sín eigin borð. Nú er kominn út nýr leikur með nýj- um söguþræði og enn er Sackboy í aðalhlutverki. Líkt og í fyrri leiknum geta leikmenn búið til sín eigin borð, en nú er farið skrefinu lengra og geta leikmenn búið til sína eigin leiki – skot- leiki, bílaleiki, has- arleiki eða í raun hvað sem hugur- inn girnist. Hér er því á ferðinni enn önnur byltingin frá smiðum þessa leiks. Black Swan Tuskubrúða Stífar æfingar Nemendur Verslunarskólans undirbúa nú af fullum krafti næstu sýningu nemendamótsins. MYND SNORRI BJÖRNSSON

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.