Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2011, Qupperneq 24

Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2011, Qupperneq 24
24 | Sport Umsjón: Tómas Þór Þórðarson tomas@dv.is 31. janúar 2011 Mánudagur Tottenham snýr sér að Llorente n Harry Redknapp, knattspyrnustjóri Tottenham, ætlar sér að landa framherja áður en janúarlugginn lokast og virðist sá eiga að vera í dýrari kantinum. Redknapp hefur alltaf verið mjög hrifinn af „stór- lítill“-blöndunni. Tilboði Tot- tenham í hinn sjóðheita Andy Carroll var hafnað og beinir Harry nú sjónum sínum að spænska landsliðsmanninum Fernando Llorente hjá Athletic Bilbao. Er Totten ham búið að bjóða 23 milljónir punda í kappann en því var hafnað um hæl. Djokovic fór létt með Murray n Serbinn Novak Djokovic landaði fyrsta risatitli ársins í tennis þegar hann lagði Bretann Andy Murray í úrslitaleik opna ástralska meistaramótsins í þremur settum. Þurfa Bretar því að bíða enn um sinn eftir risatitli í tennis en biðin er nú þegar orðin 75 ár. Djokovic fór létt með Murray í úrslitunum og vann settin þrjú: 6–4, 6–2 og 6–3. Djokovic fór hreinlega á kostum á mótinu og tapaði aðeins einu setti. Síðustu þrjár viðureignir sínar gegn Tomas Berdych, Roger Federer og Murray vann hann samanlagt, 9–0. Á heima í fjórum efstu sætunum n Úrúgvæski framherjinn Luis Suarez er hæstánægður með að hafa landað samningi við Liverpool og hlakkar mikið til þess að hefja leik með því. Í viðtali við Sky Sports fóru allar gömlu tuggurnar af stað. „Þetta er frábært tækifæri fyrir mig. Liverpool er fallegur klúbbur og hér vilja allir spila. Liverpool er alltaf í Meistara- deildinni eða Evrópudeildinni og á heima á meðal þeirra fjögurra efstu á Englandi,“ sagði Suarez. Úrúgvæ- inn á þó líklega einn leik eftir með Ajax og kveður liðið um helgina í leik gegn NAC. Torres verður launahæstur n Enska úrvalsdeildarliðið Chelsea hefur ekki verið nískt þegar kemur að launum sinna helstu stjarna. Hefur margoft komið fram að bæði John Terry og Frank Lampard þéni um og yfir 150.000 pund á viku. Breskir miðlar héldu því þó fram í gær að nái Fernando Torres sínu fram og semji við Chelsea verði hann gerður að launahæsta leikmanni liðsins. Vildu sum blöð meina að hann fengi allt að 200.000 pundum í vikulaun. Molar ÍBV og Keflavík leika til úrslita ÍBV lagði FH, 3–2, og Keflavík vann HK, 4–2, í lokaumferð riðlakeppni Fótbolta.net-mótsins sem fram fór um helgina. Tryggðu liðin sér því efstu sæti riðlanna og leika fyrsta úrslitaleikinn í þessu nýja æfingamóti. ÍA hafði sigur á Stjörnunni, 1–0, og leikur um þriðja sætið við hitt fyrstu deildar liðið á mótinu, HK. Grindavík, sem vann Breiðablik 1–0, um helgina, mætir Garðbæingum í leiknum um fimmta sætið en Íslandsmeistarar Breiðabliks og bikarmeist- arar FH bítast um neðstu tvö sætin. Lék allan leikinn gegn Arsenal Jóhannes Karl Guðjónsson var í byrjunarliði Huddersfield, sem leikur í þriðju efstu deild, sem tapaði gegn Arsenal, 2–1, í ensku bikarkeppninni í gær á Emirates-vellinum í Lundúnum. Arsenal komst yfir í fyrri hálfleik með sjálfsmarki en missti miðvörðinn Sebastien Squillaci af velli. Huddersfield jafnaði metin í seinni hálfleik með marki Alan Lee. Tíu leikmenn Arsenal komust þó áfram með marki úr vítaspyrnu undir lok leiksins en úr henni skoraði fyrirliðinn Cesc Fabregas. Danir þurftu að sætta sig við silfrið eftir tap í framlengdum úrslitaleik: Frakkar vörðu titilinn í handbolta Frakkland varð í gær heimsmeist- ari í handbolta eftir sigur á Dönum í framlengdum úrslitaleik, 37–35. Frakkar voru skrefinu á undan all- an tímann en Danir gáfust ekki upp og skaut Bo Spelleberg þeim inn í framlengingu með marki á loka- sekúndu leiksins, staðan 31–31 eft- ir venjulegan leiktíma. Í framleng- ingunni reyndust Frakkar sterkari á lokasprettinum og unnu 37–35. Munaði þar um þegar marvörður- inn magnaði Thierry Omeyer varði tvisvar, þótt hann væri ekki upp á sitt besta í leiknum. Leikurinn var hreint út sagt stór- kostleg skemmtun þar sem skær- ustu stjörnur beggja liða, Nicola Karabatic hjá Frökkum og Mikkel Hansen hjá Dönum, fóru hreinlega á kostum. Báðir skoruðu tíu mörk, ekkert þeirra úr vítaköstum. Fór Hansen svo illa með Frakkana að Claude Onesta, þjálfari Frakklands, brá á það ráð að taka hann úr um- ferð í lokakafla leiksins. Herbragð sem tókst á endanum. Ef einhver stimplaði sig inn var það markvörður Dana, hinn ungi Niclas Landin. Hann varði tuttugu skot og hélt Dönum hreinlega inni í leiknum á kafla. Eru Danir þar svo sannarlega búnir að finna sér fram- tíðarmarkvörð. Þetta er í fyrsta skiptið í fjörutíu og sjö ár sem lið ver heimsmeistara- titil. Það gerðist þegar Rúmenía varð heimsmeistari árið 1970 í Frakk- landi og aftur fjórum árum síðar í Austur-Þýskalandi að liði tókst að vinna tvö heimsmeistaramót í röð. Frakkar eru sem fyrr ríkjandi Evr- ópu-, heims- og ólympíumeistarar. tomas@dv.is Langbestir Frakkar hafa nú unnið síðustu fjögur stórmót og eru handhafar allra titla. MYND REUTERS „Tilfinningin var auðvitað frábær, ég er svona ennþá að melta þetta,“ seg- ir landsliðsframherjinn Kolbeinn Sig- þórsson sem skoraði fimm mörk fyrir lið sitt AZ Alkmaar í hollensku úrvals- deildinni um helgina í 6–1 sigri á VV Venlo. Hann var hinn rólegasti þeg- ar DV tók tal af honum í gær. „Það er langt síðan maður hefur skorað fimm mörk. Alveg síðan í yngri flokkunum,“ segir Kolbeinn en á sínum yngri árum var þessi 20 ára framherji mikil barna- stjarna. „Maður hugsar svona í mesta lagi að það væri gaman að skora þrjú mörk. Það myndi maður kalla góðan leik. Fimm er kannski aðeins fjarlæg- ari draumur,“ segir Kolbeinn sem fékk þó færi til að bæta við fleiri mörkum í leiknum. „Ég hefði alveg getað skor- að fleiri en ég held að fimm séu alveg nóg,“ segir hann og hlær við. Vilja spila svona bolta Myndband af mörkunum fór eins og eldur í sinu um netheima. AZ gjörsam- lega valtaði yfir VV Venlo eða VVV eins og það er kallað. Þurfti Kolbeinn ekki að hafa mikið fyrir mörkunum, nema því fyrsta, spilamennskan var svo góð. Í fyrsta markinu hirti hann boltann af aftasta varnarmanni VVV, brunaði upp með boltann og skoraði á milli fóta markvarðarins. „Hann var eitthvað óákveðinn varn- armaðurinn og vissi ekki hvað hann átti að gera við boltann. Ég setti bara pressu á hann og þegar hann ákvað að snúa hirti ég af honum boltann og kláraði þetta svo,“ segir Kolbeinn sem hrósar spilamennsku liðsins mikið. „Við leggjum upp með að spila svona bolta. Í þessum leik gekk náttúrulega allt upp og ég var að fá mikið af bolt- um. Ég var einfaldlega staðráðinn í að klára mín færi fengi ég þau og af þeim var nóg. Á heildina litið höfum við ekki verið að spila nægilega vel undanfarið en svona bolta erum við að leitast við að spila. Við erum bara bjartsýnir á að þetta gangi svona áfram.“ „Sagði að ég yrði að skora“ Hollenskir fjölmiðlar hrósuðu AZ- liðinu ekkert síður en Kolbeini fyrir frammistöðuna gegn VVV. Segja þeir liðið oft hafa verið að spila góðan fót- bolta, miklu betri en andstæðinga sína, en ekki getað klára leikina með mörkum. „Já, það er satt. Við erum búnir að vera of mikið í því og það er hundleiðinlegt. Fyrstu tveir leikirnir eftir jólafríið enduðu með jafntefli og maður fór að heyra raddir um að fólkið væri ekki sátt. Það gaf manni samt bara auka kraft til að gera betur og þessi leikur gegn Venlo var frábær fyrir mig,“ segir Kolbeinn sem hefur verið að nýta tækifærin sín afar vel að undanförnu. „Ég byrjaði tímabilið á bekknum sem er alveg skiljanlegt þar sem ég var bara að koma upp í aðalliðið og við erum með nýjan þjálfara. Undanfar- ið hef ég samt verið að fá tækifærin og nýtt þau. Þjálfarinn sagði við mig að ég n Kolbeinn Sigþórsson skoraði fimm mörk gegn VV Venlo í hollensku úrvals- deildinni n Hann jafnaði 34 ára gamalt met hjá AZ Alkmaar n Var sagt fyrir leikinn að skora mark n Líkar lífið í Hollandi, talar tungumálið reiprennandi en ætlar að skoða sín mál í sumar SVARAÐI ÞJÁLFARANUM MEÐ FIMM MÖRKUM Tómas Þór Þórðarson blaðamaður skrifar tomas@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.