Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2011, Qupperneq 29

Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2011, Qupperneq 29
Fólk | 29Mánudagur 31. janúar 2011 www.birkiaska.is Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum, dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox). Birkilaufstöflur www.birkiaska.is Minnistöflur Bætir skammtímaminnið. Nýtist fólki sem er undir álagi og fæst við flókin verkefni. Hentar vel fyrir eldri borgara, lesblinda og nemendur í prófum. Dregur úr streitu, eykur ró og bætir skap. Hefur tilfinningu fyrir stelpu Kate Hudson á von á sínu öðru barni: M ér líður eins og þetta sé stelpa en ég er ekki alveg viss,“ sagði leikkonan Kate Hudson í viðtali í The Graham Norton Show þegar hún var stödd í Bretlandi nýlega ásamt fjölskyldu sinni og kærasta, Matt Bellamy söngvara Muse. „Ryder heldur að þetta sé stelpa,“ bæti Hudson við en Ryder er sonur Kate með fyrr- verandi eiginmanni hennar. Hlutirnir hafa gerst hratt hjá Kate og Matt sem hófu samband sitt síðasta vor. Þau eru ekki trú- lofuð en Kate virðist loksins hafa fundið ástina í lífi sínu eftir að hún skildi við Chris Robinson árið 2006. Kurt Russell, faðir Kate, lét nýlega hafa eftir sér að Matt væri fábær náungi. „Við skiljum öll hvað Kate sér við hann. Hann er skemmtilegur og okkur líkar öllum mjög vel við hann.“ Kate sagði einnig frá því í við- talinu við Graham Norton að parið væri nú þegar komið með nokkur nöfn í huga en vildi þó halda þeim fyrir sig. Kate Hudson Er viss um að bera stúlkubarn undir belti. ANNAÐ KYNLÍFSMYNDBAND F yrrverandi Playboy-kanínan og raunveruleika-stjarnan Kendra Wilkinson er í vandræðum eft-ir að annað kynlífsmyndband með henni skaut upp kollinum. Ekki er langt síðan mynd- band af Kendru, sem var tekið upp fyrir þó nokkr- um árum, var gefið út. Kendra fordæmdi útgáf- una opinberlega en RadarOnline hélt því fram að hún hefði samþykkt útgáfu þess og fengið væna fúlgu greidda fyrir. Að þessu sinni er Kendra sögð gamna sér með annarri konu. Ekki er víst að eig- inmaður Kendru, Hank Baskett, sé ánægður með þessi tíðindi en þau eignuðust sitt fyrsta barn í desember 2009. Kendra Wilkinson í vandræðum: Kendra Gamnar sér með konu að þessu sinni. Kynnir á Óskarnum Hugh Jackman kynnir öðru sinni: Á stralski leikarinn Hugh Jackman verður kynn-ir á Óskarsverðlauna- hátíðinni sem fer fram þann 27. febrúar. Þetta er í annað sinn sem Jackman er kynnir en hann var það einnig árið 2009. Í millitíðinni voru það þeir Alec Baldwin  og  Steve Martin sem héldu uppi stemningunni. Þetta er í 83. skipti sem Ósk- arsverðlaunin eru afhent en í ár var það myndin The King's Speech sem hlaut flestar til- nefningar eða 12 alls. Næst kom True Grit með 10 og svo Inception og The Social Net- work með átta. Joe Manganiello Er í ágætis formi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.