Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2011, Side 3
Fréttir | 3Miðvikudagur 9. febrúar 2011
Skráningu á Range Rover-jeppa
Jóns Ásgeirs Jóhannessonar var
loksins breytt í Ökutækjaskrá um
hádegisbil á þriðjudag. Bíllinn hafði
verið skráður ótryggður upp á síð-
kastið sem leiddi meðal annars til
þess að lögreglan klippti af honum
númeraplöturnar um síðustu helgi.
Jón Ásgeir fullyrti sjálfur að bíllinn
væri tryggður hjá Tryggingamið-
stöðinni og að lögreglan hefði skilað
númeraplötunum og beðið hann af-
sökunar á því að hafa klippt þær af.
Um það bil 196 milljónir króna hvíla
á jeppanum, en það skýrist af kyrr-
setningu á eignum Jóns Ásgeirs hér
á landi að kröfu skilanefndar Glitn-
is. Jeppinn umdeildi er því hluti af
eignum Jóns Ásgeirs sem eru kyrr-
settar, en lögmæti kyrrsetningar-
innar er nú fyrir Hæstarétti Íslands.
DV sagði frá því í síðustu viku
að Range Rover-jeppi Jóns Ásgeirs
væri ótryggður samkvæmt Öku-
tækjaskrá. Jón Ásgeir mótmælti
þessu og vísaði til staðfestingar
máli sínu í tölvupóst sem Ingibjörg
Pálmadóttir, eiginkona hans, fékk
frá starfsmanni Tryggingamið-
stöðvarinnar, þar sem stóð að bíll-
inn væri tryggður hjá félaginu.
Range Rover með
rafmagnsrúðum
Jón Ásgeir svarar því hins vegar
ekki hvort vangoldin trygginga-
gjöld af hans hálfu skýri það að
bifreiðin hafi verið skráð ótryggð í
Ökutækjaskrá. DV spurði Jón Ás-
geir að þessu í tölvupósti. Hann
svaraði spurningunni hvorki ját-
andi né neitandi, heldur sagði ein-
faldlega: „Bíllinn er tryggður hjá
TM. Þeir staðfesta það, sjá email frá
TM sem ég sendi ykkur í gær.“ Þeg-
ar hann var inntur eftir frekari skýr-
ingum á hvort einhver gjöld væru
vangoldin af bílnum svaraði hann
einfaldlega: „Bæði lögregla og TM
telja bílinn tryggðan, það er nóg
fyrir mig. Þegar númer var klippt af
var það sagt vegna trygginga sem
reyndist ekki rétt, eins og ég hef
áður sagt.“
Jón Ásgeir virðist sjá húmorinn í
málinu, því hann endaði tölvupóst-
inn til blaðamanns með orðunum:
„Þetta er nú öll sagan á bak við 4
ára gamlan Range Rover keyrðan
97 þúsund með rafmagnsrúðum.“
Lögreglan vísar á TM
Samkvæmt upplýsingum frá Öku-
tækjaskrá eru upplýsingar um
tryggingastöðu bíla fengnar frá
tryggingafélögunum sjálfum. Al-
mennt verði því að segja að þegar
bíll sé skráður ótryggður í gagna-
grunninum sé það vegna þess að
tryggingafélagið sjálft skrái bíl-
inn þannig. Spurningar vakna því
þegar starfsmaður TM segir bílinn
tryggðan, á sama tíma og bíllinn
er skráður opinberlega ótryggð-
ur. Jafnvel þó engar upplýsingar
liggi fyrir um ástæður þess að TM
skráði bíl Jóns Ásgeirs ótryggðan
eru heimildir fyrir því að ef iðgjöld
eru vangoldin ábyrgist tryggingafé-
lagið bílinn í fjórar vikur. Hvort svo
hafi verið í tilfelli Jóns Ásgeirs ligg-
ur ekki fyrir.
Kristján Ó. Guðnason, yfirlög-
regluþjónn hjá umferðardeild lög-
regunnar á höfuðborgarsvæðinu,
staðfestir að númeraplötunum
hafi verið skilað aftur. „Ég get stað-
fest að skráningarnúmer voru tek-
in af þessum bíl og afhent aftur í
framhaldi af því að tölvupóstur frá
tryggingafélaginu var sýndur lög-
reglu þess efnis að bíllinn væri ekki
ótryggður. Bifreiðin var hins vegar
skráð ótryggð hjá Umferðarstofu
og því voru númerin tekin af. Það
að skráningin var röng er á ábyrgð
tryggingafélagsins,“ segir Kristján.
Ekki náðist í upplýsingafulltrúa
TM við vinnslu þessarar fréttar.
Náin tengsl við Björgólf Thor
Allar fjárfestingar sem Erna og syn-
ir hennar fóru í á árunum 2003 til
2008 virðast tengjast Björgólfi Thor.
Á Íslandi í gegnum Landsbankann,
Straum-Burðarás og Actavis. Einn-
ig fjárfestu þau með honum í Pól-
landi og Búlgaríu. Í lánabók Lands-
bankans kemur fram að félagið
Melwood Corp sem er í þeirra eigu
hafi átt hlutabréf í pólska símafyrir-
tækinu Netia sem metin voru á um
þrjá milljarða króna. Skuldir Mel-
wood Corp námu um 4,3 milljörð-
um króna þann 31. mars 2008, sam-
kvæmt lánabókinni. Björgólfur Thor
var stærsti hluthafinn í Netia sem er
næststærsta símafyrirtæki Póllands.
Novator seldi 30 prósenta hlut sinn í
Netia í mars 2009.
Félagið Prominent Limited skuld-
aði Landsbankanum um þrjá millj-
arða króna, samkvæmt lánabók-
inni, 31. mars 2007. Kemur fram að
félagið hafi átt hlutabréf í búlgarska
símafyrirtækinu BTC þar sem Björg-
ólfur Thor var á þeim tíma stærsti
hluthafinn í gegnum Novator. Erna
og synir hennar áttu hlutabréf sem
metin voru á átta milljarða króna. Í
maí 2007 seldi Novator félagið BTC
á 130 milljarða króna og er talið að
Björgólfur Thor hafi grætt 60 millj-
arða króna á þeim viðskiptum. Erna
og synir virðast líka hafa grætt vel á
þessum viðskiptum, eða um nærri
fimm milljarða króna.
Landsbankinn í Lúx
stofnaði félögin
Erna og synir hennar virðast hafa
átt átta aflandsfélög sem koma
fram í lánabókum Landsbankans.
Í lánabókunum er þau þó alltaf
nefnd í tengslum við félagið Geko
Holding. Öll félög þeirra tóku þátt
í viðskiptum sem tengdust sömu
fjárfestingum og Björgólfur Thor.
Þau virðast hafa notið mikillar fyr-
irgreiðslu innan Landsbankans,
bæði á Íslandi og í Lúxemborg.
Ekki er vitað hver stofnaði félögin
fyrir þau en líklegt má telja að flest
þeirra hafi verið stofnuð af Lands-
bankanum í Lúxemborg. Ekkert
félaganna kemur fram á lista í
greinaflokki Morgunblaðsins um
aflandsfélög sem blaðið birti í upp-
hafi árs 2009.
Samkvæmt heimildum DV sáu
þeir Arnar Guðmundsson og Guð-
jón Sævarsson um málefni fjöl-
skyldunnar hjá Landsbankanum
í Lúxemborg. Arnar var viðskipta-
stjóri Norrænna fjárfestinga hjá
Landsbankanum í Lúxemborg.
Arnar og Guðjón starfa í dag hjá
fyrirtækinu Arena Wealth Manage-
ment í Lúxemborg sem þeir stofn-
uðu ásamt öðrum Íslendingum
eftir bankahrunið. Arnar og Guð-
jón héldu utan um félög Björgólfs
Thors í Landsbankanum í Lúx-
emborg. Voru þeir ávallt í mikl-
um samskiptum við starfsmenn
Novator. Fjárfestingar Ernu og
sona hennar í félögum tengdum
Björgólfi Thor í Búlgaríu og Pól-
landi styðja við það að þau hafi
átt samskipti við sömu menn inn-
an Landsbankans í Lúxemborg og
Novator gerði.
Fjölskyldan til rannsóknar Lánveitingar
Landsbankans til Ernu Kristjánsdóttur og sonar
hennar eru til rannsóknar hjá sérstökum saksóknara.
n Kyrrsettur Range Rover Jóns Ásgeirs loks skráður
tryggður í Ökutækjaskrá n Svarar engu um ógreidd
gjöld n Lögreglan bendir á Tryggingamiðstöðina
TM BER ÁBYRGÐ Á
RANGRI SKRÁNINGU
„Þetta er nú öll
sagan á bak við 4
ára gamlan Range Rover
keyrðan 97 þúsund með
rafmagnsrúðum.
Valgeir Örn Ragnarsson
blaðamaður skrifar valgeir@dv.is
Jón Ásgeir Jóhannesson
„Bæði lögregla og TM telja
bílinn tryggðan, það er nóg
fyrir mig. Þegar númer var
klippt af var það sagt vegna
trygginga sem reyndist ekki
rétt, eins og ég hef áður sagt.“
Jeppinn umdeildi Range Rover í eigu
Jóns Ásgeirs, sem er kyrrsettur að kröfu
skilanefndar Glitnis, var loks skráður
tryggður um hádegisbil á þriðjudag.
23 MILLJARÐAR TIL
LYFJAFJÖLSKYLDU
Auðguðust á Actavis Erna Kristjáns-
dóttir og synir hennar eru talinn hafa auðgast
gríðarlega mikið við uppgang Actavis. Hins
vegar hafi fjölskyldan tapað stærstum hluta
auðæfa sinna við bankahrunið haustið 2008.