Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2011, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2011, Blaðsíða 4
4 | Fréttir 9. febrúar 2011 Miðvikudagur Kvartað undan bílhræjum og öðru rusli á iðnaðarsvæði: Sóðaskapur í Hafnarfirði „Ég vona að þetta horfi allt til betri veg- ar. Sóðarnir eru nógu margir,“ segir Bjarki Jóhannesson, sviðsstjóri skipu- lags- og byggingarsviðs Hafnarfjarðar- bæjar. Borið hefur á slæmri umgengni á iðnaðarsvæðunum á Hraunum og Hellnahraunum í Hafnarfirði. Um- gengnin er einna verst á Lónsbraut þar sem bílhræ og annað verkstæðis- rusl liggur eins og hráviði um svæðið. Skammt frá er vinsælt útivistarsvæði og má þar nefna golfvöll þar sem Golf- klúbburinn Keilir er með aðstöðu. Sóðaskapurinn hefur vakið litla hrifn- ingu þeirra sem ganga um svæðið og segist Bjarki taka undir skoðanir bæj- arbúa. Hafnarfjarðarbær fer brátt af stað með átak í hreinsun á iðnaðarsvæðinu og hefur fyrirtækið Fura ehf. verið feng- ið til verksins. Þann 10. janúar héldu fulltrúar skipulags- og byggingarsviðs bæjarins fund með fulltrúum húsfélags við Lónsbraut vegna hreinsunarátaks- ins. „Þetta eru mörg fyrirtæki sem eru í húsinu og einhverjir af þeim eiga þetta drasl,“ segir Bjarki en ósamkomulag var innan húsfélagsins um það hvern- ig standa ætti að hreinsunarátakinu. „Til að hjálpa þeim tókum við þetta inn á fund og hvöttum þá til að taka til hjá sér. Þetta er vinna sem er í gangi og við settum ákvæði um dagsektir ef menn myndu ekki bregðast við,“ segir hann. Bjarki segist þó vona að ekki komi til þess að beita þurfi dagsektum. „Við settum engan sérstakan frest á það en sögðum þeim að við myndum beita úrræðum í samræmi við heimildir mannvirkjalaga.“ einar@dv.is Verð: 9.750 kr. Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • www.eirberg.is • Dregur úr vöðvaspennu • Höfuð- háls- og bakverkjum • Er slakandi og bætir svefn • Notkun 10-20 mínútur í senn • Gefur þér aukna orku og vellíðan Opið virka daga kl. 9 -18 og á laugardögum kl. 11 - 16 Nálastungudýnan Bílhræ Hér má sjá bílhræ á Lónsbraut í Hafnarfirði. Undir snjónum er að finna talsvert af öðru rusli. Jón Gnarr glímir við veikindi: Borgarstjóri á sjúkrahúsi Jón Gnarr, borgarstjóri í Reykjavík, er með sýkingu í ennisholum og þarf af þeim sökum að taka sér frí frá vinnu það sem eftir lifir vikunnar. Jón þurfti að leggjast inn á sjúkrahús vegna veikindanna sem hafa háð honum frá því í haust. Í fréttum RÚV á þriðjudag kom fram að reiknað væri með því að hann yrði frá vinnu fram á mánudag. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Jón er undir læknishendi frá því hann tók við stjórnartaumun- um í borginni. Í lok október var Jón lagður inn á sjúkrahús vegna sýkingar í handlegg. Sýkinguna mátti rekja til húðflúrs, með merki Reykjavíkurborgar, sem Jón lét húð- flúra á sig. Jón þurfti meðal annars að fá pensilín í æð vegna sýkingar- innar. Borgarstjóratíð Jóns hefur ekki alltaf verið dans á rósum. Í síðustu viku var baulað á hann þegar hann hélt ræðu yfir mótmælendum við Ráðhúsið. Var boðað til mótmæl- anna vegna niðurskurðar borgarinn- ar í tónlistarnámi. „Fór svo beint og hitti meðmælendur með Tónlistar- skólum og lét púa á mig. Hræðilega langur og erfiður borgarstjórnar- fundur frá 2–8. Þarf að passa hroka, paranoju, ótta, reiði og annað drasl,“ sagði Jón á Facebook-síðu sinni þeg- ar hann lýsti líðan sinni. Helstu einkenni bráðrar ennis- holusýkingar eru andremma, lélegt lyktarskyn, hósti, þreyta og almenn vanlíðan, höfuðverkur, þrýstingsverk- ur, verkur bak við augun, tannverkur eða viðkvæmni í andliti, nefstífla, nef- rennsli og hálssærindi. Þrálát bólga hefur sömu einkenni, en vægari. „Ég stytti mér leið einhvers staðar frá Kvennó í átt að styttunni að Tómasi Guðmundssyni og svo á miðri leið þá brotnaði ísinn,“ segir Ellert Björg- vin Schram sem féll niður um ís á Reykjavíkurtjörn aðfaranótt sunnu- dags. Tilviljun réð því að Andri Vil- bergsson sá til Ellerts þar sem hann barðist ofan í Tjörninni í kuldan- um og gat við annan mann bjargað honum á þurrt land. Hann var síðan fluttur á slysa- og bráðamóttökuna. Ellert lýsir atburðarásinni þannig að hann hafi reynt að klifra upp á ís- inn, en hann hafi alltaf brotnað aft- ur. „Þannig gekk þetta þar til ég var kominn aðeins nær bakkanum, þá heyrði ég í manni og sá hann koma. Hann kallaði á mig: „Haltu áfram!“ Það í rauninni hvatti mig áfram til að drífa nógu nálægt honum til að hann gæti hjálpað mér. Ég var orð- inn alveg búinn á því, en hann náði að kveikja í mér smá þrótt til að drífa þennan lokaspöl,“ segir Ellert Björg- vin. Þreyttur og kvefaður Aðspurður hversu lengi hann hafi verið ofan í ísköldu vatninu segist Ellert ekki gera sér fyllilega grein fyr- ir því. „Það voru eitthvað á milli 5 og 20 mínútur,“ segir hann. Atburða- rásin er nokkuð óljós í huga Ellerts. „Ég reyndi að teygja mig í Andra en ég náði því ekki alveg af því að ég var búinn á því og fann ekki fyr- ir fótunum. Þeir voru held ég tveir sem gripu svo í mig,“ segir hann um augnablikið þegar hann komst upp úr vatninu. Hann var orðinn kaldur og þrek- aður og var hann látinn hoppa sér til hita á meðan hann var spurður um nafn og fleira til þess að halda hon- um gangandi. „Svo vorum við eitt- hvað að hoppa þarna og þá kom lög- reglan og skutlaði mér á slysó,“ segir hann. Ellert var hætt kominn í Tjörn- inni og má teljast heppinn að ekki fór verr. „Ég er ekkert mikið skorinn sem er heppni af því að þetta er svo skítugt vatn. Ég er hins vegar rosa- lega kvefaður og þreyttur. Ég er bú- inn að borða mikið og það er greini- legt að líkaminn er í losti. Ég fer ekkert í skólann og er bara heima að jafna mig. Mig langar að geta farið í skólann og gert hluti, því ég hef svo mikið að gera,“ segir hann. Líkamshitinn fór niður í 33,3°C Næstu daga verður Ellert að jafna sig en líkamshiti hans lækkaði skart á meðan hann barðist um í Tjörninni. Líkamshitinn var mældur 33,3°C en þess má geta að ofkæling miðast við að líkamshitinn fari niður í 31°C. Litlu mátti því muna í tilfelli Ellerts. „Lögreglan fór með mig upp á slysló þar sem þeir hituðu mig upp og klæddu mig í hlý föt. Þar var ég í um það bil tvo tíma. Mamma kom svo með föt og við fórum heim. Hún er hjúkrunarkona og veit ef eitthvað er að,“ segir hann. Ellert segist þakklátur Andra og hinum bjargvættinum fyrir hjálpina á ögurstundu. „Jú, algjörlega, ég er að hugsa um að hafa samband við þá og þakka þeim fyrir.“ Hann segist aldrei hafa misst von- ina. „Ég hugsaði ekki um neitt annað en að halda áfram. Ég var orðinn svo þreyttur í lokin að ég gat voðalega lít- ið haldið áfram, en hann hvatti mig og ég gat allavega komist eitthvað.“ Ótrúlegt að hafa séð Ellert Andri Vilbergsson bjargvættur seg- ir í samtali við DV að hann hafi ver- ið á leiðinni í leigubíl í átt Hljóm- skálagarðinum þegar hann hafi séð einhverja hreyfingu á vatninu. „Ég spurði leigubílstjórann hvort þetta væri maður. Fyrst hélt ég að þetta væri gæs eða hundur eða eitthvað en þá sagði hann að þetta væri mað- ur. Svo stoppaði hann hjá brúnni og þá sá ég að þetta var strákur og fór út á móti honum.“ Andri segir Ellert hafa verið mjög kaldan og þrekaðan þegar þeir komu honum upp á bakkann. „Ég lét hann hoppa til að halda á sér hita og til að halda sér vakandi og í gangi.“ Líkt og Ellert segist Andri ekki muna hvað þetta tók langan tíma en segir það hafa verið dágóða stund. „Hann var svolítið langt úti í og ég var svolítið lengi að brjóta ísinn á móti honum. Það er ótrúlegt að ég hafi náð að sjá hann því að hann var svartklæddur,“ segir Andri mjög feginn að þetta fór allt saman vel. Valgeir Örn Ragnarsson blaðamaður skrifar valgeir@dv.is Ætlaði aldrei að gefast upp n Ellert Björgvin Schram féll niður um ís á Reykjavíkurtjörn n Fann ekki fyrir fótunum n Líkamshitinn fór niður í 33,3°C n Tilviljun að Andri sá hann og gat bjargað honum Ellert Björgvin Schram „Ég var orðinn svo þreyttur í lokin að ég gat voðalega lítið haldið áfram, en hann hvatti mig og ég gat allavega eitthvað.“ Andri Vilbergsson „Það er ótrúlegt að ég hafi náð að sjá hann því hann var svartklæddur.“ „Ég er ekkert mikið skorinn sem er heppni af því að þetta er svo skítugt vatn. Ég er hins vegar rosalega kvefaður og þreyttur. Tölvuþrjótur herjar á ráðherra „Ég get fullvissað alla um að Árni Páll er ekki búinn að segja af sér,“ sagði Hrannar B. Arnarsson, að- stoðarmaður forsætisráðherra, á þriðjudag, skömmu eftir að dul- arfull bloggfærsla birtist á heima- síðu Árna Páls Árnasonar, efna- hags- og viðskiptaráðherra. Þar kom fram að Árni Páll væri búinn að segja af sér ráðherradómi. Líklegasta skýringin á færsl- unni er sú að tölvuþrjótur hafi komist í síðuna hjá Árna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.