Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2011, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2011, Blaðsíða 25
Sport | 25Miðvikudagur 9. febrúar 2011 4 Tottenham 4 Aston Villa Október 2007 Það var lítil gleði á White Hart Lane þegar Tottenham lenti 1–4 undir á móti Aston Villa á 125. afmælisdegi félagsins. Búlgarinn Dimitar Berbatov kom Tottenham yfir með skalla eftir hornspyrnu á 19. mínútu en eftir það komu fjögur í röð frá Villa. Það voru þeir Martin Laursen, Gabriel Agbonlahor og Craig Gardner sem sáu um markaskorunina. Heimamenn bauluðu á lið sitt og Martin Jol sem var orðinn vel valtur í sessi. Innkoma Jermain Defoe gerði að verkum að Spurs tók við sér og komst aftur inn í leikinn þegar Pascal Chimbonda skoraði eftir að Defoe hafði þrumað í stöngina. Robbie Keane minnkaði svo muninn enn frekar úr vítaspyrnu og Younes Kaboul bjargaði afmælisdegi félagsins þegar hann skoraði í uppbótartíma. 3 Wigan Athletic 2 Arsenal Apríl 2010 Sem fyrr er það Arsenal sem verður fyrir barðinu á baráttuglöðum liðum. Í lok síðasta tímabils var Wigan ekki á því að játa sig sigrað þrátt fyrir að vera 0–2 undir á heimavelli. Líkt og á móti Newcastle var það Theo Walcott sem kom Arsenal yfir. Varnarmaðurinn og fyrrverandi leikmaður Manchester United, Mikael Silvestre, kom liðinu svo í 0–2. Ben Watson hélt hins vegar lífinu í leiknum þegar hann skoraði tíu mínútum fyrir leikslok. Það var svo Titus Bramble sem jafnaði metin en markvörður Arsenal, Lukasz Fabianski, hefði átt að gera mun betur í báðum mörkunum. Hann fékk þó ekki rönd við reist þegar Charles N'Zogbia tryggði Wigan loks sigurinn í uppbótartíma með glæsilegu skoti. 3 Liverpool 3 Man. United Janúar 1994 Rétt tæplega 43.000 manns voru á Anfield þegar Liverpool tók á móti meisturunum í Manchester United. Meistararnir voru þá 21 einu stigi fyrir ofan Liverpool sem var í níunda sæti. Steve Bruce, sem nú stýrir liði Sunderland, kom United yfir með skalla eftir sendingu frá Eric Cantona. Ungur Ryan Giggs kom United í 0–2 á 20. mínútu. Það var svo Denis Irwin sem kom United í 0–3 með stórglæsilegu marki beint úr aukaspyrnu. Útlitið var ekki gott fyrir Graeme Souness og hans menn. Nigel Clough var þó fljótur að minnka muninn með glæsilegu skoti af 25 metra færi og Liverpool-menn voru ekki á því að gefast upp og sóttu stíft. Clough var aftur á skotskónum stuttu seinna og þetta gerðist allt í fyrri hálfleik. Þeir Peter Schmeichel og Bruce Grobbelaar vörðu svo eins og handboltamarkmenn áður en varnartröllið Neil Ruddock fullkomnaði endurkomuna á 79. mínútu með hörkuskalla. Newcastle United setti met í úrvalsdeildinni um helgina þegar liðinu tókst að ná jafntefli gegn Arsenal eftir að hafa lent fjórum mörkum undir. Aldrei áður hafði lið náð stigi úr leik eftir að hafa lent 4-0 undir í sögu úrvals- deildarinnar. Það er fátt sem kristallar meira anda knatt- spyrnunnar en endurkoma af þessu tagi. Þegar út á grasið er komið er allt hægt. DV tók saman nokkrar af eftirminni- legustu endurkomum úrvals- deildarinnar frá upphafi. 3 Tottenham 5 Man. United September 2001 Hvaða lið annað en United á eina mögnuðustu endurkomu deildarinnar frá upphafi? Eftir að hafa verið slegnir í rot með leiftrandi sóknarbolta Tottenham í fyrri hálfleik virtust meistararnir ekki eiga nein svör. Dean Richards átti draumabyrj- un í sínum fyrsta leik fyrir Tottenham og skoraði fyrsta markið snemma leiks. Þeir Les Ferdinand og Christian Ziege bættu svo við einu marki hvor. Það mætti hins vegar annað United-lið inn á í síðari hálfleik og sýndi Tottenham að þeirra sóknarbolti var ekki síður leiftrandi. United rúllaði Tottenham upp í hálfleiknum með fimm mörkum frá þeim Andy Cole, Laurent Blanc, Ruud van Nistelrooy, Juan Sebastian Veron og David Beckham. 4 Wolves 3 Leicester Október 2003 Leicester City var nokkuð sannfært um að það væri að binda enda á fjögurra leikja taphrinu þegar það leiddi 0–3 gegn Wolverhampton Wanderers. Markamaskínan Les Ferdinand skoraði tvívegis áður en Riccardo Scimeca bætti við því þriðja. En Úlfarnir skráðu sig í sögubækur úrvalsdeildarinnar með því að skora fjögur mörk í síðari hálfleik. Colin Cameron kom knettinum í netið tvívegis áður en Alex Rae jafnaði metin. Það var svo Henri Camara sem tryggði Úlfunum annan sigur þeirra í úrvalsdeildinni frá upphafi. endurkomur Ótrúlegar 2 Manchester City 3 Liverpool Október 2008 City-menn voru í skýjunum eftir að liðið varð eitt það ríkasta í heiminum eftir eigendaskipti. Þeir sýndu Liverpool svo um munaði í fyrri hálfleik að efstu fjögur sætin í úrvalsdeildinni voru ekki lengur í áskrift. Stephen Ireland kom heimamönnum yfir áður en Javier Garrido jók muninn með glæsilegu marki úr aukaspyrnu. Liverpool-menn gáfust hins vegar ekki upp og töframaðurinn Fernando Torres skoraði tvívegis auk þess sem Pablo Zabaleta fékk að líta rauða spjaldið. Það varð hins vegar aftur jafnt í liðum stuttu seinna þegar Liverpool missti mann af velli vegna meiðsla og allar skiptingar búnar. Það var svo Hollendingurinn þindarlausi, Dirk Kuyt, sem tryggði Liverpool sigurinn í uppbótartíma. 3 Southampton 3 Liverpool Ágúst 2000 Gerard Houllier viðurkenndi að tebollar hefðu næstum því farið á flug inni í búningsklefa eftir að lið hans tapaði niður 0–3 forskoti á móti Southampton í ágúst árið 2000. Michael Owen virtist vera nálgast sitt besta form eftir meiðsl og skoraði tvívegis á Dell-leikvanginum. Varnar- tröllið Sami Hyypia skallaði svo knöttinn í netið þess á milli. Allt stefndi í öruggan Liverpool-sigur þangað til lett- neski sóknarmaðurinn Marians Pahars minnkaði muninn á 75. mínútu. Varnarmaðurinn Tahar El Khalej bætti svo við öðru marki áður en Pahars jafnaði í uppbótartíma. 5 Man. United 2 Tottenham Apríl 2009 Titilvonum United virtist ógnað eftir að liðið lenti tvö núll undir á móti Tottenham á Old Trafford. Þeir Darren Bent og Luca Modric skoruðu mörk gestanna sem virkuðu sannfærandi. Allt stefndi í fyrsta sigur Tottenham á Old Trafford í 20 ár. Strax í upphafi síðari hálfleiks fékk United dæmda vítaspyrnu eftir að hafa fellt Michael Carrick. Cristiano Ronaldo tók vítið og skoraði eitt af 26 mörkum sínum þetta tímabilið. Hófst þá veislan en Wayne Rooney jafnaði skömmu síðar áður en Ronaldo kom liðinu svo í 3–2. Það voru svo Rooney og Dimitar Berbatov sem innsigluðu sigurinn. United varð meistari þetta tímabilið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.