Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2011, Page 26
Ægir og Vignir Þór Gunnarssynir:
26 | Fólk 9. febrúar 2011 Miðvikudagur
Dætur Hemma Gunn gera það gott:
„ÉG ER NÁTTÚRULEGA
STOLTUR AF ÞEIM ÖLLUM“
Eva Laufey Kjaran, dóttir Hermanns
Gunnarssonar, Hemma Gunn, er
meðal keppenda í fegurðarsam-
keppninni Ungfrú Vesturland.
Hemmi Gunn segist vera stoltur af
Evu Laufeyju, sem og öllum hinum
börnunum sínum. „Ég mun styðja
hana alla leið í þessu,“ segir hann
og telur víst að hann muni mæta á
úrslitakvöld fegurðarsamkeppninn-
ar. „Verð ég ekki að gera það?“ segir
hann og hlær.
Eva Laufey er búsett á Akranesi
og þaðan lauk hún stúdentsprófi
frá Fjölbrautaskóla Vesturlands.
Eva Laufey, sem er 22 ára, leggur
nú stund á lögfræði við Háskóla Ís-
lands.
Hemma Gunn þekkja flestir en
hann er einn þekktasti fjölmiðlamað-
ur Íslendinga. Hann stjórnar nú út-
varpsþætti á Bylgjunni. Hann stjórn-
aði lengi spjallþættinum Á tali með
Hemma Gunn, sem var einn vinsæl-
asti sjónvarpsþáttur sögunnar. Hann
var líka liðtækur fótboltamaður á sín-
um yngri árum og spilaði meðal ann-
ars með íslenska landsliðinu í knatt-
spyrnu. Hann segir að Eva Laufey hafi
einnig verið liðtæk í fótboltanum.
Yngstu dætur hans tvær verða
báðar í sviðsljósinu á árinu en Edda,
sem er aðeins eldri en Eva Laufey,
stjórnar spurningakeppni framhalds-
skólanna, Gettu betur. Hún mun
eiga frumraun sína í sjónvarpi inn-
an skamms þegar beinar útsending-
ar þáttanna hefjast. „Hún fer alveg
út í djúpu laugina þar,“ segir Hemmi.
„Það hafa nú alltaf verið svona reynsl-
uboltar sem hafa stjórnað því en
gaman að henni skuli vera treyst fyr-
ir þessu.“
„Ég er náttúrulega stoltur af þeim
öllum og það verður engin breyting
þar á. Bara bullandi stolt og ham-
ingja,“ segir Hemmi aðspurður hvort
hann sé ekki stoltur af dætrum sínum.
D
rengirnir mínir eru afskap-
lega vel af Guði gerðir,“ segir
Eygló Gunnþórsdóttir, móðir
Ásdísar Ránar og bræðranna
Ægis og Vignis Þórs Gunnarssona.
Synir hennar reka verslunina Vaxt-
arvörur í Hafnarfirði og vöktu at-
hygli í síðustu viku þegar þeir tóku
á móti hinum stóra og stælta Mark-
us Ruhl. Markus hefur lengi verið
talinn stærsti vaxtarræktarmaður í
heimi og hefur um árabil verið einn
vinsælasti IFBB (International Fed-
eration of Bodybuilders) atvinnu-
maður í vaxtarrækt í heiminum.
Það var því margt um manninn af
áhugafólki um vaxtarrækt og fæðu-
bótarefni í versluninni sem vildi
hitta Markus í heimsókn hans til
landsins og móðir þeirra bræðra lét
sig ekki vanta.
Í frískasta lagi
Eygló segist hafa rekið upp stór augu
þegar hún sá Markus Ruhl í fyrsta
sinn. „Þetta er alveg ótrúlegt og
gaman að því að fá hann til landsins.
Vaxtarvörur ehf. er einkaumboðs-
aðili fyrir hin þekktu fæðubótarefni
Ultimate Nutrition og Markus hef-
ur tekið þátt í kynningu þeirra víða
um heim. Það var mjög skemmtilegt
að taka þátt í þessari kynningu með
strákunum og auðvitað toppurinn
að stilla sér upp við hliðina á tröll-
inu sjálfu og fá myndir til minning-
ar um skemmtilega heimsókn þessa
mjög svo sérstaka manns. Sjálf er
ég nú ekkert í vaxtarrækt þótt ég sé
í allra frískasta lagi,“ segir Eygló og
skellir upp úr.
Vel upp aldir drengir
Eygló veiktist af krabbameini fyrir
nokkrum árum en hefur nú náð fullri
heilsu og kröftum. „Ég er full af lífs-
gleði og veit að nú verða mínir bestu
dagar. Strákarnir mínir eru vel upp
aldir og hafa hugsað vel um móður
sína. Þeir hafa gefið mér góða ráðgjöf
hvað varðar fæðubótarefni og vítam-
ín. Ég tek fæðubótarefni frá Ultimate
Nutrition, kalk og magnesíum og D3
vítamín. Þá tek ég mjög gott fjölvít-
amín og passa að drekka mikið af
vatni. Ég finn mjög mikinn mun á
mér og sé það glöggt á húðinni. Hún
er heilbrigðari en áður og ljómi yfir
mér. Ég fer síðan út að skokka, hug-
leiði og fer í sjúkraþjálfun í Heilsu-
eflingu í Mosfellsbæ. Allt þetta gerir
það að verkum að mér hefur aldrei
liðið betur.“ kristjana@dv.is
Eygló Gunnþórsdóttir
Ásamt þýska vöðvatröllinu
Markus Ruhl.
Tvíburabræður Ásdísar Ránar Tóku á móti vöðvafjallinu Mark Ruhl.
„Þetta hefur gengið eins og í
sögu, eins og í lygasögu, kallinn
minn,“ segir Andri Freyr aðspurð-
ur hvernig þættirnir hafi gengið.
Hundraðasti útvarpsþátturinn
af Virkum morgnum með þeim
Guðrúnu Dís Emilsdóttur, sem
oftast er kölluð Gunna Dís, og
Andra Frey Viðarssyni var sendur
út síðastliðinn föstudag. Þáttur-
inn hefur verið sendur út á Rás 2
frá því í haust en hann er í léttum
dúr.
Andri Freyr segir að samstarfið
við Gunnu Dís hafi líka gengið vel
og að gott sé að vinna með henni.
„Samstarfið verður bara ferskara,
það er alveg yndislegt að vinna
með þessari stelpu,“ segir hann.
Áfanganum var fagnað með
kökum og kakói í einu af útsend-
ingarstúdíóum Ríkisútvarpsins.
„Það voru kókostoppar á borðum,
kakó og póló-kex og svo eitthvert
annað kex sem ég man ekki hvað
heitir,“ segir Andri Freyr um veit-
ingarnar. „Blöðrur í öllum horn-
um, hangandi á öllu sem hægt var
að hengja á, myndasería af okkur
uppi á vegg og afmælisflautur.
Þetta var mikið húllumhæ.“
Páll Magnússon útvarpsstjóri
mætti í gleðina og segi Andri að
þau hafi aldrei ætlað
að losna við hann.
„Hann ætlaði að
hanga yfir okkur
allan tímann,
hann fagnaði svo
mikið. Einn-
ig Sirrý, við
þurftum
að sparka
henni
burt, hún
ætlaði
aldrei
að
fara.“
Spörkuðu
Páli og
Sirrý burt
Hundraðasti þátturinn
af Virkum morgnum:
n Bræður Ásdísar Ránar hugsa vel um móður þeirra n Veiktist
af krabbameini en er óðum að ná kröftum n Hitti stærsta kraft-
lyftingamann í heimi og dáðist að árangrinum n Borðar fjöl-
vítamín og sojafæðubótarefni og fær ráðgjöf frá sonum sínum
Tvíburabræður
Ásdísar hugsa
um mömmu
Feðginin Hemmi
Gunn ásamt dóttur
sinni Evu Laufeyju.
MYND BJÖRN BLÖNDAL