Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2011, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2011, Qupperneq 6
6 | Fréttir 21. febrúar 2011 Mánudagur Endurnærir og hreinsar ristilinn allir dásama OXYTARM Í boði eru 60-150 töflu skammtar 30+ Betr i apotekin og Maður l i fandi www.sologhei lsa. is OXYTARM Sól og heilsa ehf = Losnið við hættulega kviðfitu og komið maganum í lag með því að nota náttúrulyfin Oxytarm og 30 days saman120 töflu skammtur days detox Fjárfestirinn Þórður Már Jóhannes- son, fyrrverandi forstjóri Straums- Burðaráss og Gnúps, virðist græða á tá og fingri í kreppunni. Greiddi hann sér 60 milljónir króna í arð árið 2010 út úr eignarhaldsfélaginu Brekku og 200 milljónir árið áður. Brekka hélt á sínum tíma utan um sjö prósenta eignarhlut Þórðar í fjárfestingarfélag- inu Gnúpi sem var fyrsta stóra fjár- festingarfélagið til að fara á hliðina í upphafi árs 2008. Virðist rekstur fé- lagsins ganga mun betur núna en árið 2007 þegar Brekka tapaði tveimur milljörðum króna. 60 milljónir á síðasta ári Í ársreikningi Brekku kemur fram að félagið hafi hagnast um 72 milljónir króna árið 2009. Vegna þessa hafi fé- lagið ákveðið að greiða sér 60 milljón- ir króna í arð árið 2010 vegna rekstrar- ársins 2009. Árið 2009 Greiddi Þórður Már sér 200 milljónir króna í arð fyrir rekstrarárið 2008 þrátt fyrir að félagið hafi skilað tæplega 62 milljóna króna tapi árið 2008. Brekka á líka dóttur- félagið Brekka II. Engar skýringar eru gefnar á því í ársreikningi Brekku í hvaða fjármála- gjörningum félagið fjárfestir. Þó kem- ur fram að félagið eigi verðbréf sem metin séu á rúmlega 200 milljónir króna og fjármagnstekjur árið 2009 hafi numið tæplega 58 milljónum króna. Stofnar félag með Birgi Leifi Þórður Már virðist fást við ýmislegt fleira en fjármálagjörninga í gegnum eignarhaldsfélögin Brekku og Brekku II. Árið 2010 stofnaði hann eignar- haldsfélagið Project 58 ásamt kylf- ingnum Birgi Leifi Hafþórssyni. Þórð- ur Már og Birgir Leifur eru báðir frá Akranesi þar sem þeir ólust upp. Að undanförnu hefur Þórður Már sjálf- ur sýnt golfíþróttinni mikinn áhuga. Náði hann að lækka forgjöf sína úr 36 í 7 á einungis tveimur og hálfu ári sem þykir mjög góður árangur. Virð- ist hann hafa mikinn tíma til þessa að sinna þessu áhugamáli sínu eftir að hafa látið af störfum sem forstjóri Gnúps. Í hlutafélagaskrá kemur fram að Project 58 fáist við íþróttastarfsemi. Líklegt má telja að þetta sé félag sem styrki Birgi Leif við golfiðkun sína á erlendri grundu. Árið 1997 var félagið ISL ehf. stofnað og var eina hlutverk félagsins að veita Birgi Leifi fjárhags- legan styrk til þess að stunda golf. Kaupþing var líka duglegt að styrkja kylfinginn. Ekki liggur ljóst fyrir hvað- an hann hefur sótt fjármagn eftir efnahagshrunið. Á Reik með Straumsvini Þórður Már kom líka nýlega að stofnun eignarhaldsfélagsins Reik ásamt Ægi Birgissyni. Þeir eru vinir og störfuðu á sínum tíma saman hjá Straumi-Burðarás. Síðar varð Ægir forstöðumaður markaðsviðskipa VBS fjárfestingarbanka og Þórður Már for- stjóri Gnúps. Lítið er vitað um starf- semi þessa félags. DV hefur áður fjall- að um fjárfestingarfélagið Kríu sem Þórður Már á með vini sínum Bjarna Ármannssyni, fyrrverandi forstjóra Glitnis. Tapaði Kría 94 milljónum króna árið 2007. Samkvæmt heimild- um DV gerði Kría framvirka samninga með hlutabréf í FL Group sem félagið virðist hafa tapað á. Þannig má segja að efnahags- kreppan hafi ekki haft mikil áhrif á Þórð Má. Eignarhaldsfélag hans Brekka græðir á tá og fingri og þess á milli eyðir hann miklum tíma á golf- vellinum við að lækka forgjöfina. Hann fékk auk þess vel greitt fyrir störf sín fyrir hrun. Árið 2006 var hann með 88 milljónir króna í laun auk þess sem hann fékk 1.300 milljóna króna starfs- lokasamning hjá Straumi. Talið er að Þórður Már hafi verið með um 100 milljónir króna í laun árið 2007. n Borgar sér nærri 300 milljónir í arð eftir hrun n Hefur stórbætt forgjöfina í golfi n Gnúpur tapaði 34 milljörðum árið 2007 þegar hann var forstjóri félagsins ÞÓRÐUR GRÆÐIR Á TÁ OG FINGRI „Náði hann að lækka forgjöf sína úr 36 í 7 á einungis tveim- ur og hálfu ári sem þykir mjög góður árangur. Annas Sigmundsson blaðamaður skrifar as@dv.is Stórefnaður Fjárfestirinn Þórður Már Jóhannesson virðist vera vel efnaður þrátt fyrir efnahagshrunið. Eyðir hann miklum tíma við að lækka forgjöfina í golfi. Össur Skarphéðinsson utanríkisráð- herra mælti á fimmtudag fyrir þings- ályktunartillögu um nýja áætlun um alþjóðlega þróunarsamvinnu fyrir tímabilið 2011 til ársins 2014. Í áætl- uninni er einnig kveðið á um að Ís- land eigi á næstu 10 árum að skipa sér meðal þeirra þjóða sem verja 0,7 prósentum af vergri landsframleiðslu til þróunarmála. Eins og staðan er í dag verja Íslendingar 0,19 prósentum af vergri landsframleiðslu til þróun- armála og því má gera því skóna að miðað við núverandi efnahagsástand verði við ramman reip að draga við ná settum markmiðum á 10 árum. Markmiðið að verja 0,7 prósent- um af landsframleiðslu er ekki nýtt af nálinni, en það markmið má rekja til skýrslu Pearson-nefndarinnar svo- kölluðu sem lögð var fyrir allsherjar- þing Sameinuðu þjóðanna árið 1970. Það stefnumið var fest í lög um þró- unarsamvinnu á Alþingi árið 1971, en þess má reyndar geta að á þeim tíma þáði Ísland í raun þróunaraðstoð og ef til vill ekki í stakk búið til að hækka framlög svo umtalsvert. Árið 1985 voru sett lög um að þróunaraðstoð Ís- lands myndi ná 0,7 prósenta markinu á sjö árum, eða fyrir árið 1992. Á þeim sjö árum hækkaði framlag Íslands úr 0,05 prósentum í 0,12 prósent og ljóst að sú áætlun gekk ekki eftir. Í áætluninni sem Össur mælti með á fimmtudag er gert ráð fyrir að Ísland fylgi tímasettri áætlun um að hækka framlag til þróunarmála, fyrst úr 0,19 prósentum í 0,23 prósent að ári liðnu. Þess má geta að aðeins fimm ríki hafa náð markmiði SÞ um framlag til þró- unarmála, þar á meðal eru Norður- löndin; Noregur, Danmörk og Svíþjóð. Ekki náðist í Össur Skarphéðinsson til að útskýra hvernig Ísland megi í þetta skiptið ná 0,7 prósenta markmiðinu sem elst hefur verið við í 40 ár. Þings- ályktunartillöguna má sjá í heild sinni á vef utanríkisráðuneytisins. bjorn@dv.is Össur Skarphéðinsson mælti fyrir þingsályktunartillögu um þróunarmál: Meiru eytt í þróunarmál Össur Skarphéðinsson Ísland hefur stefnt að því að eyða 0,7 prósentum af vergri landsframleiðslu til þróunarmála síðan árið 1971. Brotist inn í verslun Tvö innbrot voru framin aðfara- nótt sunnudags á höfuðborgar- svæðinu, annars vegar í Garðabæ þar sem brotist var inn í verslun og tækjabúnaði stolið, og hins vegar í verslun í Grafarvogi en ekki er enn ljóst hverju var stolið þar. Fjórir voru handteknir vegna ölvunar við akstur. Í einu tilvikinu hafði ökumaður ekið bifreið sinni á aðra bifreið og eru báðar eitt- hvað skemmdar. Einn var undir áhrifum fíkniefna við akstur. Sjö- tíu verkefni komu inn á borð lög- reglu um nóttina frá miðnætti. Vopnað uppgjör: Axarárás í fíkni- efnauppgjöri Fjórir menn voru handteknir á Sel- fossi á laugardag vegna líkamsárásar. Þar var ráðist á mann með öxi en kalla þurfti sérsveit ríkislögreglustjóra út sem náði að handtaka mennina fjóra. Lögreglan hefur sleppt öllum fjórum mönnunum sem handteknir voru. Málið er upplýst og fyrir liggur að ástæða árásarinnar var uppgjör þess sem beitti öxinni og hins sem varð fyrir henni. Næst tekur við vinna við úrvinnslu gagna svo ákæruvald geti tekið afstöðu um framgang máls- ins. Þess má geta að lögreglan á Sel- fossi naut aðstoðar frá sérsveit og fjar- skiptamiðstöð ríkislögreglustjóra og lögreglustjórans á höfuðborgarsvæð- inu í þessu máli og þegar mest var voru um tólf lögreglumenn samtímis að sinna þessu verkefni.     Lögreglunni á Selfossi barst til- kynning frá tveimur mönnum á laug- ardag dag sem höfðu verið á gangi skammt frá N1 á Selfossi. Pallbifreið, sem í voru fjórir menn, var ekið að þeim. Mennirnir fóru út úr bílnum en einn þeirra var vopnaður öxi. Hann réðst að öðrum manninum og sló til hans með öxinni. Árásarþolanum tókst að víkja sér undan fyrsta og öðru högginu en ár- sármanninum tókst að koma þremur lausum höggum í manninn sem féll við það í jörðina. „Áverkar hans voru minniháttar,“ segir varðstjóri lög- reglunnar á Selfossi í samtali við DV. „Þeim var náttúrulega brugðið,“ segir varðstjórinn um árásarþolana. Mennirnir fjórir voru handteknir innan fjögurra klukkustunda en lögreglan á Selfossi fékk aðstoð frá sérsveit ríkislögreglustjórans. Tveir fundust á Eyrarbakka en hinir tveir á Selfossi. Árásarmennirnir og sá sem var ráðist á þekktust en talið er að árásin tengist fíkniefnaviðskiptum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.