Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2011, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2011, Blaðsíða 8
8 | Fréttir 21. febrúar 2011 Mánudagur Ingibjörg og Jón Ásgeir segja félagið ekki til sölu: 365 stendur í skilum Fjölmiðlafyrirtækið 365, sem er að mestu í eigu Ingibjargar Pálma- dóttur athafnakonu, stendur í skil- um við helsta lánardrottinn sinn Landsbanka Íslands, samkvæmt heimildum DV. Heimildir DV herma að á meðan Landsbankinn fái greitt af skuldum 365 sé bank- inn ánægður með viðskiptasam- band sitt við fjölmiðlafyrirtækið og muni ekki hlutast til um að það verði selt. Ef til stæði að selja 365 þyrftu eigendur fjölmiðlafyrirtækisins því heldur ekki að hafa Landsbankann með í ráðum þrátt fyrir að skuldir félagsins við bankann hafi numið að minnsta kosti tæpum fimm milljörðum króna í lok árs 2009. Heildarskuldir 365 námu þá 7,5 milljörðum króna. Eigendur 365 gætu því selt félagið að bankanum forspurðum ef svo bæri undir. Orðrómur hefur verið um að til standi að selja félagið. Bæði Ingi- björg Pálmadóttir og eiginmaður hennar og fyrrverandi aðaleigandi 365, Jón Ásgeir Jóhannesson, segja hins vegar aðspurð að ekki standi til að selja félagið. Í svari sínu við fyrirspurn DV um hvort 365 sé til sölu segir Ingibjörg: „Ég get upp- lýst þig um þessi mál, þar sem ég er eigandi að rúmlega 90% hlutafjár, að svo er ekki.“ Eins og er bendir því ekkert til að fjölmiðlafyrirtækið 365 verði selt á næstunni. ingi@dv.is Rekstrarfélag Bókabúðar Máls og menningar var komið með neikvæða eiginfjárstöðu í árslok 2009 samkvæmt ársreikningi félagsins fyrir það ár. Nei- kvæð eiginfjárstaða þýðir í raun að fé- lag sé tæknilega gjaldþrota fari það ekki í fjárhagslega endurskipulagn- ingu eða auki hlutafé sitt með ein- hverjum hætti þar sem skuldir félags- ins eru þá orðnar meiri en eignir þess. Í lok árs 2009 voru skuldir félagsins um- fram eignir tæplega 10 milljónir króna. Greint var frá því í Fréttablaðinu á föstudaginn að starfsmönnum bóka- búðarinnar hefði verið tilkynnt um það á fimmtudaginn að til stæði að taka félagið til gjaldþrotaskipta. Samningar náðust ekki við bankann Samkvæmt ársreikningi rekstrarfé- lagsins, Bókabúðar Máls og menning- ar ehf., hefur gjaldþrot félagsins verið yfirvofandi að öllu óbreyttu frá því í lok árs í hittiðfyrra. Eigandi eignarhaldsfé- lagsins er fasteignafélagið Kaupangur, eigandi fasteignarinnar að Laugavegi 18 sem hýst hefur bókaverslun félags- ins frá því haustið 2009. Þar áður rak Eymundsson bókaverslun í húsnæð- inu en eftir gjaldþrot þess félags, og yf- irtöku Arion banka á því, náðust ekki samningar um áframhaldandi leigu á húsnæðinu á milli bankans og Kaup- angs. Fasteignafélagið ákvað því að opna sjálft bókabúð í húsinu en Ey- mundsson flutti sig um set í gamla SPRON-húsið á Skólavörðustíg sem er steinsnar frá Bókabúð Máls og menn- ingar. Bókabúð hefur verið rekin í hús- næðinu, sem var byggt sérstaklega til að hýsa slíka verslun, síðastliðin fimm- tíu ár, allt frá árinu 1961. Tap á rekstrinum 2009 Rúmlega 10 milljóna króna tap varð af starfsemi Bókabúðar Máls og menn- ingar ehf. árið 2009. Heildarskuldir félagsins á þessum tíma voru tæplega 124 milljónir króna og heildareignir voru rúmar 114 milljónir króna. Þrátt fyrir þetta var staða félagsins ekki það slæm í árslok 2009 að það hefði ekki getað rétt úr kútnum á árinu 2009. Af því varð þó ekki þó félagið væri í þeirri heppilegu stöðu að leigja húsnæði af móðurfélagi sínu, sem væntanlega hefur ekki falið í sér eins harða leigu- skilmála og ef félagið hefði leigt af ein- hverjum öðrum, og þurfti því heldur ekki að burðast sjálft með háar afborg- anir af fasteignaskuldum. Eigendur félagsins, Bjarki Júlíusson og Jóhannes Sigurðsson, hafa reyndar kvartað undan því í fjölmiðlum að erf- itt sé að reka bókabúð í samkeppni við bókabúðir sem reknar eru af bönkum um þessar mundir, líkt og Eymunds- son. Fékk 500 milljóna lán frá Arion banka Góð samkeppnisstaða Eymundsson sést til dæmis á því að móðurfélag bókaverslananna, Penninn á Íslandi ehf., fékk 500 milljóna króna lán frá Arion banka í fyrra. Lánið var meðal annars til að greiða upp skuld vegna kaupa á þrotabúi gamla rekstrarfé- lags Pennans sem varð gjaldþrota í kjölfar hrunsins 2008. Kaup nýja rekstrarfélagsins á kröfunum í þrota- bú gamla rekstrarfélagsins námu rúmum 650 milljónum króna. Kaup- in á kröfunum áttu sér stað svo nýja rekstrarfélagið ætti auðveldara með að viðhalda viðskiptasambandi við lánardrottna gamla rekstrarfélagsins. Í ársreikningi félagsins kemur fram að rúmar 550 milljónir króna af þess- um kröfum á hendur gamla rekstr- arfélaginu hafi verið færðar niður vegna óvissu um að hægt verði að innheimta þær. Af þessu sést að nýja rekstrarfé- lagið nýtur þess vitanlega að vera í eigu Arion banka sökum þess að það þjónar hagsmunum bankans að búa til lífvænlegt fyrirtæki sem hægt verð- ur að selja fyrir sem hæst verð þegar þar að kemur. Bankinn getur leyft sér að leggja félaginu til fé sem síðan er afskrifað vegna þess að bankinn tel- ur slíkt þjóna langtímahagsmunum sínum. Fyrirgreiðsla frá Arion banka til félagsins getur vitanlega þjónað þessu markmiði. Einnig ber að geta þess að húsnæðið sem bókabúð Ey- mundsson á Skólavörðustíg 11 er í er eign fasteignafélagsins Reita en Ar- ion banki er stærsti eigandi þess fé- lags með nærri 43 prósenta eignar- hlut í gegnum eignarhaldsfélag sitt Eignabjarg. Þrátt fyrir umrætt tap vegna nið- urfærslunnar á kröfunum á hendur gamla rekstrarfélaginu og heildartap á árinu 2009 upp á nærri 700 millj- ónir króna nemur eigið fé félagsins nærri 470 milljónum króna, eignir þess eru verðmetnar á um 2,4 millj- arða og eiginfjárhlutfall félagsins er 20 prósent. Eymundsson stendur því afar vel þrátt fyrir himinhátt tap árið 2009. n Bókabúðin hafði aðeins verið rekin í nokkra mánuði í árslok 2009 n Sam- keppni verslunarinnar við Eymundsson endaði ekki vel n Ársreikningur Ey- mundsson sýnir að það kemur sér vel fyrir bókaverslanir að vera í eigu banka BÓKABÚÐIN VAR MEÐ NEIKVÆTT EIGIÐ FÉ 2009 Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is Kvarta undan samkeppni við banka Eigendur Kaupangs, móðurfélags Bókabúðar Máls og menningar, hafa kvartað undan því að þurfa að eiga í samkeppni við bókaverslanir sem eru í eigu banka. Bjarki Júlíusson er annar eigandi Kaupangs. 50 ára saga Bókabúð hefur verið rekin í húsinu á Laugavegi 18 frá því árið 1961. Þessi saga gæti verið á enda í kjölfar gjaldþrots rekstrarfélagsins sem rekið hefur bókabúð þar frá haustinu 2009. Ekki til sölu Ingibjörg og Jón Ásgeir segja að fjölmiðlafyrirtækið 365 sé ekki til sölu. Félagið stendur í skilum samkvæmt heimildum DV. Háhyrningar í Grundarfirði Háhyrningarnir sem heimsóttu höfnina á Grundarfirði í janúar snéru aftur í fjörðinn um helgina að sögn heimamanna. Háhyrningarnir héldu fyrst og fremst til í og við höfn- ina í bænum. Háhyrningarnir hurfu í tvo daga í síðustu viku, en eru nú snúnir aftur við góðar undirtektir heimamanna. Talið er að þeir séu að sækja í síldina í Grundarfirði en heimamenn segja nóg um hana í firðinum um þessar mundir. Leiðrétting Fyrrverandi starfsmönnum dag- blaðsins 24 stunda í Hádegis- móum brá í brún þegar þeir lásu nærmynd af Birni Inga Hrafns- syni, útgefanda Pressunnar og eiganda Caramba, í DV á föstu- dag. Þar var því haldið fram að hann hafi um tíma verið ritstjóri þess sáluga blaðs. Rétt er að halda því til haga að um rang- hermi var að ræða, Björn Ingi var aldrei ritstjóri blaðsins. Er beðist velvirðingar á rangherminu. Segir skipið hafa verið selt: „Ekki lengur á okkar vegum“ Togarinn Merike frá Tallinn í Eist- landi sökk um 45 sjómílur suðaustur af Hjörleifshöfða á föstudag þegar verið var að draga hann til Dan- merkur en þar átti að rífa hann niður í brotajárn. Merike var áður í eigu fyrirtækisins Reyktals ehf. en hafði verið seldur til fyrirtækisins Fornes í Danmörku til niðurrifs. „Ég veit ekki hvað gerðist því skipið var ekki lengur á okkar veg- um. Þetta var á vegum kaupandans en þeir voru með dráttarbát sem kom frá Danmörku,“ segir Óttar Yngvason framkvæmdastjóri Reyk- tals. Hann segir skipið hafa verið mjög öflugt svo honum finnst skrýt- ið að það skyldi sökkva. „Það getur þó allt gerst þegar um gamalt skip er að ræða,“ segir hann. Aðspurður um hættu á mengun frá skipinu segir hann skipið hafa verið alveg tómt. „Það var búið að tæma allt úr því og engin olía var í því.“ Samkvæmt upplýsingum Land- helgisgæslunnar fór togarinn á hlið- ina og sökk á mjög skömmum tíma en mikið dýpi er á þessu svæði eða líklega um 1.800 metrar. Merike hafði verið í Hafnarfjarð- arhöfn í rúmlega fjögur ár, hann var síðast gerður út á rækjuveiðar. Eins og fram kom á DV.is á laugardag munu sjópróf vegna slyssins að öll- um líkindum fara fram í Danmörku þegar dráttarbáturinn Eurosund, sem dró skipið, kemur þangað.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.