Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2011, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2011, Blaðsíða 20
127 Hours fjallar um ævintýramann- inn Aron Ralston sem heldur í ævin- týraleiðangur um gljúfur Utah árið 2003. Hann fellur hins vegar niður gjótu og festir höndina undir stórum grjóthnullungi. Þar situr hann fastur, með nærri því engar birgðir af mat og vatni í fimm sólarhringa. Mikið mæðir á James Franco, sem leikur langstærsta hlutverkið í mynd- inni. Óhætt er að segja að hann eigi al- gjöran stjörnuleik, þar sem hann situr fastur í gjótunni og reynir hvað hann getur til þess að losa sig. Leikur Fran- cos er svo sannfærandi að áhorfand- inn engist um þegar hann fylgist með nærri því vonlausri baráttu hans fyr- ir eigin lífi. Hann kveður fjölskylduna með því að taka upp kveðju til þeirra á myndbandsupptökuvél og rispar svo sitt eigið dánardægur á klettavegginn. Jafnvel þó hann virðist sannfærður um að hann muni deyja, þá er lífsvilj- inn svo mikill að hann gerir hið ótrú- lega, þegar hann sargar af sér höndina með sljóum vasahníf. Klippingin í myndinni er til fyrir- myndar og jafnvel þó myndin gerist nærri því öll ofan í gjótu, þá nær hún á sinn hátt að vera mögnuð. Tónlist- in og kvikmyndatakan eiga svo vel við myndina. Þær lýsa lífsglöðum og hraustum manni í upphafi, en ná einnig að fanga svo vel hvernig hann missir allan þrótt og nærri því alla von. Frábærlega raunsönn og frumleg mynd sem á allar óskarsverðlaunatil- nefningarnar fyllilega skildar. 20 | Fókus 21. febrúar 2011 Mánudagur Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands var flutt í Sjónvarpinu miðvikudaginn 16. febrúar: Fékk stórkostlegar viðtökur „Flutningurinn fékk stórkostlegar viðtökur,“ segir tónskáldið Karólína Eiríksdóttir um verkið Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands sem hún gerði í samvinnu við Libiu Castro og Ólaf Ólafsson. Tónlistina samdi Karólína árið 2007 og fyrir hana hlaut hún til- nefningu til Íslensku tónlistarverð- launanna árið 2008. Verkið var flutt af kammerkórnum Hymnodiu undir stjórn Eyþórs Inga Jónssonar ásamt einsöngvurunum Ingibjörgu Guð- jónsdóttur sópran og Bergþóri Páls- syni baritón. Karólína segir reynslu sína af því að vinna tónverk upp úr jafn þurr- um lagatexta og stjórnarskránni hafa verið krefjandi. „Ég er vön að vinna með innblásinn texta skálda en ekki þurran texta eins og þann sem finna má í stjórnarskránni um skipun hæstaréttardómara og annað slíkt. Hins vegar er það visst frelsi að vinna með slíkan texta því hann gerir enga kröfu og ég hugsa að enginn hafi sér- stakar væntingar um hvaða tilfinn- ingum þessi texti á að miðla.“ Karólína segist halda að gjörning- urinn sem sjónvarpið sýndi á mið- vikudaginn hafi fengið stórkostlegar viðtökur. „Ég varð aðeins vör við að verkinu væri vel tekið og hafði gam- an af því að sjá það í sjónvarpinu.“ Sprell og fjör D V leit inn á æfingu á far- sanum Nei, ráðherra! sem verður frumsýndur þann 25. febrúar. Uppselt er á yfir 20 sýningar á verkinu nú þegar og greinilegt að landinn er til í að létta lund sína í leikhúsinu en áhuga- samir geta skellt sér á forsýningar á þriðjudag og miðvikudag í Borgar- leikhúsinu. Með hlutverk í sýning- unni fara Guðjón Davíð Karlsson, Lára Jóhanna Jónsdóttir, Sigurður Sigurjónsson, Hilmar Guðjónsson, Bergur Þór Ingólfsson, Unnur Ösp Stefánsdóttir, Rúnar Freyr Gíslason og Elma Lísa Gunnarsdóttir. Nei, ráðherra! kemur úr smiðju Rays Cooneys og hlaut hin eftirsóttu Olivier-verðlaun sem besti gaman- leikurinn í Bretlandi. Það er Gísli Rúnar Jónsson sem hefur heimfært verkið á íslensku. Ný bók frá Patterson Ný bók er komin út í vinsælum flokki spennusagna James Patter- son. Söguþráðurinn er á þá leið að brennuvargur kveikir í húsum auðmanna í San Francisco og brennir þá inni. Lögreglukonan Lindsay Boxer og félagi hennar, Rich Conklin, leita hans en rannsaka um leið hvarf einkason- ar ríkisstjórans. Vísbending leiðir til handtöku og játningar og málið kemur inn á borð saksóknarans Yuki Castellano, vinkonu Lindsay og fé- laga í Kvennamorðklúbbnum – en réttarhöldin taka óvænta stefnu. Á meðan brenna eldar í auðmanna- hverfunum og færast sífellt nær. Magnea J. Matthíasdóttir þýddi. King of Limbs komin á netið Nú geta aðdáendur Radiohead nálg- ast nýjustu plötu þeirra, The King of Limbs, og hlaðið niður af vefsíðu þeirra, theking- oflimbs.com fyrir rúmar 1.000 krón- ur. Þetta fyrir- komulag er ólíkt fyrri plötunni, In Rainbows, en þá leyfðu þeir aðdáendum sínum að borga hvað sem þeir vildu ef þeir vildu þá borga eitthvað fyrir hana. Sú ráðagerð hefur greinilega ekki gengið upp. Einnig er hægt að kaupa vinylplötu í fallega hönnuðu plötu- umslagi fyrir tæpar 5.000 krónur (án flutningsgjalda og skatta). Í umslag- inu eru tvær vinylplötur, geisladiskur og margar síður af myndlist og öðru efni. Þrír litir í Háskólabíói Á árunum 1993–1994 gerði pólski leikstjórinn Krzysztof Kieslowski þrjár kvikmyndir sem eru þekktar sem Litaþríleik- urinn, eða Þrír litir: Blár, Þrír litir: Hvítur og Þrír litir: Rauður. Myndirnar verða sýndar saman í Háskólabíó í vik- unni. Myndirnar þrjár kallast á við franska fánann og liti hans sem tákna frelsi (blár), jafnrétti (hvítur), og bræðralag. Hver mynd segir sjálf- stæða sögu, og eru tengslin þeirra á milli fyrst og fremst þematengd þar sem mismunandi leikarar koma fram í hverri mynd. Tengslin eru engu að síður sterk og saman mynda þau margslungna og magnaða heildarmynd. Þurr texti Karólína er vön að vinna með innblásinn texta skálda og vinnan við stjórnar- skrána var því töluvert frávik. Libia og Ólafur Verkið Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands er eftir Libiu Castro og Ólaf Ólafsson. í leikhúsinu Sigurður SigurjónssonFer á kostum í sýningunni! Vandræðaleg nekt Rúnar Freyr Gíslason kemur nakinn fram. Leikarar Nei, ráðherra! er hressilegt leikrit. Gengur á ýmsu Rúnar Freyr og Unnur Ösp ræða málin. Bíómynd Valgeir Örn Ragnarsson 127 hours IMDb 8,1 RottenTomatoes 93% Metacritic 82 Leikstjóri: Danny Boyle. Handrit: Danny Boyle, Simon Beaufoy. Leikarar: James Franco, Kate Mara, Amber Tamblyn, Treat Williams. 94 mínútur Raunsönn hetjusaga James Franco Á algjöran stjörnuleik.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.